SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Blaðsíða 4
4 11. desember 2011 Flokkur Pútíns, Sameinað Rússland, fékk tæplega 50% atkvæða í kosningunum á sunnudag fyrir viku samkvæmt opinberum tölum. Mýmargar ábendingar hafa hins vegar borist um að rangt hafi verið haft við í kosningunum. Samtök, sem á íslensku mætti kalla Borgaravaktina, segja að flokkurinn hafi í raun feng- ið 20% minna fylgi en sagt sé opinberlega eða 29,8% um landið allt og 25,8% í Moskvu. Samtökin segja einnig að frjálslyndi flokkurinn Ja- bloko hafi fengið nógu mörg atkvæði til að komast á þing, en samkvæmt opinberum tölum var hann með 3% atkvæða og undir 7% atkvæðaþröskuldinum, sem miðað er við. Borgaravaktin segir að Jabloko hafi fengið 14,3% atkvæða í Moskvu og 8,2% um landið allt. Samtökin segja sömuleiðis að komm- únistaflokkurinn hafi verið með meira fylgi, en op- inberlega hafi verið gefið upp. Kommúnistar hafi fengið 22,6% atkvæða um landið allt, sem er nokkru hærra en þau 19,6%, sem lýst var yfir opinberlega. Samtökin byggja á tölum frá eftirlitsmönnum, sem náðu að gera útgöngukönnun á 176 kosningastöð- um. Þau draga einnig í efa tölur um kjörsókn. Að mati samtakanna var kjörsóknin 51,3% í Moskvu og 53% um landið allt. Kjörstjórn sagði að kjörsókn hefði verið 60,2% um landið allt. Eftirlitsmenn á vegum Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu sögðust hafa séð ýmislegt misjafnt í kosningunum og var sérstaklega tekið til þess að falsaðir kjöseðlar með krossi við Sameinað Rúss- land, flokk Pútíns, hefðu verið settir í kjörkassa. Fullyrðingar um víðtækt svindl og falsaða seðla Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, ræðir við leiðtoga úr héruðum landsins um kosningarnar. Reuters Vladimír Pútín, forsætisráðherraRússlands, virðist vera í losti út afúrslitum þingkosninganna á sunnu-dag. Þrátt fyrir markvissar tilraunir til þess að hafa áhrif á úrslit kosninganna náði flokkur Pútíns, Sameinað Rússland, ekki nema tæplega helmingi atkvæða og margt bendir til þess að fylgið hafi verið mun minna í raun. Eftirlitsstofnanir hafa gagnrýnt framkvæmd- ina harkalega og almennir borgarar hafa sett á netið upptökur þar sem svo virðist sem verið sé að eiga við atkvæði og hafa áhrif á kjósendur. Kosningarnar voru þáttur í að undirbyggja áframhaldandi setu Pútíns við völd. Í mars ætl- ar hann sér að fullkomna fléttuna með sigri í forsetakosningum. Sá galli er hins vegar á að kjósendur virðast ekki alls kostar sáttir við áform Pútíns um að sitja áfram. Pútín varð for- seti árið 2000, varð að víkja úr embætti 2008 vegna stjórnarskrárákvæðis um að einn maður geti ekki setið lengur en tvö kjörtímabil, en stjórnaði áfram úr stóli forsætisráðherra. Nú hefur kjörtímabil forseta verið lengt þannig að sitji hann önnur tvö kjörtímabil gæti hann ver- ið við völd til 2024. Búist var við mikilli þátttöku í mótmælum, sem halda átti í gær, laugardag, skammt frá Kreml. Gáfu yfirvöld leyfi fyrir þátttöku allt að 30 þúsund manns. Aðstandendur mótmælanna vildu vera nær Kreml, en var bannað að safna þar saman meira en 300 manns. Einhverjir skipuleggjendur hafa sagst ætla að mótmæla þar samt. Innanríkisráðherra landsins, Rasjid