Morgunblaðið - 11.11.2011, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011
Hávær umræða hef-
ur verið um endurreisn
Þorláksbúðar í Skál-
holti. Áhugi á Skál-
holtsstað er okkur
heimamönnum
ánægjuefni en margt í
umræðunni nú ein-
kennist af ómálefna-
legum pirringi í garð
formanns Þorláksbúð-
arfélagsins og ákveðnu
skilningsleysi á sögu Skálholts og
umgjörð staðarins.
Eftir niðurlægingarskeið var
ráðist í endurreisn Skálholts-
staðar af miklum stórhug á sjötta
áratug 20. aldar. Kirkjan sem þá
reis í stað hinnar lágreistu timb-
urkirkju er reisuleg bygging og
hæfir stærð staðarins í sögu og
menningarlífi þjóðarinnar. En það
var ekki bara að nýja kirkjan væri
stór, verklag allt við endurreisnina
var stórkarlalegt og framkvæmd-
irnar svo sannarlega barn síns
tíma.
Gamalt skran og nýr
staður
Öllu var þá umbylt á
staðnum og fyrir þeim
sem var þar kunnugur
fyrir 1956 var staðurinn
óþekkjanlegur á eftir.
Nýtt landslag var mótað
með vegum, hæðum og
byggingareitum. Um
aldir og líklegast allt frá
árinu 1056 hafði það fyr-
irkomulag ríkt í Skál-
holti að kirkjan stóð þar
hæst í landinu en önnur staðarhús
mynduðu þorp neðan og sunnan
kirkjunnar. Gamla bænum og öllu
sem minnti á fyrirkomulag aldanna
var rutt úr vegi með stórvirkum
vinnuvélum.
Nýr staður var byggður upp norð-
an og að hluta til ofan við kirkjuna. Úr
aldagömlum sögulegum kirkjugarði
var gerð slétt flöt og fjöldi minja,
minningarmarka og mannvirkja sem
þar voru, kasaðar sem hvert annað
skran. Sumt af því þótti ekki nógu
gamalt, annað var talið að passaði
ekki staðnum og virðingu hans.
Vörubílsfarmar af jarðvegi voru
teknir austur undir Þorlákssæti og
sturtað niður við kirkjuna. Vegur var
lagður yfir gömlu klappirnar þar sem
Tungnamenn höfðu í sagnagleði sinni
bent ferðalöngum á blóðlit á steini
sem tilheyrði aftöku Jóns Arasonar.
Hjátrúin, þjóðsögurnar, forn ásýnd
staðarins, allt var þetta afmáð. Gaml-
ar heimtraðir sem vegna fornminja-
gildis fengu að vera óáreittar urðu
samt svo útundan í öllu skipulagi að
njólinn einn vildi með þær hafa á mín-
um barnsárum í Skálholtshlöðum.
Sá sem hér ritar hefur í skrásetn-
ingu þjóðsagna gengið um Skálholts-
hlöð með gömlum Tungnamönnum
sem mundu þessa tíma og kunnu að
lýsa Skálholti eins og staðurinn var
fyrir umbreytinguna miklu.
Færum ekki Þorláksbúð
Einu tóftirnar sem einhver sómi
var sýndur var tóft hinnar gömlu Þor-
láksbúðar. Þær tóftir fengu að standa
og hafa einar af því sem ofanjarðar
sést borið þess merki að hér er staður
sem á sér langa sögu.
Undanfarin ár hafa staðarins menn
og áhugamenn um Skálholt unnið að
endurgerð Þorláksbúðar og þá kemur
upp sú umræða að þetta lágreista
torfhús muni skyggja á Skálholts-
kirkju. Dómkirkjan sjálf ber ekki með
sér að vera hrokafull eða kaldlynd og
það hæfir ekki að þeir sem þannig
tala geri sig að talsmönnum hennar.
Kirkja þessi er hluti af sögu og
hluti af stað sem verðskuldar að við
leggjum rækt við. Formæður Skál-
holtskirkju undu vel við hlið Þorláks-
búðar og voru þó margar miklum
mun stærri sjálfar, háreistar timb-
urbyggingar og gerólíkar Þorláks-
búð. Það er jafn fráleitt að færa búð-
ina eins og ef einhver léti sér til hugar
koma að færa kirkjuna. Sögu Skál-
holts er sómi sýndur með endurbygg-
ingu Þorláksbúðar og þeir sem ekki
sjá kirkjuna fyrir búðinni eru spaugi-
legir menn.
