Morgunblaðið - 20.01.2012, Blaðsíða 9
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Þingmenn sóttu fast að forsætisráð-
herra þjóðarinnar í fyrirspurnar-
tíma á Alþingi í gærmorgun. Öllum
fyrirspurnum nema einni var beint
að Jóhönnu Sigurðardóttur og voru
efnistökin ýmist kunnugleg, s.s.
Evrópusambandið og atvinnustefna
ríkisstjórnarinnar, en einnig vildi
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, vita hvernig at-
kvæðagreiðslu um tillögur stjórn-
lagaráðs yrði háttað.
Skemmst er frá því að segja að
Jóhanna sagði líklega of seint að fá
þjóðinni það hlutverk að greiða at-
kvæði um tillögurnar samhliða for-
setakjöri í sumar. Hún sagði þær
nú til meðferðar hjá stjórnskipunar-
og eftirlitsnefnd þingsins þar sem
farið væri yfir umsagnir. Þaðan
færu þær líklega aftur til stjórnlag-
aráðs og svo í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Sagðist hún vonast til að
hægt yrði að afgreiða málið frá Al-
þingi fyrir lok kjörtímabilsins.
Menntunin stendur upp úr
Meirihluti umræðunnar fór hins
vegar í atvinnulífið og atvinnuleys-
ið. Birkir Jón Jónsson, þingmaður
Framsóknarflokksins, vísaði í tölur
frá Hagstofu Íslands um að á und-
anförnum tólf mánuðum hefði störf-
um á vinnumarkaði fækkað um
3.100 og atvinnuþátttaka aldrei
mælst minni en á síðasta fjórðungi
ársins 2011. Hann spurði Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra þá
hvort þessar tölur bæru þess merki
að ríkisstjórnin hefði yfirleitt at-
vinnustefnu.
„Ég held að það sé alveg ljóst öll-
um nema stjórnarandstöðunni að
hún er á réttri leið,“ sagði Jóhanna
og sagði helstu skýringu á tölum
Hagstofunnar þá að ríkisstjórnin
hefði kappkostað að færa fólk af at-
vinnuleysisbótum og í nám. Um tvö
þúsund manns hefðu farið í skóla
vegna þeirra úrræða sem ríkis-
stjórnin hefði gripið til. Jóhanna
viðurkenndi að betur þyrfti að gera
en áréttaði að ríkisstjórnin hefði
margt gott gert, atvinnulífið þyrfti
þó að koma inn af fullum krafti
einnig.
Jóhanna minnti einnig á að þetta
hefði einmitt verið ein af stóru að-
gerðunum sem Finnar réðust í þeg-
ar þeir lentu í niðursveiflu og að
aukin menntun þjóðarinnar myndi
eflaust standa upp úr, þegar horft
væri til baka.
Best að fólk hafi valkosti
Næsta fyrirspurn kom frá Birgi
Ármannssyni, þingmanni Sjálfstæð-
isflokksins, og hélt hann áfram á
sömu braut. Hann hóf mál sitt á því
að segja að ítarlegri umræðu um at-
vinnumálin þyrfti augljóslega að
taka. „Þá sýna tölur um fækkun á
vinnumarkaði þá mynd að þrátt fyr-
ir að atvinnuleysistölur Vinnumála-
stofnunar hafi lækkað er ekki um
raunverulegan árangur að ræða,
heldur breyttar forsendur.“ Hann
sagði að verið væri að reikna úr
minna mengi og því um að ræða
hagtölulega minnkun atvinnuleysis,
sem væri ekki raunverulegur ár-
angur.
Birgir sagði vissulega ánægjulegt
þegar fólk ætti þess kost að fara í
nám, „en það er ekki gott að helsti
hvatinn sé dapurt ástand á vinnu-
markaði. Best er að fólk eigi val-
kosti“.
Atvinnuleysi minnkar aðeins
hagtölulega en ekki í raun
Atvinnulífið og -leysið til umræðu í fyrirspurnartíma á Alþingi í gærmorgun
Morgunblaðið/Kristinn
Alþingi Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Birgir Ár-
mannsson, þingmaður sama flokks, í þingsal.
Misskilin ríkisstjórn
» Birgir sagði stjórnarand-
stöðuna orðna vana þeirri um-
ræðu að ríkisstjórnin væri ein-
hver misskildasta ríkisstjórn
sögunnar. Hún væri alltaf að
gera allt fyrir alla og þegar
menn sæju það ekki þá væri
það allt saman misskilningur.
» Jóhanna sagði merkilegt að
enginn skyldi sjá aðgerðir
hennar nema ríkisstjórnin.
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012
Guðmundur Gíslason,
fyrrverandi forstjóri
Bifreiða & landbún-
aðarvéla, lést á Hjúkr-
unarheimilinu Sóltúni
7. janúar síðastliðinn,
92 ára gamall.
Guðmundur fæddist
1. janúar 1920 í Reykja-
vík, sonur hjónanna
Sigríðar Jóhannsdóttur
húsfreyju og Gísla Guð-
mundssonar, skipstjóra
og síðar hafnsögu-
manns.
