Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011 Frostmóða Þessir kátu piltar létu frostið úti fyrir ekki á sig fá og brugðu á leik í heitu vatninu í Laugardalslauginni í gær. Spáð er áframhaldandi frosti á landinu í dag og næstu daga. Árni Sæberg Talsvert pólitískt fjaðrafok hefir orðið vegna ákvörðunar innan- ríkisráðherra að neita er- lendu fyrirtæki að festa kaup á Grímsstöðum á Fjöllum. Þar fór ráð- herra eftir þeirri meg- instefnu laga nr. 19/1966, um eignarrétt og afnota- rétt fasteigna að erlend- um aðiljum sé óheimilt að öðlast eignarrétt eða afnotarétt fast- eigna, nema með sérstöku leyfi ráð- herra. Ég er borinn og barnfæddur Reyk- víkingur og íslenzkur ríkisborgari. Ekki á ég lóðina undir húsi mínu, held- ur leigi ég hana af borginni, svo sem títt er um aðra hús- eða íbúðareigendur í þéttbýli hér á landi. Þykir mér það sjálfsagt fyrirkomulag og hygg ég að svo finnist öðrum Íslendingum. Jarðir og lendur eru einu veraldargæðin, sem varanleg eru. Hvers vegna í ósköp- unum eigum við að vera að selja erlend- um aðiljum þessi gæði úr því að obbinn af Íslendingum nýtur þeirra ekki og lætur sér vel lynda? Þá segja menn: Við þurfum erlenda fjárfestingu inn í landið og það kann að vera rétt. En það er ekki sama hvernig hennar er aflað. Sjálfstæð þjóð gerir það ekki með því að selja undan sér landið. Samkvæmt lögfræðinni þurfa þrjú skilyrði að vera fyrir hendi til þess að um þjóðríki geti verið að ræða, þ.e.: „Land, fólk og lögbundið skipulag“. Gerir fólk sér virkilega ekki grein fyrir því, að „heimskapítalið“ getur keypt upp Ísland „Milli mjalta og messu“, ef Íslendingar halda ekki vöku sinni? Vilja menn það? Ekki trúi ég því. Það er viðbúið að ásókn erlendra auðhringa aukist stórlega í framtíðinni, vegna hinna miklu endurnýjanlegu nátt- úruauðlinda, er Ísland á yfir að ráða, nú þegar hratt gengur á óendurnýj- anlegar auðlindir heimsins. Mér sýnist sjálfsagt að taka lög nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, til end- urskoðunar og breytinga, þannig að bannað verði með öllu að selja eða afhenda með öðrum hætti erlendum aðiljum eignar og afnotarétt fasteigna hér á landi og taka þar með þann kaleik frá ráðherra að geta veitt leyfi til slíkra afhendinga. Það var, að mínum dómi, yf- irsjón hjá hinu háa Alþingi, er Ísland gerðist aðili að EES-samningnum, að heim- ila aðiljum Evrópska efnahagssvæðisins að eignast fasteignir hér á landi. Og mér segir svo hugur um að alþing- ismenn séu enn ekki nægilega á varð- bergi varðandi það að gera kröfur um undanþágur frá Evrópuréttinum, þegar hann á ekki við, eða er beinlínis skað- legur,vegna sérstöðunnar hér á landi miðað við önnur aðildarríki Evrópu- sambandsins. Meðan Grímsstaðamálið var til með- ferðar hjá innanríkisráðherra lét við- skipta- og efnahagsmálaráðherra hafa það eftir sér að hugsanlega yrði rík- issjóður skaðabótaskyldur gagnvart eigendum jarðarinnar, ef salan yrði eigi heimiluð. Þetta tel ég rangt hjá ráð- herranum því að hér er um almennar takmarkanir á eignarréttinum að ræða. Þær hafa verið í gildi frá 1919 (sbr. lög nr. 63/1919). Það er viðurkennd regla í lögfræðinni, bæði í fræði og fram- kvæmd, að almennar takmarkanir á eignarrétti skapi eigi bótaskyldu. Samkvæmt því sem ég hefi nú rakið tel ég það mikla skammsýni hjá for- sætisráðherra vorum að láta sér verða gramt í geði vegna ákvörðunar innan- ríkisráðherra í máli þessu. Sú ákvörðun var hárrétt. Eftir Magnús Thoroddsen » Sjálfstæð þjóð selur ekki undan sér landið. Magnús Thoroddsen Höfundur er fyrrverandi hæstaréttarlögmaður. Hárrétt ákvörðun Ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurð- ardóttur hefur haldið sjávarútveginum í gíslingu frá