Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011 Dagur íslenskrar tónlistar er hald- inn hátíðlegur í dag og verður jafn- framt haldið upp á fimm ára af- mæli ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, með veislu í Hörpu sem hefst kl. 11. Í hana eru allir velkomnir sem tengjast ÚTÓN og starfa í tónlistargeiranum. Í til- efni af deginum munu allar út- varpsstöðvar landsins leika þrjú ís- lensk lög kl. 11.15 og er þjóð- in hvött til að syngja með. Við- burður þessi er nýr af nálinni og ber heitið Syngj- um saman. Lögin þrjú eru „Kvæð- ið um fuglana“ eftir Atla Heimi Sveinsson við texta Davíðs Stefánssonar, „Manstu ekki eftir mér“, lag Ragnhildar Gísladóttur við texta Þórðar Árnasonar og „Stingum af“ eftir Mugison. Gestir í afmælisveislu ÚTÓN munu að sjálfsögðu kveikja á útvarpinu og syngja með. Samtónn, samtök allra rétthafa tónlistar í landinu, stend- ur að Degi íslenskrar tónlistar og veitir í veislunni verðlaun til ein- staklings sem þótt hefur skara fram úr í stuðningi við íslenska tónlist á árinu sem er að líða. Unginn getur flogið úr hreiðri Anna Hildur Hildibrandsdóttir hefur gegnt stöðu framkvæmda- stjóra ÚTÓN frá upphafi og kom að verkefninu Syngjum saman ásamt tónlistar- og þáttagerð- armanninum Sigtryggi Bald- urssyni. Hugmyndina að Syngjum saman átti hins vegar Guðrún Björk Bjarnadóttir, fram- kvæmdastjóri STEFs, að sögn Önnu. „Það hitti þannig á að Dag íslenskrar tónlistar ber upp á 1. desember og það er mjög nálægt því þegar ÚTÓN var stofnað fyrir fimm árum þannig að við ákváðum að slá saman í afmælisveislu og Dag íslenskrar tónlistar,“ segir Anna. Lögin þrjú ættu flestir lands- menn að þekkja og geta sungið en texta þeirra má m.a. finna á ut- on.is. – Hefur mikið áunnist á þessum fimm árum í því að styðja við og koma íslenskri tónlist á framfæri? „Já. Mér líður svona eins og ÚT- ÓN sé unginn sem er tilbúinn til að fljúga úr hreiðrinu núna. Til að byrja með var ég ein að vinna í þessu með góða stjórn með mér. Síðan hefur starfsemin bæði eflst og stækkað aðeins og verkefnunum fjölgað töluvert. Ég held ég geti sagt að ef maður lítur yfir farinn veg þá höfum við náð þeim árangri að koma mjög skipulegri starfsemi á laggirnar. Þannig að það er gott skipulag, við höfum unnið vel með stoðkerfinu í landinu almennt, t.d. með Nýsköpunarmiðstöð og Ný- sköpunarsjóði og öðrum aðilum, í að koma þekkingu og fræðslu í við- skiptaþætti tónlistar á framfæri. Við höfum líka getað nýtt með bet- ur skipulögðum hætti en áður þau tækifæri sem eru erlendis,“ segir Anna. ÚTÓN vinni náið með ís- lenskum tónlistarhátíðum sem séu mikilvægt tæki til að koma ís- lenskri tónlist á framfæri erlendis. „Upphaflega var rætt um að það væri þörf fyrir svona skrifstofu til að beina áhuga frá útlöndum í ein- hvern markvissan farveg og við höfum fundið að það hefur tekist. Fólk erlendis áttar sig á því að þarna er góð upplýsingaveita um það sem er að gerast í íslensku tón- listarlífi. Við höfum lagt mikla áherslu á að vera sýnileg á vefnum og segja frá því sem íslenskir tón- listarmenn eru að gera erlendis. Það hefur virkað.