Morgunblaðið - 23.05.2012, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2012
Jón Ingi Sigurmundsson opnaði
málverkasýningu í Gallerí Gónhól á
Eyrarbakka sl. fimmtudag. Sýn-
ingin var liður í bæjar- og menning-
arhátíðinni Vor í Árborg og stend-
ur fram í júní. Hún verður opin um
hvítasunnuhelgina og næstu helg-
ar. Gallerí Gónhóll er jafnframt
veitingahús.
Jón Ingi
í Gónhól
Sýning Eitt verka Jóns Inga.
Söngvaskáldið
Skúli Þórðarson,
sem þekktur er
sem Skúli
mennski, heldur
tónleika í Merki-
gili á Eyr-
arbakka á
sunnudag kl. 16.
Tónlist hans á
rætur í amer-
ískri blús- og
þjóðlagahefð en
áhrifin koma
víða að.
Skúli hefur flutt sína eigin tón-
list í rúman áratug og gefið út
fjórar plötur, þar af tvær á síðustu
tveimur árum; Búgí! og Skúli
mennski & hljómsveitin Grjót. Á
þeim flytur hann lögin með hljóm-
sveit, en flytur nú einn lög sín um
ástina og lífið. Aðgangur er
ókeypis en tekið á móti frjálsum
framlögum. Tónleikar í Merkigili
eru styrktir af Menningarráði
Suðurlands.
Skúli
mennski í
Merkigili
Skúli
mennski
The Lucky One
Ungur, bandarískur hermaður í
Írak finnur ljósmynd af ungri konu
á víðavangi en myndin bjargar lífi
hans, ef ekki hefði verið fyrir hana
hefði sprengja orðið honum að
bana. Þegar heim er komið, þ.e. til
Bandaríkjanna, ákveður hann að
hafa uppi á konunni, telur sig eiga
henni líf að launa.
Myndin er byggð á skáldsögu
Nicholas Sparks sem kom út fyrir
fjórum árum. Leikstjóri mynd-
arinnar er Scott Hicks og í aðal-
hlutverkum Blythe Danner, Taylor
Schilling og Zac Efron.
Rotten Tomatoes: 20%
Men in Black III
Leyniþjónustumennirnir J og K
snúa aftur í þriðju myndinni um
hina svartklæddu geimveru-
veiðimenn. Að þessu sinni þarf J
(Will Smith) að fara aftur í tíma til
að bjarga félaga sínum K (Tommy
Lee Jones) frá því að verða tortímt
af geimveru. Förinni er heitið aftur
til ársins 1969 og K því ungur og
sprækur en alltaf jafnalvörugefinn,
leikinn af Josh Brolin. Þurfa J og K
jafnframt að koma í veg fyrir tor-
tímingu jarðar og útrýmingu mann-
kyns. Leikstjóri myndarinnar er
Barry Sonnenfeld.
Rotten Tomatoes: 63%
Ástarsaga Zac Efron og Taylor Schilling í kvikmyndinni The Lucky One.
Ástarsaga og tímaflakk
Bíófrumsýningar
Svarið við spurningu dagsins
NÝ HEIMASÍÐA
Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is
Kíktu við og sjáðu rétti dagsins, finndu þér
uppskrift eða veltu fyrir þér veislunni sem þú
ætlar að halda í sumar
568 8000 | borgarleikhus.is
Rómeó og Júlía – síðustu sýningar
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Mið 23/5 kl. 20:00 11.k Fim 31/5 kl. 20:00 16.k Mið 6/6 kl. 20:00 19.k
Fim 24/5 kl. 20:00 12.k Fös 1/6 kl. 20:00 aukas Fös 8/6 kl. 20:00 aukas
Fös 25/5 kl. 20:00 13.k Lau 2/6 kl. 20:00 17.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Þri 29/5 kl. 20:00 14.k Sun 3/6 kl. 20:00 18.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Mið 30/5 kl. 20:00 15.k Þri 5/6 kl. 20:00 aukas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 25/5 kl. 20:00 Sun 3/6 kl. 20:00 Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Bastards - fjölskyldusaga (Stóra sviðið)
Fim 31/5 kl. 20:00 fors Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 2/6 kl. 20:00
Í samstarfi við Vesturport ofl. Aðeins þessar sýningar á Listahátíð
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Mið 23/5 kl. 20:00 6.k Fös 1/6 kl. 20:00 Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Fim 24/5 kl. 20:00 7.k Lau 2/6 kl. 20:00
Tímamótaverk í flutningi pörupilta
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fim 24/5 kl. 19:30 Fös 8/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 26/5 kl. 15:00 Sun 10/6 kl. 19:30 Lau 23/6 kl. 19:30 Síð. sýn.
