Morgunblaðið - 19.01.2012, Page 27
19. janúar 2012 finnur.is 27
Fosshálsi 27 - 110 Reykjavík - Sími 577 4747 - hofdabilar.is - hofdabilar@hofdabilar.is
Verð kr. 2.990.000.
Árgerð 2002. Ekinn 72
Þ.MÍLUR
Nýskráður 2002.
Skipti: ÓDÝRARI
BENSÍN.
Skráður 8 manna.
SJÁLFSKIPTUR
5967cc slagrými.
5 dyra. 346 hestöfl.
4 heilsársdekk. SÍDRIF.
Erum fyr
ir ofan
Ölgerðin
a HÖFÐABÍLAR Skráðu bílinnþinn FRÍTT
BMW 730 D E66
Hlaðinn aukabúnaði
Verð kr. 7.900.000.
Árgerð 2006. Ekinn 78
Þ.KM
Nýskráður 5/2006.
Ekkert áhvílandi.
Skipti: ÓDÝRARI
DÍSEL.
Skráður 5 manna.
SJÁLFSKIPTUR.
2996cc slagrými.
4 dyra. 231 hestöfl.
Aukahlutir:
ABS hemlar -
Aksturstölva - Armpúði
- Álfelgur - Fjarlægðar-
skynjarar - Fjarstýrðar sam-
læsingar - Geisladiskamaga-
sín - Geislaspilari - Glertopplúga
- Handfrjáls búnaður - Hiti í sætum -
Hleðslujafnari - Hraðastillir - Höfuðpúðar aftan
- Intercooler - Kastarar - Leðuráklæði - Líknar-
belgir - Loftkæling - Minni í
sætum - Nálægðarskynjarar
- Rafdrifin sæti - Rafdrifnar
rúður - Rafdrifnir speglar
- Samlæsingar - Spólvörn
- Stöðugleikakerfi - Topplúga -
Útvarp - Veltistýri - Vökvastýri
- Xenon aðalljós - Þjófavörn -
1 eigendi - Skoðar skipti.
CADILLAC ESCALADE
4 DR 4WD
Aukahlutir:
ABS hemlar - Aksturstölva
- Armpúði - Álfelgur - Filmur
- Fjarstýrðar samlæsingar
- Geislaspilari - Hraðastillir
- Höfuðpúðar aftan - Kastarar
- Leðuráklæði - Litað gler -
Rafdrifin sæti - Rafdrifnar rúður
- Rafdrifnir speglar - Samlæsin-
gar - Spólvörn - Upphækkaður
- Útvarp - Veltistýri - Vökvastýri
- Þakbogar - Þjófavörn -
Nýleg dekk
F
ramtíð sænska bílafram-
leiðandans Saab hangir
nú á bláþræði í kjölfar
þess að General Motors,
eigandi fyrirtækisins óskaði eftir
gjaldþrotaskiptum dótturfyr-
irtækisins þremur dögum fyrir
jól. Bílaframleiðendur hafa þurft
að fást við erfiðara rekstr-
arumhverfi í kjölfar bankakrepp-
unnar og Saab er þar síst und-
antekning. Óvíst er hvort
framsækin þróunarvinna hjá fyr-
irtækinu undanfarin misseri skili
sér á þann veg að það komist
fyrir vind.
Úr flugvélum í bíla
Saga Saab nær aftur til ár-
anna fyrir seinni heimstyrjöldina
þegar fyrirtækið var sett á lagg-
irnar til að framleiða herflug-
vélar vegna yfirvofandi átaka
sunnar í Evrópu. Þaðan kemur
nafnið. Að hildarleiknum loknum
hófst hönnun og framleiðsla á
fólksbílum sem fengu nafnið Sa-
ab, sem er skammstöfun á nafni
flugvélaverksmiðjunnar, Svenska
Aeroplan Aktie-Bolaget.
