Morgunblaðið - 19.01.2012, Qupperneq 17
19. janúar 2012 finnur.is 17
Morgunblaðið/Ómar
Óskaiðjan?
Mér finnst yfirleitt skemmtileg-
ast að gera það sem ég er að gera
hverju sinni. Mér finnst til dæmis
gaman í vinnunni þar sem ég er
svo heppin að fá að vinna við það
sem ég hef áhuga á.
Annars held ég að bestu stund-
irnar séu í löngum hestaferðum
þar sem maður nær að gleyma
stað og stund á fallegum stöðum
með frábæru fólki. Þá er svo auð-
velt að bara njóta og vera.
Óskamaturinn?
Ég er mjög veik fyrir frönskum
mat, enda er ég alin upp á honum.
Frakkar eru miklir sælkerar þegar
kemur að mat og víni. Ég get
nefnt svo margt
sem er
gott: Hani í
víni, geita-
ostur, önd
eða gæs
og bara
alls
konar sveitamatur. Mér dettur svo
margt í hug að ég er orðin svöng.
Draumabíllinn?
Helst langar mig að eiga mót-
orhjól en það er kannski ekki hent-
ugt þessa dagana á Íslandi í snjó-
þyngslum og kulda. Draumabíllinn
er örugglega fönkí bíll sem bilar
ekki og er á góðum dekkjum.
Draumaverkefnið?
Draumaverkefnið væri að leik-
stýra mynd eftir frábæru handriti
með besta fólkinu með mér sem
völ væri á. Ég myndi heldur ekki
segja nei ef Madonna bæði mig að
syngja með sér dúó eða leikstýra
sér í tónlistarmyndbandi.
Hvað vantar á heimilið?
Sumum finnst að það vanti
sjónvarp á heimili mitt. Ég er
ósammála en ég viðurkenni að ég
væri alveg til í að eiga upp-
þvottavél svona stundum.
Hvað langar þig sjálfa
helst í?
Ég væri til í að eiga hús á
fallegum, fjarlægum,
heitum stað við sjó-
inn þar sem ég
gæti setið og skrif-
að á daginn, stund-
að jóga, synt í sjón-
um, borðað ávexti af trján-
um, drukkið kokteila á kvöldin og
boðið öllum vinum mínum að
vera með.
jonagnar@mbl.is
ÓskalistinnVera Sölvadóttir
Franskur matur og langar hestaferðir
Vera Sölvadóttir er
kona eigi einhöm og er
jafnan með nokkur
járn í eldinum. Hún er
lærður leikstjóri, skip-
ar helming dúettsins
BB&Blake og er einn
stjórnenda menning-
arþáttarins Djöflaeyj-
unnar sem sýndur er á
RÚV. Þessa dagana er
hún að undirbúa tökur
á tónlistarmyndbandi,
fást við handritsskrif
og vinna við dagskrár-
gerð í Djöflaeyjunni,
nema hvað. Vera gaf
sér tíma til að deila
sínum óskalista með
lesendum Finns.is.
Sjálf var ég orðin frekar þreytt á dökkum hús-
gögnum og langaði til að lýsa rýmið upp. Þá var
ekki um annað að ræða en bara bretta upp erm-
arnar og láta verkin tala.
Það er mikilvægt að hafa gott vinnusvæði, að-
allega vegna þess að það er mikil lykt af málning-
unni sem notuð er. Loftræsting er að sama skapi
mikilvæg.
Það sem þarf er auðvitað eitt stykki borð, olíu-
grunnur og lakkmálning (ég notaði lakkmálningu með háu gljástigi).
Lítil málningarrúlla fyrir borðplötuna og pensill fyrir fætur.
Svo er bara að skella þessu á og láta þorna.
maja@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Gamalt sófaborð fær nýtt líf
Það er auðvelt að breyta
til hjá sér fyrir lítinn pen-
ing. Borðið sem ég tók í
gegn er gamalt tekkborð
og það er pottþétt til á
mörgum heimilum, enda
mikil tískubylgja fyrir ekki
svo mörgum árum.
Breytt og
bætt með
Maju
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson
hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090
jöreign ehf
OPIÐ HÚS
SÓLHEIMAR 26, REYKJAVÍK
nk. laugard. og sunnud. milli kl. 13:00-14:30
Falleg 75 fm 3ja herbergja
íbúð á jarðhæð í fjögurra
íbúða húsi á góðum stað í
rótgrónu hverfi. Endurnýjað
baðherbergi að hluta. Góð
staðsetning gagnvart
þjónustu og stutt í
Laugardalinn. Íbúðin er
laus. Langtímalán kr. 16,4
millj. frá L.Í. getur fylgt
með. Verð 19,8 millj.
Einar Sveinn tekur á móti áhugasömum.
Til sölu u.þ.b. 24,85% eignahlutur í 2700ha landi í
sveitarfélaginu Vogar. Landið liggur að hluta til að þétt-
býli og er hluti af því mögulegt bygginarland. Nú þegar
tilbúið skipulag að nokkrum atvinnuhúsalóðum.
Áhugaverð vatndréttindi.
Verð 60 millj. Tilvs. 110138
FJÁRFESTINGAKOSTUR
-LAND VIÐ ÞÉTTBÝLI