Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 40
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 335. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Viðurkenna fullveldi Palestínu 2. Rihanna er skítblönk 3. Dæmdur fyrir að stunda ekki kynlíf 4. Bieber er ekki pabbinn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitin Grafík fagnar þrítugs- afmæli í ár með heimildarmynd og útgáfu tveggja diska sem innihalda úrval laga hljómsveitarinnar auk tveggja nýrra. Grafík heldur útgáfu- tónleika í Austurbæ í kvöld kl. 20. Þrítug Grafík heldur útgáfutónleika  Tónlistarkonan Björk hefur til- kynnt komu sína á Hróarskeldu- tónlistarhátíðina á næsta ári og er hún fyrsti tónlist- armaðurinn sem staðfestir komu sína, skv. tilkynn- ingu. Aðstandendur hátíðarinnar segjast stoltir kynna Björk til leiks en hún kom síðast fram á Hróarskeldu árið 2007. Björk kemur fram á Hróarskeldu 2012  Hljómsveitin Jeff Who mun koma fram á viðburðinum Iceland wants to buy you a drink í Bandaríkjunum, hann er á vegum Reyka vodka en vodkinn sá er framleiddur hér á landi. Jeff Who heldur tónleika á R Bar í New York mánudaginn 5. desember og í Chicago degi síðar, á kránni The Bedford. Jeff Who leikur í New York og Chicago Á föstudag Austlæg átt, 8-13 m/s, en 13-15 með suðurströndinni. Snjókoma syðra, en annars él. Frost 0 til 12 stig, minnst syðst. Á laugardag Hæg norðlæg eða breytileg átt. Talsvert frost. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 8-13 m/s en snjókoma og seinna él, fyrst vestantil. Frost 1 til 16 stig, kaldast inn til lands- ins, en dregur heldur úr frosti vestantil. VEÐUR „Þetta var það sem ég von- aðist eftir þegar ég kom hingað í láni í sumar. Þetta eru því gleðitíðindi fyrir mig. Mér líður vel í hópnum, fæ að spila og er með Ís- lendinga í hópnum. Þetta verður því ekki betra,“ sagði Hallgrímur Jónasson, knattspyrnumaður frá Húsavík, við Morgunblaðið eftir að hafa samið við danska félagið SönderjyskE í gær. »1 „Þetta verður ekki betra“ „Hanna Guðrún er drottning hraða- upphlaupa. Hún les leikinn mjög vel og skilar alltaf sínu bæði í vörn og sókn,“ segir Stefán Arnarson, þjálfari Íslandsmeistara Vals og fyrrverandi landsliðsþjálfari, í umfjöllun sinni um leikmenn íslenska landsliðsins í handknattleik sem tekur þátt í HM í Brasilíu. Fjórir leikmenn eru kynntir til sögunnar í dag. »3 „Hanna er drottning hraðaupphlaupa“ „Þetta var það eina sem ég bað um í afmælisgjöf og fullkomnaði al- gjörlega daginn,“ sagði Sveinbjörn Pétursson, markvörður Akureyrar, en hann fagnaði afmæli sínu með stór- leik þegar Akureyringar báru sig- urorð af Fram norðan heiða í jöfnum og spennandi leik, 25:24, í N1-deild karla í handknattleik og fengu þar mikilvæg stig. »3 Sigurinn fullkomnaði afmælisdaginn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir rúmum 18 árum auglýsti Sundlaugin í Kópavogi göngu- og hlaupaferðir fyrir almenning og átakið laðaði að fjölda manns. Marg- ir heltust úr lestinni fyrsta haustið en eftir gengur harður kjarni. Guðrún H. Jónsdóttir tekur þátt í starfi hópsins af lífi og sál. Hún segir að til að byrja með hafi verið skipu- lagðar þrjár gönguferðir á viku und- ir stjórn Aðalsteins Jónssonar þjálf- ara en undanfarin þrjú ár hafi þau farið þjálfaralaus í um klukkutíma gönguferð vikulega og svo í heita pottinn á eftir. Síðasta sunnudag í mánuði hafi þau svo farið í þriggja til sex tíma gönguferð auk annarrar líkamsræktar. „Við erum íþróttafíkl- ar við hestaheilsu og trúum því að við höfum sparað heilbrigðiskerfinu nokkrar krónur,“ segir hún. Úr öllum áttum „Það sem er svo skemmtilegt við þennan hóp er að við komum hvert úr sinni áttinni og þarna er ekkert kynslóðabil,“ heldur Guðrún áfram, en göngufólkið er á aldrinum 52-75 ára. Fyrir utan hefðbundnar göngu- ferðir hefur fólkið farið saman í margar vikuferðir innanlands og annað hvert ár hefur verið farið til útlanda, meðal annars í tvær hjóla- ferðir. „Í sumar sem leið flugum við til Vínarborgar og hjóluðum þaðan til Búdapest,“ segir Guðrún, en áður höfðu þau hjólað kringum Bodensee, farið um Píreneafjöll, Búlgaríu og Slóveníu. Guðrún segir að þegar fari að vora sé gengið á eitt fjall á höfuðborg- arsvæðinu á þriðjudögum og svo far- ið í hjólaferð á fimmtudögum. Á sunnudagsmorgnum hafi þau líka gert eitthvað skemmtilegt, gengið til Hafnarfjarðar og til baka eða niður í miðbæ Reykjavíkur og fengið sér hádegismat. „Okkur dettur alltaf eitthvað skemmtilegt í hug og þá er það bara framkvæmt,“ segir hún. Öðruvísi skemmtanir Síðustu helgina í nóvember fara konurnar í hópnum til „Parísar“ en karlarnir til „Amsterdam“. Farið er með „Air Kópavogur“ í miðbæ Reykjavíkur og þar ýmislegt skoðað. Karlarnir fara í gufu og síðast heim- sóttu konurnar Þjóðminjasafnið. Um kvöldið hittast karlar og konur á „flugvellinum“, rétt fyrir flugtak, og fara saman heim. „Það er mikið hlegið í þessum hópi enda segjum við að það að hitta göngufélagana og hlæja svolítið lækni allt.“ Mátturinn í göngu og hlátri  Gönguhópur í Kópavogi virkur í rúmlega 18 ár Ljósmyndir/Helga I. Guðmundsdóttir Gönguhópurinn Fólkið hefur heimsótt alla landsfjórðunga og m.a. gengið á Kaldbak, hæsta fjall Vestfjarða. Hjólaferð Á ferð frá Vín til Búdapest rækilega merkt sl. sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.