Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 5. mars.
FERMINGAR
Fermin
g
SÉRBLAÐ
Föstudaginn 9. mars kemur út
hið árlega Fermingarblað
Morgunblaðsins.
Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin-
sælustu sérblöðumMorgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
MEÐAL EFNIS:
Veitingar í veisluna.
Mismunandi fermingar.
Fermingartíska.
Hárgreiðslan.
Myndatakan.
Fermingargjafir.
Fermingar erlendis.
Hvað þýðir fermingin?
Viðtöl við fermingarbörn.
Nöfn fermingarbarna.
Eftirminnilegar fermingargjafir.
Fermingarskeytin.
Boðskort.
Ásamt fullt af spennandi efni.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri
Massachusetts, styrkti stöðu sína
sem sigurstranglegasti frambjóð-
andinn í forkosningum repúblikana
þegar hann bar sigur úr býtum í
tveimur sambandsríkjum í fyrradag.
Romney fékk 47% atkvæðanna í
Arizona og 21% kaus helsta keppi-
naut hans, Rick Santorum, sem nýt-
ur einkum stuðnings meðal íhalds-
samra og kirkjurækinna rep-
úblikana. Munurinn var hins vegar
miklu minni í Michigan þar sem
Romney fékk 41% og Santorum 38%.
Var spáð öruggum sigri
Nokkrum vikum áður var Rom-
ney með mikið forskot í Michigan,
skv. könnunum, og búist var við að
hann myndi sigra örugglega, enda
fæddist hann og ólst upp í Michigan,
auk þess sem faðir hans var ríkis-
stjóri þar og naut mikilla vinsælda.
Stuðningsmenn annarra flokka
gátu kosið í forkosningunum í Mich-
igan og skoðanakannanir, sem gerð-
ar voru við kjörstaði, bentu til þess
að um 10% kjósendanna væru demó-
kratar. Margir demókratanna sögð-
ust hafa kosið Santorum vegna þess
að þeir teldu hann veikara forseta-
efni en Romney. Markmið þeirra var
því að auka líkurnar á endurkjöri
Baracks Obama forseta.
Um 60% kjósendanna í Michig-
an eru skráð í flokk repúblikana og á
meðal þeirra var Mitt Romney með
tíu prósentustiga meira fylgi en Rick
Santorum.
Reuters
Sigur Stuðningsmenn Romneys
fagna í Arizona-ríki.
Styrkti stöðu sína
með tveimur sigrum
Mitt Romney sigraði mjög naumlega í Michigan Demó-
kratar höfðu áhrif á niðurstöðuna og kusu Rick Santorum
Stór dagur framundan
» Romney er nú kominn
með 163 kjörmenn, Santorum
83, Newt Gingrich 32 og Ron
Paul 19. Til að verða forseta-
efni repúblikana þarf fram-
bjóðandi að njóta stuðnings
minnst 1.144 kjörmanna.
» Niðurstaða forkosning-
anna gæti ráðist að miklu leyti
á þriðjudaginn kemur þegar
kosið verður í tíu ríkjum.
Moskvu. AFP. | Berbrjósta og vöðva-
stæltur Vladímír Pútín strýkur sitj-
anda fimleikakonu og fær of stóran
skammt af bótoxi á meðan eiginkona
hans leitar hælis í klaustri. Þetta er
á meðal þess sem gerist í nýrri svið-
setningu leikrits í Moskvu.
Sviðsetningin nefnist „Berlúspút-
ín“ og byggist á leikriti eftir ítalska
leikskáldið Dario Fo, L’anomalo
Bicefalo. Hún breytist þó með hverri
sýningu því inn í hana er fléttað nýj-
ustu fréttum og gróusögum um Pút-
ín sem búist er við að verði kjörinn
forseti landsins að nýju á sunnudag-
inn kemur eftir að hafa gegnt emb-
ætti forsætisráðherra.
Óhætt er að segja að söguþráður-
inn sé fáránlegur því sviðsetningin
byggist á þeirri hugmynd að Silvio
Berlusconi bíði bana í árás og hálfur
heili hans sé græddur í Pútín eftir að
hann lendir í slysi. Söguþráðurinn
snýst því um hvað myndi gerast ef
Pútín fengi hálfan heila ítalska for-
sætisráðherrans fyrrverandi. Eitt af
því sem gerist er að Pútín fer
skyndilega að hneigjast til frjáls-
lyndis, sem hann hafði verið alger-
lega laus við, og tekur jafnvel upp á
því „iðrast“ í ræðu á rússneska
þinginu. Hann fær síðan of stóran
skammt af bótoxi og það hefur þver-
öfug áhrif. Skírskotað er til orðróms
um að Pútín, sem er orðinn 59 ára
gamall, hafi farið í fegrunaraðgerð á
liðnu ári og fengið bótox til að slétta
hrukkur.
Einnig er skírskotað til gróusagna
um að kastast hafi í kekki með Pútín
og eiginkonu hans, Ljúdmilu, sem
leitar hælis á klaustri og kemst þar í
náin kynni við munk.
Sviðsetningin hefur vakið mikla
athygli og uppselt hefur verið á allar
sýningar. „Þetta leikrit er líklega
draumur leikhússtjórans,“ segir
leikstjórinn Varvara Faer. „Hlut-
verkin eru aðeins tvö og áhuginn á
leikritinu er gríðarlegur.“
Berlúspútín slær í gegn
Leikrit um Pútín vekur mikla athygli Fær aðkenningu
af frjálslyndi eftir að hafa fengið hálfan heila Berlusconis
Reuters
Júdókempan Vladímír Pútín kenn-
ir ungum Rússa júdóbragð.
Námsmenn hrópa vígorð í mótmælagöngu í miðborg
Madrídar í gær gegn áformum spænsku ríkisstjórnar-
innar um að minnka útgjöldin til menntamála. Náms-
mennirnir mótmæltu einnig ofbeldi lögreglumanna
sem beittu kylfum gegn námsmönnum sem efndu til
mótmæla í Valencia í vikunni sem leið.
AP
Námsmenn mótmæla niðurskurði