Morgunblaðið - 19.01.2012, Síða 25
Farangursrými bílsins er stórt og
er bíllinn allur mjög rúmgóður.
hann má stöðva á einkennilega
stuttri vegalengd.
Glæsilegur að innan
Innrétting bílsins er sérkapítuli,
en hún er sérstaklega glæsileg og
fer langleiðina að Porsche Cayenne
í íburði og flottheitum. Efnisval, frá-
gangur og stíll er í hæsta gæða-
flokki. En það eru ekki bara fram-
sætisfarþegar sem líður vel í
Touareg því aftursætin eru jafn-
þægileg og frammí og ekki þarf að
hafa áhyggjur af miklum farangri
þar sem skottrými er mikið og
tvinnbúnaðurinn virðist ekkert
stela miklu af því.
Sjö sæta útgáfa af þessum bíl er
hreinlega ekki framleidd og er
ástæðan líklega sú að hann er
byggður á sömu grind og Porsche
Cayenne sem heldur er ekki í boði
sem slíkur. Fáir sakna þess, enda
hversu oft er þörf fyrir þessi auka-
sæti?
Í öðrum gerðum Touareg en
þessari hybrid-útfærslu má velja
aukalega ýmsan aukabúnað en
þessi bíll kemur eiginlega með öllu
því sem best er í boði. Það skýrir
að mestu út af hverju hann er tals-
vert dýrari, en verð Touareg byrjar í
12,3 milljónum, en fyrir það fæst
samt mjög vel búinn bíll.
finnur.orri@gmail.com
Volkswagen Touareg er lúxusbíll með öllum hugsanlegum þægindum.
Sætin eru frábær með fallegu leðri og þakið með stórri sóllúgu.
19. janúar 2012 finnur.is 25
„Volkswagen Touareg Hybrid er afskaplega þýður og skemmti-
legur í akstri, enda er loftpúðafjöðrun hluti af staðalbúnaði.
Bensínvél og rafmagn vinna vel saman en samanlagt afl er alls
333 hestöfl. Þessi bíll er því sannarlega nokkuð sem munar um,“
segir Marinó Björnsson, sölustjóri hjá Heklu hf.
Hin nýja kynslóð Touareg var kynnt á bílasýningunni í París í
október 2010, mánuði áður en bíllinn kom á almennan markað.
Fyrsta eintakið af Hybrid kom hingað til lands nú um áramótin og
hafa þeir sem kynnst hafa bílnum látið vel af, segir Marinó. „Ég
reikna ekki með að við verðum með svona bíl á lager, utan sýning-
arbíla, en við getum þá alltaf sérpantað, þá
eru bílarnir með þeim búnaði og í þeim lit
sem viðskiptavinir óska eftir og koma
hingað til lands eftir tíu til tólf vikur,“
segir Marinó sem kveðst finna fyrir
miklum kröfum viðskiptavina um að fá
sparneytna bíla –enda séu til staðar
margvíslegir hagrænir hvatar sem
stuðli að því að fólk velji umhverfisvæna
bíla frekar en aðra.
Volkswagen Touareg Hybrid er bíll sem munar um
Þýður og sparneytinn
Marinó
Björnsson
Opið alla virka daga frá kl. 10-18.
Bílabúð Benna - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3330
Bílabúð Benna - Notaðir bílar - Bíldshöfða 10 - 587 1000 - benni.is
Ssangyong Kyron M-200 - Dísel
Skráningardagssetning 07.2006. Sjálfskiptur, ekinn 52.000 km.
Verð kr. 2.390 þús.
TILBOÐ kr. 1.990 þús.
Jeppafæri
NOTAÐIR
BÍLAR
HYUNDAI SANTA FE 2000 - Dísel
Skráningardagssetning 11.2005.
Sjálfskiptur, ekinn 114.000 km.
Verð kr. 2.250 þús.
TILBOÐ kr. 1.790 þús.
NISSAN PATROL ELEGANCE 33”
7 MANNA - Dísel
Skráningardagssetning 12.2006.
Sjálfskiptur, ekinn 147.000 km.
Verð kr. 3.990 þús.
Suzuki Grand Vitara - Dísel
Skráningardagssetning 05.2007.
Beinskiptur, ekinn 65.000 km.
Verð kr. 2.990 þús.
TILBOÐ kr. 2.590 þús.
TOYOTA HILUX - Dísel
Skráningardagssetning 08. 2007.
sjálfskiptur, ekinn 107.000 km.
Verð kr. 3.750 þús.
TILBOÐ kr. 3.390 þús.
KIA SORENTO II EX LUXURY - Dísel,
Skráningardagssetning 11.2007.
Sjálfskiptur, ekinn 70.000 km.
Verð kr. 3.900 þús.
SSANGYONG REXTON RX-270 - Dísel
Skráningardagssetning 09.2005.
Sjálfskiptur, ekinn 107.000 km.
Verð kr. 2.390 þús.
TOYOTA RAV4 2000 VX - Bensín,
Skráningardagssetning 02.2007.
Beinskiptur, ekinn 64.000 km.
Verð kr. 2.190 þús.
TOYOTA LAND CRUSER 120 GX - Dísel
Skráningardagssetning 03.2006.
Sjálfskiptur, ekinn 142.000 km.
Verð kr. 4.390 þús.
SSANGYONG REXTON II RX-270
7 MANNA - Dísel
Skráningardagssetning 01.2009.
Sjálfskiptur, ekinn 48.000 km.
Verð kr. 4.550 þús.
Smiðjuvegur 50 (rauð gata)
200 Kópavogur
pustehf@gmail.com
www.pustkerfi.is