Morgunblaðið - 26.01.2012, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
Stopp! Snjó hefur haldið áfram að kyngja niður á Siglufirði að undanförnu þótt íbúar bæjarins hafi flestir fengið sig fullsadda á fannferginu og allt sé stopp á götum þessa fallega bæjar.
Sigurður Ægisson
Mikið hefur gengið á í
bæjarstjórn Kópavogs
undanfarna daga. Næst-
besti flokkurinn og Listi
Kópavogsbúa slitu meiri-
hlutasamstarfi við vinstri
flokkana í bæjarstjórn
Kópavogs. Helsta ástæð-
an var fyrirhugaður brott-
rekstur bæjarstjórans,
Guðrúnar Pálsdóttir
ásamt öðrum ágreiningi
milli þessara flokka.
Tvöfaldur skolli Guðríðar
Í golfi fá keppendur skolla ef þeir
ljúka holu í höggi yfir pari. Guðríður
Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar
í Kópavogi með fulltingi Ólafs Þórs
Gunnarssonar, vinstri græns ákvað að
reka bæjarstjórann, Guðrúnu Pálsdóttir
fyrir engar sakir, nema þær að Guð-
ríður Arnardóttir ætlaði að komast í
bæjarstjórastólinn. Vitað er að Guð-
ríður sótti það mjög fast að verða bæj-
arstjóri þegar meirihluti fjögurra
flokka var myndaður í Kópavogi vorið
2010. En henni tókst það ekki og fag-
legur bæjarstjóri var ráðinn. Guðríður
hefur reynt að bera þessar fréttir til
baka með því að hagræða sannleikanum
eins og henni er einni lagið. Þessi að-
gerð endaði því með tvöföldum skolla
Guðríðar sem sýndi þarna sitt rétta
andlit.
Mannorð bæjarstjórans
stórskaðað
Þessi aðför að bæjarstjóranum var
mjög ógeðfelld og er öllum fjórum fyrri
meirihlutaflokkunum til ævarandi
skammar. Guðríður hafði leynt og ljóst
reynt að grafa undan bæjarstjóranum
frá fyrsta degi í þeim tilgangi að veikja
stöðu Guðrúnar og koma henni frá til
að losa stólinn fyrir sjálfa sig. Guðrún
Pálsdóttir bæjarstjóri hefur starfað hjá
Kópavogsbæ í aldarfjórðung við góðan
orðstír. Hún hafði ekkert til saka unnið.
Þessi aðför að henni hefur stórskaðað
mannorð hennar að ósekju bara út af
valdabrölti Guðríðar. Meirihluti getur
að sjálfsögðu skipt um bæjarstjóra sýn-
ist honum svo en að gera það undir
fölsku flaggi og með svo lítilsigldum
hætti á sér fá fordæmi enda leiddi það
til endaloka meirihlutans.
Sjálfstæðisflokkur, Næstbesti flokk-
urinn og Listi Kópavogsbúa
tóku upp meirihluta-
viðræður eftir fall meiri-
hlutans. Þeim lauk fljótt
þar sem þessir nýju flokkar
vildu ekki taka ábyrgð og
voru á móti því að sjálf-
stæðismenn kæmu aftur til
áhrifa í bæjarstjórn Kópa-
vogs. Í skýringum þeirra á
ákvörðun sinni kom fram
að aðalsökudólgarnir væru
undirritaður og Ómar Stef-
ánsson, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sem sæta
ákæru vegna svokallaðs líf-
eyrissjóðsmáls en þessir tvímenningar
björguðu ásamt meðstjórnarmönnum
fjármunum sjóðsins frá glötun í
hruninu 2008 með hagsmuni lífeyr-
issjóðsins og bæjarsjóðs í huga, án þess
að hugsa um eigið skinn.
Hvert er framhaldið?
Núna vilja þessir tveir nýju smá-
flokkar mynda þjóðstjórn í Kópavogi.
Það er skrítin tillaga þar sem þeir vilja
ekki vinna með vinstri flokkunum né
Framsóknarflokki hvað þá heldur Sjálf-
stæðisflokki! Spurning hvort þeir vilja
vinna hvor með öðrum í þjóðstjórninni?
