Morgunblaðið - 11.11.2011, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011
✝ Margrét Jóns-dóttir fæddist
að Gjögri, Árnes-
hreppi í Stranda-
sýslu, 6. apríl
1933. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks 2.
nóvember 2011.
Margrét var
dóttir hjónanna
Jóns Sveinssonar,
f. 30. maí 1895, d.
21. okt. 1967, og Olgu Soffíu
Jakobsdóttur Thorarensen, f.
30. mars 1903, d. 24. febr.
1940. Margrét var áttunda í
röðinni af ellefu börnum Jóns
og Olgu, en þau voru: a) Est-
her, f. 1923, b) Jakob Jóhann,
f. 1924, c) Jakob Jóhann, f.
1926, d) Vigdís, f. 1927, e)
Sveinn Húnfjörð, f. 1928, f)
Ásta, f. 1930, g) Kristófer
Garðar, f. 1931, h) Margrét, f.
1933, i) Þorsteinn, f. 1935, j)
Auðunn, f. 1936, k) Níels, f.
1939. Af systkinunum er
Kristófer Garðar nú einn eft-
irlifandi.
Margrét giftist Einari Haf-
steini Guðmundssyni múr-
arameistara, f. 28. sept. 1923,
d. 26. maí 1985, á árinu 1959.
Þau áttu saman átta börn en
Einar átti tvö börn af fyrra
hjónabandi. Börnin eru: 1)
Hansína Bjarnfríður, f. 29.1.
1957, maki Jón Rafn Högna-
Jens Elí, f. 2000, og Karitas
Halla, f. 2006. 7) Pálmi Ein-
arsson, f. 5.11. 1969, maki
Oddný Anna Björnsdóttir.
Synir Pálma og Oddnýjar eru
Róbert Björn, f. 2006, og
Brynjar Örn, f. 2008. Sonur
Pálma og Guðlaugar Árna-
dóttur er Gísli Jóhann, f. 1990.
Fyrri eiginkona Pálma var
Birgitta Ósk Birgisdóttir. 8)
Olga Soffía Einarsdóttir, f.
19.9. 1973, maki Brynjar
Björn Gunnarsson, dætur
þeirra eru Kamilla Brá, f.
2001, Rakel Lóa, f. 2004, og
Rebekka Sif, f. 2009. Börn
Einars af fyrra hjónabandi eru
1) Þorsteinn Bergmann, f.
1946, maki Esther Gríms-
dóttir. Synir Þorsteins og Sig-
ríðar Vigfúsdóttur eru Vigfús,
f. 1966, og Reynir, f. 1969.
Börn Vigfúsar eru Kristín Sif,
f. 1994, Heimir Steinn, f. 1999,
og Egill Skorri, f. 2004. 2)
Hrefna Sylvía, f. 1947, maki
Gylfi Jóhannesson, börn
þeirra eru Jóhanna Guðný, f.
1976, og Arnar Ingi, f. 1981.
Margrét flutti í Kópavog
1955 og hóf sambúð með Ein-
ari Hafsteini og bjuggu þau
lengst af að Kópavogsbraut
12. Margrét hóf sambúð með
Ólafi Ingvarssyni 1996 og þau
bjuggu saman í þrettán ár.
Síðustu tvö ár bjó Margrét að
Hásæti 7b, Sauðárkróki.
Margrét verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju í dag, 11.
nóvember 2011, og hefst at-
höfnin kl. 15.
son. Sonur Hans-
ínu og Kristins
Jónssonar er Ein-
ar Margeir, f.
1985. Dóttir Ein-
ars Margeirs er
Bríet Katla, f.
2010. 2) Bryndís
Einarsdóttir, f.
29.5. 1958, maki
Vigdís Rasten. 3)
Guðrún Agnes
Einarsdóttir, f.
21.7. 1959, maki Einar Jóns-
son, sonur þeirra er Ketill
Einarsson, f. 1986. 4) Guð-
mundur Einarsson, f. 3.4.
1960, d. 25.12. 2010, maki
Fríða Björg Einarsdóttir, börn
þeirra eru Þórhildur Bryndís,
f. 1999, og Einar Hafsteinn, f.