Framlag húsafriðunarnefndar til
Skálholts nú er sérkennilegt þar sem
engri byggingu er hætta búin af því
sem þar fer fram. Víðsvegar um land
væri frekar þörf á skyndifriðun. Það
að reft sé yfir búðina er afturkræf
framkvæmd og vilji svo verkast geta
komandi kynslóðir sett jarðýtu á Þor-
láksbúð líkt og gert hefur verið við
fjölmargar sögulegar minjar í land-
inu. En varla verður það gert í nafni
húsafriðunar.
Ómálefnalegur pirringur
Miklu ræður um þessa umræðu að
inn í hana blandast pirringur gagn-
vart starfandi stjórnmálamanni sem
hefur valist til ákveðinnar forystu
fyrir þessu verkefni. Árni Johnsen
má fullvel njóta sannmælis fyrir gott
framtak í Skálholti og uppbygging
staðarins á ekki að líða fyrir pólitísk-
an pirring.
Húsafriðun eða annarlegur pirringur
Eftir Bjarna
Harðarson » Tóftir Þorláksbúðar
eru einar ofanjarðar
af minjum um sögu
staðarins. Sjálfsagt er
að refta yfir þær eins og
gert var. Slíkar minjar
færa menn ekki.
Bjarni Harðarson
Höfundur er bóksali og áhugamaður
um húsafriðun.
Á Fáskrúðsfirði var
byggt þjónustuhús í
tólf metra fjarlægð frá
Kolfreyjustaðarkirkju.
Þetta hús er jafnstórt
kirkjunni að grunnfleti.
Kolfreyjustaðarkirkja
er friðað hús. Húsafrið-
unarnefnd stóð ekki
gegn byggingu hússins
né staðsetningu. Arki-
tekt og umsjón með
byggingu hafði Hjörleifur Stefánsson.
Á Vopnafirði var byggt safn-
aðarheimili við hlið Vopnafjarð-
arkirkju, stærra en kirkjan og henni
tengt með göngum. Vopnafjarð-
arkirkja er friðað hús. Húsafrið-
unarnefnd stóð ekki
gegn byggingu hússins
né staðsetningu. Arki-
tekt og umsjón með
byggingu hafði Hjörleif-
ur Stefánsson.
Engin hús á Skál-
holtsstað eru friðuð og
eru því utan við lögsögu
Húsafriðunarnefndar.
Nú hefur nefndin
skyndifriðað Skálholts-
kirkju og Skálholtsskóla
til að geta stöðvað bygg-
ingaframkvæmdir á
Þorláksbúð sem er mjög lítið hús í
samanburði við stærð kirkjunnar og
er staðsett í tuttugu metra fjarlægð.
Formaður Húsafriðunarnefndar er
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt.
Skiptir máli fyrir afstöðu Húsafrið-
unarnefndar, ef Hjörleifur Stef-
ánsson er arkitekt og hefur umsjón
með byggingu húsa? Hlutverk Húsa-
friðunarnefndar er að friða hús.
Hvergi í lögum er kveðið á um heim-
ild til húsfriðunar í þeim tilgangi að
banna byggingu húsa. Er Húsafrið-
unarnefnd komin út fyrir valdsvið sitt
í hagsmunagæslu sinni?
Er þetta trúverðugt?
Eftir Gunnlaug
Stefánsson
Gunnlaugur Stefánsson
» Skiptir máli fyrir af-
stöðu Húsafriðunar-
nefndar, ef Hjörleifur
Stefánsson er arkitekt
og hefur umsjón með
byggingu húsa?
Höfundur er sóknarprestur
í Heydölum.
David Hume (1711-
1776) er einn af merk-
ustu heimspekingum
síðari alda, kunnur fyrir
þekkingarfræði sína,
trúarheimspeki og sið-
fræði. Hann er einn af
frumkvöðlum fé-
lagsvísindanna og í bók
hans „Of the first prin-
ciples of government“
kemst hann svo að orði:
„Ekkert er athygl-
isverðara fyrir þá sem stunda lýð-
rannsóknir á heimspekilegum grunni
en hvernig almenningur sættir sig við
að kjósa lítinn hóp til þess að stjórna
mörgum.“ Þetta er fulltrúalýðræðið í
hnotskurn.
Vandamálið við lýðræði byrjar
þegar kjörnir fulltrúar setjast í stóla
sína, þá gleyma þeir kosningalof-
orðum sínum fljótt. Atburðir síðustu
ára virðast benda til þess að fulltrúa-
lýðræðið eins og við útfærum það á
Vesturlöndum sé ekki lengur eins
„snilldarleg lausn“ og við viljum
halda.
Þróun fulltrúalýðræðis var eitt af
stórkostlegustu afrekum mannsins á
síðustu öld, en án efa er það mik-
ilvægasta áskorun 21. aldarinnar hve-
nig við þróum fulltrúalýðræðið áfram.
