Morgunblaðið - 23.05.2012, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012
✝ Friðbjörg Ingj-aldsdóttir
fæddist í Reykjavík
8. október 1918.
Hún lést á Landspít-
alanum 14. maí
2012.
Foreldrar Frið-
bjargar voru Ingj-
aldur Þórarinsson,
sjómaður og síðar
verkamaður í
Reykjavík, f. 5. des-
ember 1874 að Bæ í Kjós, d. 1.
nóvember 1961 og Þóra Péturs-
dóttir húsmóðir, f. 20. júlí 1883 í
Miðdal í Kjós, d. 17. marz 1959.
Systkini Friðbjargar voru Hólm-
fríður, f. 1909, Pétur, f. 1911,
Guðmundur Marinó, f. 1912,
Laufey Ása, f. 1915 og Njáll, f.
1923, öll látin.
Hinn 27. apríl 1938 giftist
Friðbjörg Oddi Helga Helgasyni,
f. 10. apríl 1912, d. 3. nóvember
1986. Foreldrar hans vour hjónin
Oddrún Sigurðardóttir, f. 1878,
d. 1969 og Helgi Magnússon, f.
rún Helga, f. 1981. 6) Pétur Egg-
ert, f. 8. nóvember 1957, kvæntur
Margréti H. Kjærnested, f. 17.
apríl 1960, þeirra dóttir er Ásta,
f. 1988. 7) Valgerður, f. 15. des-
ember 1960, gift Friðriki Ey-
steinssyni, f. 12. janúar 1959,
þeirra synir eru Oddur Eysteinn,
f. 1983, Friðrik Húni, f. 1994 og
Guðjón Helgi, f. 1998. Auk barna
Friðbjargar átti Oddur soninn
Viggó Alfreð, f. 1932, d. 1983.
Langömmubörn Friðbjargar eru
17 og eitt langalangömmubarn.
Friðbjörg ólst upp í vesturbæ
Reykjavíkur á Bræðraborg-
arstíg, Vesturgötu og Bakkastíg.
Hún gekk í Miðbæjarbarnaskól-
ann og stundaði síðar nám í hús-
stjórnarskóla í Danmörku, Den
Danske Fagskole. Jólahlaðborða-
menningu á Íslandi má rekja til
fagmennsku Friðbjargar í mat-
argerðarlist. Starfsvettvangur
hennar var heimavinnandi hús-
móðir og stjórnaði hún stóru
heimili á annasömum tíma eig-
inmannsins. Friðbjörg var fé-
lagslynd í meira lagi, virkur fé-
lagi í Kvenfélaginu Hringnum
um langt árabil, spilaði brids
fram á síðasta ár.
Útför Friðbjargar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 23. maí
2012, og hefst athöfnin kl. 13.
1872, d. 1956. Börn
Friðbjargar og
Odds eru 1) Helgi, f.
14. janúar 1939, var
kvæntur Ásthildi
Ingu Haraldsdóttur,
f. 9. júní 1943, þau
skildu, börn þeirra
eru, Haraldur
Helgi, f. 1964, Katr-
ín, f. 1968 og Oddur
Ingvar, f. 1975, d.
1980. 2) Sigrún Jak-
obína Anna, f. 16. marz 1942, gift
Bjarna Ingvari Árnasyni, f. 17.
júní 1942, börn þeirra eru Arndís
Björg f. 1963, d. 1983, Þóra, f.
1967, Elín, f. 1972 og Árni Ingv-
ar, f. 1978. 3) Þóra, f. 12. febrúar
1944, giftist Arthur Rose, f. 19.
maí 1934, d. 1993. 4) Sigurður
Bertel, f. 20. september 1945,
kvæntur Iðunni Lúðvíksdóttur, f.
7. júní 1947. 5) Oddur Helgi, f. 10.
febrúar 1950, kvæntur Elínborgu
Jóhannsdóttur, f. 20. marz 1951,
börn þeirra eru Davíð Freyr, f.
1974, Friðbjörn, f. 1978 og Odd-
Látin er í hárri elli móðir mín,
Friðbjörg Ingjaldsdóttir. Heilsu
hennar hafði tekið að hraka mikið
síðastliðin tvö ár og sjónin nánast
farin.
Móður minnar minnist ég helst
fyrir hennar margvíslegu áhuga-
mál enda með afbrigðum jákvæð
kona og sá aldrei neitt nema
björtu hliðarnar á tilverunni.
Matargerð var hennar list-
grein, og lagði hún sérstaklega
áherslu á að allt liti vel út og mat-
urinn væri fallega fram borinn. Í
Danmörku lærði hún danska mat-
argerð og tileinkaði sér snilli
þeirrar listar sem Danir eru
þekktir fyrir.
