Morgunblaðið - 20.01.2012, Síða 8

Morgunblaðið - 20.01.2012, Síða 8
VIÐTAL Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Réttlæti í kynferðisbrotamálum snýst ekki bara um útkomuna úr þeim fyrir dómi heldur felst það líka í því hvernig komið er fram við fórn- arlömbin í málsmeðferðinni. Þetta er álit Liz Kelly, prófessors í kyn- bundnu ofbeldi við London Met- ropolitan-háskólann. Hún er stödd á landinu til að halda erindi á ráð- stefnu um meðferð kynferðisbrota sem fram fer í dag. „Það er réttlæti og óréttlæti í málsferðinni. Finnst fórnarlömbum kynferðisbrota, sem langflest eru konur, að þeim sé frá upphafi sýnd virðing og að þeim sé trúað þar til trúverðug gögn gefa lögreglu og saksóknurum ástæðu til að ætla annað? Eða er komið við fram við þau frá upphafi eins og þau séu ekki að segja satt? Þessir hlutir geta skaðað enn frekar,“ segir Kelly. Hún nefnir rannsókn þar sem tekið var viðtal við konu sem komið var fram við af virðingu í málsmeð- ferðinni en árásarmaðurinn var sýknaður fyrir dómi. Hún var þrátt fyrir það sátt við málsmeðferðina. Annarri konu hafi hins vegar þótt málsmeðferðin í sínu máli afar skað- leg þrátt fyrir að árásarmaður hennar hafi verið sakfelldur. „Réttlæti er bæði það sem verður um málið og það sem gerist í mál- inu,“ útskýrir Kelly. Skrýtnar væntingar „Fólk býst við að nauðgun líti út á vissan hátt. Það býst við að ókunnug manneskja fremji hana, að hún skilji eftir sig áverka og að konan sé eyðilögð. Í raun eru nauðganir mun venjulegri og hversdagslegri en svo,“ segir Kelly. Þannig þyki lögreglu og saksókn- urum víða um lönd tilkynningar um nauðganir trúverðugri ef þær eru settar fram strax eftir að brotið eigi sér stað og ef einhverjir áverkar eru sjáanlegir, sérstaklega á sköpum konu. Engu að síður sé algengast að fórnarlambið þekki nauðgarann og engir áverkar séu á sköpum kvenna. Umtalsverður fjöldi kvenna, sem tekin hafa verið viðtöl við, segir að þeim hafi fundist að þeim væri ekki trúað eða að ekki væri hlustað á þær. „Málsmeðferðin þarf ekki að skaða fórnarlambið og hún getur verið leið til að byrja að byggja aft- ur upp traust til annars fólks. Vandamálið er að sú er ekki alltaf raunin,“ segir Kelly. Réttlætið einskorðast ekki við sakfellingu eða sýknu  Málsmeðferð í kynferðisbrotamálum getur skipt meira máli en niðurstaðan Morgunblaðið/Golli Prófessor Liz Kelly segir réttlæti í kynferðisbrotamálum ekki snúast eingöngu um útkomuna fyrir dómi. 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,þingmaður VG, segir fast sótt að sér að breyta afstöðu sinni til frávísunartillögu Bjarna Bene- diktssonar í landsdómsmálinu.    Að hennar matieru rétt- arhöldin liður í að hvítþvo stjórn- málastéttina af ábyrgð á hruninu með því láta einn mann taka á sig sökina:    Ég vil sannarlega að fram farialvöruuppgjör við hrunið þar sem við raunverulega kortleggjum allt það sem fór úrskeiðis, hvernig sú menning varð til sem leiddi þetta af sér. Umfram allt hvernig við ætlum að læra af því og gera breytingar sem verði til að slíkt gerist ekki aftur. Ég vil líka breyta þeirri rótgrónu venju að enginn beri ábyrgð,“ segir Guðfríður Lilja.    Lögin um landsdóm segir Guð-fríður Lilja að þurfi að endur- skoða:    Eftir þetta hneyksli sem varð íþinginu þar sem þingið lýsti sjálft sig í rauninni vanhæft sem ákæruvald þarf að endurskoða lög um landsdóm. Svo að svona klúður endurtaki sig ekki.    Þá þarf að fara í gegnum þaðhvernig fólk er dregið til ábyrgðar. Um það er fjallað bæði í þingmannaskýrslunni og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar á meðal tillögur sem væru til bóta.    Það hefur þó ekki náð fram aðganga, við höfum í raun ekk- ert breyst og það er í rauninni vandamálið.“ Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Ekkert hefur breyst STAKSTEINAR Veður víða um heim 19.1., kl. 18.00 Reykjavík 2 léttskýjað Bolungarvík 0 alskýjað Akureyri 0 skýjað Kirkjubæjarkl. -1 léttskýjað Vestmannaeyjar 2 léttskýjað Nuuk -11 léttskýjað Þórshöfn 3 léttskýjað Ósló -2 léttskýjað Kaupmannahöfn 2 skýjað Stokkhólmur 1 skýjað Helsinki 1 alskýjað Lúxemborg 8 skúrir Brussel 7 skýjað Dublin 6 skúrir Glasgow 5 skúrir London 10 léttskýjað París 11 skýjað Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 6 skýjað Berlín 3 skúrir Vín 7 skúrir Moskva -12 léttskýjað Algarve 16 léttskýjað Madríd 13 heiðskírt Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 10 léttskýjað Aþena 7 léttskýjað Winnipeg -26 heiðskírt Montreal -11 skýjað New York -3 heiðskírt Chicago -7 alskýjað Orlando 14 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:44 16:34 ÍSAFJÖRÐUR 11:13 16:16 SIGLUFJÖRÐUR 10:56 15:58 DJÚPIVOGUR 10:19 15:58 Liz Kelly, prófessor í kynbundnu ofbeldi við London Metropolitan- háskólann, er einn þeirra erlendu og innlendu fyrirlesara sem halda erindi á ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota sem fram fer í Skriðu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík í dag. Erindi hennar fjallar um hvers vegna svo fá nauðgunarmál enda með sakfellingu eða réttlæti fyrir fórn- arlömbin. Ráðstefnan er á vegum innanríkisráðuneytisins, lagadeildar HÍ og Rannsóknarstofnunar Ármanns Snævars um fjölskyldu- málefni í samvinnu við Evrópuráðið. Ráðstefnan fer fram á ensku og íslensku og er hún opin öllum. Hefst dagskráin klukk- an tíu að morgni og stendur til klukkan sex síðdegis. Ræða meðferð kynferðisbrota RÁÐSTEFNA Í HÁSKÓLA ÍSLANDS Í DAG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.