Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.03.2012, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2012 Pabbi minn er dáinn. Sorgin hefur þröngvað sér upp á mig og gert sér hreiður í hjarta mínu. Ég rifja upp óteljandi minningar og þær renna saman í brosið hans pabba, hláturinn hans, faðmlagið, sögur, tónlist og kærleika. Sorgin segir mér að ég hafi átt eitthvað dýrmætt sem ég hef nú misst. Þegar ég hugsa um hversu mikið ég átti fyllist ég þakklæti. Ég er þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem ég átti með pabba mínum, allt sem hann gaf mér í veganesti fyrir lífið, allt sem hann kenndi mér, allt sem hann gerði fyrir mig. Þegar ég var lítil las pabbi oft fyrir mig á kvöldin. Hann lagði metnað í að kynna mig fyrir vönd- uðum barnabókmenntum. Eins og börnum er tamt valdi ég oft að heyra sömu sögurnar aftur og aft- ur. Sérstaklega fannst mér gaman að heyra söguna um þegar pabbi Emils í Kattholti festist í „Frissa- búð“ og var aðalástæðan fyrir val- inu sú að pabba þótti sagan alltaf jafn fyndin. Ég valdi hana af því að ég naut þess að sjá og heyra pabba hlæja svo mikið að hann gat varla klárað setningarnar. Spakmæli segir að gefirðu manni fisk svelti hann ekki í dag en kennirðu honum að veiða muni hann aldrei framar svelta. Pabbi gat endalaust svarað „af hverju“ spurningum og ef hann hafði ekki svarið þá flettum við því upp. Þeg- ar hann las yfir verkefnin mín merkti hann með mismunandi lit- Guðgeir Ingvarsson ✝ (Sigurður)Guðgeir Ingv- arsson fæddist 28. febrúar 1946 á Desjarmýri í Borg- arfirði eystra. Hann lést á heimili sínu, Mánatröð 8b á Egilsstöðum, 14. febrúar 2012. Útför Guðgeirs fór fram frá Foss- vogskapellu í kyrr- þey 24. febrúar og minning- arathöfn var í Egilsstaðakirkju 28. febrúar. um hvort um var að ræða stafsetningar- villu eða tillögu að vandaðra orðalagi. Ég átti sjálf að setja inn leiðréttingarnar. Þetta finnst mér lýs- andi fyrir hvernig pabbi var alltaf að kenna mér að „fiska“. Sorgin yfir því að hafa misst framtíð þar sem pabbi er hluti af mínu daglega lífi er mikil. Þakklætið fyrir að hafa tekið mér tíma til að njóta hversdagslegu hlutanna og festa mér þá í minni er þeim mun meira. Ég sakna pabba míns óend- anlega en trúi að einhvern tímann munum við hittast aftur. Þangað til á ég minningarnar okkar og ég er viss um að á sinn eigin hátt mun pabbi fylgjast með mér þegar ég eignast nýjar minningar á lífsleið- inni. Þegar pabbi notaði tækni var hann ekkert að herma eftir yngri kynslóðum með því að stytta orð og svara snubbótt. Tölvupóstar og sms frá honum voru alltaf með heilum setningum og með kveðju í lokin. Nýlega fékk ég sms-skila- boð frá pabba sem voru á þessa leið: „Elsku Guðný. Það er allt í lagi með mig. Kær kveðja. Pabbi.“ Nú kveð ég pabba minn með þess- um orðum: Elsku pabbi. Það verð- ur allt í lagi með mig. Kær kveðja. Guðný. Guðný Elísa. Hinn 14. febrúar sl. lést Guð- geir Ingvarsson, vinur okkar og samstarfsfélagi. Okkur langar fyr- ir hönd starfsmanna Safnahússins á Egilsstöðum að minnast hans með nokkrum orðum. Guðgeir kom til starfa á Hér- aðsskjalasafni Austfirðinga árið 2004 og var safnið vinnustaður hans allt þar til hann lést. Guðgeir þekkti vel til safnsins þegar hann hóf þar störf árið 2004 því á ár- unum 1992 til 1998 hafði hann unn- ið þar í hlutastarfi. Það var afar gott að vinna með Guðgeiri. Hann var ljúfur og við- kunnanlegur í umgengni og nutu bæði gestir og samstarfsfólk þeirra lyndiseinkenna hans. Eftir að Guðgeir sneri aftur til starfa á safninu sinnti hann einkum skjalaskráningu og afgreiðslu er- inda. Hann hafði ánægju af starfi sínu og vann af alúð þau verkefni sem honum voru falin. Það er lýsandi fyrir vinnulag Guðgeirs að þeir sem höfðu notið aðstoðar hans á safninu leituðu gjarnan til hans aftur og spurðu þá sérstaklega eftir honum ef aðr- ir urðu fyrir svörum. Guðgeir var