SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Blaðsíða 16

SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Blaðsíða 16
16 11. desember 2011 Helsta hlutverk lögmannafélaga, hér heimasem erlendis, er að standa vörð um rétt-arríkið – tryggja að allir menn séu jafnir fyrirlögum og fái réttláta málsmeðferð, burtséð frá því hvaða brot, jafnvel níðingsverk þeim eru gefin að sök. Að sögn Ingimars Ingasonar, framkvæmdastjóra Lögmannafélags Íslands, hefur sjaldan eða aldrei reynt meira á þetta hlutverk en á umliðnum árum og misserum. „Við lifum á viðsjárverðum tímum,“ segir hann. „Al- varlegir atburðir hafa víða átt sér stað og komið heilu samfélögunum úr jafnvægi. Nægir þar að nefna hryðju- verkaárásirnar í Bandaríkjunum, á Spáni og í Bretlandi og fjöldamorðin í Noregi fyrr á þessu ári. Við Íslendingar urðum líka fyrir áfalli fyrir þremur árum enda þótt efna- hagshrunið sé vitaskuld allt annars eðlis en aðrir atburðir sem ég vísa til. Allir eiga þessir atburðir þó sameiginlegt að mikil reiði greip um sig í kjölfarið og þess krafist að meintum brotamönnum yrði refsað, jafnvel án dóms og laga.“ Við aðstæður sem þessar reynir verulega á réttarríkið. „Hefðu menn látið undan þrýstingi hinna reiðu væru for- sendurnar fyrir réttarríkinu brostnar. Úteyjar-málið er gott dæmi um þetta,“ útskýrir Ingimar. „Enda þótt glæp- urinn sem Anders Behring Breivik framdi sé hryllilegur á þessi einstaklingur samt sem áður rétt á réttlátri máls- meðferð fyrir dómstól, líkt og aðrir sakaðir menn. Eitt verður yfir alla að ganga, kerfið verður að virka fyrir Anders Behring Breivik eins og aðra sakaða menn.“ Ekki að réttlæta voðaverk Ingimar bendir á að verjandi Breiviks hafi í fyrstu orðið fyrir aðkasti í Noregi. Fjöldi fólks hafi átt erfitt með að skilja hvers vegna hann gat tekið mál „ófreskju“ af þessu tagi að sér. Þá steig norska lögmannafélagið inn í atburða- rásina og lagði áherslu á að ekki mætti samsama lögmenn skjólstæðingum sínum. Enda þótt lögmaður tæki að sér að verja Breivik væri hann ekki með neinum hætti að réttlæta voðaverk skjólstæðings síns. Samkvæmt reglum réttarríkisins ætti Breivik einfaldlega rétt á aðstoð lög- manns. „Í framhaldi af þessu inngripi róaðist umræðan mikið og verjandi fékk frið til að vinna sína vinnu. Í þessu samhengi verða menn einnig að átta sig á því að lög- mönnum er lögum samkvæmt skylt að taka að sér verj- endastörf og taka við þeirri skipun frá dómstólum – lög- menn hafa þannig ekkert val.“ Hann segir gríðarlega mikilvægt fyrir lögmenn að standa í fæturna, sama hve þrýstingurinn sé mikill. Stjórnvöld freistist gjarnan til að grípa til lagasetningar og koma á íþyngjandi regluverki í kjölfar áfalla og krafan um afturvirkni slíkra reglna komi þá gjarnan fram. Hlutverk lögmannafélaga og lögmanna er m.a. að fylgjast með og yfirfara laga- og reglusetningu stjórnvalda með gagn- rýnum hætti. Hafa frumkvæði að gerð athugasemda og tillagna til hlutaðeigandi aðila, þ.e. löggjafans, ráðuneyta og dómstóla, varðandi úrbætur á lögum og reglum, sem og túlkun þeirra. Einnig er það hlutverk lögmanna og lögmannafélaga að tryggja að lögum og reglum sé beitt af réttlæti og ekki sé gengið of nærri réttindum einstaklinga í réttarríkinu. Ingimar segir hugmyndir fólks um trúnaðarskyldu lög- manna hafa farið á flot hér heima eftir hrunið enda mikið legið á að koma böndum á meinta brotamenn. Svo rammt kvað að þessu að tillögur um tilslökun voru komnar inn í frumvarp á Alþingi. „Til allrar hamingju hlustuðu menn á röksemdir Lögmannafélagsins þess efnis að verja þyrfi trúnaðarskylduna. Skjólstæðingur verði að geta trúað lögmanni sínum fyrir því sem hann kann að hafa gert eða látið ógert þannig að lögmaðurinn geti byggt málið upp á réttum forsendum. Geti skjólstæðingur ekki treyst því að trúnaður gildi í samskiptum hans við lögmanns sinn er hætt við að hið rétta komi ekki fram í málinu. Trún- aðarskylda lögmanna er þannig samofin réttarríkishugtakinu,“ segir Ingimar. Dómurum hefur fjölgað Íslenskt réttarkerfi hefur ekki í annan tíma verið undir eins miklu álagi og nú. Einhverjir efast um að það sé verkefninu vaxið en Ingimar bendir á að dómurum hafi þegar verið fjölgað, bæði í héraði og í Hæstarétti og vonir standi til að milli- dómstig verði tekið upp í nálægri fram- tíð. „Þetta mál er í ferli. Spurningin er hvort þetta verður gert í einu skrefi eða tveimur, þ.e. bæði í einka- og saka- málum eða aðeins í sakamálum til að byrja með og svo í einkamálum síðar. Mikilvægt er hins vegar að stjórnvöld hraði vinnu við innleiðingu millidómstigsins.