Morgunblaðið - 09.02.2012, Page 8

Morgunblaðið - 09.02.2012, Page 8
8 finnur.is 9. febrúar 2012 Fylgstu með í MBL sjónvarpi alla miðvikudaga. Ebba Guðný sýnir þér hvernig hægt er að matreiða hollan og góðan mat með lítilli fyrirhöfn. - heilsuréttir SÓFAKARTAFLAN RAUSAR Sófakartaflan er eldri en tvævetur þegar kemur að barnaefni í sjónvarpi. Sjálf horfði hún á ómælt barnaefni í bernsku sinni og er aukinheldur foreldri hin seinni ár og sér því frá degi til dags hvað hentar ungviðinu til áhorfs. Þó tímarnir breytist og mennirnir með er eitt sem blífur: barnaefni sem talar við unga fólkið eins og krakka, það á sér ekki viðreisnar von. Enn er sófakartöflunni í fersku minni barnaefni frá fyrri tíð þar sem þáttastjórnendur töluðu til áhorfenda eins og þeir væru pela- börn. Breyttu rödd sinni afkáralega og takmörkuðu orðaforða sinn við fáein grundvall- ar- hugtök, í þeim tilgangi að gera sig skiljanlegri gagnvart áhorfendum. Leifar af aula- hrollinum hríslast enn um hýði vort þegar slíkt er rifjað upp. Ekki entist nokkurt barn lengi við skjáinn þegar slíkt efni var í boði. En þegar framkoma umsjónarmanna bar þess aftur á móti merki að verið væri að ávarpa skynsamt og vel gefið fólk, þá var athygli náð og áhuginn tryggður. Stígur og Snæfríður, sem réttu nafni heita Ívar Örn Sverrisson og Ísgerður Elfa Björns- dóttir settu ákveðið viðmið hvað þetta varðar enda sátu börnin límd við skjáinn meðan þau voru umsjónarmenn Stundarinnar okkar. Vel færi á því að taka þau til fyrirmyndar, það ætti að tryggja velgengni sporgöngumanna þeirra í starfi. Engan barnaskap fyrir börnin! L íkt og í fyrri seríunni er það Enoch „Nucky“ Thompson, leikinn af Steve Buscemi, sem sagan hverfist um. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Nucky grandvar starfsmaður hins opinbera á daginn, nánar tiltekið fjármálastjóri Atlantic- sýslu í New Jersey á bannárunum þegar Volstead-lögin gerðu sölu og neyslu áfengis að lögbroti. Eftir að skyggja tekur er hann hins vegar einn umsvifamesti áfengissmyglarinn á svæðinu, konungur Atlantic City. En þar sem smygl og sala á sprútti var gríðarlega ábatasöm iðja með- an á banninu stóð eru ótal skúrkar um hituna og ekki eru allir á því að láta Nucky stjórna því hverjir græða og hversu mikið. Hann heldur hins vegar fast í taumana, reiðubúinn að berjast fyrir yf- irráðum sínum uns yfir lýkur. Bannárin heilla Bannárin hafa gegnum tíðina orðið mörgum kvikmyndagerðarmanninum að yrkisefni og nægir að nefna gangsteramynd- ir á borð við The Cotton Club (1984), The Untouchables (1987) og Miller’s Crossing (1990) í því sambandi, þar sem vel klæddir gangsterar með hatta nota jafnan Thomp- son-vélbyssuna til að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi. Í seinni tíð má nefna Public Enemies (2009), stórmynd Michaels Manns með Johnny Depp í hlutverki Johns Dillingers. Hin síðustu ár hafa bann- árunum hins vegar ekki verið gerð skil svo neinu nemi. Í ljósi vinsælda Mad Men blasti við að með góðu handriti, flottum búningum og vel greiddum leikurum mætti gera góða hluti þó efniviðurinn væri ára- tuga gamall. Óhætt er að segja Boardwalk Empire uppfylli allar óskir áhorfenda hvað þetta varðar enda er upphafsmaðurinn eng- inn annar en leikstjórinn Martin Scorsese. Svik, glæpir og dauði hafa verið honum yrkisefni frá því í frumbernsku ferilsins og hann telst því rækilega á heimavelli. Þá er sérlega gaman að sjá úrvalsleikarann Steve Buscemi fá sviðið fyrir sig. Hann hefur fyrir margt löngu sannað sig sem skapgerðarleikari í fremstu röð og óhætt er að segja að hann fari á fáséðum kostum í aðalhlutverki þáttanna sem Nucky Thompson. Boardwalk Empire er sýndur á sunnudögum á Stöð 2. DAGSKRÁIN UM HELGINGA Skjár 1 sýn- ir lokaþátt- inn af House í kvöld og af því vill varla nokkur maður missa. Hugh Lau- rie fer á alþekktum kost- um í titilhlutverkinu. Fimmtudagur Alcatraz er nýr spennu- þáttur með býsna frumlegum söguþræði og úrvalsleikurum í burð- arhlutverkum. Vel þess virði að kíkja á. Stöð 2. Fimmtudagur Fyrir alla unnendur sígildra gaman- mynda er bannað að láta Three Amigos fram hjá sér fara. Chevy Chase, Steve Martin og Martin Short fara á feiknalegum kostum. Stöð 2. Föstudagur Tropic Thunder er með eftir- minnilegri gaman- myndum hin seinni ár. Ben Stiller, Jack Black og Robert Downey Jr. halda uppi klikkuðu stuði. Sýnd á RÚV. The Abyss er til- tölulega fáséð (miðað við aðrar myndir James Camerons) og iðu- lega vanmetin. Fínasti undirdjúpatryllir, sýndur á Stöð 2. Laugardagur Blessuð bannárin Um helgina hefjast sýningar á annarri seríu af Boardwalk Empire, einum mesta hval- reka seinni ára á fjörur unn- enda úrvals-sjónvarpsefnis. Hólkar eru hlaðnir, samn- ingar sviknir og veður eru válynd sem aldrei fyrr. * Buscemi lék Chet í Barton Fink, í Reservoir Dogs var hann Mr Pink, og í Miller’s Crossing lék hann Mink. En þar með er rímið úti. *Þrátt fyrir ótal fullyrðingar á internetinu, er leikarinn Michael Pitt (sem leikur Jimmy Darmody) alls óskyldur Brad Pitt. *Nucky Thompson er byggður á raunverulegri persónu, Enoch Lewis „Nucky“ Johnson, sem stýrði Atlantic City með harðri hendi á bannárunum. *Golden Globe verðlaunin sem Steve Buscemi hlaut nýverið fyrir Boardwalk Empire voru fyrsta stóra viðurkenningin sem hann hreppir. *Kelly MacDonald, sem leikur Margaret Schroeder, vakti fyrst á sér athygli í Trainspotting, eins og glöggir muna ef til vill. Vissirþú að... Jack Huston sem "Tinmað- urinn"Richard Harrow. Laugardagur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.