Við verðum að finna nýjar leiðir til
þess að kveikja áhuga almennings til
stjórnmálaþátttöku. þátttaka í stjórn-
málum verður að gera eins auðvelda
fyrir almenning og mögulegt er og
reyna að finna nýjar tæknilegar leiðir
til þess að fá sem flesta til að taka
þátt í lýðræðisferlinu.
Traust almennings á stjórnvöldum
hefur minnkað jafnt og
þétt síðustu áratugi. Á
Íslandi er það nú í sögu-
legu lágmarki en 90%
kjósenda treysta ekki
stjórnmálamönnum.
Gerry Stoker, breskur
prófessor í stjórn-
málafræði segir það
bestu leiðina að aukinni
þjóðfélagssátt, betri
stjórnmálaumræðu og
réttlátara samfélagi að
auka vægi beins lýð-
ræðis og gera lýðræð-
isþátttöku auðveldari.
Almenningi finnst stjórnmálamenn
gæta hagsmuna fjármálafyrirtækja
betur en kjósenda og er kvartað yfir
því að stjórnmálamenn séu ekki í
tengslum við almenning og verður því
að endurvekja traust almennings á
stjórnmálum. Margt veldur þessari
óánægju, t.d. ógagnsæi í ákvarð-
anatöku, lélegur árangur, stanslaus
kosningarbarátta og óvægnar árásir
á menn og málefni. Ekki er hægt að
halda núverandi kerfi óbreyttu og
auðvelda verður leiðina og stytta fyr-
ir þá sem vilja taka þátt í hinu póli-
tíska ferli.
Við verðum að stokka upp kerfið og
finna nýjar lausnir og opna verður hið
lýðræðislega ferli. Þjóðfélag okkar
þarfnast þátttöku almennings vegna
mikilvægra málefna sem eru að hrjá
þjóðfélagið í dag t.d. efnahagslífið, fé-
lagslega kerfið og umhverfið.
Til þess að leysa þetta sígilda
vandamál má vopna alla kosn-
ingabæra landsmenn með spjaldtölv-
um. Mætti virkja 77 almennings-
bókasöfn landsins sem
samskiptamiðstöðvar með spjaldtölv-
urnar og skapa nýja atvinnugrein við
kennslu á upplýsingatækni og upp-
lýsingalæsi. Ávinningurinn með því
að virkja alla kosningabæra lands-
menn í þjóðfélagsumræðuna er
margvíslegur. Þetta auðveldar raf-
rænar kosningar t.d. í félög, sveit-
arfélög, stjórnir lífeyrissjóða og
verkalýðsfélög og síðast en ekki síst
þjóðaratkvæðagreiðslur. Hafa mætti
þjóðaratkvæðagreiðslur einu sinni í
mánuði. Hægt er að spyrja almenn-
ing um vilja hans og Alþingi gæti síð-
an útfært niðurstöðuna. Stórar
ákvarðanir eins og staðsetning rík-
isspítala, flugvalla og önnur stórmál
sem hingað til hafa verið óútkljáð í
samfélaginu ættu að fara í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. Íslendingar hafa
nú þegar komið sér upp rafrænum
skilríkjum sem tryggir persónu-
vernd. Rafræn skilríki bjóða upp á
mikið hagræði sem einfaldar aðgengi
og eykur öryggi í samskiptum.
Hagvöxtur framtíðarinnar byggist
á hátækni, hraða, aðgangi að upplýs-
ingum og hæfileikum til að nýta þær.
Frí þráðlaus nettenging og há-
hraðanet verður að vera í þéttbýlis-
kjörnum og á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er framtíðin og Íslendingar
með eitt elsta löggjafaþing veraldar
eiga að vera brautryðjendur í þróun
beins lýðræðis í heiminum. Allt sem
til þarf er hugdjörf framtíðarsýn.
Beint lýðræði – Spjaldtölvur
Eftir Guðmund F.
Jónsson » Framtíðarsýn um
upplýsingasam-
félagið og beint lýðræði.
Guðmundur Franklín
Jónsson
Höfundur er viðskiptafræðingur og
formaður Hægri grænna, flokks
fólksins.
