Morgunblaðið - 20.01.2012, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 20.01.2012, Qupperneq 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012 SPARBÍÓ 3D á sýningar merktar með grænu1.000 kr. NÚMERUÐ SÆTI Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI TOM CRUISE, SIMON PEGG, PAULA PATTON OG JEREMY RENNER Í BESTU HASARMYND ÁRSINS! -H.V.A. - FBL HHHH "FLOTTUR HASAR." -H.S.S. - MBL HHH -Þ.Þ. - FT. HHH SÝND Í EGILSHÖLL OG AKUREYR SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI LEONARDO DICAPRIO ER STÓRKOSTLEGUR Í NÝJASTA MEISTARAVERKI CLINT EASTWOOD HÚNERMÆTTAFTURÍBESTUMYNDINNITILÞESSA! STRÍÐIÐERHAFIÐ! LOS ANGELES TIMES HHHH CHICAGO SUN-TIMES HHHH HHHH THE HOLLYWOOD REPORTER HHHH THE NEW YORK TIMES FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! „Einstaklega vel gerð spennumynd“ -Joe Morgenstern THE WALL STREET JOURNAL T.V. -Kvikmyndir.is HHHH Það þyrfti að vera eitthvaðað manni til að þykjastvera hlutlaus í skrifum umþetta verk Baltasars Kor- máks. Áður en maður sá myndina fannst manni svo gaman að Baltas- ar hefði tekist að komast að hjá hinum stóru framleiðendum í Bandaríkjunum, að hann væri far- inn að gera bíómynd fyrir alvöru peninga með stóru leikarana undir sinni stjórn, að maður var farinn að brosa af ánægju áður en myndin byrjaði. Það sem meira er og jafn- vel mikilvægara, maður brosti ennþá þegar henni lauk. Baltasar er búinn að gera fína Hollywood- mynd og gaman að heyra að sölu- tölur frá fyrstu sýningarhelginni í Bandaríkjunum eru í ofanálag af- bragð. Það er margt þarna í myndinni sem gefur henni gildi fyrir Íslend- ing, því ekki aðeins er hún end- urgerð af íslensku bíómyndinni Reykjavík Rotterdam sem Arn- aldur Indriðason og Óskar Jón- asson skrifuðu handritið að og var frumsýnd árið 2008, heldur er leik- arinn Ólafur Darri Ólafsson með lítið og skemmtilegt hlutverk í myndinni. Sagan er klassísk saga um glæpamanninn (smyglara sem heit- ir Chris) sem ákveður að verða heiðvirður borgari. En einmitt þeg- ar hann hélt að hann væri sloppinn, þá dregur fortíðin hann aftur inní glæpaheiminn. Hans besti vinur Seb (Ben Foster) hafði hætt á sama tíma og Chris og lætur ekki draga sig inní þennan heim aftur. Seb gegnir aftur á móti mikilvægu hlut- verki við að vernda fjölskyldu Chris á meðan hann er í smyglferðinni. Bróðir eiginkonu hans heldur áfram í smyglinu þrátt fyrir að hafa lofað að hætta. Þegar tollverðir ráðast inní skip hans hendir hann verðmætri dóptösku í höfnina til að forðast handtöku. Þetta reynist honum erfitt að útskýra fyrir þeim sem fjármögnuðu ferðina. Vinur hans er drepinn og honum gert ljóst að hann verði líka drepinn ef hann borgi ekki stöffið. Fyrir vikið verður hetja myndarinnar, Chris sjálfur, að fara eina smyglferð enn til hjálpar mági sínum. Handritið er þétt með flestum þeim óvæntu átökum í samtölum sem krafist er í Hollywood- myndum og sífelldum tvistum hetj- unnar með þúsund andlitin. Af leiknum er ekkert sérstakt að segja. Manni finnst einsog Mark Wahlberg fái aldrei neitt til að reyna sig við. Aftur á móti er hann óskaplega sjarmerandi náungi og þarf lítið annað en að mæta á svæð- ið til að gera sitt. Sama má segja um Kate Beckinsale. En það er eft- irtektarvert hversu Giovanni Ribisi fer listavel með sitt hlutverk. Það er óskaplega vel valið í hlutverkin í þessari mynd og jafnvel í Holly- wood er það oftast á ábyrgð leik- stjórans og þarmeð Balta. Ósk- arsverðlaunahafinn Milos Forman sagði það gjarnan mikilvægustu vinnu leikstjórans. Þétt mynd gerð eftir þéttu handriti mn Leikstjóri: Baltasar Kormákur Leikarar: Mark Wahlberg, Kate Beck- insale, Giovanni Ribisi og Ben Foster. BÖRKUR GUNNARSSON BÍÓMYNDIR Stórleikur Giovanni Ribisi fer vel með hlutverk sitt. Hann leikur stórhættulegan, komplexaðan glæpamann sem vildi að hann væri meiri töffari en hann er. Óbilgirni hans leiðir hetjur myndarinnar í mikla hættu. Ný plata er vænt- anleg frá tónlist- argoðsögninni Bruce Spring- steen. Platan á að koma út 5. mars á þessu ári og mun bera heitið Wrecking Ball. Hún verður sú sautjánda í röðinni hjá honum. Bruce Springs- teen & The E Street Band spiluðu titillag plötunnar, „We Take Care of Our Own“, í heimstúr hljómsveit- arinnar árið 2009 en á plötunni verður m.a. að finna lögin Easy Mo- ney, Death to My Hometown, Land of Hope and Dreams og You’ve Got It. Platan mun að öllu óbreyttu fást í veftónlistarversluninni iTunes og geta aðdáendur hans því sótt lögin strax í gegnum netið. Ný plata Bruce Springsteens væntanleg í mars Bruce Springsteen Í viðtali við New York Times gef- ur George Lucas í skin að hann geti sest í helgan stein fljótlega. Segist hann vilja fjarlægjast kvik- myndabransann en hann hefur mátt þola mikla gagnrýni frá hörðum aðdáendum Star Wars fyrir að m.a. breyta um of sögu Star Wars-heimsins. Verði af því að Lucas setjist í helgan stein er hætta á því að ekkert verði af- næstu Indiana Jones-mynd en aðdá- endur myndanna gera sér vænt- ingar um að sjá fimmtu myndina um fornleifafræðinginn. Sest George Lucas í helgan stein? George Lucas

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.