Morgunblaðið - 20.01.2012, Síða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
1 9 7 4
6 1 8
6 2
2 9 1
3 8
4
3 2 1 9
7
4 9 2 6 3
2 5 4
9 4 2 1
7 9 5 6
6 1 3
7 6
4 3 5
2 6
2 3 4
1 6
1
4 1 5
7 5 4
1 6 3 9
6 2
3 2 7 1
2 8
3 2 7
7 8 5 1
1 5 7 4 2 9 8 3 6
3 4 8 7 6 1 5 9 2
6 2 9 5 3 8 1 4 7
2 1 4 3 8 5 7 6 9
5 7 6 9 1 2 4 8 3
9 8 3 6 4 7 2 1 5
8 9 2 1 5 6 3 7 4
4 6 1 2 7 3 9 5 8
7 3 5 8 9 4 6 2 1
9 4 2 3 7 8 6 1 5
1 6 8 2 5 4 9 3 7
7 5 3 1 9 6 2 4 8
4 2 9 7 6 1 5 8 3
5 8 7 9 4 3 1 2 6
6 3 1 5 8 2 7 9 4
2 9 6 4 3 5 8 7 1
3 7 5 8 1 9 4 6 2
8 1 4 6 2 7 3 5 9
7 6 5 1 3 8 4 2 9
1 2 9 7 5 4 8 3 6
3 4 8 6 2 9 5 7 1
6 9 2 4 8 5 3 1 7
4 3 7 2 9 1 6 5 8
5 8 1 3 6 7 9 4 2
9 7 4 5 1 6 2 8 3
8 1 3 9 4 2 7 6 5
2 5 6 8 7 3 1 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 20. janúar, 20. dag-
ur ársins 2012
Orð dagsins: Varir hins réttláta vita,
hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra
er eintóm flærð. (Ok. 10, 32)
Undanfarnar vikur hefur Víkverjineyðst til þess að fara með
strætó í og úr vinnu og aldrei hafa
viðkomandi vagnar verið á réttum
tíma. Það tók Víkverja til dæmis tæp-
lega einn og hálfan klukkutíma að
komast úr Vesturbænum upp í Há-
degismóa einn góðviðrismorgun í lið-
inni viku eða álíka langan tíma og það
tekur að fljúga frá Keflavík til Glas-
gow. Víkverji er annars 12-15 mín-
útur að aka á löglegum hraða í vinn-
una.
x x x
Í stefnu Strætó segir meðal annarsað „framtíðarsýn okkar byggist á
því að viðskiptavinir okkar kjósi að
komast leiðar sinnar með strætó
vegna þess að það sé mun hagkvæm-
ari, umhverfisvænni og jafnvel fljót-
legri kostur en að nota einkabíl“.
Þetta með tímasparnaðinn er eins
og brandari úr smiðju borgarstjóra.
Áætlunin lítur vissulega vel út á blaði
en í raun er hún óframkvæmanleg, að
sögn vagnstjóra, sem Víkverji hefur
rætt við á leiðinni. Leið 15 liggur til
dæmis á milli Vesturbæjar og Mos-
fellsbæjar og áætlunin stenst því að-
eins að vagnstjórinn aki nánast á ljós-
hraða og þurfi aldrei að stoppa á
leiðinni. Þegar vagninn á að vera á 15
mínútna fresti hefur Víkverji þurft að
bíða annan eins tíma eftir honum.
Vagninn á leið 5 á að vera á hálftíma
fresti en þegar tenging vagns á leið
15 við hann í Ártúni gengur ekki upp
hefur Víkverji þurft að bíða þar í hálf-
tíma eftir næsta vagni.
x x x
Ekki vantar orðskrúðið í stefnuStrætó en efndirnar eru eins og
hjá ríkisstjórninni. Eina leiðin til þess
að fá almenning til þess að taka
strætó er að tryggja að fólk komist á
milli staða á tiltölulega skömmum
tíma fyrir sanngjarnt verð. Vagn-
arnir verða að vera á um 5-10 mín-
útna fresti á annatíma á morgnana og
síðdegis til að tryggja að fólk þurfi
aldrei að bíða lengi. Víkverji botnar
ekki í hví stjórnendum datt í hug að
bjóða upp á áætlun frá Reykjavík til
Hafnar í Hornafirði þegar þeir ráða
ekki við ferðir á Hringbraut og
Miklubraut. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 veirusjúkdómur, 8
skaprauna, 9 hnugginn, 10
tölustafur, 11 undirstöðu, 13
dreg í efa, 15 kuldastraum,
18 kjaftæði, 21 greinir, 22
sjaldgæf, 23 votur, 24 ein-
feldni.
