Morgunblaðið - 23.05.2012, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 23.05.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012 Á Krúsku færðu: heilsusamlegan mat, kjúklingarétti, grænmetisrétti, fersk salöt, heilsudrykki, súkkulaðiköku, gæðakaffi frá Kaffitár og fallega stemningu. Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-20 SENDUM Í FYRIRTÆKI Næring fyrir líkama og sál BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sjö kassar af íslenskum ritum sukku með Titanic í jómfrúrferðinni örlagaríku fyrir rétt rúmlega 100 árum. Kannski voru þarna eintök af Eimreiðinni, Skírni og Sunnanfara, hugsanlega nýlegar ævi- sögur og skáldsögur á íslensku. Fleira efni gæti hafa verið í þessari sendingu, en efnið var sérstaklega pantað fyrir ís- lenska bókasafnið í Cornell- háskóla í Íþöku í New York- ríki í Bandaríkjunum. Bótum hafnað Í bók Kristínar Bragadóttur, Willard Fiske, vinur Íslands og velgjörðarmaður, sem út kom árið 2008, er fjallað um þetta og segir svo í bókinni: „Nýlega komu í ljós skjöl í Fiskesafni sem sýna að mikið af íslenskum ritum fór í hafið með glæsiskipinu Titanic sem fórst í jómfrúrferð sinni árið 1912. Það ár var ein af pönt- unum Halldórs [Her- mannssonar] afgeidd og send frá Íslandi til Englands þar sem hún fór um borð í skip sem lá í Bristol tilbúið til siglingar til Norður-Ameríku. G.E. Strechert & Co. Dealers in Books and Per- iodicals í New York, sem voru með útibú í Leipzig, London og París, sáu um afgreiðslu pöntunar- innar. Bréf, skrifað 16. apríl 1912, barst frá fyrir- tækinu þar sem harmað var að farmur frá Íslandi, sjö bókakassar og nokkrir pakkar af tímaritum hafi tapast með Titanic. Ekkert af þessu var tryggt, en Stechert-fyrirtækið lýsti sig reiðubúið að koma að einhverju leyti til móts við kaupendur. Í bréfi frá 18. apríl 1912 segir: „Fyrir nokkru höfum við hætt við tryggingar á sjóflutningum og sannarlega reiknuðum við ekki með tapi á farmi á nýjasta og fínasta gufuskipi, sem nokkurn tíma hefur verið byggt.“ Bókasafnið í Íþöku ákvað hins vegar að fara ekki fram á skaðabætur.“ Það kemst býsna margt í svona pappakassa Kristín segir í samtali við Morgunblaðið að ekki liggi fyrir hvað nákvæmlega hafi verið í þessari sendingu. „Willard Fiske var mjög nákvæmur safnari og fylginn sér,“ segir Kristín. „Hann lagði hart að sjálfum sér og þeim mönnum sem söfnuðu fyrir hann að ná öllu og vildi alls ekki að það væru eyður í safninu hans. Halldór setti safnið upp að Fiske látnum og annaðist það af mikilli ósérhlífni í áratugi. Hann fylgdi vinnubrögðum Fiske og safnið í Cornell er einstakt. Það er líklegast að Halldór hafi pantað aftur það sem fór forgörðum með Titanic. Ég efast um að í sendingunni hafi verið fágætt eldra efni því það hefði þá komið fram á þessum tíma. Líklegast er að í sendingunni hafi verið eintök af þeim tíma- ritum, sem gefin voru út á Íslandi í byrjun 20. ald- arinnar, einnig skáldsögur á íslensku, ævisögur og annað íslenskt efni. Það kemst býsna margt í svona pappakassa ef vel er raðað. Fiske hafði áhuga á öllu efni frá Íslandi og þar voru einblöðungar ekki undanskildir. Það kæmi mér ekki á óvart að í sendingunni hefðu verið erfi- ljóð, auglýsingar, matseðlar og markaskrár frá hinum ýsmu landshornum. Slíkt efni er að finna í safninu og Fiske hafði áhuga á öllu sem tengdist landinu og þjóðinni sem var honum svo kær. Hall- dór tók upp þetta merki.