Morgunblaðið - 19.01.2012, Síða 23
bílar
Nýr Opel Mokka fær góða dóma í
dönskum fjölmiðlum. Bíllinn býðst
með þremur vélarstærðum; það er
115 og 140 hestafla bensínvélum og
130 hestafla díselvél. Bílinn verður
frumsýndur á Ítalíu í mars.
Nýjasta fólksbílalínan hjá Renault var kynnt hjá um-
boði Ingvars Helgasonar og B&L um sl. helgi.
Hinn nýi Renault Megane III Sport Tourer dísil
er þriðja kynslóð af skutbílaútfærslu af Re-
nault Megane. Eyðslan á sjálfskiptum bíl-
um þessarar gerðar er uppgefin aðeins
3,7 lítrar á hverja 100 km í langkeyrslu og
ekki nema 4,2 lítrar í blönduðum akstri.
„Eftir því sem við komumst næst eru þessir
nýju sjálfskiptu dísilbílar þeir sparneytnustu í
sínum stærðarflokki sem völ er á og enginn sjálfskiptur sem getur
státað af eins lítilli eyðslu og nýju Renault Megan-bílarnir. Jafnframt nýta
þeir orkuna afar vel þegar skipt er milli gíra,“ segir Bjarni Þ. Sigurðsson, sölustjóri Renault.
Megan Sport Tourer sjálfskiptur kostar 3,7 milljónir kr. og Megan 5 dyra útgáfan, einnig sjálfskipt,
kostar 3,6 milljónir kr. Á sýningunni var einnig sýndur nýr Renault Clio dísil sem kostar rúmlega 2,7
millj. kr. beinskiptur.
Allir þessir Renault-bílar eru með framúrskarandi lágar útblásturstölur og fá því allir frítt í bílastæð-
in í miðborginni í Reykjavík eins og núorðið gildir um bíla sem eru grænir samkvæmt góðum umhverf-
isgildum. Einnig bera þeir lág vöugjöld sem gerir verð þeirra hagstætt. Þá er bíllinn að stærstum hluta,
eða alls 85%, unninn úr efnum sem eru endurvinnanleg og hefur það mikil áhrif í umhverfismálum og
þar með á hve verð bílsins er hagstætt á flestan mælikvarða.
sbs@mbl.is
Renault Megane III Sport Tourer kominn til landsins
M
argar nýjungar líta
dagsins ljós á fyrstu
stóru bílasýningu árs-
ins sem nú stendur yfir
í Detroit í Bandaríkjunum. Stóru
framleiðendurnir þrír í Detroit eru
að jafna sig eftir efnahagshrunið.
Tveir þeirra, Chrysler og GM,
þurftu að fá stór lán frá bandaríska
ríkinu til að halda starfsemi áfram
fyrir nokkrum árum og var fénu
varið í endurbætur. Það hefur skil-
að sér í söluaukningu og er fram-
tíðin því björt.
Cadillac í kepppni við BMW
Lítum á einstaka nýjungar á sýn-
ingunni. Margir hafa reynt að búa
til bíl sem getur keppt við 3-línuna
frá BMW. Þó er sem BMW eigi
töfraformúlu í þessum flokki. Ca-
dillac CTS var seinasta tilraun Ca-
dillac til að keppa við 3-línuna frá
BMW. Nú er einblínt á að sá bíll
keppi við bíla á borð við BMW 5-
línuna og Mercedes Benz E-flokk.
Cadillac ætlar að reyna aðrar leiðir
og mun ATS, sem er ný gerð, vera
næstum því jafn stór og 3-línan.
Dodge Dart árgerð 2013 er fyrsti
bíllinn sem Dodge kynnir til sög-
unnar sem er byggður á Fiat-grind.
Að vísu er grindin undan Alfa Ro-
meo sem er líka í eigu Fiat, en hún
hefur verið stækkuð og aðlöguð að
amerískum þörfum. Stækkunin
skilar sér í rúmbetri bíl og jafnast
plássið á við bíl í einum stærð-
arflokki ofar.
Draumur að hanna Dart
Dart kemur í stað Caliber sem
hefur verið á markaði síðan árið
2007 er hann leysti Dodge Neon
af. Caliber náði aldrei sömu vin-
sældum og Neon sökum þess hve
óvenjulegur hann var í útliti. Dodge
vonast því til að bæta úr því með
Dart. „Það var draumi líkast að
hanna Dodge Dart,“ sagði yf-
irhönnuðurinn, Joe Dehner. Kaup-
endum Dart býðst bíllinn í fjórtán
mismunandi litum og klæðningum.
Í boði munu vera þrjár fjögurra
strokka vélar: 2,0, 1,4 og 2,4 lítra.
Tveggja lítra vélin skilar 160 hest-
öflum og 197 nm af togi, 1,4 lítra
vélin sem kemur með túrbínu skilar
jafn mörgum hestöflum en 250 nm
af togi. Stærsta vélin skilar 184
hestöflum en einungis jafn miklu
togi og kraftminnsta vélin.
Hugmyndabíllinn Pathfinder
Og það eru ekki bara amerískir
bílaframleiðendur sem kynna nýja
bíla á bílasýningunni í Detroit. Má
þar nefna Nissan sem kynnti Path-
finder-hugmyndabílinn sem ætti
að gefa góða mynd af næsta bíl
þeirrar gerðar sem fer í framleiðslu
næsta haust. Nýr Pathfinder verð-
ur sjö sæta og vegna endurbættrar
sex strokka vélar og nýrrar skipt-
ingar má vænta má allt að 25%
minni eyðslu en í gamla jeppanum.
Umhverfisvænn ofurbíll
Bílarnir á sýningunni eru mis-
langt komnir í þróunarferlinu og er
Acura NSX dæmi um einn sem
mun ekki fara í framleiðslu fyrr en
eftir nokkur ár, ef það þá gerist
nokkurn tíma. Acura NSX, betur
þekktur sem Honda NSX í Evrópu,
var í framleiðslu á árunum 1990 til
2005 og síðan þá hafa aðdáendur
beðið um nýjan. Með nýja hug-
myndabílnum er reynt að stíla inn á
umhverfisvernd, en hann er bæði
knúinn af rafmagni og bensíni.
„Mér finnst að ofurbíll eigi að
fara vel með umhverfið,“ sagði Tak-
anobu Ito, framkvæmdastjóri
Honda.
jonas@kanina.net
Margar nýjungar á stóru bílasýningunni í Detroit í Bandaríkjunum
Amerískar fyrirsætur stilla sér fyrir framan árennilegan Ford Mustang á sýningu í Detroit.
Acura NSX fer ekki í framleiðslu fyrr en eftir nokkur ár, ef þá nokkurn
tíma. Bílinn er ef til vill best þekktur á Evrópumarkaði sem Honda NSX.
Ofurbílar fari vel með umhverfið
Reuters
Sparneytinn og spennandi
Renault Megane
III Sport Tourer