“ helgisnaer@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir Íslenskt Eitt laganna sem leikin verða á öllu útvarpsstöðum er lag Mugisons, „Stingum af“. Afmælisveisla og allir syngja saman  Í dag er Dagur íslenskrar tónlistar Anna Hildur Hildibrandsdóttir Vefurinn TG Daily greinir frá því að leikarinn Guðmundur Ingi Þor- valdsson komi til greina í hlutverk Mance Rayder í fjórðu þáttaröð Game of Thrones, en tökur á hluta annarrar þáttaraðar fara nú fram austur á landi. Þættirnir byggjast á sagnabálki George R. R. Martin, Songs of Ice and Fire. Á vefnum segir að líklegt sé að þriðja og fjórða þáttaröð verði teknar saman til hagræðingar. Guðmundur muni mögulega leika í fjórðu þáttaröð. Sýningar á annarri þáttaröð Game of Thrones hefjast í Bandaríkj- unum í apríl á næsta ári. Guðmundur orðaður við hlutverk Mance Rayder Nefndur Guðmundur Ingi Þor- valdsson gæti bæst í leikarahóp Game of Thrones. FRÁBÆ R TÓN LIST - MÖG NUÐ DANSA TRIÐI - US WEEKLY HHHH - OK HHHHH - THE SUN HHHH MÖGNUÐ GAMANMYND - US WEEKLY HHHH MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:30 3D L TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 2D 12 TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 - 10:30 2D VIP THEHELP kl. 5:15 2D VIP THEHELP kl. 8 - 10:10 2D L TOWERHEIST kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12 THE INBETWEENERS kl. 8 - 10:45 2D 16 FOOTLOOSE kl. 5:30 2D 10 SEEKING JUSTICE kl. 8 - 10:20 2D 16 / ÁLFABAKKA HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:30 3D - 5:30 2D L TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 5:30 - 8 - 10:40 2D 12 SEEKING JUSTICE kl. 8 - 10:30 2D 16 THE IDES OF MARCH kl. 8 - 10:20 2D 14 THEHELP kl. 5:30 2D L THE INBETWEENERS kl. 8:20 - 10:30 2D 16 TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 2D 12 SEEKINGJUSTICE kl. 10:20 2D 16 THE IDES OF MARCH kl. 10:10 2D 14 THE INBETWEENERS kl. 8 2D 16 / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / AKUREYRI / SELFOSSI COLLABORATORS Leikritíbeinni Sýnd fim.kl.19 L HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 5:30 3D L HAPPY FEET 2 Enskt tal kl. 8 Ótextuð 3D L TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 - 10:30 2D 12 THE IDES OF MARCH kl. 10:20 2D 14 THE INBETWEENERS kl. 10:30 2D 16 THEHELP kl. 5:20 2D L HAPPY FEET 2 Ísl. tal kl. 6 2D L TWILIGHT:BREAKINGDAWN kl. 8 2D 12 SEEKINGJUSTICE kl. 10:20 2D 16 THE IDES OF MARCH kl. 8 2D 14 THE INBETWEENERS kl. 6 - 10:20 2D 16 SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK NÆSTU SÝNINGAR Á FÖSTUDAGSÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SVIKRÁÐ SÝND Í ÁLFABAKKA 100/100 PHILADELPHIA INQUIRER 91/100 ENTERTAINMENT WEEKLY VERTU MEÐ ÞEIM FYRSTU Í HEIMINUM TIL AÐ SJÁ HIÐ MAGNAÐA ÆVINTÝRI UM BELLU, EDWARD OG JACOB NICOLAS CAGE AND GUY PEARCE JANUARY JONES SEEKING SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 91/100 ENTERTAINMENT WEEKLY „BRAD PITT OG MATT DAMON ERU SPRENGHLÆGILEGIR.“ - MARA REINSTEIN / US WEEKLY „HAPPY FEET 2 ER JAFNVEL BETRI EN FYRRI MYNDIN!“ „HIN FULLKOMNA HELGIDAGASKEMMTUN“ - MARA REINSTEIN / US WEEKLY HHHH MYNDIR ÞÚ FARA YFIR STRIKIÐ FYRIR HEFNDINA? FRÁBÆR SPENNUÞRILLER FRÁ LEIKSTJÓRANUM ROGER DONALDSON SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI OG KEFLAVÍK Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Heilsu og hreyfingu þriðjudaginn 3. janúar 2012. MEÐAL EFNIS: Hreyfing og líkamsrækt. Vinsælar æfingar. Íþróttafatnaður. Ný og spennandi námskeið. Bætt mataræði . Heilsusamlegar uppskriftir. Andleg vellíðan. Bætt heilsa. Ráð næringarráðgjafa. Jurtir og heilsa. Hollir safar. Bækur um heilsurækt. Skaðsemi reykinga. Ásamt fullt af fróðleiksmolum og spennandi viðtölum. –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, miðvikudaginn 21. des. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Heilsa & hreyfing SÉRBLAÐ Heilsa & hreyfing Þetta er tíminn til að huga að heilsu sinni og lífstíl og taka nýja stefnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.