SunnudagsMogginn - 11.12.2011, Síða 8
8 11. desember 2011
Vantrú kærði hinn 4. febrúar 2010stundakennarann Bjarna Randver Sig-urvinsson í guð- og trúarbragðafræði-deild fyrir umfjöllun hans um Vantrú í
tímum. Á spjallþræði á innra vef Vantrúar skrifar þá
Reynir Harðarson, sálfræðingur og formaður fé-
lagsins: „Kæru félagar. Klukkan 15:00 í dag lýstum
við yfir heilögu stríði á hendur Bjarna Randveri og
guðfræði í Háskóla Íslands.“ Reynir bætir síðan við:
„Við munum berjast á vefnum, í blöðum, með bréf-
um og jafnvel í fjölmiðlum þar til fullur sigur er
unninn.“ Aftan við þessi skrif bætir Reynir við
broskarli.
Vantrúarfélagar halda því fram að þetta hafi verið
skrifað í gríni og ekkert heilagt stríð hafi verið háð
og hafa margoft sagt og skrifað að ekki nokkur
maður hafi verið lagður í einelti. Síðast í vikunni
gerðu þeir það í grein sem þeir birtu á vef sínum
undir heitinu: Hvaða einelti?
Þeir fullyrða að kæra þeirra til siðanefndar HÍ geti
ekki flokkast undir einelti og spjall þeirra á innra
vef félagsins, sem um tvö hundruð manns hafa að-
gang að, sé í hálfkæringi.
En jafnvel þótt hvorki sé horft til kærunnar né
mjög meiðandi ummæla um Bjarna á innri vef
Vantrúar eða þess hvernig þeir hvetja hver annan
áfram í baráttu gegn honum stendur eftir að frá því
að þeir lýstu yfir heilögu stríði birtu þeir 67 greinar
sem fjalla bara um Bjarna og kæruna, 31 grein þar
sem hann eða kæran gegn honum er nefnd og 19
þar sem umræðurnar í athugasemdakerfinu fjalla
um hann eða kæruna. Þetta eru samtals 117 greinar
og hefur bæst við þá tölu núna í vikunni.
Þá eru ótalin bréf sem hafa verið send á menn
innan háskólans og herferð í fjölmiðlum, en strax á
fyrstu vikunum eftir að kæran var lögð fram fjallaði
DV um málið, í þætti hjá RÚV var tekið viðtal við
félagsmann í Vantrú, sömuleiðis á útvarpsstöðinni
X-inu, Smugan birti grein byggða á framburði van-
trúarfélaga og Eyjan.is setti hlekk á fréttina. Þannig
var fréttaflutningur af málinu mjög einhliða og lýsti
hlið Vantrúar alveg þar til Pressan.is fór að fjalla um
málið, en þá var hlið Bjarna Randvers einnig skýrð.
Einelti af hálfu Vantrúar
Í skýrslu um rannsókn á einelti og kynferðislegri
áreitni innan HÍ, sem unnin var fyrir jafnrétt-
isnefnd HÍ árið 2004, eru nefnd mörg atriði sem
skilgreina einelti og virðist hegðun vantrúarfélaga
falla undir ansi oft undir þá skilgreiningu.
Í skýrslunni er meðal annars skrifað á blaðsíðu
10: „Einelti felur í sér … síendurteknar meiðandi at-
hugasemdir og/eða athafnir sem standa yfir ákveð-
ið tímabil og sem beint er gegn einstaklingi eða hópi
fólks sem á erfitt með að verjast því.“
Í tvö ár hafa þessar greinar birst og eru enn að
birtast. Í þessum 117 greinum sem voru þegar birtar
á opinberum vettvangi af hálfu vantrúarfélaga fyrir
viku er Bjarni meðal annars sakaður um óheið-
arleika og afbrot á borð við „innbrot“ og „þjófnað“.
Þar er vísað til þess að hann hafi undir höndum út-
prentaðar yfir sex hundruð síður af innri vef
Vantrúar. En þess ber að geta að vegna þrýstings frá
blaðamanni Morgunblaðsins gaf Bjarni honum upp
nafn manneskjunnar, sem hann kallar Lindu, sem
lét honum þessar upplýsingar í té. Blaðamaðurinn
talaði við Lindu og komst að raun um að ekki var
um innbrot að ræða og að Bjarni kom þar hvergi
nærri.
Í skýrslunni er líka skrifað sem dæmi um einelti:
„Að fá móðgandi eða særandi athugasemdir um sig,
skoðanir sínar eða einkalíf.“
Það þarf ekki að vitna í innra spjall vantrúar-
félaga til að finna uppnefni sem hafa verið notuð
um Bjarna. Í þessum 117 greinum á opinberum
vettvangi og athugasemdum við þær hefur hann
verið kallaður ónefnum eins og „andskotans hálf-
viti“, „hlandspekingur“, „BRandari“ og „kaunfúll
barmabrundull“. Þá hefur mikið grín verið gert að
skoðunum hans.
Í skýrslunni stendur: „Að lítið sé gert úr eða
hæðst að persónu viðkomandi.“
Vantrúarfélagar tala oft um það á innri vefnum að
þeir þurfi að gera lítið úr Bjarna og hæðast að hon-
um. Þeir láta síðan oft verða af því á opinberum
vettvangi, bæði í greinum og einnig með myndbirt-
ingu á heimasíðu sinni þar sem andlit hans er sett
undir háskólann og síðan fúkyrðaflaumur úr ranni
vantrúarmanna látinn á myndina. Fyrir þá sem
ekki þekkja til mætti ætla að Bjarni Randver hefði
látið þessi fúkyrði falla.