Guðmundur lauk
námi frá Verzl-
unarskóla Íslands 1938 og réðist þá
til verslunarstarfa hjá Hvannbergs-
bræðrum þar sem hann starfaði til
ársins 1942. Hann starfaði hjá Gísla
Jónssyni & Co sem fulltrúi og síðar
skrifstofustjóri til 1955. Guðmundur
var forstjóri, meðeigandi og í stjórn
Sveins Egilssonar &
Co 1955-57. Hann var
einn stofnenda Bif-
reiða & landbún-
aðarvéla 1954 og
stjórnarformaður fé-
lagsins fyrstu árin.
Guðmundur var í
stjórn og fram-
kvæmdastjóri 1954-55
og 1957-75 og forstjóri
frá 1975 og til loka
starfsævi sinnar. Hann
sat einnig í stjórn Bíl-
greinasambandsins
1975-79.
Guðmundur kvænt-
ist Ernu Adolphsdóttur, f. 1923, hinn
17. apríl 1946. Erna lifir mann sinn.
Þau eignuðust þrjú börn, Gísla, Ingi-
gerði Ágústu og Garðar og sex
barnabörn.
Guðmundur var jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í gær.
Andlát
Guðmundur Gíslason,
fyrrverandi forstjóri
Peysur
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Verð áður 14.900
nú 7.450
50% afsláttur
INNRÉTTINGATILBOÐ
VARANLEGVERÐLÆKKUN
OG20%VIÐBÓTARAFSLÁTTUR
15%
ELDHÚS-BAÐ-ÞVOTTAHÚS-FATASKÁPAR
friform.is
Útsala
30-70% afsláttur
af völdum vörum
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Hæðasmára 4
– Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan
Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
Laugavegi 53, s. 552 3737 – Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Saksóknari
Alþingis
Í grein Valtýs Sigurðssonar í
blaðinu í gær sem bar heitið
„Ákæruvald í meðförum Alþingis“
er talað um ríkissaksóknara, sem fer
með málið í þessu tilfelli. Rétt er
hins vegar að tala um saksóknara
Alþingis. Það leiðréttist hér með.
LEIÐRÉTT
„Við höfum langt því frá sett okkur
upp á móti öllum tillögum,“ segir
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, spurður út í full-
yrðingar Ólínu Þorvarðardóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar, þess
efnis að hagsmunaaðilar í sjávarút-
veginum hafi sett sig upp á móti öll-
um tillögum sem fram hafa komið
um breytingar á fiskveiðistjórnun.
Ummælin komu fram í ræðu Ólínu í
pallborðsumræðum um stefnu í sjáv-
arútvegi sem fram fóru í Iðnó síðast-
liðinn miðvikudag og greint var frá
þeim í blaðinu í gær.
„Við höfum hinsvegar barist mjög
hart gegn þeim tillögum sem Sam-
fylkingin var með um fyrningarleið,
enda var ljóst hvað hún þýddi. Við
höfum líka barist mjög hart gegn
þessu frumvarpi sem var lagt fram í
fyrravor, vegna þess hvaða afleiðing-
ar það hefði haft ef það hefði orðið að
lögum. Utanríkisráðherrann hefur
sjálfur líkt því við bílslys, en það að
við höfum sett okkur upp á móti öll-
um tillögum, það er rangt,“ segir
Friðrik
Hann bætir við að engin sanngirni
sé fólgin í því að halda því fram að
hún [Ólína] hafi keyrt á áróðursvegg
eins og hún sagði sjálf á fundinum.
„Frá því að endurskoðun á lögum um
stjórn fiskveiða fór af stað þá höfum
við óskað eftir því að fá að koma að
þeirri vinnu eftir að sáttanefndin
lauk störfum haustið 2010 en þá lýsti
Ólína því yfir að nú væri samráðinu
lokið,“ segir Friðrik.
Hafna ásökunum Ólínu
Segir LÍÚ ekki hafa sett sig upp á móti öllum tillögum
Séra Kristján
Valur Ingólfsson,
vígslubiskup í
Skálholti, hefur
ákveðið að gefa
kost á sér í emb-
ætti biskups Ís-
lands, en reiknað
er með að kjörið
fari fram í mars.
„Ég tók á síð-
asta ári ákvörðun
um að vera í kjöri til vígslubiskups
og þegar maður gerir það er maður
þar með tilbúinn til að axla ábyrgð í
kirkjunni. Síðan gerist það stuttu
síðar að biskup ákveður að hætta og
þá koma þessar spurningar um
hvort ég muni ekki vera tilbúinn til
að halda áfram. Niðurstaða mín er
sú að gera það,“ sagði Kristján Val-
ur í samtali við mbl.is.
Kristján Valur er fæddur á Greni-
vík við Eyjafjörð 28. október 1947.
Hann var prestur á Raufarhöfn, Ísa-
firði og Grenjaðarstað, rektor í Skál-
holti, lektor við guðfræðideild HÍ og
verkefnisstjóri á Biskupsstofu frá
2000. Hann var kjörinn vígslubiskup
í Skálholti á síðasta ári.
Kristján
Valur í
framboði
„Tilbúinn til að axla
ábyrgð í kirkjunni“
Kristján Valur
Ingólfsson
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is