Morgunblaðið - 11.11.2011, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011
AF LEIKLIST
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
Rigningin buldi á rúðunni ogvinnukonurnar höfðu ekkiundan að hrista hana af sér.
Nú reyndi á þær að sinna starfi sínu
og gæta þess að ökumaðurinn sæi
út. Ég keyrði meðfram ljósastaur-
unum, það var slökkt á öðrum
hverjum staur. Hjákátlegur sparn-
aður. Hvers vegna í ósköpunum
settu þeir ekki bara upp færri
staura? Við erum í það minnsta
komin með ákveðinn viðmið-
unarpunkt á hvenær er hætt að
herða að okkur, þegar kveikt verð-
ur á ljósunum á Reykjanesbrautinni
aftur. Nú skyldi sækja menningu til
Grindavíkur. Já, til Grindavíkur af
öllum stöðum. Já, það er ekki bara
menning í Grindavík, þar er at-
vinnuleikhús og þangað skyldi ég
fara á frumsýningu. Endalok al-
heimsins, nýtt íslenskt verk eftir þá
Berg Þór Ingólfsson og Guðmund
Brynjólfsson.
Mitt innbyggða menning-arsnobb kemur alloft í veg
fyrir að ég sæki menningu utan
höfuðborgarsvæðisins, eins og þar
sé vagga allra listrænna hugsana.
Ég hef ekki farið oft til Grindavík-
ur. Ég átti þar leið um þegar ég var
fjórtán ára. Þá var ég í skóla-
ferðalagi með bekknum mínum og
það var pissustopp í sjoppunni.
Strákarnir notuðu tækifærið og
leigðu sér nokkrar myndbands-
spólur. Þetta var áður en allt var á
tölvutæku formi og leigusamning-
urinn var handskrifaður. Þeir lugu
til um nöfn, aldur og heimilisfang
og höfðu á auðfenginn hátt komist
yfir nokkrar spólur sem þeir eign-
uðu sér. Ég man hversu illa mér
leið yfir þessum þjófnaði þeirra en
á sama tíma hló ég með þeim í rút-
unni. Minningar mínar um Grinda-
vík tengjast sem sagt röð á klósett-
ið og því að ég var vitorðsmaður í
brotamáli bæjarins.
Sýningin er í Kvikunni, menn-ingarhúsi þeirra Grindvíkinga.
Það er upplifun ein að koma þar
inn. „Þetta er alvörumenning-
arhús,“ stóð ég sjálfa mig að því að
hugsa. Rétt áður en sýningin hófst
hljóp Bergur Þór, leikstjórinn, upp
í miðjar tröppur og ávarpaði leik-
húsgesti. Í kallkerfislausu húsi
Grindvísk menning
GRAL Grindvíska atvinnuleikhúsið setur á svið sitt þriðja leikverk í Kvik-
unni, Endalok alheimsins. Signý Gunnarsdóttir sótti GRAL-ið heim.
minnti hann gesti á að slökkva á
farsímum sínum um leið og hann
bauð alla velkomna. Sá heimilislegi
bragur var skemmtilegur. Sýningin
var svolítið lengi í gang og örlítið
torskilin í byrjun. Þetta er gam-
ansamur harmleikur um fjóra ein-
staklinga sem eru þeir síðustu hér á
jörð. Það sem stendur uppi eftir
þessa sýningu er að það virðist
sama hversu oft við rekum okkur á,
lífsgildi okkar breytast aldrei.
Gróðinn er svo fyrirferðamikill í
hugsunum okkar að þrátt fyrir
hindranir kunnum við ekki að meta
það sem raunverulega skiptir máli,
samveru með fjölskyldu og vinum,
ást og umhyggju.
Mikið sem ég hló þegar éghorfði á Víði Guðmundsson, í
hlutverki Jóns, flaka fisk. Ekki
bara af því að það var svo klaufa-
lega gert heldur af því að þetta var
ekki ólíkt frumraun minni af flökun
í sumar þar sem ég reyndi að gera
að silungi með aðstoð Youtube.
Leikararnir standa sig allir með
stakri prýði og sýningin sækir á
þegar á líður. Það er líka svo mikil
hvíld að komast í alvöruleikhús og
sjá alvöruleik þar sem áhorfandinn
er ekki mataður á öllu sem fram fer
á sviðinu. Sprengjur, aríur og ljósa-
sýningar eru ekki nauðsyn til að
fanga athygli áhorfandans, leik-
ararnir gera það með nærveru
sinni. Það er því vel hægt að mæla
með því að fólk geri sér far um að
skella sér í menningarferð til
Grindavíkur.
» Það sem stenduruppi eftir þessa sýn-
ingu er að það virðist
sama hversu oft við rek-
um okkur á, lífsgildi
okkar breytast aldrei.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
TOWER HEIST Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10
IMMORTALS 3D Sýnd kl. 10:15
ÆVINTÝRI TINNA 3D Sýnd kl. 5 (950kr.)
ÆVINTÝRI TINNA 2D Sýnd kl. 5 (700kr.)
BORGRÍKI Sýnd kl. 8 - 10:15
THE THING Sýnd kl. 8
ÞÓR 3D Sýnd kl. 4 (1050kr.)
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
Í ANDA STIEG LARSSON MYNDANNA
HVERSU
LANGT MYNDIR
ÞÚ GANGA FYRIR ÞANN
SEM ÞÚ ELSKAR?
HHHH
ÞÞ. FRÉTTATÍMINN
HHHH
KHK. MBL
HHH
AK. DV
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu AukakrónumTilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKT R MEÐ RAUÐU
„TIL HAMINGJU
ÍSLAND“
- H.S.S., MBL
HHHHH
B.G. -MBL
HHHH
FORSÝNING
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 18 ÁRA
“TIL HAMINGJU, ÍSLAND”
-Þ.Þ., FT
TOWER HEIST KL. 6 - 8 - 10 12
IN TIME KL. 8 - 10 12
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 6 7
HUMAN CENTEPIDE KL. 10.15 18
HEADHUNTERS KL. 5.45 - 8 16
MONEYBALL KL. 6 - 9 L
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
MIDNIGHT IN PARIS KL. 10.15 L
ELDFJALL KL. 5.45 - 8 L
TOWER HEIST KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
TOWER HEIST LÚXUS KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 12
IN TIME KL. 5.40 - 8 - 10.30 12
ÆVINTÝRI TINNA 3D KL. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 7
ÆVINTÝRI TINNA 2D KL. 3.20 7
HEADHUNTERS KL. 8 16
ÞÓR 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 - 5.50 L
ÞÓR 2D ÍSLENSKT TAL KL. 3.20 L
BORGRÍKI KL. 10.15 14
www.laugarasbio.is − bara lúxus