Núrgalíj- ev, brást strax við með því að segja að „allar til- raunir til að halda uppákomur án leyfis og standa í vegi fyrir lögum og reglu verða stöðv- aðar af starfsfólki innanríkisráðuneytisins í samræmi við lög“. Yfirvöld hafa handtekið 1600 manns á þremur dögum fyrir að taka þátt í mótmælum. Pútín vegur að Hillary Clinton Pútín hefur brugðist við ásökunum um kosn- ingasvindl með því að veitast að Bandaríkja- mönnum fyrir að reyna að hafa áhrif á úrslit kosninganna. Hann gagnrýndi Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrir að lýsa yfir áhyggjum vegna framkvæmdar kosning- anna og sagði að hún hefði vísvitandi gefið stjórnarandstöðunni merki um að blása til mótmæla auk þess sem bandaríska utanrík- isráðuneytið borgaði samtökum í Rússlandi fyrir að finna að kosningunum. „Þeir heyrðu merkið og með hjálp banda- ríska utanríkisráðuneytisins hófu þeir aðgerð- ir,“ voru fyrstu ummæli Pútíns um mótmælin. Í umræðum um forsetakosningarnar á næsta ári sakaði Pútín Bandaríkjamenn um að verja milljónum dollara í að skapa óstöðugleika í Rússlandi með því að styðja ákveðin samtök. „Við erum stórt kjarnorkuveldi og munum verða það áfram og það veldur félögum okkar ákveðnum áhyggjum,“ sagði Pútín á fundi með stuðningssamtökum, sem mynduð hafa verið um forsetaframboð hans. „Nú hrista þeir okkur aðeins til þannig að við gleymum ekki hver ræður á þessari plánetu.“ Einn af hópunum, sem um ræðir, nefnist Go- los og fylgdist hann með framkvæmd kosning- anna. Samtökin voru beitt miklum þrýstingi, stjórnandi þeirra var settur í hald á flugvelli í Moskvu, símalínur aftengdar og ráðist á vefsíð- ur þeirra. Með því að stimpla samtök á borð við Golos útsendara Bandaríkjamanna er Pútín kominn í leik, sem minnir á kalda stríðið 20 árum eftir að því lauk. Á tímum Sovétríkjanna var gagnrýn- endum þeirra borið á brýn að vera „óvinir rík- isins“ á mála hjá kapítalískum heimsvalda- sinnum. Inn í þennan málflutning blandast deila Rússa og Bandaríkjamanna um eldflaugavarnir í Evrópu. Rússar segja að verið sé að þröngva þeim til að setja upp meðaldrægar kjarn- orkuflaugar nærri mörkum Evrópusambands- ins og ýta þeim út í nýtt vopnakapphlaup. Í dagblaðinu Kommersant sagði að verið gæti að rússnesk stjórnvöld vanmætu „breyting- arnar í fjöldavitund samfélagsins“. Síðan var bætt við. „Og það er allt eins víst að það muni enda með ósköpum, ekki bara fyrir stjórnvöld, heldur einnig samfélagið.“ Ólga vex í Rúss- landi Pútín talar um bandarískan undirróður Lögreglan í Moskvu handtekur þátttakanda í mótmælum vegna þingkosninganna í Rússlandi fyrir viku. ReutersVikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Fréttaskýrendur segja að árásir Pútíns á Bandaríkin vegna kosninganna kunni að eiga hljómgrunn hjá íhaldssömum Rússum, sem frá fornu fari eru tor- tryggnir í garð vest- ursins, en hann eigi á hættu að stuða yngri kjósendur. „Þessi orð ýta aðeins undir höfn- un fólksins,“ segir Andrei Ríabov hjá Carnegie-miðstöðinni í Moskvu. „Þau særa og pirra fólk í Moskvu og stórum borgum sem mótmælir vegna sannfæringar sinn- ar.“ Áhrif orða Pútíns ÍSLENSKT KJÖT www.noatun.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.