2007. Dóttir Guðmundar og
Bjargar Þorleifsdóttur er
Kristjana, f. 1991. 5) Einarína
Einarsdóttir, f. 20.4. 1967,
maki Stefán Öxndal Reyn-
isson, börn þeirra eru Margrét
Rún, f. 2005, og Reynir Öxn-
dal, f. 2008. Dóttir Einarínu
og Ingvars Guðjónssonar er
Þorbjörg, f. 2001. 6) Gunnar
Jens Elí Einarsson, f. 23.6.
1968. Gunnar á fjögur börn,
sonur hans og Dóru Bjarkar
Scott er Bjarki Jens, f. 1987.
Sonur hans og Elínar Þórdísar
Hreiðarsdóttur er Örvar Már,
f. 1991. Börn hans og Mar-
grétar Gígju Rafnsdóttur eru
Mamma er látin.
Ég svaf hjá þér síðustu nótt-
ina fyrir norðan, auðvitað
komstu því þannig fyrir. Ég er
elst af þínum átta börnum, við
þekktum hvor aðra, þú vissir að
ég myndi hrjóta þér við hlið vit-
andi hvert stefndi. Í byrjun
þessa árs var Guðmundur bróð-
ir jarðaður og mínar aðstæður
breyttust. Þetta gekk nærri þér
og við einsettum okkur að búa
til góðar minningar. Nota tím-
ann, gleðjast, reykja og dreypa
á víni, elda góðan mat og
ferðast. Raungera draumana
þína.
Það hefur ekki verið auðvelt
að hefja búskap með pabba á
sjötta áratugnum í Kópavogi.
Hann átti fyrir tvö börn og við
systur urðum þrjár á þrem ár-
um. Með framfærslu á fimm
börnum, pabba í fullu námi
varðstu að vera útsjónarsöm og
snjöll. Þið gáfust aldrei upp,
funduð leiðir og leystuð málin,
flott saman, frumlegar fyrir-
myndir, ólík og glæsileg.
Efst á óskalistanum var að
fara norður á Gjögur, þín hinsta
ferð, sagðir þú. Ferðin var
ákveðin í byrjun ágúst og Ívar
frændi lánaði þér húsið. Þú
blómstraðir, gekkst um Gjög-
urslandið, hittir frændur og
vini, sagðir sögur, hlóst og
gantaðist. Varðst aftur ung,
frjáls, laus við veikindi, kvíða
og sorta. Og svo kom Garðar
bróðir, ferðin fullkomin, Gjörg-
ursbörnin tvö á ferð. Þið sýnd-
uð okkur perlur jarðarinnar og
sögðu ættarsöguna.
Mamma, hugmyndafræðing-
ur og hönnuður – við ætluðum
ekki bara að sjá Gjögrið – þessi
ferð átti líka að vera til þess að
ræða lífshlaupið, læra af þér og
ljúkja því sem þú áttir eftir að
skila til okkar. Manstu eftir
listanum sem við bjuggum til í
eldhúsinu – þegar ég sagði að
þú ættir skilið nýsköpunarverð-
laun? Um öll litlu fyrirtækin
sem fjölskyldan vann að í Kópa-
voginum? Ræktun og sala sum-
arblóma, blaðaútburður, inn-
heimta fyrir happdrætti,
bolluvandaframleiðsla, framleitt
og selt um allt höfðuðborgar-
svæðið, fisksala á vorin, flöskut-
ínsla, öskuhaugaheimsóknir,
hugað að endurvinnslu og nýt-
ingu á því sem var hent, maðka-
tínsla og -sala og hönnun og
sala á dúkkufötum.
Þessar endurminningar voru
skemmtilegar og ekki undarlegt
þó að meirihluti okkar sé með
eigin rekstur.
Á Gjögrinu tókst mér að taka
fiskibollu-, flatköku- og lifrar-
pylsuprófið. Ég hef svo sem
tekið talsvert af prófum í gegn-
um tíðina en þessi voru stíf, þú
varst kröfuhörð og lagðir mikla
áherslu á gæði og smáatriði.
