Morgunblaðið - 20.01.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.01.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 0. J A N Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  16. tölublað  100. árgangur  VILJA AUKIÐ JAFNRÉTTI Í SAMFÉLAGINU ÞORRABLÓT SAGAN, HEFÐIN, MATURINN, DRYKKIRNIR OG KVEÐSKAPURINN Í 24 SÍÐNA AUKABLAÐI UNGT BARÁTTUFÓLK 10 Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Gríðarlegur þrýstingur er á þing- menn ríkisstjórnarflokkanna um að hafna þingsályktunartillögu sjálf- stæðismanna um að Landsdóms- ákæran gegn Geir H. Haarde, fyrr- um forsætisráðherra, verði dregin til baka og hefur sá þrýstingur farið stigvaxandi undanfarið. Þingsályktunartillagan verður tekin til umræðu á Alþingi í dag en hópur þingmanna hyggst leggja fram svonefnda rökstudda dagskrár- tillögu við umræðuna um að þings- ályktunartillagan verði tekin af dag- skrá þingsins. Ólíklegt er þó talið að af því verði ef ekki verður talinn vera meirihlutastuðningur fyrir því í um- ræðunni. Óvissa um afdrif málsins Ýmsir þættir eru til þess fallnir að skapa óvissu um afdrif málsins. Þannig er til að mynda óvíst hvaða áhrif fjarvistir einstakra þingmanna, meðan á umræðum og atkvæða- greiðslum um þingsályktunartillög- una stendur, kunna að hafa á fram- vindu þess og eins hversu margir þingmenn eiga hugsanlega eftir að kjósa að sitja hjá í atkvæðagreiðslum um málið. Þá hafa ýmsir þingmenn, einkum í röðum framsóknarmanna og Samfylkingarinnar, ekki viljað gefa upp með hvaða hætti þeir ætli að greiða atkvæði um þingsályktun- artillöguna sem og dagskrártillög- una komi hún fram. MGríðarlegur þrýstingur »4 Tvísýnt um úrslitin  Hópur þingmanna hyggst leggja til að þingsályktunartillaga um að fallið verði frá Landsdómsákæru gegn Geir H. Haarde verði tekin af dagskrá Alþingis Landsdómsmálið » Haustið 2010 var ákveðið með atkvæðagreiðslu á Alþingi að ákæra Geir H. Haarde, fyrr- um forsætisráðherra, fyrir Landsdómi. » Þrír aðrir fyrrverandi ráð- herrar í ríkisstjórn Geirs voru hins vegar ekki ákærðir. Þrátt fyrir þungan vetur hefur ekki þurft að fella niður fleiri flugferðir en á venjulegum vetri að sögn Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Flug- félags Íslands, og flugumferð gengið ágætlega. Nokkur röskun hefur þó orðið á flugi innanlands undanfarna tvo daga vegna lægðagangs. Hins- vegar hefur snjór og kuldi í vetur þýtt meiri vinnu og þar með kostnað við að halda brautunum auðum og svo þarf að afísa vélarnar fyrir flugtak. Ísinn fjarlægður fyrir flugtak Morgunblaðið/Ómar „Það er athygl- isvert að á öllum þessum sviðum virðast núver- andi stjórnvöld hafa brotið meira af sér en Geir H. Haarde er sakaður um að hafa gert sam- kvæmt ákær- unni. Er eðlilegt að fyrrverandi forsætisráðherra sé ákærður en núverandi valdhafar sleppi?“ Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, meðal annars í að- sendri grein í Morgunblaðinu í dag um ákæruna gegn Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, fyrir Landsdómi. »21 Stjórnvöld brotlegri? Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  Skýringar á gráti ungbarna er undantekingarlítið leitað í lík- amanum og lítið horft til annarra þátta. Að mati Sæunnar Kjart- ansdóttur sálgreinis þarf að horfa á fleiri tilfinn- ingalega þætti í líðan barna. „Í okkar menningu er hefð fyrir því að greina börn sem gráta mikið með magakveisu. Rannsóknir hafa þó sýnt að grátur barna veltur mjög á því hversu færir foreldrarnir eru að róa barnið og það byggist á tengslunum þeirra á milli,“ segir Sæunn. Við- varandi streita, sem getur t.d stafa af vanlíðan foreldra, er einn þáttur sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þroska barna og heilsu fram á fullorðinsár. „Ungbörn eru margfalt næm- ari en fullorðnir, þau eru eins og svampur á líðan foreldra sinna og því er það ekki fyrr en foreldrarnir fá hjálp með sínar tilfinningar sem léttir á börnum þeirra.“ »12 Hefð fyrir því að greina grátgjörn ungbörn með magakveisu Fólk sem hefur farið í gegnum greiðsluaðlögun fær að meðaltali 75-80% skulda niðurfelld. Með- alskuld umsækjenda sem hafa fengið heimild til að leita eftir greiðsluaðlögun er 37,8 milljónir. Innifaldar eru allar skuldir, hvort sem þær falla utan eða innan greiðsluaðlögunarsamninga. Þann- ig geta t.d. meðlagsskuldir og námslán verið meðtalin, en fást ekki niðurfelld. Að meðaltali eiga umsækjendur eign að verðmæti tæplega 19 millj- ónir. Meðalgreiðslugeta umsækj- enda er 103 þúsund krónur á mán- uði. Samtals hafa 3.820 sótt um greiðsluaðlögun. Nokkur dæmi eru um að fólk í greiðsluaðlögun fái allar skuldir felldar niður. Þar er t.d. um að ræða eldra fólk sem hefur litlar tekjur. Málin eru margvísleg, en eftirgjöf skulda ræðst af tekjum fólks og mati á því hvað fólk getur staðið undir mikilli greiðslubyrði. „Almennt má segja að fólk sem fer í greiðsluaðlögun er í mikilli neyð. Það er komið að ákveðnum endimörkum. Fólk getur ekki stað- ið í skilum og við blasir gjaldþrot. Vinna umsjónarmanns gengur út á að búa til áætlun um að fólk borgi eins og það getur og fái afskrifað í samræmi við það,“ segir Sigurvin Ólafsson lögmaður. » 14 75-80% lána afskrifuð  3820 hafa sótt um greiðsluaðlögun vegna fjárhagserfiðleika  Meðalskuld umsækjenda er 37,8 milljónir króna „Einungis tveir þingmenn töldu rétt að ákæra Geir H. Haarde einan en það var engu að síður niðurstaðan eft- ir ótrúleg póli- tísk undirmál við endanlega atkvæðagreiðslu í málinu,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu en hann mun í dag mæla fyrir þingsálykt- unartillögu á Alþingi um að Landsdómsákæran gegn Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, verði dregin til baka. Hópur þingmanna hyggst leggja fram dagskrártillögu í um- ræðum um þingsályktun- artillöguna um að hún verði tekin af dagskrá þingsins og segir Bjarni að það sé til marks um að enn séu pólitísk undirmál í gangi vegna málsins. »21 Pólitísk undirmál enn í gangi Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.