hneigður til fræðimennsku og leysti verkefni af þeim toga af þeirri nákvæmi og samviskusemi sem honum var eðlislæg. Hann var ágætlega ritfær og naut Hér- aðsskjalasafnið þess oft þegar taka þurfti saman upplýsingar og koma á framfæri. Guðgeir átti við vanheilsu að stríða um árabil. Engu að síður bar andlát hans óvænt að. Við sem störfum í Safnahúsin höfum misst félaga og vin sem við minn- umst með hlýju og þakklæti. Hér- aðsskjalasafnið hefur líka misst mikið. Í gegnum árin hafði Guð- geir aflað sér víðtækrar þekking- ar um ýmsa þætti starfsins og skilur því eftir sig skarð sem verð- ur vandfyllt. Fyrir hönd starfsfólks Safna- hússins vottum við börnum Guð- geirs og öðrum aðstandendum innilega samúð vegna fráfalls hans. Arndís Þorvaldsdóttir og Hrafnkell Lárusson. Kæri frændi. Nú ertu kominn í Sumarlandið sem þú talaðir svo oft um og hlakkaðir til að kynnast. Fáir hygg ég að hafi verið betur und- irbúnir fyrir slíka ferð, þó óvænt væri. Nú blómstrar þú sjálfum þér líkur, laus við veikindi og jarð- neskar takmarkanir. Mærðarleg og væmin umfjöll- un væri þér ekki að skapi. Ég skal forðast slíkt. Get þó ekki sleppt því að tala um fáeina af þínum mörgu kostum. Kærleikurinn er það dýrmætasta í heiminum og af honum áttir þú ótakmarkað. Segja má því að þú hafir verið með ríkari mönnum. Eins þegar kemur að fróðleik. Þar varstu moldríkur, bæði hvað varðar bókaeign og aðra visku. Þínar bækur höfðu innihald. Ekkert rusl í hillunum heldur dýrmætur fróð- leikur. Allt greri svo vel í kringum þig enda gafstu þér tíma til nost- urs. Þannig ræktaðir þú frænd- semi, blóm og japanskirsi, rétt eins og innsæi, næmi og bænalíf. Engan þekki ég sem eytt hefur jafn miklu af tíma sínum og orku í fyrirbænir og þar komu peningar, upphefð eða athyglisþörf aldrei við sögu, aðeins kærleikur og góður vilji. Margar kraftaverkasögur gæti ég sagt af slíku en veit um hógværð þína. Fjölmargar skemmtilegar minningar á ég af kynnum okkar, dönsku jólagjafirnar, slides- myndasýning af dönskum draumaheimi, framandi og spenn- andi fyrir sveitabarnið. Seinni árin ótalmörg bréf með vangaveltum um andlegan þroska, almættið, veldi kærleikans og hjálparstarfið. Ekki má gleyma öllum sendingun- um, fræjum og laukum sem dafna nú í mínum garði og minna á þig. Eða öllum bókunum sem þú sendir okkur fjölskyldunni. Sjálfur bóka- safnarinn vissi af ástríðu okkar og naut þess að gefa og gleðja. Sígild- ar barnabækur, veiðisögur og and- ans fræði, allt var það lesið með ánægju. Heimsóknir og símtöl að ógleymdu vel heppnuðu ættar- mótinu sem við héldum um árið. Þar sáum við hin sýnishorn af glæsilegri heimildasöfnun þinni, myndum, ættartali og frásögnum. Sagnfræðiáhugi hefur löngum loðað við okkar ætt og varst þú þar einna fremstur í flokki og gaman var að heimsækja þig í vinnuna á Héraðsskjalasafninu. Ljóðagerð- ina áttum við líka sameiginlega þó þú værir hálfgert skúffuskáld. Árin voru allt of fá en ég býst við að þú sitjir ekki auðum hönd- um í Sumarlandinu og hjálpir öðr- um, þar sem hér. Þar ræktar þú án efa himnesk blóm og berjatré, nýt- ur samvista við þitt fólk og nú gefst tími fyrir grúsk og skrif. Þó söknuður og samúð með börnum þínum og ættingjum leiti á hugann, samgleðst ég þér að vera kominn á áfangastað og hlakka til að heyra frá þér. Þakk- læti mitt er mikið og ég sendi góð- ar kveðjur frá mínu fólki. Að hafa kynnst þér hefur gert mig ríkari. Kveð þig sem fyrr með sömu kveðju: „Verðum í sambandi.“ Ingunn V. Sigmarsdóttir. Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hellatún lóð E, fnr. 201668, Ásahreppur, þingl. eig. H2 - Hljóðvist og hönnun ehf., gerðarbeiðandi Sparisjóðurinn á Suðurlandi, þriðjudaginn 6. mars 2012 kl. 10:00. Öldugerði 13, fnr. 219-5146, Rangárþing eytra, ehl. gerðarþola, þingl. eig. Benóný Jónsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 6. mars 2012 kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 28. febrúar 2012. Kjartan Þorkelsson. