Morgunblaðið - 19.01.2012, Qupperneq 12
Fasteignasalan Bær, Ögurhvarf 6, Kópavogi.
Fasteignasalinn þinn
þegar þú
þarft að selja!
Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali
Persónuleg og
fagleg þjónusta
Hringdu núna s.
864 8090
snorri@fasteignasalan.is
fasteignir
Óperuhúsið í Sydney er meðal þekktustu
bygginga veraldar. Það var vígt árið 1973,
eftir 16 ár í byggingu. Húsið er hannað
af danska arkitektinum Jörn
Utzon hýsir um 155
viðburði á hverju ári.
V
iðskipti með bújarðir og
stærri landareignir hafa
aukist mjög að und-
anförnu og eru að rétta
úr kútnum eftir það bakslag sem
hruninu fylgdi. Ég hef fengið all-
margar áhugaverðar eignir á
söluskrá að
undanförnu en
þá ber að taka
fram að aðdrag-
andi þess að
kaup gangi í
gegn er oft
mjög langur. Oft
líður heilt ár frá
því áhugasamur
kaupandi að
jörð hefur sam-
band uns samningar ganga í
gegn,“ segir Magnús Leópolds-
son, löggiltur fasteignasali hjá
Fasteignamiðstöðinni.
Leita leiðréttingar
Ágæt sala hefur verið í jörðum
og landspildum að undanförnu –
og segir Magnús markaðinn vera
á svipuðu róli og árið 2005 hvað
varðar eftirspurn og verð. Heilt
yfir sé verðið í dag um það bil
30% lægra en var, til dæmis árið
2007, og í dag sé mest eftirspurn
eftir jörðum sem eru í um það bil
100 km radíus út frá höfuðborg-
inni.
„Vissulega er kaupgeta manna
ekki hin sama og var. Seljendur
reyna hins vegar eftir megni að
halda sjó og vilja ekki fara mikið
niður fyrir uppsett verð. Í þessum
viðskiptum gildir þá að finna ein-
hvern milliveg svo báðir aðilar
gangi sáttir frá borði,“ segir
Magnús. Aðspurður segir hann
lítið um að bændur sem keyptu
jarðir eða fjárfestu með lánsfé í
góðærinu svonefnda séu í dag að
varpa af sér oki með því að selja
jarðir sínar. Menn leiti frekar leið-
réttingar á sínum málum í bönk-
um til þess að geta haldið áfram.
„Við fáum mjög lítið af jörðum
með fullvirðis- og framleiðslurétti
á söluskrá. Fólk sem á rætur í
sveitunum vill halda sínu striki og
ófáir taka þann pól í hæðina að
ekki sé verra að vera í búskap en
hverju öðru starfi,“ segir Magnús.
Nokkrar áhugaverðar eignir eru
á söluskrá hjá Fasteignamiðstöð-
inni um þessar mundir. Þar nefnir
Magnús meðal annars jörðina
Mávahlíð sem er undir Búlands-
höfða á Snæfellsnesi og býður
upp á margvíslega möguleika
bæði í ferðaþjónustu og hefð-
bundnum búskap. Marga myndir
sjálfsagt langa að setja sig niður í
Svefneyjum á Breiðafirði eða á
Hvalnesi á Skaga, sem er áhuga-
verð hlunnindajörð með mikla
möguleika. Þá er til sölu Hjalta-
bakki skammt vestan við Blöndu-
ós, en þeirri jörð fylgja veiðirétt-
indi í Laxá á Ásum, sem er ein
vinsælasta laxveiðiá landsins.
Skógræktarjörð í Flóa
Á Suðurlandi eru einnig ýmsar
eignir á söluskrá. Þar má meðal
annars nefna Hreiðurborg við Sel-
foss og í Flóanum eru á söluskrá
Hróarsholt, skógræktarjörðin
Hnaus og Fljótshólar við Þjórs-
árósa, góð hlunnindajörð. Einnig
Útey í Laugardal sem fylgja veiði-
réttindi í Apavatni og Laug-
arvatni. Þá eru til sölu Hellishólar
í Fljótshlíð en þar er starfrækt
ferðaþjónusta og áningarstaður
þar sem margir hafa viðdvöl.
sbs@mbl.is
Bæjarhúsin á skógræktarjörðinni Hnaus í Flóan eru reisuleg og burstirnar eru tilbrigði við stíl torfbæjanna. Sígilt byggingarlag sem stendur sínu.
Útey er í Laugardal og fylgja jörðinni veiðiréttindi í aðliggjandi vötnum.
Mávahlíð er við Búlandshöfða á Snæfellsnesi og bjóðast þar ýmsir möguleikar t.d. í ferðaþjónustu og veiði.
Magnús
Leópoldsson
Að Hellishólum í Fljótshlíð er starfrækt ferðaþjónusta sem er til sölu.
Miklar hlunnindajarðir til sölu
Verð á jörðum og stærri eignum lækkað um 30%, segir Magnús Leópoldsson hjá Fasteignamiðstöðinni
Fólk sem á rætur í sveit-
unum vill halda sínu
striki og ófáir taka þann
pól í hæðina að ekki sé
verra að vera í búskap en
hverju öðru starfi.