Morgunblaðið - 20.01.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
ÚTSALA
30-60%
AFSLÁTTUR
Kínversk
handgerð list
ár drekans
· Vasar
· Diskar
· Lampar
· Pottar
· Myndir
o.m.fl.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
F
élag ungra jafnrétt-
issinna var stofnað nú í
byrjun árs. En félagið
hefur það að markmiði
að stuðla að vitund-
arvakningu um jafnréttismál og
vekja fólk til umhugsunar um for-
dóma og staðalímyndir af ólíkum
hópum.
„Upphaflega hugmyndin var að
stofna félag ungra femínista. Sú
hugmynd kom upp innan vinahóps
og við ræddum þetta mál og veltum
fyrir okkur jafnréttismálum al-
mennt. Niðurstaðan varð sú að okk-
ur fannst að það vær kominn tími
til að sameina baráttu allra þeirra
hópa sem eru að berjast fyrir aukn-
um réttindum. Neikvæður stimpill
er kominn á orðið femínisti en þó
viljum við ekki afneita því heldur
frekar að undirstrika að það að
vera jafnréttissinni feli í sér að vera
femínisti,“ segir Bryndís Torfadótt-
ir ein af stofnendum félagsins.
Vettvangur umræðu
Félagið hefur í megin dráttum
tvö markmið. Það er annars vegar
að vera vettvangur um umræðu um
jafnréttismál. Félagsmenn geti
þannig komið á framfæri því sem
þeim finnst vanta upp á hvað varðar
jafnréttismál. Einnig að félagsmenn
fái fræðslu um aðra hópa sem berj-
ist fyrir jafnrétti eins og t.d. Ör-
yrkjabandalagið, Samtökin 78 og
Femínistafélagið. En allt eru þetta
samtök sem Félag ungra jafnrétt-
issinna vonast til að geta starfað
með. Hins vegar ætlar félagið sér
það langtíma markmið að standa
fyrir jafnréttis vitundarvakningu
með myndböndum, plakötum og
Vettvangur ungra
jafnréttissinna
Í Félagi ungra jafnréttissinna er ungt fólk sem lætur sig aukið jafnrétti varða.
Stofnendum félagsins fannst að tími væri til kominn að sameina baráttu allra
þeirra hópa sem berjast fyrir auknu jafnrétti í samfélaginu og vilja efna til vitund-
arvakningar um þá. Félagið er ætlað ungu fólki frá aldrinum 14-28 ára þó að öll-
um sé velkomið að sitja opna fundi á vegum félagsins.
Morgunblaðið/Golli
Umræða Frá fundi Félags ungra jafnréttissinna nú í vikunni.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Samstarf Félagið óskar eftir samstarfi og fræðslu, t.d. frá Samtökunum 78.
Þær eru margar spurningarnar sem
vakna í huga fólks sem er annaðhvort
skotið í einhverjum eða nýbyrjað með
einhverjum, sérstaklega ef það er í
fyrsta sinn í föstu sambandi. Þá get-
ur verið gott að vafra um á netinu og
leita ýmissa ráða og fá svör við marg-
víslegum spurningum. Hún Rori er
ein af þeim fjölmörgu sem halda úti
síðu sem fjallar um sambönd, en hún
segist gera það til að hjálpa fólki að
lifa því ástalífi sem það á skilið. Hún
er það sem kalla mætti sambands-
ráðgjafi (relationship coach), en
mestu og bestu reynsluna segist hún
hafa fengið í gegnum eigið líf. Á síð-
unni hennar er meðal annars hægt að
lesa um leiðir til að fá einhvern til að
falla fyrir sér, þar má einnig lesa um
hættulegar sambandsmeinlokur og
ótalmargt fleira. Rori heldur líka úti
ágætu bloggi á sömu síðu og umfjöll-
unarefnið er ástin og sambönd. Nýj-
asta færslan er til dæmis um hvernig
skuli finna ástina, hvernig skuli end-
urskapa þá ást sem er til staðar og
hvernig skuli láta hana endast að ei-
lífu. Og hana nú!
Vefsíðan www.havetherelationshipyouwant.com
Ástin Fyrirbærið sem allir vilja njóta en getur reynst erfitt.
Sambönd, ást og ráðleggingar
Í dag er tilvalið tækifæri til að kynn-
ast hjúkrun og hjúkrunarfræðingum
betur, því kynningardagur hjúkr-
unarfræðinema í Háskóla Íslands er
einmitt í dag. Hjúkrunarfræðinemar á
lokaári bjóða til kynningar á hinum
ýmsum störfum hjúkrunarfræðinga
og kynna nýjar og hefðbundnar hliðar
á starfinu. Eirbergi, höfuðstöðvum
hjúkrunar (hjá Landspítalanum við
Hringbraut) verður breytt í einn alls-
herjar hjúkrunarvettvang gestum til
ánægju og yndisauka. Framhaldsnám
í hjúkrun og ljósmóðurfræðum verður
kynnt og fulltrúar heilbrigðisstofn-
ana og Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga kynna störf sín. Glæsileg og
einstaklega gómsæt kaffisala nem-
enda verður frá kl. 11 til 13.30, til
styrktar útskriftarferðinni í vor og
munu borðin svigna undan veit-
ingum. Diskurinn í kaffihlaðborði
kostar 1.500 kr. og á hann er hægt að
hlaða veitingum. Hjúkrunarvörusala
verður í húsinu, einnig til styrktar út-
skriftarnemum. Hver vill ekki eiga til
dæmis blóðþrýstingsmæli?