Fös 1/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 2/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Fimm stjörnu stórsýning! Síðasta sýning 23. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Sun 3/6 kl. 19:30 Mið 6/6 kl. 19:30 Fim 7/6 kl. 19:30
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Síðustu sýningar.
Afmælisveislan (Kassinn)
Mið 23/5 kl. 19:30 11.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 14.sýn Fös 1/6 kl. 19:30
Fim 24/5 kl. 19:30 12.sýn Mið 30/5 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/6 kl. 19:30
Fös 25/5 kl. 19:30 13.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 16.sýn
Eitt vinsælasta verk Pinters. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Lau 26/5 kl. 17:00 Frums. Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Pétur Gautur (Stóra sviðið)
Mið 30/5 kl. 19:30
Gestasýning frá Sviss í leikstjórn Þorleifs Arnarssonar. Listahátíð 2012
Glymskrattinn (Þjóðleikhúskjallarinn)
Mið 23/5 kl. 20:00
Frumsýn.
Fös 1/6 kl. 22:30 Sun 3/6 kl. 16:00
Fös 25/5 kl. 22:30 Lau 2/6 kl. 22:30
Danssýning eftir Melkorku Sigríði og Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Listahátíð
TRYGGÐU
ÞÉR SÆTI
Um helgina lýkur bókauppboði á upp-
bod.is. Á uppboðinu, sem haldið er af
Bókinni og Gallerí Fold, eru rúmlega
100 bækur, þar á meðal nokkur af
verkum Halldórs Laxness auk úrvals
listaverkabóka. Meðal bóka eru út-
gáfur af Boðsritum Bessastaðaskóla,
þar með talið rit Björns Gunnlaugs-
sonar út komið 1828 um hvernig
reikna megi gang tunglsins, „Kóngs-
bréf“ prentað í Viðey 1820 sem kom
sem viðbót við tilskipanasafn prentað
á Leirárgörðum, dagatal með veð-
urspá prentað af Jóni Borgfirðingi og
frumútgáfa Starkaðar eftir Sigurð
Breiðfjörð sem kom út 1877 en með-
innbundin er bókin Bragi ýmis ljóð-
mæli sem kom út á Akureyri 1876.
Nokkrir prentgripir frá Hrappsey
og Hólum í Hjaltadal eru og á upp-
boðinu, til að
mynda Salt-
araútgáfa, sam-
ansöfnuð af sr.
Gunnlaugi
Snorrasyni,
prentuð á Hólum,
og Pass-
íusálmaútgáfa
Hallgríms Pét-
urssonar, prentuð
að Hólum í
Hjaltadal 1771.
Einnig eru Lögþingisbækur á upp-
boðinu, prentaðar í Hrappsey 1773 og
1774, og Orðabók Björns Halldórs-
sonar frá Sauðlauksdal, sem Rasmus
Rask ásamt fleirum stóð að og út kom
1814 svo dæmi séu tekin.
Uppboðinu lýkur 27. maí.
Bókauppboði lýkur
Lögþingisbók
prentuð í Hrappsey
árið 1774.
Í sambandi við tónleika Arcadis
Volodos þar sem fullyrt var að tón-
leikaskráin hefði ekki frætt hlust-
endur um verkin, þykir undirrit-
uðum skylt að taka fram að svo hafi
ekki verið.
Fullyrðingin byggðist á almennri
viðburðaskrá Listahátíðar. Eftir á
frétti undirritaður hinsvegar að sér-
stök tónleikaskrá hafi einnig verið í
boði (að vísu með líkri kápu) er
geymdi ítarlega umfjöllun Arndísar
Bjarkar Ásgeirsdóttur um jafnt
flytjandann sem tónverkin.
Biðst undirr. velvirðingar á þess-
um mistökum.
Leiðrétting um tónleika-
skrá Listahátíðar 20.5.
Ríkarður Ö. Pálsson