Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 10
10 finnur.is 19. janúar 2012
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Á
þeim tíma sem ég hóf þessar ferðir voru þær nýj-
ung. Ég hef m.a. farið með hópa til Toskana á Ítal-
íu í tólf ár. Það var undarleg tilviljun þegar ég
kynntist síðan nýjum samstarfsmönnum þar,“
segir Steinunn sem núna fer með ferðamenn á afskekktan
stað í Garfagnana-héraði norðvestur af Toskana, en það er
skógi vaxið fjalllendi.
„Ég fór ásamt samstarfsmanni mínum í óundirbúna ferð
um þetta svæði til að skoða aðstæður. Við ókum yfir fjöll
og dali en rákumst ekki á nokkurn mann sem talaði ensku.
Stuttu síðar hittum við mann sem var að afferma bíl og
mér datt í hug að athuga hvort hann væri mælandi á enska
tungu sem reyndist vera. Auk þess talaði hann dönsku.
Svo skemmtilega vildi til að hann hafði lengi dreymt um að
skipuleggja gönguferðir um þetta svæði og sendi okkur til
vinahjóna sem reka lítið fjallahótel skammt frá. Við sett-
umst síðan niður með þessu fólki og skipulögðum ferðir,“
útskýrir Steinunn. Hótelið er í 800 metra hæð. Sú hug-
mynd kom upp að búa til sælkera- og gönguferðir og það
hefur lukkast mjög vel. Ferðahópurinn skiptist í tvennt,
annar helmingurinn er í eldhúsinu og sér um allan mat á
meðan hinn fer í gönguferðir og síðan skipta hóparnir um
hlutverk. Við gerum eigið pasta og tínum jurtir í nágrenn-
inu og búum til kryddolíu sem við tökum með heim.“
Ferskleiki skiptir máli
Steinunn segist vera matgæðingur þótt hún eldi ekki alla
daga. „Ég hef mjög gaman af því að bjóða gestum í mat en
þar sem ég bý ein er ég löt við að elda fyrir mig. Ég borða
fisk í vinnunni en fæ mér eitthvað fljótlegt á kvöldin. Ég fer
sjaldan út að borða en reyni að finna skemmtilegar upp-
skriftir, þó aðallega til að skoða hráefnisnotkun. Ég borða
sjaldan kjöt og kaupi helst ekki unnar vörur. Ferskleiki
skiptir mig máli og hollt brauð. Stundum tek ég mig til og
baka brauð en það kemur í törnum,“ segir hún.
Steinunn segist gera flest stærri innkaup í Bónus en fer
einnig í Kjöthöllina á Háaleitisbraut sem hún segir að sé sín
hverfisverslun. „Ég vil styðja kaupmanninn á horninu,“
segir hún.
Vín og matargerð
Það myndast ákaflega skemmtileg stemning í mat-
arferðunum og ég hef gaman af því þegar íslenskar hús-
mæður segja frá því að þær hafi nú oft bakað torta della
nonna sem er þekkt ítölsk sítrónukaka. Í sælkeraferðinni
eru ekki gerðar kröfur um að fólk sé vant göngufólk. Þetta
er ekki erfitt svæði en allir verða samt að vera góðir til
gangs. Á kvöldin eru kynnt vín og matargerð úr héraðinu.
Sveitin er afskekkt og hefur verndast frá iðnvæðingunni.“
Auk þess að fara í gönguferðir starfar hún hjá RÚV.
Steinunn er með þátt á laugardögum sem nefnist Út um
græna grundu en hann fjallar um útivist. Þáttinn hefur hún
verið með í sextán ár á Rás 1 sem þykir dágóður tími.
Steinunn getur því sameinað áhugamál og vinnu. Hægt er
að skoða ferðirnar á síðunni gonguhrolfur.is.
Steinunn ætlar að gefa lesendum uppskrift að tyrknesku
gulrótarsalati sem hún kynntist á ferðum sínum.
elal@simnet.is
Steinunn Harðardóttir leiðsögu- og útvarpsmaður, fer með hópa í sælkera- og gönguferðir til Ítalíu
Ferskleiki skiptir mig máli
Steinunn Harðardóttir, leiðsögu-
og útvarpsmaður, fer m.a. í sæl-
kera- og gönguferðir til Ítalíu sem
hafa verið vinsælar.
Gulrótarsalat
frá Tyrklandi
5 gulrætur
300 g hrein jógurt
2 hvítlauksrif, pressuð
2 matskeiðar majónes
smáolía
Gulræturnar rifnar gróft á
rifjárni og síðan hitaðar
stutta stund á pönnu.
Þegar gulæturnar hafa
kólnað svolítið er þeim
hrært saman við jógurt,
majónes, olíu og hvítlauk.
Borið fram með græn-
meti, brauði eða fiski.
3. þáttur
Muffins
Hræra vel saman eggin, pálmasykurinn, lucuma og
vanillu. Bræða varlega og rólega smjör/kókosolíu.
Setja spelt og vínsteinslyftiduft út í eggjahræruna og
hræra saman við rólega, þá smjörinu/kókosolíunni og
í lokin súkkulaðinu (skorið smátt fyrst). Sett í muffins
form og bakað í um 185 gráðu heitum ofni í um 10
mínútur. Gætið þess að baka þær ekki of lengi því
þá verða þær þurrar og ekki eins góðar. Þessar eru
dásamlegar í kaffitímanum!
3 egg (ég kaupi vistvæn)
1 dl pálmasykur
1 msk lucuma (má sleppa)
1/2 tsk vanilluduft (má sleppa)
3 tsk vínsteinslyftiduft
3 dl tæpir spelt (2 dl fínt og 1 dl gróft)
80-90 gr smjör (eða kaldpressuð kókosolía
Lucuma er næringarríkur ávöxtur frá Suður-Ameríku.
Lucuma er hægt að kaupa sem hrátt duft, súperduft til að
nota í sjeika og aðrar uppskriftir til að sæta. Lucuma er
frábært í barnamat til dæmis. Lucuma duft er sætt og með
pínu karamellu keim og hefur lítil áhrif á blóðsykurinn okkar.
Vínsteinn er náttúrulegt salt sem myndast innan á víntun-
num þegar vínberjasafinn hefur gerjast í þeim. Vínsteinn,
natríum karbónat ásamt maíssterkju mynda saman frábæra
blöndu í lyftiduft. Vínsteinslyftiduftið er glúteinlaust og án
snefilefna úr áli.
Pálmasykur, lífrænn, er unnin náttúrulega úr pálmatrjám.
Hann er gerður úr sætum safa blóma kókostrjánna. Safinn
er soðinn þar til hann verður að þykkri karamellu og síðan
er hann þurrkaður og malaður í fínt duft. Pálmasykur hefur
lágan sykurstuðul eða um GI35 sem er um helmingur af
sykurstuðli venjulegs sykurs. Hann inniheldur einnig ýmis
vítamín og steinefni.
Fylgstu með í MBL
sjónvarpi alla miðvikudaga.
eða smjör og kókosolía til helminga)
100 gr 70% súkkulaði (má vera minna)