“ Íslensk tenging við Titanic Kristín segir að hún hafi lengi viljað kynnast betur manninum Fiske, sem tók slíku ástfóstri við Ísland. Hún hafi m.a. dvalið við rannsóknir í Sví- þjóð, á Ítalíu og í Cornell-háskóla. „Einhverju sinni þegar ég var að grúska í papp- írum á bókasafninu benti yfirmaður safnsins mér á þessi bréf frá skipafélaginu,“ segir Kristín. „Hann sagði að það væri alltaf verið að fjalla um Titanic og þarna væri komin íslensk tenging, sem ekki hefði verið fjallað um áður. Ég veit ekki til þess að um borð í skipinu hafi verið aðrir hlutir sem tengjast Íslandi.“ Kristín segist enn vera í nokkru sambandi við starfsmenn í Cornell, þar sem unnið er að þýðingu bókar hennar um Fiske. Íslensk rit í farmi Titanic  Margvíslegt efni pantað frá Íslandi fyrir Cornell-háskóla í Bandaríkjunum  Sannarlega reiknuðum við ekki með tapi á farmi á nýjasta og fínasta skipinu AFP Titanic Lagt upp frá Englandi yfir hafið áleiðis til Bandaríkjanna í apríl 1912. Í lestum skipsins voru eintök af íslenskum bókum og tímaritum. Sukku Tilkynning um hvarf ritakosts sem var í Titanic þegar skipið sökk fyrir rúmri öld. Kristín Bragadóttir Daniel Willard Fiske Ekki er ósennilegt að Daniel Willard Fiske hafi fyrstur kennt íslensku við bandarískan háskóla. Hann var einnig áhugamaður um skák og átti þátt í uppbyggingu hennar hér á landi. Fiske fæddist 11. nóvember 1831 í Ellisburg í New York-ríki. Ungur fékk hann brennandi áhuga á norrænum fræðum og sigldi 1850 til Kaupmanna- hafnar til háskólanáms. Af Íslend- ingum komst Fiske í kynni við Jón Sigurðsson en einkum þó Gísla Brynjúlfsson skáld sem kenndi honum íslensku endur- gjaldslaust. Eftir vetrarvist í Kaup- mannahöfn flutti hann sig um set og las við Uppsalaháskóla í 1½ ár. Árið 1868 varð hann prófessor í Norðurlandamálum og þýsku við hinn nýstofnaða Cornell-háskóla í Íþöku í New York-ríki og jafnframt yfir- bókavörður háskólans. Árið 1883 sagði Fiske lausu starfi sínu við Cornell- háskóla og fluttist til Flórens á Ítalíu þar sem hann bjó til dauðadags, 17. september 1904. Brennandi áhugi Í grein í Morgunblaðinu á 100 ára ártíð Fiskes segir svo um arfleifð hans: „Brennandi áhugi Willards Fiskes á Íslandi og íslenskri menningu hefur tvímælalaust borið ríkulegan ávöxt í mikilvægu framlagi til skákíþrótt- arinnar og menningarlífs bæði í Lærða skólanum og Grímsey og ekki síst í kraftmikilli söfnun íslenskra bóka. Fiske-safnið við Cornell-háskóla, sem nú er ríflega 40 þúsund bindi, er talið annað stærsta safn íslenskra bóka á erlendri grundu, næst á eftir Kon- unglega bókasafninu í Kaupmanna- höfn, og hefur að geyma mikinn fjölda afar fágætra bóka.“ Fiske arfleiddi Cornell-háskóla að mestöllum eignum sínum og þar á meðal bókasöfnum, en íslenska safnið er þeirra stærst. Erfðaskrá Fiskes kveður á um að því skuli haldið út af fyrir sig. Íslenskir bókaverðir Halldór Hermannsson gegndi fyrst- ur starfi bókavarðar við Fiske- bókasafnið eftir að því var komið fyrir við Cornell-háskóla árið 1905. Hann gegndi starfinu til ársins 1948, jafn- framt því sem hann var prófessor við skólann. Halldór var vel kunnugur safninu eftir að hafa starfað með Fiske í Flórens. Halldór skipulagði safnið og gaf út vandaðar bókaskrár og hélt úti ritröðinni Islandica. Næstir á eftir Halldóri voru bóka- verðir þeir Kristján Karlsson, Jóhann S. Hannesson og Vilhjálmur Bjarnar, en þeir höfðu einnig með höndum kennslu í forníslensku við háskólann. Einstakt bókasafn í Cornell Halldór Hermannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.