Fljótlega mörkuðu Saab bílar
sér sérstöðu sem vandaðir og
öruggir fólksbílar sem þekktust
á augabragði í umferð vegna
sérstaks útlits. Hvenær sem nýtt
útlit var kynnt til sögunnar var
það þannig í stað þess að ger-
bylta því á nokkurra missera
fresti. Grunnsvipur Saab-bifreiða
dagsins í dag byggist til dæmis
á 900-línunni sem var kynnt til
sögunnar árið 1979.
Nýir bílar frá fyrirtækinu, það
er árgerðin 2011, eiga fátt sam-
eiginlegt með bílunum frá því í
kringum 1980. Andlitssvipurinn,
framgrillið og framljósin eru
sýnilega skyld upphaflegu bíl-
unum.
Og svo er lyklinum vitaskuld
stungið í svissinn í gólfinu á milli
sætanna, rétt eins og forðum.
Saab eru verðlaunaðir fyrir
hönnun og öryggi gegnum tíð-
ina, og einkum voru það 900 og
9000 gerðirnar á níunda áratug
síðustu aldar og fyrri hluta þess
tíunda sem slógu í gegn.
Bandaríski framleiðandinn GM
eignaðist fyrirtækið upp úr 1990
og fyrsta módelið sem var hann-
að undir áhrifum Ameríkumann-
anna var 1994-árgerðin af 900
bílnum. Nýja týpan var minni um
sig og nettari. Hún var ódýrari í
framleiðslu en olli Saab-
unnendum vonbrigðum. Amer-
íska gerðin komst aldrei í náðina
hjá harða kjarnanum og hópur
fastra viðskiptavina þynntist.
Þarna má segja að upphafið að
endalokum Saab hafi verið
markað.
Síðasta áratuginn hefur rekst-
urinn verið Saab erfiður. GM
hefur leitað kaupenda að fyr-
irtækinu. Meðal líklegra kaup-
enda voru m.a. sænski of-
ursportbílaframleiðandinn
Koenigsegg og hollenski fram-
leiðandinn Spyker. Ekkert varð
þó úr kaupum.
Enn er von
Seinni hluta ársins virtist
stefna í að kínverski bílafram-
leiðandinn Youngman myndi
kaupa fyrirtækið, en General
Motors hugnaðist ekki að láta
ýmis framleiðslugögn og einka-
leyfi sem tilheyrðu Saab af
hendi til Kína og óskuðu eftir því
að fyrirtækið yrði frekar tekið til
gjaldþrotaskipta.
Það ætti alla jafna að marka
endalok rekstrareiningar en
vegna klausu í sænskum gjald-
þrotalögum má vera að enn sé
von fyrir Saab. Að sögn standa
yfir viðræður við nokkra áhuga-
sama um að kaupa þrotabúið
með áframhaldandi rekstur í
huga. Vel má því vera að Saab
haldi áfram að rúlla um göt-
urnar, en til beggja vona getur
brugðið með hið fornfræga
sænska merki og svo getur
hæglega farið að hinum sér-
stæða bíl verði lagt fyrir fullt og
allt einhvern tímann á árinu
2012.
jonagnar@mbl.is
Bílaframleiðandinn sænski hangir nú á bláþræði
Ljósmynd/SCANPIX SWEDEN
Eigendur Saab óskuðu rétt fyrir jól eftir gjaldþrotaskiptum fyrirtækisins. Starfsmenn í verksmiðjnni í Trollhattan yfirgáfu vinnustaðinn, hnípnir mjög.
Saab að syngja sitt síðasta?
Morgunblaðið/Eyþór
Saab hefur síðustu árin verið hluti af GM. Jeppinn Saab 9-7X hefur
reynst vel, aflmikill og skemmtilegur bíll í akstri.
Saab 9000 voru bílar sem nutu vinsælda meðal Íslendinga á sínum tíma
og margir hafa þessa mynd í huga þegar sænsku bílana ber á góma.
Ameríska gerðin komst
aldrei í náðina hjá harða
kjarnanum og hópur
fastra viðskiptavina
þynntist. Þarna má
segja að upphafið að
endalokum Saab hafi
verið markað.