En þeir segjast núna vilja vinna með
öllum flokkum! Hvers konar endavit-
leysa er þetta? Það hefur greinilega
farið fram hjá þessum tveimur smá-
flokkum hvers konar samfélag sjálf-
stæðis- og framsóknarmenn byggðu
upp hér í Kópavogi árin 1990-2010 þar
sem þjónusta og innviðir eru nú með
því besta sem þekkist hjá sveit-
arfélögum.
Framhald meirihlutamyndunar í
Kópavogi er óljóst. Finna þarf lausn en
til þess þarf framsýni og pólitískan
kjark, áræði í uppbyggingu og fram-
kvæmdum en ekki endalaus umræðu-
stjórnmál.
Eftir Gunnar Inga
Birgisson
» Guðríður hafði leynt og
ljóst reynt að grafa
undan bæjarstjóranum í
þeim tilgangi að veikja
stöðu hennar til að losa
stólinn fyrir sjálfa sig.
Gunnar I.
Birgisson
Höfundur er bæjarfulltrúi og fyrrverandi
bæjarstjóri í Kópavogi.
Stjórnleysi
í Kópavogi
Þann 1. október
síðastliðinn afhentu
Hagsmunasamtök
heimilanna (HH)
forsætisráðherra
um 34 þúsund und-
irskriftir þar sem
farið er fram á al-
menna, réttláta leið-
réttingu lána og af-
nám
verðtryggingar.
Ríkisstjórnin ákvað
í kjölfarið að fá á hreint hið svokall-
aða „afskriftasvigrúm“ þríbura-
bankanna, auk þess sem lagt yrði
mat á þær fjórar leiðir sem HH
lögðu til við að leiðrétta höfuðstól
lána og afnema verðtryggingu.
Forsætisráðherra ætlaði að
setja af stað sérfræðingahóp þann
sem lagði mat á þær leiðir sem
voru til umræðu til leiðréttingar
lána í lok 2010, en vinna þess hóps
skilaði þjóðinni 110% leiðinni,
greiðsluaðlögun, sértækri skulda-
aðlögun og tímabundinni hækkun
vaxtabóta. HH neitaði að taka þátt
í sama hóp á sömu forsendum en
lagði þess í stað til sameiginlega
viljayfirlýsingu um verkefnið, milli
HH og ríkisstjórnarinnar.
Forsætisráðherra hafði ekki
áhuga á skrifa undir slíka vilja-
yfirlýsingu, en tók ákvörðun um að
leggja það í hendur Hag-
fræðistofnunar HÍ að meta bæði
svigrúm bankanna og leiðir HH til
leiðréttingar. Jafnframt lýsti for-
sætisráðherra því yfir í sjónvarpi
að með þessu væri samt ekki verið
að lofa neinu um aðgerðir!
Hagfræðistofnun
afhendir skýrsludrög
Þann 17. janúar voru fulltrúar
HH boðaðir á fund Hagfræðistofn-
unar þar sem niðurstöður voru
kynntar og skýrsludrög afhent.
HH var gefinn sólarhringur til að
skila inn athugasemdum við hana!
Fulltrúar HH lögðu fram fjölmarg-
ar spurningar um viðfangsefnið áð-
ur en vinnan við skýrslugerð hófst
og er fæstum þeirra svarað. Sam-
tökin hafa nú sent skýrsludrögin til
föðurhúsanna með fjölmörgum al-
varlegum athugasemdum. Ætli
Hagræðistofnun og stjórnvöld sér
að birta skýrsluna án mikilla efn-
islegra breytinga mun hún ekki
skila tilætluðum árangri – „að fá
upp sú umræða í þinginu að leggja
fram vantraustsyfirlýsingu. Var
það krafa Hreyfingarinnar að
þessi mál yrðu afgreidd ásamt
fleirum ef þau ættu að verja
stjórnina falli, og lögðu þau til
ákveðna nálgun sem ríkisstjórnin
gat ekki fallist á. Í því samhengi
má jafnframt geta þess að skulda-
vandi heimilanna hefur oft verið
ræddur á Alþingi og þar hafa ver-
ið lagðar fram þó nokkrar tillögur
í þá veru að leiðrétta fyrir for-
sendubrestinum og afnema verð-
tryggingu, en lítið er um fram-
kvæmdir.
