Morgunblaðið - 23.05.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012
Í gær tilkynnti Hreyfingin að við-ræðum við ríkisstjórnina hefði
verið slitið.
Steingrímur J.sagði af því til-
efni að þetta kæmi
sér á óvart, því hann
teldi að viðræðun-
um hefði lokið án
niðurstöðu!
Munurinn áþessu tvennu
hlýtur að vera hár-
fínn.
Þetta gæti þó hugsanlega þýtt aðríkisstjórnin teldi sig geta
haldið viðræðunum áfram án
Hreyfingarinnar fyrst ekki hefði
verið nein hreyfing á viðræðunum
lengur.
En Hreyfingin sagði í sinni til-kynningu að hún mundi áfram
styðja öll góð mál frá ríkisstjórn-
inni, sem ætti ekki að vera mikil
fyrirhöfn.
Þeir sem þekkja til þess tungu-taks, sem notað er í sölum Al-
þingis og skilst ekki vel utan þeirra,
hafa rýnt í textann.
Þeir segja að yfirlýsingin þýðisennilega á mannamáli að
Hreyfingin muni styðja þau mál
sem ríkisstjórnin sé í vandræðum
með, en muni sýna andstöðu sína
þar sem öllu sé óhætt.
Hagsmunamál heimilanna séuþó sett ofar öllu og í þeim
málum verði engin grið gefin.
Þá sé auðvitað eingöngu átt viðhagsmunamál heimila þeirra
Birgittu, Margrétar og Þórs Saari.
Steingrímur J.
Sigfússon
Hreyfing á
viðræðuslitunum?
STAKSTEINAR
Þór Saari
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Tuttugu og þriggja ára karlmaður,
Hlífar Vatnar Stefánsson, játaði við
þingfestingu fyrir Héraðsdómi
Reykjaness í gærmorgun að hafa
orðið unnustu sinni, Þóru Eyjalín
Gísladóttur, að bana á heimili sínu í
Hafnarfirði í febrúar síðastliðnum.
Hann hafnaði hins vegar bótakröfu í
málinu sem kemur frá fjölskyldu
hinnar látnu og sagði kröfuna
ómerkilega og að „ógeðslegt“ væri
að leggja hana fram.
Hlífar Vatnar er ákærður fyrir
manndráp með því að hafa á tíma-
bilinu frá síðdegi fimmtudaginn 2.
febrúar til hádegis föstudaginn 3.
febrúar sl. veist að Þóru Eyjalín í
svefnherbergi á heimili sínu, með
hnífi, stungið hana ítrekað í andlit og
líkama og skorið hana á háls, allt
með þeim afleiðinginum að hún
hlaut bana af.
Réttarhaldið verður opið
Áður en að játningu Hlífars kom
var tekist á um það hvort þinghald í
málinu skyldi vera opið eða lokað.
Réttargæslumaður fjölskyldunnar
krafðist þess að þinghaldið yrði lok-
að til að hlífa henni við umfjöllun
fjölmiðla um málið. „Þarna er um að
ræða hrottafengið morð og upplýs-
ingar um viðkvæm atriði sem óhjá-
kvæmilega verður fjallað um, og
verður aðstandendum þungbært að
hlusta á í gegnum fjölmiðla,“ sagði
Jóhanna Sigurjónsdóttir, réttar-
gæslumaður, en þar á meðal er níu
ára sonur Þóru.
Kröfunni mótmælti hins vegar
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari í málinu, og sagði óvanalegt
að loka þinghöldum í málum sem
þessum enda meginreglan sú að
þinghöld séu opin „og eins blóðugt
og málið er og óhugnanlegt þá er
þetta eins og mörg önnur mál. Því
eru engin rök til að hlífa sakborningi
við að það sé opið þinghald.“
Dómari málsins tók sér stutta
stund til að fara yfir málið og komst
að þeirri niðurstöðu að þinghald
skyldi vera opið í málinu. Jóhanna
ákvað að kæra úrskurðinn til
Hæstaréttar, sem mun því hafa
lokaorðið.
Engu að síður er ljóst að aðalmeð-
ferð í málinu fer fram 22. júní nk. og
mun klárast sama dag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leiddur inn Hlífar Vatnar Stefánsson kom til dómsins í fylgd fangavarða.
Játaði morðið en
hafnaði bótakröfu
Stakk unnustu sína ítrekað í andlitið
Veður víða um heim 22.5., kl. 18.00
Reykjavík 12 skýjað
Bolungarvík 10 alskýjað
Akureyri 12 skýjað
Kirkjubæjarkl. 9 alskýjað
Vestmannaeyjar 8 þoka
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 23 heiðskírt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 21 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 17 skýjað
Glasgow 21 léttskýjað
London 22 léttskýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 27 heiðskírt
Hamborg 25 heiðskírt
Berlín 30 heiðskírt
Vín 21 alskýjað
Moskva 25 heiðskírt
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 23 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 21 heiðskírt
Róm 13 skúrir
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 15 alskýjað
Montreal 18 skúrir
New York 18 alskýjað
Chicago 17 heiðskírt
Orlando 30 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:46 23:04
ÍSAFJÖRÐUR 3:17 23:42
SIGLUFJÖRÐUR 2:59 23:27
DJÚPIVOGUR 3:08 22:41
Í dag, miðvikudaginn 23. maí,
verður boðið upp á hársnyrt-
ingar frá kl. 10.00 til 16.00 í
húsakynnum Fjölskylduhjálpar
Íslands að Eskihlíð 2-4 í
Reykjavík. Slík þjónusta er af-
skaplega vel þegin og skjól-
stæðingarnir þakklátir, segir í
tilkynningu frá Fjölskylduhjálp-
inni.
Matarúthlutun verður einnig
í dag frá kl. 14 til 16.30, og út-
hlutun númera hefst kl. 10.00.
Hver skjólstæðingur er beðinn
um að koma með skattframtal
sitt fyrir árið 2011. Fatamark-
aður sem er í sama húsnæði er
opinn alla virka daga frá kl.
12.00 til 18.00. Allir landsmenn
eru velkomnir að versla á fata-
markaðinum og styrkja þannig
matar- og lyfjasjóð Fjöl-
skylduhjálpar Íslands.
Matarúthlutun og
hársnyrting hjá
Fjölskylduhjálpinni
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið laugard. 11–16, lokað Hvítasunnudag og mánudag
Listmuna
uppboð
Gallerís Foldar
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Dieter Roth
18. maí – 3. júní
Síðustu forvöð að koma verkum á
uppboðið er þriðjudaginn 29. maí
Áhugasamir geta haft
samband í síma 551-0400
Síðasta uppboð fyrir sumarhlé
er mánudaginn 4. júní