Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 2
Allt er að gerast hjá Eivöru Pálsdóttur þessa
dagana. Hún er nýbúin að taka upp nýja plötu
og er á fullu að hljóðblanda sköpunarverkið
fyrir útgáfu í maí. Eins vinnur hún að tónlist
fyrir nýtt leikverk eftir Helgu Arnalds og
Charlotte Böving. Svo heldur hún tónleika í
Langholtskirkju á sunnudag, berfætt með gít-
arinn sinn.
Finnur sló á þráðinn og bað Eivöru að deila með
lesendum nokkrum sérkennum sínum og
leyndarmálum.
1. Uppáhaldsmaturinn minn er færeyskt ræst lamba-
kjöt, svo er ég líka óð í sushi.
2. Ég er mjög góð í að elda alls konar grænmet-
isrétti og bý til mína eigin kryddblöndu.
3. Þegar ég var 17 ára varð ég ástfangin
af Íslandi. Ég er ennþá jafnástfangin.
Raunar finnst mér mjög
gaman að ferðast, skoða
nýjar borgir og kynnast
nýjum menningar-
heimum.
Annað land
sem hefur heillað mig mikið er Ind-
land.
4. Ég elska að lesa bækur Dalais
Lama – og hlusta á búlgarskan söng.
5. Ég naga á mér neglurnar þegar ég
er stressuð.
6. Ég er rosalega góð í kínaskák og svo er ég líka mjög lagin
við flottar hárgreiðslur.
7. Aldrei hef ég getað borðað síld.
8. Ég hef haldið þrjár myndlistarsýningar á ævinni.
9. Ég hreinlega elska hljóðfæri og kaupi mikið af
þeim.
10. Ef ég labba inn í bílastæðakjallara eða annað
rými með mikinn hljóm finn ég mig knúna til að
syngja.
11. Ég er rosalega mikil tilfinningavera.
12. Ég keyrði bíl áður en ég fékk bíl-
próf.
13. Ég er mjög veik fyrir köttum, en
get ekki verið með kött því kærast-
inn er með ofnæmi.
14. Ég vildi óska þess að mér líkaði
ekki svona ofboðslega vel við
franskar kartöflur.
15. Þegar ég var krakki fór ég oft út
að veiða með pabba mínum og ég
hef líka tekið þátt í hvalaveiði.
ai@mbl.is
SÖNGKONAN
EIVÖR
PÁLSDÓTTIR
15 HLUTIR SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM MIG
14
4
Hér á árum, og áratugum, áður voru reglulega
haldnar svokallaðar iðnsýningar þar sem iðn-
rekendur allskonar fengu tækifæri til að kynna
framleiðslu sína, hver sem hún annars kunni að
vera, almenningur fékk að berja allra handa
herlegheit augum á einum stað. Slíkar sýn-
ingar voru talsverður viðburður í félagslífi
borgarbúa á hverju ári og þangað flykktist fólk,
bæði til að virða fyrir sér það sem til kynningar
var en ekki síður til að sýna sig og sjá aðra.
Iðnsýningin ’83, Heimilið og fjölskyldan ’84
og Heimilið ’85 eru dæmi um slíkar stórsýn-
ingar í Laugardalshöll þar sem fjölskyldur
klæddu sig upp og heimsóttu og varð tals-
verður viðburður úr. Börn tóku strætó milli
borgarhluta til að kíkja enda voru kynningar á
snakki, gosdrykkjum og öðru fastur þáttur. Á
myndinni má sjá innsetningu á Iðnsýningunni
1952 sem kynnir tillögu að fallega uppsettri
setustofu. Sannast hið fornkveðna að fag-
urfræðin fer í hringi. Þetta þætti alltént hin
boðlegasta setustofa á heimili í dag og bara
býsna móðins í þokkabót.
Tímavélin
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Má bjóða yður
setustofu?
„Það er alltaf gaman að fagna tímamótum en sjálfur á ég
sama afmælisdag og faðir minn og amma. Jú, ætli fjöl-
skyldan geri sér ekki dagamun eins og til dæmis að
fara saman út að borða,“ segir Svavar Knútur söngva-
skáld sem er 36 ára nk. laugardag. Hann er kvæntur
Líneyju Úlfarsdóttur og eiga þau dæturnar Dagbjörtu
Lilju og Emmu.