Ekki sama hvernig tuskan snéri
undir hakkavélinni, hvað þá
annað.
Mamma, þú varst á undan
þinni samtíð, alltaf tilbúin til
þess að læra og bæta við þig
þekkingu. Þú varst kjörkuð,
frábær fyrirmynd. Fyrir aðeins
tveimur árum fluttir þú á Sauð-
árkrók, þekktir næstum engan
en kynntist nýju fólki og naust
þess að eiga sjálfstætt líf. Samt
orðin mikið veik. Fyrir stuttu
varstu hjá Olgu og við systur að
ræða verkefni, þú að hlusta og
heyrðir okkur segja – ekkert
mál, við finnum þetta á netinu
og þú sagðir: „Stelpur er allt
þarna inni?“ Við skildum að þú
varst ekki sátt við að sitja ut-
angátta, geta ekki notað netið.
Fingur þínir kræklóttir af liða-
gigt og krabbameinið hafði læst
sig um allan þinn litla líkama.
Kominn tími til að kveðja. Ég
veit að þú skildir ekki alltaf
þær gráður sem börnin þín
stolt komu með heim eftir nám,
en þú veist hvað það er að vera
meistari. Pabbi var meistari í
sínu fagi, þú varst meistarinn
minn. Ég set það á seininn
þinn.
Hansína B. Einarsdóttir.
Elsku mamma. Hvernig er
hægt að skrifa aðeins nokkur
orð um þig, svona stórfenglega
konu, þú sem ert efni í heila
bók, ef ekki nokkrar. Þú fædd-
ist og ólst upp norður á Strönd-
um, nánar tiltekið á Gjögri í Ár-
neshreppi. Þetta er afskekkt
sveit og því erfitt með aðföng
og samgöngur. Þar elst þú upp
í stórum systkinahópi. Þú varst
mjög ung þegar þú misstir
móður sína og þurftir því
snemma að byrja að taka
ábyrgð, vinna, vera dugleg,
hagsýn og útsjónarsöm. Þetta
er þau hugtök sem fyrst koma
upp í hugann þegar ég minnist
þín. Þú kemur ung til pabba í
Kópavoginn, ræður þig sem
ráðskonu hjá honum og saman
byggið þið upp þetta stóra
heimili á Kópavogsbrautinni.
Það var oft hart í ári hjá okkur
en saman tókst ykkur þetta.
Þegar ég sat núna og fór í
gegnum myndir um lífshlaup
þitt, þá komu þessi sömu hug-
tök aftur upp. Ef við vorum
ekki að búa til bolluvendi, tína
ánamaðka, bera út blöð, safna
flöskum, passa börn, þá voruð
þið saman að hanna garðinn,
smíða, sauma, prjóna, taka
slátur, alltaf verið að hanna eða
skapa eitthvað. Þegar ég hugsa
til baka, þá var allt gert heima,
nema kannski búa til skó. Nei,
bíddu nú við, skór voru hann-
aðir líka, leikfimiskór á Olgu,
jú mikið rétt.
Ég man að við áttum sófa-
sett í mörg ár, svo ein jólin
voru þetta orðin spariföt á
yngri systkinin. Þið höfðuð
ákveðið að skipta um áklæði og
þá var efnið notað í jólaföt á
börnin. Fyrir hver jól voru
bakaðar minnst tíu sortir, mál-
að, þrifið eða verið að endur-
hanna eitthvað heima. Það var
allt hugsað í lausnum, ef upp
kom vandamál, þá var bara
hannað og skapað. Þannig var
það líka með þetta síðasta
verkfæri (hjálpartæki) sem ég
fann á borðinu hjá þér. Þú
varst orðin svo slæm af gigtinni
og því áttir þú erfitt með að
hækka og lækka í útvarpinu.