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi fasteignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hafnarbraut 5, fnr. 213-3884, Hvammstanga, þingl. eig. Fasteignafél- agið Meleyri ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Byggðastofnun og Húnaþing vestra, mánudaginn 5. mars nk., kl. 10:00. Brekkugata 4a, fnr. 213-3796, Hvammstanga, þingl. eig. Fasteignafél- agið Meleyri ehf., gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Byggðastofnun og Húnaþing vestra, mánudaginn 5. mars nk., kl. 10:30. Höllustaðir 2, landnr. 145-303, Húnavatnshreppi, þingl. eig. Kristín Pálsdóttir, gerðarbeiðendur Húnabókhald ehf. og Húnavatnshreppur, mánudaginn 5. mars nk., kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Blönduósi, 29. febrúar 2012 Bjarni Stefánsson, sýslum. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Grettisgata 76, 200-8274, Reykjavík, þingl. eig. Bryndís Ósk Þ. Ingvars- dóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, mánudaginn 5. mars 2012 kl. 10:30. Kleppsvegur 152, 201-8658, Reykjavík, þingl. eig. Bragi Gunnarsson, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., mánudaginn 5. mars 2012 kl. 11:30. Laugavegur 30b, 200-4826, Reykjavík, þingl. eig. Exitus ehf., gerðar- beiðandi Reykjavíkurborg, mánudaginn 5. mars 2012 kl. 10:00. Næfurás 12, 204-6220, Reykjavík, þingl. eig. Brynja Björk Rögnvalds- dóttir og Þórhallur G Harðarson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna, mánudaginn 5. mars 2012 kl. 14:00. Skipholt 50a, 229-4237, Reykjavík, þingl. eig. Leiguhlíð ehf., gerðar- beiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjavíkurborg, mánudaginn 5. mars 2012 kl. 11:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 29. febrúar 2012. Raðauglýsingar Elsku hjartans systir og frænka. Þú varst tekin frá okkur allt of snöggt. Þín er sárt saknað. Þær eru svo margar minningarnar sem koma upp í huga okkar þessa dag- ana. Þegar við hugsum aftur reik- ar hugurinn ósjálfrátt að dýrum. Þú varst svo mikill dýravinur og sérstaklega hundavinur. Þú áttir tvo yndislega hunda, þau Kollý og Kolla sem við systur fengum að kynnast. Þegar þú komst í heim- sókn komstu alltaf með lifrarpylsu og hundanammi fyrir öll dýrin í ættinni til að gæða sér á. Þú gast ekki hugsað þér að koma tómhent. Þú varst svo frábær og allar minn- ingarnar sem við eigum gætu ver- ið efni í heila bók. Ekki skorti þig gáfur né hugmyndaflug og grall- araskapurinn ótrúlegur á köflum. Elsku Hrönn, það yljar okkur að eiga allar þessar góðu minning- ar. Jafnvel hlegið og brosað í gegn- um sorgina að öllum hlýju og skemmtilegu stundunum, sem við Hrönn Magnúsdóttir ✝ Hrönn Magn-úsdóttir fædd- ist í Reykjavík 17. febrúar 1959. Hún lést á heimili sínu 21. febrúar 2012. Útför Hrannar fór fram frá Digra- neskirkju 29. febr- úar 2012. söknum svo sárt, eins og í jólaföndrinu hjá Eyju. Þá þótti okkur ákaflega vænt um að eyða afmælisdegin- um með þér þann 17. febrúar síðastliðinn. Við geymum hann í hjarta okkar. Okkur langar að kveðja þig með orð- unum hans afa þíns heitins: Saknaðar funheitu falla nú tár, er flyt ég þér kveðjuna mína. Vertu svo blessuð um eilífðar ár, annist Guð sálina þína. Drottinn gefi þér góðan frið, gleðji þig líknar hendur. Leiði þig hátt á hærra svið, himneskir leiðbeinendur. (Guðlaugur Sig.) Guð gefi Gunnari, Kolbrúnu og öðrum aðstandendum styrk á þessum erfiðu tímum. Hvíl í friði, elsku Hrönn. Þín systir, Eyrún, Guðlaugur og frænkurnar Lilja, Ásthildur, Bjarklind og fjölskyldur. Nú þegar þú ert fallin frá elsku frænka þá koma upp margar góð- ar og skemmtilegar minningar um alveg einstaklega góða frænku sem okkur þótti svo vænt um. Þegar einhver sagði að frænka væri að koma þá vissu allir að Hrönn og Gunni væru að koma í heimsókn, voffalingarnir hlupu allir út í