Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
Össur Skarphéðinsson utanrík-isráðherra var í gær spurður
um afstöðu sína til Jóns Bjarnason-
ar sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra og lét færið ekki ónotað
til að grafa undan
þessum kollega sín-
um. Og eins og jafn-
an fylgdi sögunni að
Össur væri óskap-
lega mikill vinur
Jóns.
En um leið ogÖssur lagði til
Jóns ákvað hann að
senda kveðjur víðar.
Össur sagði: „Égtel það bara
sjálfsagt að menn
sem eru búnir að
vera lengi í pólitík séu stundum
hvíldir á bekknum.“
Jón Bjarnason hefur ekki setiðóskaplega lengi á þingi og mun
skemur en Össur. Jón tók þar sæti
árið 1999 og hefur verið ráðherra
frá 2009. Össur getur því ekki hafa
verið að tala um Jón.
Aðrir hafa hins vegar setið flest-um öðrum lengur. Stein-
grímur J. Sigfússon hefur til dæmis
setið á þingi í 28 ár.
Enn lengur hefur setið á þingiJóhanna Sigurðardóttir, for-
maður Össurar og forsætisráð-
herra, sem tók sæti á Alþingi árið
1978 og hefur því setið þar í rúma
þrjá áratugi og verið ráðherra í
meira en áratug.
Össur veit að ríkisstjórnin og þarmeð forsætisráðherra hefur
sjaldan staðið veikar en nú og ein-
mitt þá vekur hann athygli á að
þeir „sem eru búnir að vera lengi í
pólitík“ skuli „hvíldir á bekknum“.
Össur
Skarphéðinsson
Össur býður
bekkinn
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 30.11., kl. 18.00
Reykjavík -9 heiðskírt
Bolungarvík -3 skýjað
Akureyri -11 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. -3 alskýjað
Vestmannaeyjar -2 heiðskírt
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 1 skýjað
Ósló 5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 7 léttskýjað
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 6 heiðskírt
Dublin 8 skýjað
Glasgow 10 skúrir
London 12 léttskýjað
París 10 heiðskírt
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 6 heiðskírt
Vín 2 þoka
Moskva -2 skýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 13 heiðskírt
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -3 alskýjað
Montreal 7 skúrir
New York 8 léttskýjað
Chicago 0 léttskýjað
Orlando 13 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:45 15:49
ÍSAFJÖRÐUR 11:20 15:24
SIGLUFJÖRÐUR 11:05 15:06
DJÚPIVOGUR 10:22 15:11
Stuðning vantar við Hólmsheiði
Formaður fjárlaganefndar svarar gagnrýni vegna nýs fangelsis og SpKef
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það vantar pólitískan stuðning við þá stefnumótun
sem þessi fangelsisbygging felur í sér, þó vilji sé til
að samþykkja heimildina með skilyrðum,“ segir
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaga-
nefndar, spurð af hverju ekki hafi verið gert ráð fyr-
ir kostnaði vegna nýs fangelsis á Hólmsheiði í
breytingartillögum fjárlaganefndar fyrir 2. um-
ræðu um fjárlögin.
Haft var eftir Ögmundi Jónassyni innanríkisráð-
herra í Morgunblaðinu í gær að hann vænti þess að
þessi fjárveiting yrði samþykkt og málið kæmi inn í
2. eða 3. umræðu um fjárlögin.
Í áliti til fjárlaganefndar lýsir meirihluti allsherj-
ar- og menntamálanefnda miklum efasemdum um
fyrirætlan og hagkvæmni nýs fangelsis á Hólms-
heiði. Var því beint til ríkisstjórnarinnar að endur-
skoða þessi áform og að í staðinn yrði byggt komu-
og gæsluvarðhaldsrými í Reykjavík í stað fangels-
isins á Skólavörðustíg og Kvennafangelsisins í
Kópavogi.
Fjárlaganefnd fékk fulltrúa innanríkisráðuneyt-
isins og forstjóra Fangelsismálastofnunar á sinn
fund. Sigríður segir alla gera sér grein fyrir því að
samþykkja þurfi heimild fyrir hönnun á nýju fang-
elsi. En málið snúi að stefnumótun í fangelsismál-
um, t.d. hvort ráðlegt sé að byggja upp annað vist-
unarfangelsi. „Þarf ekki komu-, gæsluvarðhalds- og
kvennafangelsi fyrst og fremst? Það er mjög brýnt
að leysa úr fangelsismálum kvenna,“ segir Sigríður
og vonar að málið klárist fyrir 3. umræðu um fjár-
lögin sem fram eiga að fara nk. þriðjudag.
Einskiptisgreiðsla vegna SpKef
Í Morgunblaðinu í gær var einnig greint frá
gagnrýni Ríkisendurskoðunar í umsögn um fjár-
lagafrumvarpið, þess efnis að ekki væri gert ráð
fyrir kostnaði ríkisins vegna yfirtöku Landsbank-
ans á SpKef. Sigríður segir þetta mál talsvert hafa
verið rætt í fjárlaganefnd, en beðið sé eftir nið-
urstöðu sérstakrar úrskurðarnefndar sem fengin
var til að meta kostnað ríkisins vegna innistæðna í
SpKef. Skuldbindingin sé á grundvelli yfirlýsingar
um ríkisábyrgð á innistæðum, ekki lagastoðar, og
ekki sé heldur verið að setja varúðarfærslu í fjár-
lögin útaf t.d. Icesave og Íbúðalánasjóði. „Aðalat-
riðið með SpKef er að það er einskiptisgreiðsla fyrir
ríkið og ekki hluti af rekstrargrunni ríkissjóðs.“
Málið með nýtt fang-
elsi á Hólmsheiði snýr
að stefnumótun í fang-
elsismálum.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
SMÁRALIND FACEBOOK.COM/SELECTEDICELAND
Jakki
22.900
Skyrta
9.900
Leðurbuxur
24.900
Jakki
12.900
Kjóll
12.900