Þú hafðir fundið trjágrein, teip-
aðir hana þannig að þú gætir
notað þetta. Það var sama með
göngugrind, sem þú hafðir
fengið uppi á sjúkrahúsi, hand-
föngin á henni voru of erfið fyr-
ir hendurnar þínar. Þú varst
ekki lengi að redda því, þú
fékkst þæfða vettlinga úr
föndrinu hjá þér og settir yfir
handföngin, þannig að þú gætir
notað grindina. Ég,k eftir 30
ára störf á sjúkrahúsum, hafði
aldrei séð annað eins. Þú dóst
aldrei ráðalaus. Það er því ekki
skrýtið þó að í þessum stóra
hóp sem þú skilur nú eftir sé
fullt af hönnuðum, hugmynda-
ríkum og duglegum einstak-
lingum. Að vísu misstir þú elsta
soninn um síðustu jól og var
það mjög erfitt fyrir þig. Við
andlát hans tók krabbameinið
sig aftur upp hjá þér og leiddi
þig svo til dauða. Ég veit,
mamma mín, að nú situr þú
með þeim báðum, pabba og
Guðmundi, og þið eruð að
reykja. Þið eruð örugglega ekki
bara að reykja, þið eruð að
skapa og hanna eitthvað sem
þarf að laga og breyta þarna
hinum megin. Um leið og ég
þakka þér fyrir allt sem þú hef-
ur kennt mér, þá bið ég þig að
skila kveðju til þeirra.
Þín dóttir,
Guðrún Agnes (Nenna).
Elskuleg stjúpmóðir mín og
kær vinkona, Margrét Jóns-
dóttir, er látin. Hún kom inn í
líf okkar systkinanna þegar hún
hóf sambúð með föður okkar,
þá var hún rúmlega tvítug, ég
sjö ára og Steini bróðir átta.
Það sem ég man sérstaklega
eftir frá þessum fyrstu kynnum
er hversu einbeitt og skipulögð
Magga var og hvað hún tók
hlutina föstum tökum. Hún
hafði alveg á hreinu hvernig
stjórna átti heimili og hvort
sem okkur líkaði betur eða verr
þá skyldum við hlíta þeim
reglum sem hún setti okkur.
Hún hafði misst móður sína ung
og þurfti snemma að taka á sig
mikla ábyrgð, hugsa um heimili
og annast sína stóru fjölskyldu.
Magga var einlæg, óeigingjörn
og ósérhlífin og hjálpsemin var
henni í blóð borin. Hún hafði
alltaf tíma til að sinna öðrum og
hún hafði alltaf eitthvað að
gefa. Verst að hún vildi alltaf
vera að gefa manni þennan
hryllilega vonda plokkfisk sem
hún eldaði, en það var reyndar
eina stóra ágreiningsefnið sem
ég man eftir að hafi komið upp
á milli okkar á þessum árum.
Annars var hún listakokkur og
það lék allt í höndunum á
henni. Hún var ótrúleg ham-
hleypa til verka, svo ekki sé
meira sagt, og útsjónarsemin
við heimilishaldið var með slík-
um ólíkindum að það hefði verið
ágætt efni í handbók nú í
kreppunni.
Já, hún var hreint ótrúleg
hún stjúpa mín, sama uppátekt-
arsama sveitastelpan sem alltaf
gat hlegið og skemmt sér, al-
gjört partýljón ef því var að
skipta. Á meðan heilsan leyfði
dvaldi hún öllum stundum í
sumarbústaðnum í Kjósinni og
þangað var alltaf gaman að
koma. Ógleymanlegar voru líka
grásleppuveislurnar á vorin
sem hún hélt okkur hjónunum á
Sæbólsbrautinni. Magga vildi
alltaf hafa líf og fjör í kring um
sig og á sinn einstaka hátt smit-
aði hún alla af ólgandi orku og
geislandi lífsgleði.
Síðasta árið var erfitt, sú erf-
iða raun að þurfa að horfa á eft-
ir ástkærum syni síðasta jóla-
dag og síðan hetjuleg barátta
við erfið veikindi. Elsku Magga
mín, minningin um þig er mér
svo kær, minningin um fallegu,
gjafmildu og góðu stjúpuna
mína. Ég sakna þín sárt, hafðu
þökk fyrir allt.
Hrefna Sylvía.