“ Ingimar hvetur fólk til að sýna þolinmæði. Dómsmál tengd efnahagshruninu 2008 verði mörg hver mikil að umfangi og flókin „Það er skiljanlegt að grunnt sé á reiði fólks, en gefum rannsóknaraðilum og dómskerfinu svig- rúm til að ljúka þessum málum,“ segir Ingimar og bætir við að íslenskir lögmenn séu einnig vel í stakk búnir til að takast á við þessi mál, bæði hvað varðar menntun og reynslu. Fjölga þarf fangarýmum Fleira brennur á. Lögmannafélagið er í hópi þeirra sem gagnrýnt hafa erfiða stöðu fangelsismála í landinu. „Að- stöðuleysið í fangelsismálum verður alvarlegra með hverju árinu sem líður. Menn geta þurft að bíða árum saman eftir afplánun og refsidómar ná jafnvel að fyrnast. Við þetta verður ekki unað. Það er ekki nægjanlegt að auka virkni dómstóla ef ekki er hægt að framfylgja þeim refsidómum sem kveðnir eru upp. Eins einkennilega og það kann að hljóma þá er það líka réttur dæmdra manna að fá að afplána dóma sína strax. Það er því ekki nóg að hafa nýtt fangelsi á teikniborðinu í sextíu ár, það þarf að hefja framkvæmdir. Ætlum við að teljast meðal sið- menntaðra þjóða verðum við að standa undir þeim kvöð- um sem fylgir því að hafa hér réttarríki,“ segir Ingimar. Ekki eiga allir jafn auðvelt með að leita réttar síns og stjórnvöld hafa á undanförnum árum ítrekað takmarkað aðgengi almennings að dómstólum, m.a. með þrengri skilyrðum fyrir gjafsókn, hækkun dómsmálagjalda o.fl. „Þó svo pro bono vinna lögmanna, þ.e. vinna án endur- gjalds fyrir skjólstæðinga sína, hafi alltaf viðgengist meðal lögmanna, ber meira á því nú í niðursveiflunni, bæði beint og ekki síður með óbeinum hætti, þ.e. lögmenn taka að sér mál jafnvel þó þeir sjái í hendi sér að reikn- ingur fyrir þá vinnu sem innt er af hendi fáist aldrei greiddur.“ Í þessu sambandi vekur Ingimar athygli á því að Lög- mannafélagið er með ókeypis ráðgjöf einu sinni í viku í húsakynnum félagsins í Álftamýri 9. „Það er einn af hornsteinum réttarríkisins að tryggja öllum aðgang, óháð fjárhag og stöðu.“ Allir eru jafnir fyrir lögum Öld er í dag, sunnudag, liðin frá stofnun Lög- mannafélags Íslands. Félagið hefur tekist á við margvísleg verkefni gegnum tíðina en lykilhlut- verk þess er óbreytt, að slá skjaldborg um rétt- arríkið – sama hvað á dynur. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Stjórn Lögmannafélags Íslands á 100 ára afmælinu: Óskar Sigurðsson hrl., meðstjórnandi; Ingimar Ingason fram- kvæmdastjóri; Brynjar Níelsson hrl., formaður; Jónas Þór Guðmundsson hrl., varaformaður og Borgar Þór Einarsson hdl., rit- ari. Á myndina vantar gjaldkerann Ólaf Eiríksson hrl. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Í tilefni aldarafmælis Lögmannafélags Íslands var haldið málþing þar sem velt var upp spurningunni hvert hlutverk lögmanna og lögmannafélaga væri í réttarríkinu og hvort það væri annað á viðsjárverðum tímum en endranær. Svar framsögumannanna Skúla Magnússonar, ritara við EFTA dómstólinn, Carolyn B. Lamm, fyrrverandi forseta Americ- an Bar Associaton og Evangelos Tsouroulis, annars vara- forseta CCBE, var í stuttu máli að svo væri. Lögmenn gegndu ákveðnu hlutverki í réttarríki. Á það reyndi einkum þegar þjóðfélagsleg upplausn ógnaði virðingu almennings og ráðamanna fyrir lögum og rétti. Þá þyrftu lögmenn að stíga fram og skýra lögin, ástæður lagasetningar og halda uppi rökstuddri gagnrýni á valdastofnanir samfélagsins. Þurfa að stíga fram Ingimar Ingason Konur og karlar í lögmannastétt 100% 90% 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 1990 2000 2010 2020 2030 2040 1990–2011 Spá Lögmannafélag Íslands 100 ára. Fjöldi félagsmanna er 954. Karlar 682 (71,5%) og konur 272 (28,5%).

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.