Drífa sig, kynningin og kaffisalan
er öllum opin.
Endilega …
… kynnið ykkur
hjúkrunarfræði
Morgunblaðið/Sverrir
Hjúkrun Gegn umferðarslysum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Mannskepnan er fljót að dæma. Ein ljósmyndaf manneskju er nóg til að aðrir flokkihana, dragi upp mynd af henni í huganumog ákveði að hún sé svona en ekki hinseg-
in. Ef kynnin af manneskjunni verða ekki nánari mun
sú mynd sem hefur verið dregin upp standa. Það er
líka auðvelt að draga upp misvísandi mynd af sér með
einni ljósmynd og gera það margir. Sérstaklega þeir
sem vilja selja ákveðna ímynd af sér til dæmis á stef-
namótasíðum á netinu, þar sem fyrstu kynnin byggjast
oft á einni ljósmynd.
Það er afskaplega forvitnilegt að fara inn á slíkar
stefnumótasíður og sjá hvaða mynd fólk dregur upp af
sér. Á Taggalicious byggjast fyrstu kynnin á einni ljós-
mynd og ef áhugi er fyrir hendi út frá þeirri mynd má
setja sig í nánara samband við manneskjuna með
„taggi“. Miðað við þetta ferli er alveg undarlegt hvern-
ig myndir karlmenn velja að setja af sér þarna inn. Til
að vekja athygli hins kynsins sýna þeir oft myndir af
eftirtöldu; maga- og upphandleggsvöðvum, húð-
flúri, byssum (jafnvel eru þeir berir að ofan með
byssuna) og bíl (oftast ljótum gulum sportbíl). Þá
velja margir að setja inn myndir af hnakkanum á
sér eða hafa andlitið falið á annan hátt á
bak við hatt og sólgleraugu. Fæstir
kjósa að setja venjulega nýlega mynd
af sér þar sem sést framan í þá. All-
ir virðast þeir ætla að lokka kven-
fólkið til sín á fölskum forsendum.
Enn undarlegra finnst mér ef karl-
mennirnir velja að hafa barnamynd af
sér því það segir ekkert annað um þá
en að þeir hafi eitt sinn verið börn.
Hvað þá þegar þeir hafa myndina af
eigin börnum, svolítið eins og þeir
séu að segja að eitt sinn hafi kona
viljað þá og þeir hafi frjóvgað hana
með sæði sínu. Slík mynd býður ekki upp á
neitt annað en að maður fer að velta fyrir
sér fríðleika barnsins og hvort kenningin; ljótt barn =
ljótt foreldri standist. Auðvitað er bara ljótt að hugsa
svona en með því að velja slíka mynd á stefnumótasíðu
bjóða þeir upp á það.
Ég er fordómafull og fljót að dæma þegar ég fer í
gegnum úrvalið á Taggalicious. Vöðvamyndir þýða að
það er ekkert á milli eyrnanna á þeim auk þess sem
þeir eru líklega ófríðir, byssumyndir þýða minnimátt-
arkennd og þörf á að hafa yfirhöndina í sambandinu,
annars fær konan löðrung. Myndir af afkvæmum þýða
að hann vill draga upp mynd af sér sem góða fjöl-
skyldumanninum sem þráir konu til að hugsa um sig
og barnið auk þess sem hann er líklega ófríður
fyrst hann kýs að hafa ekki mynd af sjálfum sér.
Mynd af honum sem barni þýðir að um er að
ræða mikinn mömmustrák sem þráir ekkert
heitar en aðra „mömmu“ sem snýtir
honum og skeinir.
Svona er auðvelt að dæma út frá
einni mynd. Því er mjög mikilvægt
að karlmenn geri sér grein fyrir því
að ef þeir ætla að ná athygli kven-
manns í gegnum vefsíðu dugar ekk-
ert minna en nýleg andlitsmynd, þá
er ég ekki að tala um mynd sem var
tekin fyrir tíu árum og fimmtíu kíló-
um. Heldur bara venjuleg mynd
sem sýnir þá í réttu ljósi, svo langt
sem það nær.
»Mynd af honum sem barni þýðir aðum er að ræða mikinn mömmustrák
sem þráir ekkert heitar en aðra „mömmu“
sem snýtir honum og skeinir.
Heimur Ingveldar
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is