Svavar kveðst vinna að mörgum áhugaverðum
verkefnum um þessar mundir, m.a. plötu sem kem-
ur út með vorinu. Þema hennar er kærleikurinn í
ýmsum myndum. „Ég þarf að semja eins og eitt til
tvö lög enn sem falla að þeim svip plötunnar sem ég
er að sækjast eftir. Svo eru á dagskrá tónleikaferðir
um Evrópu sem hefjast í mars en þá verður stefnan
tekin til Þýskalands, Póllands, Hollands, Danmerkur
og fleiri landa,“ segir söngvaskáldið sem hefur sinnt
ýmsu um dagana en þó haft viðurværi af tónlistinni
síðustu árin. „Það er allt hægt ef sterkur og brenn-
andi áhugi er fyrir hendi. Ekkert er sterkara afl,“ segir
Svavar.
Svavar Knútur er 36 ára á laugardag
Brennandi áhugi er
alltaf sterkasta aflið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Sími 5691100 Ritstjórar
Davíð Oddsson, Haraldur Johannes-
sen Umsjón Jón Agnar Ólason
jonagnar @mbl.is Blaðamenn Sig-
urður Bogi Sævarsson sigurdurbogi@
mbl.is Ásgeir Ingvarsson, Elín
Albertsdóttir, Finnur Thorlacius.
Auglýsingar finnur@mbl.is, sími
5691107 Prentun Landsprent ehf.
Menningin Það er alltaf jafn
gaman að vísítera Listasafn
Einars Jóns-
sonar á
Skólavörðu-
holtinu. Safn-
kosturinn er
óviðjafn-
anlegur, hús-
ið Hnitbjörg
er listaverk út af fyrir sig og
verkin í garðinum heill heimur
ævintýra.
Bíóið Gamaldags njósna-
myndir með leynimakki og
launráðum eru óbrigðul
skemmtun og Tinker Tailor
Soldier Spy er einmitt ein slík.
Myndin gerist
árið 1973 í of-
análag og er því
með öllu ómót-
stæðileg. Gary
Oldman fer
fyrir frábær-
um leikhópi og það jaðr-
ar við alþjóðahneyksli að láta
annað eins fara fram hjá sér.
Bókin Nú þegar jólabóka-
flóðið er að sjatna er lag að ná
sér í klassíska kilju á spott-
prís. Klassíski
kiljuklúbburinn
hjá Forlaginu
býður Meist-
arann og
Margarítu á
1.790 kr. Betri
kaup fást varla
í bænum enda
bókin í hópi helstu skáldverka
20. aldarinnar.
Dægradvölin Fólki þykir mis-
gaman að fara í búðir og
margir hafa hreinan ímugust á
því að fara á útsölur. Það
breytir því ekki að janúar er
tíminn til að gera góð kaup á
því sem kostaði helmingi
meira fyrir jól. Föt og skór eru
dæmi um hluti sem voru
býsna dýrir í desember en fást
á tombóluverði þessa dagana.
Þeir sem nenna að kanna
verðið geta fiskað hressilegan
afslátt og hreppt í kjölfarið
skóna eða flíkina sem þá hef-
ur dreymt um. Eins og verð-
lagið er þá er það talsvert
skynsamleg dægradvöl að
spara …
MEÐMÆLI
VIKUNNAR
Morgunblaðið/Kristinn
720
Shakespeare og segir
frá herforingjanum
Coriolanusi sem er
hrakinn að heiman og
gengur í lið með svörn-
um óvini sínum til að
eyða heimaborg sinni,
Róm, í hefndarskyni. Það
er Gerald Butler sem fer
með hlutverk Aufidiusar,
óvinarins sem söguhetjan
leitar til, en í öðrum helstu
hlutverkum eru Vanessa
Redgrave, Jessica
Chastain og Íslandsvin-
urinn Brian Cox. Á
myndinni sjást þau
Fiennes, Redgrave
og Chastain mæta
til frumsýningar
myndarinnar í New
York.
Ralph Fiennes spreytir sig á leikstjórn
Fiennes fagnar frumrauninni
Reuters
Breski leikarinn Ralph Fien-
nes mætti í fyrradag á frum-
sýningu kvikmyndarinnar
Coriolanus, en auk þess að
leika eitt aðalhlutverkanna
leikstýrir hann myndinni
og er um frumraun hans
að ræða á því sviði. Mynd-
in byggist á samnefndu
leikriti eftir William
2 finnur.is 19. janúar 2012