Morgunblaðið - 23.05.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012
● Launavísitala í apríl 2012 er 431,4
stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mán-
uði. Síðastliðna tólf mánuði hefur
launavísitalan hækkað um 11,9%. Vísi-
tala kaupmáttar launa í apríl er 111,1
stig og lækkaði um 0,8% frá fyrri mán-
uði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala
kaupmáttar launa hækkað um 5,1%.
Þessar upplýsingar komu fram á vef
Hagstofunnar í gær.
Kaupmáttur minnkar
● 72% af heildar-
útflutningi sjáv-
arafurða á síðasta
ári fóru á markað
á evrópska efna-
hagssvæðinu,
8,8% fóru til Asíu
og 4,9% til Afr-
íku. Þetta kemur
fram í ritinu Út-
flutningur og út-
flutningsfram-
leiðsla sjávarafurða 2011 sem Hagstofa
Íslands gefur út. Fram kemur að á árinu
2011 nam verðmæti útflutningsfram-
leiðslu sjávarafurða rúmum 256 millj-
örðum króna og jókst um 7,8% frá
fyrra ári.
72% útflutnings sjávar-
afurða til Evrópu
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Fóðurinnflytjendur þurfa að horfast í
augu við að hækka verð eftir miklar
hráefnisverðhækkanir á alþjóðlegum
mörkuðum. „Ég á
von á því að við
þurfum að hækka
verð á fóðri
snemmsumars,“
segir Bergþóra
Þorkelsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Líflands
sem er umsvifa-
mikill fóðurfram-
leiðandi, í samtali
við Morgunblaðið.
Hún segist ekki geta sagt til um strax
hve miklar hækkanirnar verði, enda
fari verð á mörkuðum enn hækkandi.
En nefnir að þessar hækkanir muni
auka matarútgjöld heimilanna í land-
inu.
Sojamjöl hefur hækkað um 54% á
erlendum mörkuðum frá því um
miðjan desember til byrjunar maí.
En sojamjöl er einn helsti prótíngjaf-
inn í dýrafóðri hér á landi og því mun
hækkunin leiða til hærri framleiðslu-
kostnaðar í landbúnaði sem þrýstir á
verðhækkanir til neytenda. „Soja-
verð hefur afgerandi áhrif á verð-
myndun í matvælaiðnaði. Það blasir
við að svona miklar verðhækkanir á
soja og jafnvel öðrum afurðum sem
eru undirstaðan að allri landbúnaðar-
framleiðslu leiða til hærra vöruverðs
á t.d. kjöti og mjólk,“ segir Bergþóra.
En fóðurkostnaður vegur þungt í
framleiðslukostnaði matarframleið-
enda.
Helsta orsökin fyrir þessum hækk-
unum er mun minni uppskera í
Suður-Ameríku en reiknað var með.
Uppskerubresturinn á rætur að
rekja til mikillar þurrkatíðar það sem
af er þessu ári.
Erfiðara fyrir landsmenn
Þrátt fyrir þessar miklu hækkanir
hefur Lífland ekki enn hækkað verð
nema sem nemur verðbólgu, því
fyrirtækið átti lager en þær birgðir
munu ganga til þurrðar á næstunni.
Bergþóra bendir á að vegna þess hve
krónan er veik um þessar mundir eigi
innlendir aðilar erfiðara um vik með
að takast á við hækkanirnar. Fóður-
verð hafi t.d. hækkað töluvert á út-
mánuðum 2008 en þá var krónan mun
sterkari og innanlandsmarkaðurinn
réð betur við töluverðar sveiflur í
verði. „Nú höfum við ekki borð fyrir
báru. Það hefur verið þungur róður í
nokkur ár og því kemur þetta mun
harðar við okkur landsmenn,“ segir
Bergþóra.
Erlendir sérfræðingar telja ekki
mikla möguleika til lækkunar á næst-
unni. Þeir reikna jafnvel með því að
sojavörur muni hækka enn frekar á
næstu vikum og mánuðum og spá því
að verð á sojabaunum eigi eftir að ná
sambærilegum hæðum og gerðist ár-
ið 2008. Ef það gerist þá þýðir það
15%-20% hækkun til viðbótar við þá
rúmlega 50% hækkun sem þegar hef-
ur orðið á örfáum mánuðum.
Miklar verðhækkanir á
mat ytra á leið til Íslands
Reuters.
Alþjóðaviðskipti Sojabaunauppskera í Argentínu. Uppskerubrestur þar hefur mikil áhrif í Evrópu.
Sojamjöl hækkaði
um 56% á hálfu ári
Miklar hækkanir á
hrávörumörkuðum
» Sojamjöl hefur hækkað um
54% á erlendum mörkuðum
frá því um miðjan desember
til byrjunar maímánaðar.
» Þessar verðhækkanir munu
hafa áhrif á matarverð hér.
» Íslensk heimili og fyrirtæki
eiga erfiðara um vik að takast
á við hækkanirnar eftir banka-
hrunið og vegna veikrar
krónu.
Bergþóra
Þorkelsdóttir
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Tæp 13% ungs fólks í heiminum eru
atvinnulaus og samkvæmt skýrslu
Alþjóðasambands launþega (ILO) er
útlit fyrir að aðstæður þessa fólks
muni ekki batna á næstu fjórum ár-
um. Samkvæmt skýrslunni er ein af
hverjum fimm ungum manneskjum í
Evrópu atvinnulaus og í löndum
Norður-Afríku eru 27,9% ungmenna
atvinnulaus. Í Mið-Austurlöndum er
talan 26,5%.
„Jafnvel í Austur-Asíu þar sem
mestur er krafturinn í viðskiptalífinu
er atvinnuleysi ungs fólks næstum
þrisvar sinnum meira en fullorð-
inna,“ stendur í skýrslunni.
Þar segir einnig að líklega sé at-
vinnuleysið meira enda eru mörg
dæmi um að fólk framlengi náms-
tíma sinn af því að það á erfitt með að
finna vinnu.
Hættan er að þar sem vel hæft og
menntað fólk fær ekki störf þá missi
það hæfileikana.
Höfundar skýrslunnar leggja til
að fyrirtæki sem ráða ungt fólk fái
skattaafslátt og að ríkisstjórnir geri
það að stefnumáli sínu að bæta
ástandið. Það verði að vera pólitísk-
ur vilji til að taka á vandamálinu.
Til samanburðar er 7,5% atvinnu-
leysi á Íslandi en á sama tíma var at-
vinnuleysi ungs fólks 17,7%. Þannig
er atvinnuleysi ungs fólks 2,36 sinn-
um meira en fullorðinna.
Ný skýrsla um atvinnuleysi komin út
Ungmennin eru
hér án atvinnu
Betl Atvinnuleysi ungs fólks er orð-
ið alþjóðlegt vandamál.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-
,../,0
+,1/2,
,+/--+
,+/3-4
+-/5+
+31/-1
+/04,2
+43/24
+2+/53
+,-/3
,../-1
+,1/45
,+/530
,+/11,
+-/52,
+30/+,
+/04-3
+41/,-
+2,/,5
,,3/314,
+,-/2
,.+/,3
+,0/31
,+/544
,+/0.0
+-/4+1
+30/0
+/2.,
+41/50
+2,/-3
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
Stuttar fréttir ...
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á