því stjórnin tók við. Samfylkingin hefur reynt að telja fólki trú um að nokkrir út- gerðarmenn standi að baki greininni. Vísvitandi er dregin upp röng mynd í pólitískum lodd- araleik. Það sem rétt er í þessu er að, að baki sjávarútveginum standa tugþúsundir manna sem hafa beina og óbeina atvinnu af greininni. Má þar nefna sjómenn, fiskvinnslufólk, skrifstofufólk, bílstjóra, iðnaðarmenn o.fl. o.fl. Afkomu þessa fólks er haldið í gíslingu. Haustið 2009 starfaði sk. sáttanefnd að endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisins og skil- aði tillögum til Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, um ári síðar. Þeg- ar tillögur nefndarinnar komu fram greip Samfylkingin til sinna ráða og hafnaði tillögum nefnd- arinnar. Veturinn 2011 kynnti Jón Bjarnason ný drög að frumvarpi um fiskveiðistjórnunarkerfið í ríkisstjórn. Var því frumvarpi vísað í vinnuhóp stjórnarflokk- anna, en í honum sátu m.a. Ólína Þorvarðardóttir fyrir Samfylk- ingu og Lilja Rafney Magn- úsdóttir fyrir VG. Vinnuhópurinn tókst á um málið í marga mánuði og skilaði loks af sér frumvarpi sem fékk algjöra falleinkunn. Fjöl- margir aðilar skil- uðu umsögnum sem allar gáfu frumvarpinu sem starfshópurinn skilaði falleinkunn. Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd fjallaði um um- sagnirnar og skil- aði minnisblaði til Jóns Bjarnasonar ráðherra um málið. Sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra var því aftur kom- inn með málið á sína könnu eftir að misheppnað frumvarp starfs- hópsins náði ekki fram að ganga á alþingi. Jón Bjarnason greip til þess ráðs að setja á fót vinnuhóp er gerði uppkast að breytingum sem lagðar voru fram á vinnu- skjölum til ráðherra, kynnti þá vinnu síðan í ríkisstjórn og setti vinnuskjölin á heimasíðu ráðu- neytisins til kynningar. Seint verðum við Jón Bjarna- son sammála um allt en það að leggja þessi gögn fram til al- mennrar kynningar er til fyr- irmyndar þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að segja álit sitt á tillögum vinnu- skjalanna sem munu svo nýtast til að skrifa fullbúið frumvarp. Eðlilega verða skiptar skoðanir um innihald tillagnanna en ég fæ ekki betur séð en að í stórum dráttum séu þær í takt við til- lögur sáttanefndarinnar frá 2009. Viðbrögð forystumanna Sam- fylkingarinnar komu í raun ekki á óvart því þar á bæ er ekki vilji til að ná neinni sátt um fisk- veiðistjórnunina. Það hentar flokknum pólitískt að hafa ósætti um helstu atvinnugrein þjóð- arinnar. Undarlegri voru við- brögð forystumanna VG og afar erfitt að skýra hvað þeim gengur til. Af framangreindu má ráða að sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra hefur margreynt að setja fram tillögur um breyt- ingar. Hann er hins vegar leiddur í gálgann í hvert skipti og hljót- um við að velta því fyrir okkur hvers vegna svo er. Eina skýr- ingin er sú að engu skiptir hvaða tillögur koma fram um sjáv- arútvegsmál því andstaða ráð- herrans við Evrópusambands- málið er ætíð undirliggjandi. ESB er það eina sem virðist skipta máli hjá Samfylkingu og nokkrum þingmönnum VG. Með þessum vinnubrögðum hljóta aðrir stjórnmálaflokkar að skoða hvort þeir treysti sér til að vinna með Samfylkingunni sem er orðin einangruð í ESB- vegferðinni og á góðri leið með að einangrast í málum helstu at- vinnugreinar Íslendinga. Ein- angruð Samfylking getur varla verið trúverðugur valkostur til framtíðar Eftir Gunnar Braga Sveinsson »Einangruð Sam- fylking getur varla verið trúverðugur val- kostur til framtíðar. Gunnar Bragi Sveinsson Höfundur er alþingismaður Framsóknarflokksins. Fiskveiðistjórnun, ESB og einangrun Samfylkingarinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.