Bridge spilaði hún til 91 árs ald-
urs, meðal annars með Oddfellow-
konum sem báru hana á höndum
sér þrátt fyrir að hún væri ekki í
reglunni. Hún var með „bridge-
reikninginn‘‘ alveg á hreinu.
Ensku knattspyrnunni fylgdist
hún með meðan hún naut sjónar
og harður KR-ingur, fædd og upp-
alin í Vesturbænum. Hún spilaði
golf með föður mínum þegar Golf-
klúbbur Reykjavíkur var staðsett-
ur í Öskjuhlíðinni, enda átti hann
sæti í stjórn klúbbsins. Húmor
hafði hún góðan og stöðugt að
biðja mann að segja sér brandara,
þegar maður hafði gert það sagði
hún „nú skalt þú fara, ég ætla að
hringja í hana Dúu svilkonu og
segja henni þennan brandara“.
Mömmu verður helst minnst
fyrir jákvæðni og hver sem skilur
eftir sig slíkar minningar er öf-
undsverður. Hana hafði dreymt
pabba nóttina áður hún lést, hann
hafði staðið við uppdekkað borð
og sagt að það yrði haldin veisla
þegar hún kæmi austur.
Góða ferð, mamma mín, og Guð
geymi þig.
Oddur Helgi Oddsson.
Elsku mamma mín,
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þín verður sárt saknað.
Kveðja, þín
Valgerður (Vala).
Friðbjörg Ingjaldsdóttir
tengdamóðir mín látin. Hún fór
eins og staðfasti tindátinn hnar-
reist í stafni skips síns, gaf skip-
anir á báða bóga til hinstu stundar
– er yfir lauk. Lífshlaup hennar og
vegferð var falleg og spannar rúm
93 ár, sem þykir harla gott í garði
drottins.
Friðbjörg fæddist frostavetur-
inn mikla 1918, við lok fyrri heims-
styrjaldarinnar og bar fallega
nafnið sitt því samkvæmt. Alla tíð
var hún Hringskona, sjálfstæðis-
kona og KR-ingur, sannur Vest-
urbæingur og ákaflega stolt af
uppruna sínum. Á langri ævi ger-
ist margt og það fékk hún að sjá
og reyna. Friðbjörg giftist Oddi
Helgasyni forstjóra sem lést
1986. Þau hjón eignuðust sjö börn
saman í farsælu hjónabandi sem
öll eru á lífi og mannkostafólk.
Hún stjórnaði mannmörgu heim-
ili með mikilli reisn. Var lista-
kokkur, enda útskrifuð af góðum
dönskum matreiðsluskóla. Ég
kynntist henni haustið 1960 þegar
ég var að gera hosur mínar græn-
ar fyrir Sigrúnu elstu dóttur
þeirra hjóna. Tók hún mér
stráklingnum með kostum og vin-
áttu, sem varði alla tíð. Aldrei
lastaði hún neinn né lagði mis-
jafnt til heldur sagði kannski „það
var einmitt það“ og þá var það
bara þannig. Hispurslaus á stund-
um, beinskeytt og gædd ríkuleg-
um húmor. Hvernig gat slík
manneskja annað en verið bráð-
skemmtileg – það var hún tengda-
móðir mín sannarlega. Friðbjörg
var þungamiðjan í stórfjölskyld-
unni einmitt eins og tíðkast á Ítal-
íu. Ættmóðirin aldin brosmild og
falleg, ævinlega glæsilega klædd
með tilheyrandi klúta, hatta og
hanska. Já, það sópaði að henni
Friðbjörgu hvar sem hún fór.
Þannig minnumst við hennar,
syrgjum og elskum. Nú er komið
að kveðjustundinni og þakka ég
henni fyrir hana Dirru mína og
vináttuna okkar góðu, sem ekkert
skyggði á.
Góður Guð fylgi þér og blessi
þína.
Bjarni Ingvar Árnason.
Friðbjörg
Ingjaldsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Friðbjörgu Ingjalds-
dóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTRÚN ÓSK KALMANSDÓTTIR,
Garði,
Strandgötu 11,
Stokkseyri,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
fimmtudaginn 17. maí.
Útför fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 26. maí
kl. 11.00.
Halldór K. Ásgeirsson, Adelada M. Renegado,
Guðlaugur Rúnar Ásgeirsson,
Jón Björn Ásgeirsson,
Ásrún S. Ásgeirsdóttir, Viktor S. Tómasson,
Sigurborg K. Ásgeirsdóttir, Guðjón M. Jónsson,
Gunnlaugur S. Ásgeirsson, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi,
langafi og langalangafi,
GUÐMUNDUR FERTRAM SÖLVASON
frá Efri-Miðvík,
Aðalvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
mánudaginn 21. maí.
Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 26. maí
kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Oddný Guðmundsdóttir,
Sigurjón Norberg.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
FREYJA JÓHANNSDÓTTIR,
Urðarbakka 6,
sem lést að morgni uppstigningardags
17. maí, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 24. maí kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Minningarsjóð líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi.
Bragi Agnarsson, Bjarney Runólfsdóttir,
Leifur Agnarsson,
Laufey Björg Agnarsdóttir,
Þór Agnarsson, Ásdís Þóra Davidsen,
Vigdis Björk Agnarsdóttir,
Finnbogi Jóhann Jónsson, Bettina Wunsch,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
SVAVAR KRISTJÓNSSON
rafverktaki,
Eikjuvogi 17,
lést á Landspítalanum föstudaginn 18. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðný Ásbjörnsdóttir,
Guðný Svavarsdóttir, Sveinn Óttar Gunnarsson,
Jörundur Svavarsson, Sif Matthíasdóttir,
Erla Kristín Svavarsdóttir, Sigríkur Smári Ragnarsson,
Lilja Steinunn Svavarsdóttir, Bjarni Jónsson,
Auður Ólína Svavarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÓLAFUR S. OTTÓSSON,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 16. maí.
Útför hans fer fram frá Neskirkju fimmtu-
daginn 24. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á orgelsjóð Stykkishólmskirkju (0309-13-300336,
kt. 630269-0839) eða líknarfélög.
Steinunn Árnadóttir,
Ingibjörg Ólafsdóttir, Helgi R. Jósteinsson,
Kristín Ólafsdóttir, Davíð Sigurjónsson,
Erna Ólafsdóttir, Helgi Arnarson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ARNBJÖRG DAVÍÐSDÓTTIR,
áður Borgarholtsbraut 67,
Kópavogi,
sem lést á Hrafnistu miðvikudaginn 16. maí,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn
25. maí kl. 14.00.
Örn Harðarson, Halla Hallgrímsdóttir,
Þórhalla Harðardóttir, Jón Jóhannesson,
Jóhanna Harðardóttir, Sigurður Ingólfsson,
Ari Harðarson, Hjálmfríður Nikulásdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
RAKEL GUÐBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 20. maí.
Útförin fer fram frá kirkju Óháða safnaðarins
við Háteigsveg, þriðjudaginn 29. maí
kl. 15.00.
Helga B. Bequette Magnúsdóttir,
Reynir Guðjónsson, Margrét Vilmarsdóttir,
Grétar Örn Júlíusson,
Ragnar Geir Guðjónsson,
Erla Guðjónsdóttir, Guðmundur K. Birkisson,
Magnús Helgi Alfreðsson, Áslaug Jóhanna Jensdóttir,
Helena Katrín Alfreðsdóttir, Jón Guðbrandsson,
Ragnar Fjeldsted,
Alfreð Emil Alfreðsson, Rosario Amado Obas,
Ásta Berglind Alfreðsdóttir, Karl H. Garðarsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KLARA GUÐBRANDSDÓTTIR
frá Laugardælum,
til heimilis að Bláskógum 13,
Hveragerði,
lést fimmtudaginn 17. maí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 25. maí kl. 15.30.
Guðbrandur Einarsson, Sigurlína J. Gunnarsdóttir,
Katrín Einarsdóttir, Geir Jónsson,
Einar Smári Einarsson,
Ægir Einarsson,
Sigurður Einarsson, Gíslína Jensdóttir,
Sverrir Einarsson, Sigrún Helga Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og mágkona,
MARÍA H. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skúlagötu 40,
lést á kvennadeild Landspítalans föstu-
daginn 18. maí.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 5. júní kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Líf, styrktarfélag
kvennadeildar Landspítalans.
Elín María Ólafsdóttir, Jóhannes Gíslason,
Kristín Ólafsdóttir,
Auður Ólafsdóttir, Stefán Pétursson,
Jens Ólafsson, Kristín Eggertsdóttir,
Hjördís Jensdóttir,
ömmubörn og langömmubarn.
✝
Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
LAUFEYJAR BJARKADÓTTUR,
Hafrafellstungu,
fer fram frá Skinnastaðarkirkju Öxarfirði
laugardaginn 26. maí kl. 14.00.
Karl Sigurður Björnsson,
Hulda Hörn Karlsdóttir, Stefán Leifur Rögnvaldsson,
Ingiríður Ásta Karlsdóttir, Robert Duane Boulter,
Birna María Karlsdóttir, Einar Sigurjónsson,
Bjarki Fannar Karlsson, Eyrún Ösp Skúladóttir
og barnabörn.