Það væri of langt mál að telja upp öll atriðin sem
talin eru til skilgreiningar á einelti, en svo virðist
sen herferð vantrúarfélaga gegn Bjarna Randveri
eigi við um meirihluta þeirra.
Og hér er ekki tekið til umfjöllunar ótalmargt í
hegðun starfsmanna háskólans gagnvart Bjarna
sem einnig fellur undir skilgreiningu um einelti.
Málsvörn vantrúarfélaga
Vantrú er stofnuð vegna ummæla frá biskupi Ís-
lands, Karli Sigurbjörnssyni, árið 2004 sem þessum
stofnfélögum fannst móðgandi fyrir trúleysingja.
Þeir vildu með öðrum orðum rétta hlut trúleysingja
í samfélaginu og, eins og kemur fram á vefsíðu
þeirra, berjast gegn hindurvitnum. Þeir hafa skipu-
lagt sig í rökræðu og jafnvel baráttu við kirkjuna og
kirkjunnar menn.
Þótt aðferðirnar sem Vantrú beitir séu stundum
ósvífnar má segja að aðstöðumunur vantrúarfélaga
gagnvart kirkjunnar mönnum sé verulega kirkj-
unni í hag. Kirkjan fær mörg hundruð milljónir frá
ríkinu á ári og kirkjunnar menn hafa orðið uppvísir
að því að tala niður til vantrúarmanna í messum og
í það minnsta í einu tilfelli kalla þá níðinga á op-
inberum vettvangi.
En þegar þessar aðferðir, sem þeir hafa beitt í
baráttu sinni við kirkjuna, eru notaðar gegn
stundakennaranum Bjarna Randveri snýst dæmið
allhrikalega við. Bjarni er hvorki prestur né pró-
fessor og átti bágt með að verjast slíku einelti af
hálfu Vantrúar.
Vantrú til hróss má þó benda á að í umræðum um
málið síðastliðna viku, sem þeir hafa tekið þátt í af
miklum krafti, hafa þeir ekki gripið til ljóts orð-
bragðs og komið hefur fram í máli þeirra að þeim
þyki leitt að hafa valdið Bjarna vanlíðan þótt þeir
gefi ekkert eftir í kröfum sínum. Þess má líka geta
að flest verstu dæmin um svakalegt orðbragð van-
trúarfélaga eru nokkurra ára gömul. Þeir hafa lagað
orðfæri sitt.
Ekkert af ofangreindu breytir þó því að á innra
vef sínum skipulögðu þeir herferð gegn Bjarna
Randveri sem þeir fylgdu eftir af krafti á vefnum, í
blöðum, með bréfum og jafnvel í fjölmiðlum, rétt
eins og Reynir Harðarson lofaði. Þrátt fyrir bros-
karlinn sem hann setti fyrir aftan það loforð var
staðið við það.
Einelti
vantrúarfélaga
Lögðu stundakennara í
HÍ í einelti í yfir tvö ár
Morgunblaðið/Kristinn
Vikuspegill
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Kolbrún Baldursdóttir sálfræð-
ingur, sem hefur sérhæft sig í
forvörnum og aðgerðum gegn
einelti, segist í fljótu bragði við
lestur á atburðarásinni af mál-
inu í háskólanum sjá að málið
sé djúpstætt og að það hafi
undið upp á sig. „Án þess að
ætla að fara inn í málið sem ég
hef engar forsendur til þar sem
ég þekki það ekki nógu vel
dettur mér samt í hug að halda
að maðurinn ætti að eiga stuðn-
ing HÍ,“ segir Kolbrún.
„Það er jú sú stofnun sem
ræður hann til kennslu vegna
þess að hann er talinn hæfur til
þess og eins og mér skilst ber
kennurum skylda að setja
kennsluefni inn á vefinn. Verði
kennari fyrir árásum vegna þess
fyndist mér að sú stofnun sem
greiðir honum laun ætti að
standa við bakið á honum. Það
er mín tilfinning að háskóla-
samfélagið hafi ekki alveg tekið
nægjanlega vel við sér sam-
anborið við grunnskóla og jafn-
vel suma vinnustaði hvað varðar
skilgreind viðbrögð ef upp koma
kvartanir um einelti. Slík mál
hljóta að koma upp þar eins og
annars staðar,“ segir Kolbrún.
Við gerð úttektarinnar á
þessu máli sem birtist um síð-
ustu helgi í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins var gert lítið úr
því við blaðamann Morgunblaðs-
ins að Bjarni Randver hefði
staðið einn í þessari baráttu
gegn stórum félagsskap Vantrú-
ar, stjórnsýslu HÍ og máttugri
siðanefndinni. Athugun blaða-
manns leiddi ekkert slíkt í ljós
utan eins tilviks. Gefið var í
skyn að Bjarni nyti stuðnings
Biskupsstofu og því til sönn-
unar var bent á bréf sem hann
hefði í fórum sínum frá Reyni
Harðarsyni til biskups og vitnar
Bjarni í það í greinargerð sinni.
Tilraun blaðamanns Morg-
unblaðsins til að fá þetta bréf
var hafnað af Biskupsstofu,
þannig að hugsanlega hefur
Bjarni Randver betri tengsl inná
Biskupsstofu en aðrir eða að
hann hafi fengið það fyrir mis-
tök í kerfinu.
Þess ber að geta að þótt
Bjarni Randver hafi staðið einn í
baráttu fyrir rétti sínum til að
byrja með breyttist það. Fjöl-
margir kennarar og prófessorar
stóðu upp og vörðu hans mál-
stað eftir að hafa kynnt sér efni
málsins. Þannig að staða hans
er mun vænlegri í dag.
Um einelti á vinnustað
Kolbrún Baldursdóttir