Morgunblaðið - 01.03.2012, Page 1

Morgunblaðið - 01.03.2012, Page 1
F I M M T U D A G U R 1. M A R S 2 0 1 2  Stofnað 1913  51. tölublað  100. árgangur  Á ALÞJÓÐLEGRI LISTAHÁTÍÐ Í MAROKKÓ STJÓRN PENINGAMÁLA OG BÍLAR FYRSTA PLATAN HLJÓÐRITUÐ Í TYRKLANDI VIÐSKIPTABLAÐ OG FINNUR.IS OTTÓMANA-MENNING 10TVÍÆRINGUR 35 Tónlistarmaðurinn Mugison bar höfuð og herðar yfir kollega sína á Íslensku tónlistarverðlaununum í gærkvöldi en hann hreppti m.a. verðlaunin fyrir hljómplötu ársins og lag ársins og var valinn bæði laga- og textahöfundur ársins, auk þess að vera val- inn vinsælasti flytjandinn af notendum mbl.is. Heiðursverðlaunin hlaut að þessu sinni Megas, Magnús Þór Jónsson, og þá fékk Einar Scheving sérstaka viðurkenningu fyrir plötuna Land míns föður. »36 Morgunblaðið/Kristinn Mugison maður kvöldsins Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Vaxandi áhyggjur eru innan ferðaþjónust- unnar af hækkandi eldsneytisverði og áhrif- um þess á ferðavenjur fólks. Aukinn þrýstur er á stjórnvöld að lækka álögur en hið op- inbera tekur um helming til sín af hverjum bensín- lítra. Samtök ferða- þjónustunnar benda á að ein- göngu olíukostnað- ur hópferðabifreiða hafi aukist milli ára um 300 milljónir króna, eða um 25%, og nemi nú um þremur milljörðum króna. Þar af fær ríkið um 1,5 millj- arða króna. Eftir því sem lengra er farið frá suðvesturhorninu aukast áhyggjurn- ar innan ferðaþjón- ustunnar. Austfirð- ingar liggja á bæn þessa dagana um lækkandi eldsneytisverð og gott veður í sum- ar. Skúli Björn Gunnarsson, stjórnarformað- ur Markaðsstofu Austurlands, segir síðasta sumar hafa verið „lítið og lélegt“. Veður og hátt eldsneytisverð hafi dregið verulega úr heimsóknum íslenskra ferðamanna. „Menn hugsa sig tvisvar um áður en þeir aka austur á land með fellihýsi í eftirdragi. Þessi þróun hjálpar okkur ekki og ekki heldur flugfar- gjöldin,“ segir Skúli Björn. Svanhildur Hlöðversdóttir, stöðvarstjóri N1 í Staðarskála, segir umferð innlendra ferðamanna hafa snarlega minnkað, enda sé orðið ódýrara að fara í viku á sólarströnd en að ferðast innanlands. MÁhyggjur af eldsneyti og veðri »12 Liggja á bæn um lækkun  Áhyggjur í ferða- þjónustu af bensínverði Eldsneyti » Rekstr- arkostnaður meðalbíls við að aka hringveginn er 54 þús. krón- ur en var um 48 þúsund í fyrra. » Um 30% landsmanna höfðu ferðast eingöngu innan- lands í fyrra. Hlutfallið var 50% fyrir tveim- ur árum.  Talið er að mjótt verði á munum þegar kosið verður um frávísun þingsályktunartillögu Bjarna Bene- diktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrver- andi forsætisráðherra, á Alþingi í dag. Í gær var stefnt að því að at- kvæðagreiðslan færi fram um klukkan 11.00, að loknum óund- irbúnum fyrirspurnartíma ráð- herra sem hefst kl. 10.30 í dag. Verði frávísun felld verður kosið um þingsályktunartillöguna. Um- ræða um tillöguna hófst í þinginu síðdegis og stóð fram á kvöld. »4 Kosið í dag um aft- urköllun ákærunnar Alþingi Þingmenn tókust á í gær. Morgunblaðið/Golli  Jarðskjálfti, 3,7 stig, varð um 10 km norð- vestur af Gjög- urtá klukkan 22.06 í gær- kvöldi. Annar skjálfti, um 3 stig, varð fimm mínútum seinna. Jarðhræring- arnar fundust m.a. á Ólafsfirði, Siglufirði og í Svarfaðardal. Fólk á Dalvík heyrði þyt, fann högg og svo fylgdi titr- ingur. Siglfirðingur sem rætt var við sagði að jarðskjálftinn hefði fundist greinilega og hús titrað. Veðurstofan segir að skjálftar af þessari stærð verði þarna af og til. Jarðskjálftar úti fyrir Norðurlandi Skjálftar Upptökin voru NV af Gjögurtá. Hugmyndir Helga Hjörvar, for- manns efnahags- og viðskipta- nefndar, um að innleysa skatt á við- bótarlífeyrissparnað og sækja 20 milljarða til lífeyrissjóðanna vegna hagnaðar þeirra af kaupum á rík- isskuldabréfum í gegnum Seðlabanka Lúxemborgar 2010, til að leiðrétta skuldir heimilanna, eru harðlega gagnrýndar. Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyr- issjóða, lýsir furðu sinni á þessum hugmyndum sem komi fram á sama tíma og sjóðirnir hafi gert sam- komulag við stjórnvöld um áfram- haldandi aðkomu að gjaldeyr- isútboðum. „Þá spyr maður; er hann vísvitandi að reyna að hleypa þessu samkomulagi frá því í febrúar í loft upp? Ég trúi því ekki að svo sé. Þetta er svo barnaleg hugmynd. Þetta er svona með því lakara sem ég hef heyrt frá þingmanni.“ Fjár- málaráðherra segir hugmyndina vera eins þingmanns en ekki úr þingflokki Samfylkingar eða ríkisstjórn. »22 „Með því lakara sem ég hef heyrt frá þingmanni  Gagnrýna hugmynd Helga Hjörvar Lífeyrissjóður verzlunarmanna ætlar að lækka fasta vexti verðtryggðra íbúðalána sem sjóðurinn býður upp á úr 4,5% í 3,9%. Lægstu verðtryggðu vextir sem stóru viðskiptabankarnir buðu á íbúðalánum fyrir hrun voru 4,15%. Vaxtalækkunin mun aðeins ná til nýrra fasteignalána og hægt verður að fá lánað fyrir að hámarki 65% af markaðsverðmæti fasteignarinnar til allt að 40 ára. Fasteignaverð á Íslandi hækkaði um 10% að nafnvirði á síðasta ári en Helgi Magnússon, stjórnarformaður sjóðsins, segist ekki hafa áhyggj- ur af því að með útspilinu sé verið að blása í nýja fasteignabólu. „Það hefur ver- ið mikil kyrrstaða á fasteignamark- aðnum allt frá hruni bankanna. Þessi kyrrstaða get- ur ekki staðið til lengdar og við von- umst eftir því að með þessari vaxta- lækkun komist ákveðin hreyfing á markaðinn,“ segir hann. »Viðskipti Lækka vexti á íbúða- lánum niður 3,9% –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.