Morgunblaðið - 19.01.2012, Blaðsíða 13
19. janúar 2012 finnur.is 13
V
ölusteinsstræti og byggð-
in í Bolungarvík er með
talsvert öðrum svip nú en
þegar ég ólst upp. Það
má kannski segja að breytingarnar
séu öðrum þræði táknmynd breyt-
ingar og þróunar samfélagsins
sem orðið hefur síðustu áratugi,“
segir Bolvíkingurinn Einar Kristinn
Guðfinnsson alþingismaður. Hann
fæddist og ólst upp við götuna
sem dregur nafn sitt af Völusteini
sem var sonur landnámskonunnar
Þuríðar sundafyllis.
Sveitungar Völusteins
„Sigurður Nordal færði fyrir því
rök á sínum tíma að Völusteinn
kynni að vera höfundur Völuspár.
Og auðvitað höfum við sveitungar
Völusteins þá kenningu í háveg-
um,“ segir Einar sem ólst upp í bæ
þar sem höfuðáttirnar eru tæpast
til í daglegu mæli. Bolvíkingar tala
um að fara inneftir og úteftir ella
uppeftir eða niðureftir. Svo er sagt
að farið sé niður á Malir, liggi leiðin
inn í bæ, en upp á Holtin þegar
rætt er um ofanverða byggðina. Og
svo er farið út á Bakka og inn á
Grundir – en svo er byggðin innan
Hólsár nefnd.
Einar Kristinn fæddist 1955 í
húsinu í Völusteinsstræti 28 þar
sem foreldrar hans, Guðfinnur Ein-
arsson og María Haraldsdóttir,
áttu heimili sín fyrstu búskaparár.
„Þetta var hús þeirra sæmd-
arhjóna Sigurðar Guðbjartssonar
og Ólínu Bæringsdóttur sem for-
eldrar mínir leigðu hjá. Þar átti ég
gott atlæti og þeim á ég margt gott
upp að unna. Uppi í Holtunum voru
þau með fjárbúskap og oft fylgdi
ég Sigurði þegar hann fór til gegn-
inga og einnig þegar þau Ólína
heyjuðu stykkið sitt inni í Syðridal.
Þannig kynntist ég í þessum bæ
bernsku minnar bæði sjávarútvegi
sem landbúnaði,“ segir Einar.
Líflegur krakkaskari
Í fyllingu tímans kom að því að
foreldar Einars byggðu sitt eigið
hús, sem var í Völusteinsstræti 26,
og þangað flutti fjölskyldan árið
1958. Er húsið byggt skv. teikningu
Bárðar Ísleifssonar arkitekts og
með líku lagi og prófessorabústað-
irnir við Ara- og Oddagötu í Reykja-
vík; einföld hús og hagnýt.
Við Völusteinsstræti bjuggu flest
föðursystkina viðmælanda okkar;
börn hjónanna Einars Guðfinns-
sonar og Elísabetar Hjaltadóttur.
Þarna í nágrenninu bjuggu sem
sagt; Jónatan og Halla Kristjáns-
dóttir kona hans; Hildur og Bene-
dikt Bjarnason; Guðmundur Páll og
Kristín Marselíusdóttir og Jón Frið-
geir sem giftur er Margréti Krist-
jánsdóttur. Annars staðar í bæn-
um, en skammt frá, bjuggu svo
Pétur Guðni Einarsson og Helga
Aspelund kona hans – en tvö Ein-
arsbarna hinna eldri bjuggu fyrir
sunnan; þau Hjalti og Halldóra.
„Flest föðursystkini mín áttu
börn á líkum aldri og þú getur rétt
ímyndað þér að oft var líflegt hjá
öllum þessum krakkaskara í Völ-
usteinsstrætinu og öðrum krökk-
um sem þar ólust upp eða í ná-
grenninu,“ segir Einar.