Í minningu góðrar tengda-
móður verður mér hugsað til
baka og koma þá fyrst upp í
hugann öll þau yndislegu sumur
sem við fjölskyldan áttum sam-
an með henni í sumarbústöðum
okkar í Eilífsdalnum, þar vildi
hún helst af öllum stöðum vera
sín seinni ár og naut þess að
rækta garðinn sinn og taka á
móti fólki með allri sinni gest-
risni. Ég sé hana fyrir mér í
sæta græna húsinu sínu lengst
uppí fjalli, með dægurlög í spil-
aranum að púsla eða sýsla með
barnabörnum og blómum með
húsið ilmandi, ýmist af kjötsúpu
eða pönnukökum, já hún Magga
var svo góð heim að sækja,
kona með risastórt hjarta, ein-
staklega lífsglöð, alltaf kát og
hress og dugnaðurinn í fyrir-
rúmi. Ákveðin var hún og lífs-
krafturinn með ólíkindum,
stundum beitt en alltaf tilbúin
að gefa af sér og þá sérstaklega
til þeirra sem minna máttu sín.
Það er erfitt að kveðja og ég
vona að þú sért búin að hitta
elsku hjartans Guðmund okkar,
son þinn, og hvíldinni fegin.
Þakka þér tryggðina við okkur
og samfylgdina, elsku tengda-
móðir og amma, berðu Guð-
mundi mínum kveðjuna, við
munum ávallt minnast þín og
sakna.
Fríða Björk, Þórhildur
Bryndís og Einar Haf-
steinn.
Að morgni 2. nóvember lést
tengdamóðir mín Margrét
Jónsdóttir frá Gjögri.
Kynni mín af Margréti hóf-
ust fyrir 11 árum þegar ég fór
að búa með elstu dóttur hennar.
Það var alltaf gott að koma við í
kaffi til Möggu þegar við vorum
á ferð í Reykjavík. Alltaf var
boðið upp á heimabakað rúg-
brauð og heimagert álegg og
kæfu. Magga var snillingur í
eldhúsinu enda hafði hún alltaf
áhuga á að nýta vel vel það sem
til féll í matargerð.
Margrét var mikill stjórnandi
og bar mikla virðingu fyrir
vinnuskipulagi enda lærði ég
ýmislegt af henni, það var ekki
sama hvernig gengið var frá
hlutunum sem verið var að nota
í eldhúsinu eða hvernig þeir
voru þrifnir. Merkilegt – en við
urðum miklir félagar, enda átti
ég auðvelt með að skilja hana.
Hún fór líka stundum betur að
mér en sínum eigin dætrum,
kannski af því að ég var tenda-
sonur en ekki hennar eigið
barn. Margrét fór alltaf var-
lega.
Síðastliðið sumar áttum við
margar góðar stundir með þér,
kæra Magga, ánægjan að fara í
gegnum Héðinsfjarðargöngin
og koma á Siglufjörð, setjast
þar niður í frábæru veðri og
njóta dagsins með þér og hlusta
á þig segja sögur af þér ungri í
ástarferð á Dalvík og nágrenni.
Minningar sem gleðja.
Ferðin norður í Árneshrepp
á Gjögur á æskuslóðirnar þar
sem svo margar minningar leit-
uðu á þig, þú hafðir frá svo
mörgu að segja, miðla og fræða.
Þegar Garðar bróðir þinn
kom norður var dvölin full-
komnuð.
Kæra tengdamóðir, þú vissir
hvert stefndi enda illvígur sjúk-
dómur sem herjaði á þig og þú
harðákveðin í að njóta allra
þeirra daga sem þú áttir eftir.
Ég vil þakka þér dásamleg
kynni á þessum árum og góðar
stundir sem við deildum saman.
Jón Rafn Högnason.
Margrét Jónsdóttir
Bridsfélag Siglufjarðar
Mánudaginn 31. október var spil-
aður síðasti upphitunar-tvímennig-
ur félagsins. Mikil ró og festa
virðist nú komin á spilara, sem lof-
ar góðu fyrir jafna og spennandi
keppni á mótum vetrarins.
