Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 4
4 finnur.is 19. janúar 2012
Verðlaunaafhendingarnar þegar síðast-
liðið kvikmyndaár er gert upp eru stjörn-
unum ávallt tilhlökkunarefni. Eftirpartíin
sem stóru framleiðslufyrirtækin halda
strax í kjölfarið eru þá ekki minna efni til
eftirvæntingar fyrir fræga fólkið því eng-
inn er maður með mönnum nema hon-
um sé boðið í slíkt eftirpartí. Nóg var
enda um slíkar samkomur í kjölfar 69.
afhendingar Golden Globe-verð-
launanna sem fram fór síðastliðinn
sunnudag.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í
gleðskap sem The Weinstein Company
efndi til, en Harvey Weinstein var
löngum hæstráðandi hjá Miramax, hinu
sögufræga framleiðslufyrirtæki. Hann á
að baki ótal úrvalsmyndir síðustu tutt-
ugu ár eða svo og því ekki að undra þótt
bekkurinn hafi verið þétt setinn í hófinu
sem hann efndi til þegar erlendir blaða-
menn í Hollywood höfðu útdeilt gull-
hnöttum kvöldsins til þeirra sem það
áttu skilið. Er ekki annað sjá en allir hafi
skemmt sér vel, líka þeir sem ekki
hrepptu hnött í þetta sinnið. Það kemur
líka ár eftir þetta og því þeim mun nauð-
synlegra að hitta fólkið í bransanum.
Allir í partí
Fræga fólkið skemmtir sér
Sjarmatröllin
Gerard Butler
og Rob Lowe á
góðri stund.
Jessica Alba
stillir sér upp
ásamt þeim Kelly
Sawyer og Rac-
hel Zoe.
Reuters
Harðhausinn Jason Statham skemmti
sér hið besta ásamt félögum sínum.
Franski leikstjórinn
Michel Hazanavicius
fékk verðlaun fyrir
mynd sína The Artist.
Leikkonan Viola
Davis, úr stórmynd-
inni The Help, brosti
sínu blíðasta.
Leikkonan Rosie Hunt-
ington-Whiteley og
Georgina Chapman,
eiginkona gestgjafans,
Harvey weinstein.
Þór Tulinius lætur hendur standa fram úr ermum þessi
misserin. Til viðbótar við að stunda meistaranám sýnir
hann einleikinn Blótgoða í Landnámssetrinu Borgarnesi.
Þar freistar Þór þess að setja sig inn í hugarheim forfeðra
okkar, það segir kannski mest um yfirbragð sýningar-
innar að hún ber undirtitilinn „uppistand um heiðingja“.
Finnur náði tali af Þóri og fékk að heyra hvernig vikan
gekk fyrir sig:
Sunnudagur: Fór í viðtal til Sirrýar í Sunnudagsmorgnum
með Sirrý. Það var allsvakaleg hálka á götum Reykjavík-
urborgar svo ég erindaðist fyrir foreldra mína svo þeir
þyrftu síður að vera á ferðinni. Gerði greinargerð um
Blótgoða á frönsku því sýningunni er boðið á leiklist-
arhátíð í Frakklandi.
Mánudagur: Fyrir hádegi fundir og skipulag. Byrjaði svo
að dusta rykið af textanum í einleiknum Blótgoðum sem
ég hef ekki leikið síðan í nóvember og tek upp í vikunni.
Mikil yfirlega í vændum. Smákvíði sem leystist upp þegar
Elísabet, besta vinkona, bauðst til að hlýða mér yfir eftir
hádegið. Í framhaldinu lékum við borðtennis með Mikael
syni hennar og vini hans.
Þriðjudagur: Fór í HÍ til að sækja gögn vegna námsins.
Var með fundi út af Blótgoðum varðandi kynningarmál
um eftirmiðdaginn. Veðrið var afleitt og í staðinn fyrir að
fara í göngutúr í náttúrunni til að rifja upp texta eins og
mér þykir best fór ég á brettið í ræktinni og vann þar.
Hugsaði: „A man’s gotta do what a man’s gotta do!“
Miðvikudagur: Tími í Háskólanum hjá Bergljótu S. Krist-
jánsdóttur í námskeiði sem er um líkingar og myndhverf-
ingar. Skemmtilegt að hitta aftur félagana úr ritlistinni frá
því í haust. Æfing í Landnámssetri um eftirmiðdag. Sýn-
ing á Blótgoðum klukkan 20 fyrir nemendur úr Mennta-
skóla Borgarfjarðar. Hressir krakkar! Sýningin gekk vel
og ók til Reykjavíkur á hálum þjóðbrautum.
Fimmtudagur: Fór rólega af stað. Var heima og las. Borð-
aði hádegismat með Elísabetu. Var við opnun Akra, nýs
leikskóla sem vinir mínir tóku þátt í að hanna í Garðabæ.
Fór í tíma í Háskólanum hjá Sigurði Pálssyni í smiðju um
ljóðagerð. Fannst ég vera lánsamur.
Föstudagur: Fór snemma í Borgarnes. Færðin var orðin
mun betri. Renndi í gegnum leikritið nokkrum sinnum og
hugsaði hvað það væri einmanalegt að leika í einleik. Hitti
Sigríði Margréti og Kjartan Ragnars og það voru fagn-
aðarfundir. Hvílíkt sómafólk! Fékk dýrindismat í
Landnámssetrinu að vanda og lék Blótgoða fyrir
góða áhorfendur.
Laugardagur: Viðtal snemma dags við Felix Bergsson í
„bergsson & blöndal“. Var svo allan fyrri partinn með
góðum félögum að drekka kaffi og spjalla um lífið og til-
veruna. Góðar stundir og skemmtilegar! Fór í bíó um
kvöldið með Elísabetu og sá My week with
Marilyn. Hló upphátt!
ai@mbl.is
VIKA Í LÍFI ÞÓRS TULINIUS
’V́eðrið var afleitt og í staðinn fyrir að
fara í göngutúr í náttúrunni til að rifja
upp texta eins og mér þykir best fór ég
á brettið í ræktinni og vann þar.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ögn ein-
manalegt að
leika einleik
’Þ́að var allsvakaleg
hálka á götum
Reykjavíkurborgar
svo ég erindaðist
fyrir foreldra mína
svo þeir þyrftu síður
að vera á ferðinni.
Breska leikkonan Tilda Swinton
hefur tileinkað sér ákaflega sér-
stæðan fatastíl sem fáar aðrar
stjörnur úr leikarastétt geta leik-
ið eftir. Hvort heldur á við liti, efni
eða snið, þá er klæðnaður leik-
konunnar við hátíðleg tækifæri
jafnan víðsfjarri hinum hefð-
bundnu kokteilkjólum sem stöll-
ur hennar úr bransanum skarta á
slíkum stundum. Hitt er svo ann-
að mál að ekki ríkir alltaf sátt um
stíl hennar meðal sjálfskipaðra
tískulögga en hún má eiga það að
eftir henni er tekið. Eins og sjá
má fer árið skrautlega af stað hjá
henni og stíll hennar við sama
heygarðshornið og hingað til.
Einstakur stíll
Reuters
Tilda tildurrófa