Lóðrétt | 2 tappa, 3 þreyt-
una, 4 fuglar, 5 þvottaefnið,
6 kvið, 7 þvermóðska, 12
pinni, 14 viðvarandi, 15 fjöt-
ur, 16 skeldýr, 17 dáin, 18
neftóbak, 19 áreita, 20 ögn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fúlga, 4 renta, 7 ofboð, 8 seður, 9 alt, 11 keim, 13 firð,
14 askur, 15 flas, 17 Ísak, 20 enn, 22 koddi, 23 eimur, 24 renna,
25 arann.
Lóðrétt: 1 frosk, 2 lubbi, 3 auða, 4 rist, 5 niðji, 6 afræð, 10 lúkan,
12 mas, 13 frí, 15 fákur, 16 aldin, 18 semja, 19 kýrin, 20 eira, 21
nema.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
(4) Sveitakeppni með Rubens. V-Allir.
Norður
♠G10
♥875
♦D1085
♣ÁK109
Vestur Austur
♠ÁKD92 ♠875
♥4 ♥G632
♦74 ♦Á9632
♣76532 ♣G
Suður
♠643
♥ÁKD109
♦KG
♣D84
Suður spilar 4♥.
Eftir þrjú pöss opnar lesandinn í
suður á 1♥. Vestur kemur inn á 1♠, en
síðan liggur leiðin í 4♥. Vestur spilar út
♠Á og austur kallar. Vestur tekur
næst á ♠K, spilar síðan ♠D í þriðja
slag. Þú trompar og austur fylgir lit,
nokkuð óvænt.
Rubens: „Þú skalt svína ♥10 í hvelli.
Austur hefur lagt mikið á sig til að fá
þriðja spaðann og aðeins tvennt getur
legið þar að baki: Annaðhvort á austur
gosann fjórða í trompi (jafnvel fimmta)
eða hann er í einhverjum blekking-
arleik. Ég veðja á trompgosann fjórða.
Austur er greinilega með ♦Á (vestur
passaði í byrjun) og færi varla að fæla
makker frá þeim lit að tilefnislausu.
Annað til: því skyldi austur yfirleitt
láta sér detta í hug að kalla í spaða
nema til að vernda trompslag? Það er
ástæða fyrir öllu.“
20. janúar 1957
Samtök íþróttamanna kusu
Vilhjálm Einarsson „íþrótta-
mann ársins 1956“. Hann
hafði unnið til silfurverð-
launa á Ólympíuleikunum
haustið áður. Þetta var í
fyrsta sinn sem kjörið fór
fram, en Vilhjálmur hlaut tit-
ilinn alls fimm sinnum.
20. janúar 1976
Bresk herskip sigldu út fyrir
200 mílna mörkin eftir að Ís-
lendingar höfðu hótað að
slíta stjórnmálasambandi við
Breta. Deilur höfðu staðið
eftir útfærslu landhelginnar
í október 1975.
20. janúar 1991
Skíðaskálinn í Hveradölum
brann. „Eldurinn breiddist út
með ógnarhraða,“ sagði
Morgunblaðið og taldi tjónið
nema tugum milljóna. Nýtt
hús var byggt ári síðar.
20. janúar 1998
Vindhraði á Skálafelli við
Esju mældist 225 kílómetrar
á klukkustund, sem er mesti
tíu mínútna meðalvindhraði
sem hér hefur mælst (sam-
svarar 17-18 vindstigum eða
62,5 metrum á sekúndu).
20. janúar 2009
Við setningu Alþingis mót-
mæltu á annað þúsund
manns ríkisstjórninni. Um
þrjátíu voru handteknir.
Fólk barði potta og pönnur
og er þetta talið upphaf
búsáhaldabyltingarinnar.
Um kvöldið var tendrað bál á
Austurvelli og kveikt í Osló-
arjólatrénu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Þegar Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson var sextugur
hélt hann upp á það með samnefndri sýningu í
Borgarleikhúsinu. Yfir 100 aukasýningar stóðu
yfir í um tvö ár og vegna anna í leikhúsinu heldur
hann ekki sérstaklega upp á 65 ára afmælið í dag.