Hagsmunasamtök heimilanna
hafa komist að þeirri niðurstöðu
að vænlegast sé að leita til forset-
ans, óska eftir að hann beiti
ákvæðum í stjórnarskrá til þess að
fá málið afgreitt og þrýsti á
stjórnvöld að bregðast við. Til
þess hefur forsetinn ýmsar leiðir,
meðal annars hefur hann heimild
samkvæmt 25. grein stjórn-
arskrárinnar til að „leggja fyrir
Alþingi frumvörp til laga og ann-
arra samþykkta“. Samtökin hafa
nú farið fram á fund með forset-
anum.
Nú hafa rúmlega 37 þúsund
skrifað undir í undirskriftasöfnun
HH. Ráðgert er að afhenda bindi
nr. 2 í undirskriftasöfnun á næst-
unni. Ef nokkur þúsund manns
eru tilbúnir að verja minnst
klukkutíma í að afla fleiri undir-
skrifta með því að hringja í vini og
vandamenn, eða tala augliti til
auglitis við fólk og taka að sér að
skrá fólk í undirskriftasöfnunina á
undirskrift.heimilin.is mun það
efla okkur til muna í þeirri mik-
ilvægu réttlætisbaráttu sem sam-
tökin hafa tekið að sér fyrir hönd
heimilanna í sjálfboðavinnu.
upp á borðið ná-
kvæmar tölur um af-
slátt bankanna og hið
svokallaða af-
skriftasvigrúm“ –
heldur þvert á móti
verða enn eitt plaggið
sem eykur á talna-
mengun og er ekki til
annars fallin en að
orðspor þeirra bíði
hnekki.
Víðtækur þjóð-
armeirihluti
og þingmeirihluti
Stuðningur þjóðarinnar við kröf-
ur HH er víðtækur, en í nóvember
síðastliðnum gerði Capacent Gall-
up könnun fyrir samtökin sem gef-
ur til kynna að kröfurnar um af-
nám verðtryggingar og almennar
leiðréttingar lána endurspegli vilja
80% þjóðarinnar. Ályktun lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins undir
lok árs 2011 rímaði einnig við þess-
ar kröfur og hafa því allir flokkar
ályktað í þessa veru, en lítið gerist
á Alþingi. Má því leiða líkur að því
að nú sé kominn bæði þjóðarmeiri-
hluti og þingmeirihluti fyrir kröf-
um HH og kominn tími á fram-
kvæmdir í þessum efnum.
Engann skyldi undra að almenn-
ingur fari fram á kröfur um leið-
réttingu lána heimilanna í landinu
sem leiðrétta forsendubrestinn og
dreifa ábyrgðinni á hruninu, meðal
annars í ljósi nýlegra frétta þar
sem fram kemur að fjárfestingar-
og eignarhaldsfélög hafa fengið 83
prósent skulda sinna niðurfelld frá
því í september 2011, þegar lög
tóku gildi um aðgerðir í þágu ein-
staklinga, heimila og fyrirtækja
vegna banka- og gjaldeyrishruns-
ins.
HH leita nú til forsetans
Hagsmunasamtök heimilanna
áttu fund með þingmönnum í nóv-
ember 2011 og svo aftur í byrjun
janúar 2012 í þeim tilgangi að ýta
við þeim sem áhuga hafa á því að
taka höndum saman á Alþingi og
setja fram þingmál um kröfur sam-
takanna. Þeir þingmenn sem hing-
að til hafa lýst yfir áhuga að taka
þátt í að setja málið á dagskrá
þingsins koma allir úr stjórnarand-
stöðu. Á þingmannafundinum kom
fram að yfir hátíðirnar áttu fulltrú-
ar ríkisstjórnarinnar í viðræðum
við Hreyfinguna um að verja
stjórnina falli þar sem komin er
Eftir Andreu J.
Ólafsdóttur »Hagsmunasamtök
heimilanna
standa fyrir undir-
skriftasöfnun fyrir al-
mennum leiðrétt-
ingum lána og afnámi
verðtryggingar og
fylgja kröfunum fast
eftir.
Andrea
Ólafsdóttir
Höfundur er formaður
Hagsmunasamtaka heimilanna.
Er 2012 ár réttlætisins?