V i n n i n g a s k r á
28. útdráttur 10. nóvember 2011
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 0 5 9 8
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
4 1 0 7 5 5 9 2 4 6 5 6 2 1 7 6 0 5 2
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
19530 23975 44128 63119 65164 68829
22991 28547 58281 64380 65894 70670
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
8 6 6 3 6 4 2 2 1 7 1 3 0 1 2 0 3 8 0 0 6 5 2 9 2 3 6 1 1 9 4 7 0 5 7 7
9 4 0 6 6 0 0 2 3 8 0 9 3 1 1 4 6 3 8 5 4 4 5 4 1 9 3 6 1 7 6 2 7 1 2 8 1
1 0 0 8 9 2 8 1 2 4 3 2 2 3 2 7 1 5 4 1 4 0 6 5 4 5 7 5 6 2 7 5 3 7 1 7 4 8
1 3 2 7 9 4 1 2 2 5 2 4 5 3 4 0 9 0 4 2 4 4 6 5 5 4 0 6 6 4 2 1 2 7 2 1 2 5
2 7 4 2 9 9 6 6 2 5 4 5 2 3 4 3 0 5 4 3 5 5 4 5 6 2 7 2 6 6 2 1 4 7 4 9 9 0
3 2 9 0 1 0 0 5 6 2 6 7 9 9 3 4 5 9 2 4 5 9 3 9 5 6 7 5 5 6 7 0 3 6 7 5 3 3 3
4 3 1 2 1 1 0 1 9 2 8 3 1 6 3 4 6 1 6 5 0 9 6 7 5 6 8 7 6 6 7 1 5 4 7 5 6 4 5
4 3 6 8 1 5 7 1 3 2 8 9 1 3 3 5 7 7 8 5 1 1 7 9 5 6 9 8 4 6 7 3 4 8 7 6 5 2 3
4 6 4 9 1 6 4 6 9 2 9 2 0 3 3 7 2 5 9 5 2 2 1 0 5 9 6 5 3 6 8 3 2 1 7 9 8 4 4
5 8 3 4 1 8 6 3 2 3 0 0 9 9 3 7 5 7 0 5 2 7 4 4 6 1 1 8 0 6 8 8 9 3 7 9 9 4 4
V i n n i n g u r
Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur)
70 7854 15411 22946 29785 37206 44327 53123 63887 72333
332 7976 15705 23214 29805 37311 44336 53152 63964 72478
685 8430 15771 23749 29807 37601 44381 53222 64422 72697
895 8473 15966 23812 29969 37891 44392 53777 64470 72875
992 9017 16076 23980 30081 37894 44719 53990 64642 73110
1513 9237 16389 24059 30359 38004 44921 54415 64683 73329
2054 9337 16598 24223 31073 38181 45123 54419 64729 73341
2070 9395 16699 24532 31151 38273 45203 55073 65280 73408
2148 9440 17100 24549 31401 38413 45281 55310 65312 73583
2356 9447 17605 24572 31834 38920 45565 55461 65347 74036
2563 9455 17911 24866 31835 39005 45643 55511 65466 74343
2806 9576 18166 24994 31989 39123 45856 55693 65570 74573
2844 9865 18300 25000 32018 39328 46234 56782 65583 74600
3288 10333 18735 25024 32154 39619 46411 57196 65660 74804
3505 10373 18928 25232 32187 39646 46800 57520 66147 74897
4158 10397 18930 25428 32376 39752 47252 57607 66299 74933
4284 10430 18973 25690 32608 39934 47788 57755 66706 75355
4445 10465 19039 25706 32654 40042 47825 58435 66930 75738
4463 10601 19749 26049 32699 40546 47834 58732 67023 76288
4630 10653 19813 26100 32976 40732 47921 58808 67510 76361
4640 10889 19861 26292 33443 40930 48710 59057 68120 76559
5412 11582 19909 26501 33712 41018 49128 59813 68472 76636
5430 11777 20949 26855 33830 41101 49143 60124 68623 76817
5828 11828 21029 26904 34490 41237 49214 60481 69108 76976
6040 12528 21129 27004 34933 41337 49275 60548 69142 77100
6089 12560 21194 27244 35247 41376 49689 60872 69382 77153
6144 12757 21299 27311 35265 41486 49870 60885 69839 77360
6199 12832 21460 27372 35343 41680 50193 60897 69895 77448
6285 12880 21640 27894 35589 41887 50282 60906 70737 78110
6302 13001 22061 28086 35729 42144 50326 61215 70743 78340
6338 13025 22075 28125 35913 42571 50832 61585 70882 78537
6394 13089 22095 28140 35933 42600 50886 61781 71054 78673
6501 13109 22096 28157 36297 42624 51132 62021 71144 78751
6839 13189 22238 28334 36531 42625 51309 62023 71185 78827
7106 13215 22260 28340 36609 42721 51317 62370 71327 78927
7510 13959 22393 28668 36696 43435 51320 62451 71376 78962
7595 14229 22487 28747 36747 43446 52260 62605 71494 79118
7649 14406 22661 28878 36873 43516 52421 62893 71611 79649
7782 14666 22770 29348 36979 43956 52674 62968 71965 79658
7803 15167 22783 29578 37160 44279 52700 63805 71984 79960
Næstu útdrættir fara fram 17. nóv, 24. nóv & 1. des 2011
Heimasíða á Interneti: www.das.is