Hann er á fullu í Galdrakarlinum í Oz í Borg-
arleikhúsinu og Hjónabandssælu, sem verður sýnd
í 30. sinn í Gamla bíói í kvöld. „Það er alltaf haldið
upp á þrítugustu sýninguna,“ segir Laddi en þar
fyrir utan æfir hann í Vesalingunum sem verða
sýndir í Þjóðleikhúsinu. „Þannig að það er enginn
tími fyrir Laddi 65 en kannski bara Laddi sjötug-
ur. Það hefur alltaf staðið til að vera með öðruvísi sýningu.“
Laddi segir að verkefnin séu skemmtileg. Galdrakarlinn í Oz sé
fjölskyldusýning, augnakonfekt. Hjónabandssæla sé mjög fyndið verk
og Vesalingar jaðri við að vera ópera. Annars segist hann vera mikið
afmælisbarn. „Þegar ég var lítill þótti mér leiðinlegast að eiga afmæli
í janúar því það var alltaf svo vont veður að enginn komst í afmælið,
en nú þarf hvorki að moka né salta því ég verð ekki með veislu,“ segir
hann. „Aðalatriðið er að komast í leikhúsið. Ég hef ekki tíma til þess
að halda upp á afmælið fyrr en ég fer í sumarfrí.“ steinthor@mbl.is
Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson 65 ára
Laddi sjötugur í bígerð
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
20. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.52 3,5 10.17 1,0 16.18 3,3 22.32 0,9 10.44 16.34
Ísafjörður 5.59 1,9 12.24 0,5 18.15 1,7 11.13 16.16
Siglufjörður 1.44 0,3 8.03 1,2 14.20 0,2 20.58 1,1 10.56 15.58
Djúpivogur 0.51 1,8 7.14 0,5 13.11 1,5 19.21 0,4 10.19 15.58
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fólk er vingjarnlegt í þinn garð um
þessar mundir. Taktu þér tíma til að sinna
heilsurækt og íhugun.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert vonsvikinn vegna þess að fólk
stendur ekki undir væntingum þínum. Með
þetta í huga er ástæðulaust að eyða stórfé í
innihaldslausar athafnir.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hafðu ekki áhyggjur þótt dag-
draumar sæki á hugann í dag. Gömlu kynnin
gleymast ei og gamall vinur skýtur upp koll-
inum á ný.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það stefnir í átakalítinn dag hjá þér
en það þýðir ekki að þú getir slegið slöku við.
Leiða þarf saman leik og starf.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú finnur á þér að eitthvað er í uppsigl-
ingu milli þín og ástvinar þíns. Mundu bara,
þegar sigurinn er í höfn, að aðrir lögðust á ár-
arnar með þér.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er aldrei of seint að bæta við
menntun sína og til þess eru ótal möguleikar.
Láttu það eftir þér því að vilji er allt sem þarf
til þess að stefna í rétta átt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er líf eftir vinnu og þótt starfið sé
mikilvægt máttu ekki vanrækja sjálfan þig og
gleyma áhugamálunum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Öryggið er fyrir öllu en þó máttu
ekki ganga svo langt að þú lokir þig af frá
umheiminum. Dómgreind þín í fjármálum er
með versta móti núna.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú sérð heiminn í björtu ljósi um
þessar mundir og finnur fyrir vellíðan. Það er
engu líkara en þú sért á gangi í yndislegum
draumi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Treystu þeim hugmyndum sem þú
hefur um langtímaferðaáætlanir. Hlustaðu
bara og gaumgæfðu málin í rólegheitum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Sá sem fer með mannaforráð
verður umfram allt að vera sanngjarn. Þú
finnur til eirðarleysis og lætur þér leiðast
auðveldlega. Gerðu eitthvað í því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Reyndu að forðast deilur við maka
þinn og vini þótt þið séuð ekki á einu máli um
hlutina. Sýndu henni/honum þakklæti þitt.
Stjörnuspá
Staðan kom upp á atskákmóti sem
lauk fyrir skömmu í Tallinn í Eist-
landi og haldið var til að heiðra
minningu stórmeistarans Pauls Ker-
es sem lést árið 1975. Rússneski
stórmeistarinn Vladimir Fedosejev
(2.525) hafði svart gegn eistneskum
kollega sínum Kaido Külaots
(2.581). 56. … Hxf2+! 57. Hxf2 e3
58. Kg1 exf2+ 59. Kxf2 Ke4 60. Kf1
Ke3 61. Ke1 f2+ 62. Kf1 Kf3 og
hvítur gafst upp. Lokastaða mótsins
varð þessi: 1.-2. Alexei Shirov
(2.710) og Vladimir Fedosejev
(2.525) 5 vinninga af 7 mögulegum.
3. Jaan Ehlvest (2.594) 4 v. 4.-5.
Aleksander Khalifman (2.632) og
Tomi Nybäck (2.634) 3½ v. 6. Aleks-
andr Volodin (2.491) 3 v. 7. Kaido
Külaots (2.581) 2½ v. 8. Tarvo
Seeman (2.399) 1½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.