Morgunblaðið - 19.01.2012, Qupperneq 6
6 finnur.is 19. janúar 2012
Fylgstu með í MBL sjónvarpi
alla miðvikudaga.
Ebba Guðný sýnir þér hvernig hægt er að
matreiða hollan og góðan mat með lítilli fyrirhöfn.
- heilsuréttir
Sófakartaflan hefur fyrirvara á endurgerðum góðra kvikmynda. Framhaldsmyndir eru eitt, og í þeim
tilfellum er oft hægt að gera enn betur en í fyrstu atrennu. Nægir í því sambandi að nefna Aliens,
Star Wars Episode V: The Empire Strikes Back, Lethal Weapon 2, The Godfather, Part 2, Toy Story 3
og The Dark Knight. En þegar kemur að því að endurgera góða mynd vandast málið. Spyrjið bara Gus
Van Sant sem ákvað að endurgera Hitchcock-klassíkina Psycho árið 1998. Það reyndist slæmur
skellur hjá annars frábærum leikstjóra. Það er nefnilega snúið að endurgera meistaraverk; hvernig
ætlarðu að bæta frumgerðina? Og ef þú treystir þér ekki til að bæta neinu við, til hvers að end-
urgera? Þetta flaug gegnum huga sófakartöflunnar þegar henni varð á að horfa á nýlega mynd um
Clouseau lögregluforingja, þar sem Steve Martin fer með hlut-
verkið sem Peter Sellers gerði ódauðlegt. Þvílíkur dómgreind-
arbrestur að halda yfirleitt að einhver annar geti farið í ryk-
frakka hins frábæra franska löggæslumanns! Enda er myndin
svo herfilega vond að sófakartaflan entist ekki myndina á
enda og vorkenndi af öllum mætti annars ágætum leikarahópi
sem taldi Alfred Molina, Jean Reno og John Cleese, meðal ann-
arra. Sárgrætileg sóun atarna. Þá er betra að hugsa upp eitthvað
nýtt, frekar en að sigla hugmyndum annarra í strand.
SÓFAKARTAFLAN RAUSAR
Að gera betur – eða ekki
A
meríka varð til á götunni“ segir kynning-
arplakat myndarinnar Gengi New York-
borgar eða Gangs Of New York. Og götur
stórborgarinnar voru ekki kræsilegur
vettvangur um miðja nítjándu öld; strætin eru
bæði skítug og blaut, og auk þess vægðarlaus
vígvöllur þegar hópi írskra innflytjenda lýstur
saman við heimamenn í blóðugum átökum.
Fyrir flokki innfæddra fer varmennið Bill
Cutting, iðulega nefndur Slátrarinn, og drepur
hann meðal annarra leiðtoga Íranna, Priest
Vallon. Barnungur sonur Vallons, Amsterdam,
verður vitni að drápinu og sver að snúa aftur
síðar til að jafna sakirnar. Að sönnu snýr
hann aftur, mörgum árum síðar, en ráða-
gerðin reynist snúnari í framkvæmd en
hann hugði.
Gangs Of New York reyndist fyrsta mynd-
in í röð samstarfsverkefna leikstjórans
Scorseses og leikarans Leonardos Di-
Caprios. Samstarfið hefur reynst býsna
happasælt og telur nú fjórar myndir
sem allar hafa hlotið góða aðsókn
áhorfenda sem og dóma gagnrýn-
enda. The Aviator, The Departed og
Shutter Island eru enda prýðilegasta
bíó. Skrautfjöður Gangs Of New York er hins vegar öndveg-
isleikarinn Daniel Day-Lewis sem fer á ógnvænlegum
kostum sem Slátrarinn. Þá eru traustir menn í
aukahlutverkum og má þar nefna Liam Neeson,
John C. Reilly og síðast en ekki síst Jim
Broadbent sem er frábær í hlutverki Boss
Tweeds, hins gerspillta og sannsögulega
leiðtoga demókrata í New York á árunum
sem myndin gerist.
Gangs Of New York er sýnd á RÚV á
laugardaginn.
DAGSKRÁIN
UM HELGINGA
Mat-
reiðslu-
þættir eru
fínasta efni
þegar vel er
að þeim
staðið, og
Yesmine Olsson galdrar
fram mat sem er í senn
framandi og freistandi.
Þættir hennar eru á RÚV.
Fimmtudagur
Hvernig er
annað
hægt en að
kíkja á
mynd sem
kallast The
Hot Tub
Time Machine? John Cu-
sack leiðir leikhópinn í
skemmtilegri dellumynd á
Stöð 2.
Föstudagur
Milos For-
man er
meðal höf-
uðskálda
samtím-
ans í kvik-
mynda-
gerð. Verk hans eru alltaf
þess virði að kíkja á og
Goya’s Ghosts er engin
undantekning. Stöð 2 Bíó.
Föstudagur
Óskarsverðlaunamyndin
Precious frá 2009 er mögn-
uð upplifun sem lætur eng-
an ósnortinn. Sýnd á Stöð 2.
Þeir sem
ekki eru
nægilega
þjóðrækn-
ir til að
horfa á
heilu
handboltaleikina á EM
geta að minnsta kosti kíkt
á samantektina EM-kvöld
á RÚV til að vera með.
Sunnudagur
Manhattan er í huga flestra
þyrping gljáfægðra skýjakljúfa.
En New York sleit barnsskónum
með talsvert hrárri formerkj-
um, og þegar Martin Scorsese
segir söguna er viðbúið að
blóðið leki um stræti og torg.
* Í slagsmálaatriði einu braut Dicapio óvart nefið á
Day-Lewis, sem var í slíkum ham að hann þverneit-
aði að taka hlé og fá aðhlynningu.
*Næsta samstarfsverkefni hans og DiCaprio
verður mynd um söngvarann og goðsögnina Frank
Sinatra.
*Martin Scorsese var tilnefndur til Óskars-
verðlauna í 4.sinn sem besti leikstjóri fyrir
Gangs Of New York. Hann vann ekki.
*Daniel Day-Lewis hlustaði að eigin sögn
á Eminem til að gíra sig upp fyrir tökur á
myndinni.
*Þegar hann var tilnefndur í6.sinn, fyrir The Departed árið2006, hreppti hann þau loks.
Vissir
þú að...
Daniel Day-
Lewis í hlut-
verki slátrarans
Bill Cutting
Blóðug stræti
borgar
Steve
Martin
Peter
Sellers
Laugardagur