Mikill uppgangsstaður
„Við strákarnir drógum á eftir
okkur vörubíla, lögðum vegi í laut-
unum sem skáru Völusteins-
strætið og töldum okkur hafa rutt
brautina með varanlegum hætti.
Raunin var önnur. Ég fór í alltaf í
sveit í Skagafjörð á sumrin og þeg-
ar ég kom til baka eitthvert haustið
hafði verið fyllt upp í lautirnar til
þess að rýma til fyrir nýjum hús-
um. Okkur þótti þetta auðvitað
súrt en urðum að lúta í lægra haldi
fyrir uppbyggunni og framför-
unum,“ segir Einar sem með fjöl-
skyldu sinni, Sigrúnu Þórisdóttur
og börnum þeirra, Guðfinni Ólafi
og Sigrúnu Maríu, flutti síðar í
Völusteinsstræti 16 árið 1984 eftir
að hafa búið annars staðar í bæn-
um í nokkur ár.
„Bolungarvík var mikill upp-
gangsstaður lengi vel og nú er þar
alveg ótrúleg uppbygging í sjávar-
útveginum á nýjan leik,“ segir Einar
sem í dag býr á Bakkastíg 9 – úti á
Bökkum eins og Bolvíkingar segja.
Mikil hlunnindi
„Af Bakkastígnum er fallegasta
útsýni í heimi. Ég sé yfir Ísafjarð-
ardjúpið, inn í Æðey og til bæjanna
á Snæfjallaströnd, en yst á henni
er Bjarnarnúpur. Og svo blasa Jök-
ulfirðirnir við, Grænahlíðin og alveg
út að Rit. Að hafa þessa einstöku
náttúrufegurð í stofuglugganum
eru mikil hlunnindi, sem margir öf-
unda mig af.“
sbs@mbl.is
Gatan mín Völusteinsstræti í Bolungarvík
Táknmynd breytinganna
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnssson.
Einar Guðfinnsson heima í Bolungarvík. Framar er hús Völusteinsstræti 28 þar sem hann fæddist. Ofar hús nr.
26 sem foreldrar hans byggðu og þar ólst Einar upp - en stórfjölskyldan öll bjó á þessum slóðum í bænum.
Bolungarvíkur-
kaupstaður
Þuríðarbraut
Að
al
st
ræ
ti
Þjóðólfsvegur V
öl
us
te
in
ss
tr
æ
ti
Stig
ahlí
ð
Kirkjuvegur
Og svo blasa Jök-
ulfirðirnir við, Græna-
hlíðin og alveg út að
Rit. Að hafa þessa ein-
stöku náttúrufegurð í
stofuglugganum eru
mikil hlunnindi, sem
margir öfunda mig af.
Tröð - slóðin að réttu eigninni... Sími 511 2900
Vorum að fá í einkasölu eina bestu
útleigueiningu á höfuðborgarsvæðinu
staðsetta í Fenjunum.
Eignin er á þremur hæðum skráð samtals 3.752
m² að birtu flatarmáli. Í kjallara er lager með 4,3 m
loftæð og góðri aðkomu, á jarðhæð er verslunar-
rými með verslunarhliðum í þrjár áttir og á 2. hæð
er bjart skrifstofu-/þjónustuhúsnæði.
Önnur hæðin er einstök að því leyti að hægt er að
keyra um rampa upp að rýmum á henni sem gerir
þau nýtanleg fyrir hvers kyns verslun, þjónustu,
eða skrifstofur.
Eignin selst í heilu lagi. Verð kr. 605 milljónir.
Guðlaugur veitir allar nánari upplýsingar
s. 896-0747.
Jón G. Briem, hrl. & lfs.
Til sölu í Fákafeni
Frábær fjárfestingarkostur í fullri útleigu!
Stærðar skipting (u.þ.b.):
Lager: 1.500 m²
Jarðhæð: 1.500 m²
2. hæð: 732 m²