Morgunblaðið - 01.12.2011, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
Sjö verkalýðsfélög í Eyjafirði hafa
afhent Mæðrastyrksnefnd Akur-
eyrar styrk að upphæð 1.770.000
kr. Jóna Berta Jónsdóttir veitti
styrknum viðtöku. Úthlutun
Mæðrastyrksnefndar fer fram dag-
ana 8. til 10. desember nk. milli kl.
13 og 17. Mæðrastyrksnefnd Akur-
eyrar aðstoðar fólk um allan Eyja-
fjörð, frá Siglufirði að Grenivík, og
starfar allan ársins hring þótt
mestu annirnar séu nú eins og jafn-
an áður í kringum jólahátíðina. Á
myndinni eru Jóna Berta Jónsdóttir
og Björg Hansen, fulltrúar Mæðra-
styrksnefndar, ásamt nokkrum
fulltrúum félaganna sjö sem færðu
nefndinni gjöfina. Talið frá vinstri.
Björg Hansen, Björn Snæbjörnsson,
Hákon Hákonarson, Jóna Berta
Jónsdóttir, Konráð Alfreðsson, Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir og Heimir
Kristinsson.
Mæðrastyrksnefnd
styrkt myndarlega
Anne-Marie Søndergaard Chris-
tensen, lektor í heimspeki við
Syddansk Universitet, mun halda
erindi á vegum Heimspekistofn-
unar föstudaginn 2. desember kl.
15 í Háskóla Íslands, stofu 101
Odda.
Í erindinu sem nefnist „Witt-
genstein, notkun tungumáls og sið-
ferðileg ábyrgð“ mun Christensen
draga fram almennt innsæi á bak
við síðari skrif Wittgensteins um
notkun tungumáls og lýsa hvernig
þetta innsæi felur í sér að tungu-
málanotkun kalli almennt á sið-
ferðilega ábyrgð. Fyrirlesturinn
sem fluttur verður á ensku er öll-
um opinn. Nánar á heimasíðunni
http://www.sdu.dk/ansat/amsc.
Erindi um tungu-
mál og siðferði-
lega ábyrgð
Síminn hefur sett þrepaskipt þak
um allan heim á gagnanotkun við-
skiptavina sinna sem nota farsíma á
ferðalögum. Þetta þýðir að lokað er
á gagnanotkun viðskiptavina Sím-
ans sem staddir eru erlendis þegar
hún er komin upp í 10 þúsund krón-
ur. Slíkt þak hefur verið til staðar
þegar fólk ferðast innan Evrópu
um nokkurt skeið en nú gildir þetta
einnig um öll önnur lönd í heim-
inum þar sem Síminn er með reiki-
samninga. Þegar lokast fyrir
gagnanotkun fær viðskiptavinurinn
sms-skilboð í farsímann og honum
boðið að hækka þakið upp í næsta
þrep sem er 15 þúsund krónur
Síminn setur þak
Íslandsstofa
stendur fyrir
fræðslufundi um-
norðurljósin og
áhrif þeirra á
ferðaþjónustu.
Fundurinn verð-
ur haldinn á Rad-
isson Blu Hótel
Sögu, fimmtu-
daginn 1. desember kl. 10-11.30.
Erindi flytja: Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur, Friðrik Páls-
son, hótelstjóri á Hótel Rangá, og
Ragnar Th. Sigurðsson ljósmynd-
ari. Skráning fer fram á islands-
stofa@islandsstofa.is
Rætt um norðurljós
og ferðaþjónustu
STUTT
Birgir Fanndal
Mývatnssveit
Í fallegri morgunbirtu voru jólaljós tendruð
á grenitré við Reykjahlíðarskóla á dögunum og
jólalög sungin af æskuglöðum börnum.
Þar voru allir nemendur skólans mættir við
athöfnina, samtals 43 börn, auk þess starfs-
menn og nokkrir fullorðnir úr sveitinni og
fengu allir kakó og kökur á eftir.
Það segir nokkuð um íbúaþróun í Mývatns-
sveit og reyndar í héraðinu öllu að geta þess að
nemendur við skólann voru 82 fyrir aðeins sex
árum og ekki þarf að fara nema tvo áratugi
aftur í tímann og sjá þá að barnahópurinn var
þrefaldur á við það sem nú er.
Æskuglöð börn sungu jólalög