Morgunblaðið - 19.01.2012, Side 13

Morgunblaðið - 19.01.2012, Side 13
19. janúar 2012 finnur.is 13 V ölusteinsstræti og byggð- in í Bolungarvík er með talsvert öðrum svip nú en þegar ég ólst upp. Það má kannski segja að breytingarnar séu öðrum þræði táknmynd breyt- ingar og þróunar samfélagsins sem orðið hefur síðustu áratugi,“ segir Bolvíkingurinn Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður. Hann fæddist og ólst upp við götuna sem dregur nafn sitt af Völusteini sem var sonur landnámskonunnar Þuríðar sundafyllis. Sveitungar Völusteins „Sigurður Nordal færði fyrir því rök á sínum tíma að Völusteinn kynni að vera höfundur Völuspár. Og auðvitað höfum við sveitungar Völusteins þá kenningu í háveg- um,“ segir Einar sem ólst upp í bæ þar sem höfuðáttirnar eru tæpast til í daglegu mæli. Bolvíkingar tala um að fara inneftir og úteftir ella uppeftir eða niðureftir. Svo er sagt að farið sé niður á Malir, liggi leiðin inn í bæ, en upp á Holtin þegar rætt er um ofanverða byggðina. Og svo er farið út á Bakka og inn á Grundir – en svo er byggðin innan Hólsár nefnd. Einar Kristinn fæddist 1955 í húsinu í Völusteinsstræti 28 þar sem foreldrar hans, Guðfinnur Ein- arsson og María Haraldsdóttir, áttu heimili sín fyrstu búskaparár. „Þetta var hús þeirra sæmd- arhjóna Sigurðar Guðbjartssonar og Ólínu Bæringsdóttur sem for- eldrar mínir leigðu hjá. Þar átti ég gott atlæti og þeim á ég margt gott upp að unna. Uppi í Holtunum voru þau með fjárbúskap og oft fylgdi ég Sigurði þegar hann fór til gegn- inga og einnig þegar þau Ólína heyjuðu stykkið sitt inni í Syðridal. Þannig kynntist ég í þessum bæ bernsku minnar bæði sjávarútvegi sem landbúnaði,“ segir Einar. Líflegur krakkaskari Í fyllingu tímans kom að því að foreldar Einars byggðu sitt eigið hús, sem var í Völusteinsstræti 26, og þangað flutti fjölskyldan árið 1958. Er húsið byggt skv. teikningu Bárðar Ísleifssonar arkitekts og með líku lagi og prófessorabústað- irnir við Ara- og Oddagötu í Reykja- vík; einföld hús og hagnýt. Við Völusteinsstræti bjuggu flest föðursystkina viðmælanda okkar; börn hjónanna Einars Guðfinns- sonar og Elísabetar Hjaltadóttur. Þarna í nágrenninu bjuggu sem sagt; Jónatan og Halla Kristjáns- dóttir kona hans; Hildur og Bene- dikt Bjarnason; Guðmundur Páll og Kristín Marselíusdóttir og Jón Frið- geir sem giftur er Margréti Krist- jánsdóttur. Annars staðar í bæn- um, en skammt frá, bjuggu svo Pétur Guðni Einarsson og Helga Aspelund kona hans – en tvö Ein- arsbarna hinna eldri bjuggu fyrir sunnan; þau Hjalti og Halldóra. „Flest föðursystkini mín áttu börn á líkum aldri og þú getur rétt ímyndað þér að oft var líflegt hjá öllum þessum krakkaskara í Völ- usteinsstrætinu og öðrum krökk- um sem þar ólust upp eða í ná- grenninu,“ segir Einar. Mikill uppgangsstaður „Við strákarnir drógum á eftir okkur vörubíla, lögðum vegi í laut- unum sem skáru Völusteins- strætið og töldum okkur hafa rutt brautina með varanlegum hætti. Raunin var önnur. Ég fór í alltaf í sveit í Skagafjörð á sumrin og þeg- ar ég kom til baka eitthvert haustið hafði verið fyllt upp í lautirnar til þess að rýma til fyrir nýjum hús- um. Okkur þótti þetta auðvitað súrt en urðum að lúta í lægra haldi fyrir uppbyggunni og framför- unum,“ segir Einar sem með fjöl- skyldu sinni, Sigrúnu Þórisdóttur og börnum þeirra, Guðfinni Ólafi og Sigrúnu Maríu, flutti síðar í Völusteinsstræti 16 árið 1984 eftir að hafa búið annars staðar í bæn- um í nokkur ár. „Bolungarvík var mikill upp- gangsstaður lengi vel og nú er þar alveg ótrúleg uppbygging í sjávar- útveginum á nýjan leik,“ segir Einar sem í dag býr á Bakkastíg 9 – úti á Bökkum eins og Bolvíkingar segja. Mikil hlunnindi „Af Bakkastígnum er fallegasta útsýni í heimi. Ég sé yfir Ísafjarð- ardjúpið, inn í Æðey og til bæjanna á Snæfjallaströnd, en yst á henni er Bjarnarnúpur. Og svo blasa Jök- ulfirðirnir við, Grænahlíðin og alveg út að Rit. Að hafa þessa einstöku náttúrufegurð í stofuglugganum eru mikil hlunnindi, sem margir öf- unda mig af.“ sbs@mbl.is Gatan mín Völusteinsstræti í Bolungarvík Táknmynd breytinganna Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnssson. Einar Guðfinnsson heima í Bolungarvík. Framar er hús Völusteinsstræti 28 þar sem hann fæddist. Ofar hús nr. 26 sem foreldrar hans byggðu og þar ólst Einar upp - en stórfjölskyldan öll bjó á þessum slóðum í bænum. Bolungarvíkur- kaupstaður Þuríðarbraut Að al st ræ ti Þjóðólfsvegur V öl us te in ss tr æ ti Stig ahlí ð Kirkjuvegur Og svo blasa Jök- ulfirðirnir við, Græna- hlíðin og alveg út að Rit. Að hafa þessa ein- stöku náttúrufegurð í stofuglugganum eru mikil hlunnindi, sem margir öfunda mig af. Tröð - slóðin að réttu eigninni... Sími 511 2900 Vorum að fá í einkasölu eina bestu útleigueiningu á höfuðborgarsvæðinu staðsetta í Fenjunum. Eignin er á þremur hæðum skráð samtals 3.752 m² að birtu flatarmáli. Í kjallara er lager með 4,3 m loftæð og góðri aðkomu, á jarðhæð er verslunar- rými með verslunarhliðum í þrjár áttir og á 2. hæð er bjart skrifstofu-/þjónustuhúsnæði. Önnur hæðin er einstök að því leyti að hægt er að keyra um rampa upp að rýmum á henni sem gerir þau nýtanleg fyrir hvers kyns verslun, þjónustu, eða skrifstofur. Eignin selst í heilu lagi. Verð kr. 605 milljónir. Guðlaugur veitir allar nánari upplýsingar s. 896-0747. Jón G. Briem, hrl. & lfs. Til sölu í Fákafeni Frábær fjárfestingarkostur í fullri útleigu! Stærðar skipting (u.þ.b.): Lager: 1.500 m² Jarðhæð: 1.500 m² 2. hæð: 732 m²

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.