Úrslit urðu þessi (prósentskor):
Ólafur Jónsson – Guðlaug Márusd. 59,8
Anton Sigurbjss. - Bogi Sigurbjss. 59,5
Þorsteinn Ásgeirss. - Sigurbj. Þorgeirss.
59,1
Gústaf Þórarins. – Sæmundur Andersen
56,6
Sigurður Hafliðason – Björn Ólafss 56,4
Siglufjarðarmót í tvímenningi
hófst síðan mánudaginn 7. nóv-
ember. Spilaður er barometer í
þremur lotum, allir við alla, alls 68
spil.
Mjög góð þátttaka er í mótinu
og segja má að fullt sé út úr dyr-
um í nýja spilasalnum, en alls
mættu 18 pör til leiks.
Nú að loknum tveimur lotum, 48
spilum, er staðan mjög jöfn og
spennandi og alls óvíst á hvern
skal veðja sem sigurvegara, að
lokinni þriðju og síðustu lotu, sem
spiluð verður næsta mánudag, 14.
nóvember.
Eftir fyrstu lotu tóku þau Ólaf-
ur formaður og Guðlaug afgerandi
forystu, 67,7% skor sem gekk til
baka í seinni lotunni. Já, það eru
ekki alltaf jólin við spilaborðið.
Nú er staða efstu para þessi:
Reynir Karlss. - Þorsteinn Jóhannss.
59,5%
Sigurður Hafliðas. - Björn Ólafsson 59,2%
Ólafur Jónsson - Guðlaug Márusd. 58,8%
Anton Sigurbjss. - Bogi Sigurbjss. 56,9%
Hreinn Magnúss. - Friðf. Haukss. 56,3%
Á landsvísu er það helst að
frétta af spilurum félagsins í sept-
ember og október að Stefanía Sig-
urbjörnsdóttir varð Íslandsmeist-
ari kvenna í tvímenningi, ásamt
Öldu Guðnadóttur.
Þorsteinn Ásgeirsson vann til
bronsverðlauna í Íslandsmóti (H)
eldri spilara í tvímenningi með
bridsfréttaritarann Arnór Ragn-
arsson sem meðspilara.
Sveit Birkis J. Jónssonar spilaði
í undanúrslitum í bikarkeppni
Bridgesambandsins við sveit
Grant Thornton og tapaði undan-
úrslitaleiknum, en sveit Grant
Thornton varð síðan bikarmeistari
BÍ árið 2011.
En nú er beðið með óþreyju eft-
ir næsta mánudegi, 14. nóvember,
þar sem hvert spil getur ráðið úr-
slitum.
Eldri borgarar Hafnarfirði
Þriðjudaginn 8. nóvember var
spilað á 15 borðum hjá FEBH
með eftirfarandi úrslitum í N/S:
Sverrir Gunnarss. – Kristrún Stefánsd.
379
Ragnar Björnss. – Jóhann Benediktss.352
Örn Ísebarn – Örn Ingólfsson 347
Tómas Sigurjss. – Jóhannes Guð-
mannss.339
Ólafur Ingvarss. – Sigurberg Elentínuss.
333
A/V:
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnss. 385
Oddur Jónss. – Katarínus Jónsson 381
Ágúst Vilhelmss. – Kári Jónsson 375
Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðss. 365
Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen
342
Föstudaginn 4. nóvember var
spilað á 16 borðum með eftirfar-
andi úrslitum í N/S:
Auðunn Guðmss. – Sigtryggur Sigurðss.
415
Örn Einarsson – Pétur Antonsson 383
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddsson
357
A/V:
Birgir Sigurðss. – Jón Svan Sigurðss. 374
Tómas Sigurjónsson – Björn Svavarss.
372
Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 363
Þriðjudaginn 1. nóvember var
spilað á 18 borðum með eftirfar-
andi úrslitum í N/S:
Bjarni Þórarinss. – Þorv. Þorgrímss. 390
Örn Einarsson – Guðlaugur Nilsen 384
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddsson361
A/V:
Skarphéðinn Lýðss. – Ágúst Stefánss. 363
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss.355
Óli Gíslason – Sverrir Jónsson 349
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is