glugga og biðu spenntir eftir uppáhaldsfrænkunni sinni sem var alltaf með eitthvað gott í pokahorninu, frænku þótti vænt um alla og gleymdi engum og var alveg einstaklega mikill dýravin- ur. Það var alltaf glatt á hjalla þegar þú og Gunni komuð í heim- sókn til okkar og þá sérstaklega þegar þið komuð til okkar í sum- arbústaðinn og voruð hjá okkur yfir helgi, við spurðum þig alltaf hvort þið vilduð sofa uppi eða niðri og þú varst fljót að svara NIÐRI, þá vissum hvað klukkan sló þá gat Prinsinn okkar sofið hjá frænku og frænda og stundum læddist litli 40 kílóa boltinn upp í til ykkar og fékk að kúra alsæll á milli ykkar. Prinsinn var í miklu uppáhaldi hjá þér og tíkurnar sýndu því mikinn skilning. Elsku frænka, við fáum mislangan tíma hérna á jörðinni og þinn tími var allt of stuttur með okkur, þín verður sárt saknað og sárt til þess að hugsa að fá ekki að hitta þig oftar. Þú barðist hetju- lega og af miklu æðruleysi við ill- vígan sjúkdóm, létta lundin þín, þrjóskan og dugnaðurinn hjálpaði þér mikið í þessum erfiðu veikind- um. Nú er stríðinu lokið og við kveðjum þig með miklu þakklæti. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Við fjölskyldan sendum Gunna, Kollu og Jóni Skúla og öðrum vin- um og skyldmennum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hvíl þú í friði, elsku frænka. Prins, Kíara og Pía senda woofff wofff til frænku. Magný, Þór og börn. Elsku frænka, það var mikið áfall að fá símtal á miðvikudags- morgninum síðasta frá Sollu minni, með þær fréttir að þú værir búin að kveðja. Ég vissi að það væri farið að nálgast kveðjustundina, en ekki að hún kæmi svona fljótt. Þú hafðir líka svo rosalega sterkan baráttuvilja í þessari orr- ustu sem þú háðir, og varst ákveð- in í að vinna! Ég hef sjaldan vitað aðra eins jákvæðni og ákveðni, í baráttunni við þennan hræðilega grimma og illa sjúkdóm. En hún stóð ekki lengi, barátt- an á milli ykkar, í rúmt eitt og hálft ár, en þú varðst að lúta í lægra haldi. En að fylgjast með þér og líðan þinni í gegnum Facebook, héðan frá Noregi, var erfitt en samt gott að fá að vita hvernig gekk og hvernig þér leið. Þegar við mæðgur komum heim til Íslands í október sl. grun- aði mig aldrei að þetta yrði síðasta skiptið sem við myndum sjá þig og knúsa, ég var viss um að við myndum hittast núna í maí þegar við komum heim til að ferma skottuna mína. Það er margs að minnast, elsku besta Hrönn mín, og er ég búin að vera í fjölskyldunni þinni frá því að ég man eftir mér, en ég man sérstaklega eftir hvað þú varst alltaf blíð, góð, glöð og sást já- kvæðar hliðar á öllu, ég held að ég hafi aldrei séð þig reiða eða í fýlu og þið Solla voruð alltaf tilbúnar með Pollýönnuleikinn ef eitthvað bjátaði á … það geislaði af þér já- kvæðnin og þú hafðir ótrúlega stórt og fallegt hjarta og tókst öll- um opnum örmum og alltaf pláss fyrir alla, menn eða dýr, en þú varst sérstaklega mikill dýravinur og hefur þú örugglega kennt Söru margt í þeim efnum, enda er hún dýrasjúk. En núna er stórt skarð höggvið í fjölskylduna mína, nú þegar þú ert farin, það verður skrýtið að koma ekki til Reykjavíkur og hitta þig, þú sem dýrkaðir Söru mína svo mikið og varst alltaf svo glöð að sjá hana. En núna veit ég að þér líður betur og hefur fengið hvíldina, og ert með pabba þínum, ömmu Lilju og Val, og að þið passið hvert upp á annað og fylgist með okkur sem sitjum eftir með góðar og fallegar minningar. Það er sárt að sakna, en með tímanum minnkar sárs- aukinn. Ég bið Guð um að styrkja Gunna og Kollu á þessum erfiða tíma. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Rósa. HINSTA KVEÐJA „Söknuðurinn er mikill, en þú fékkst þennan lykil til að sjá allt, því það er svo margt.“ Hvíldu í friði, elsku besta frænka mín, og ég er þakk- lát fyrir allar samveru- stundirnar sem við áttum. Þín frænka, Sara Sif.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.