Morgunblaðið - 23.05.2012, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 144. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Mistök að tjá sig um ástamálin
2. „Ég játa, eins og stendur þarna“
3. Óreglumaðurinn sem játaði morð
4. Vill hóta eigendum snjóhengju
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin The Wicked Strangers
leggur upp í tónleikaferð um Banda-
ríkin um helgina og heldur fjármögn-
unartónleika á Gamla gauknum í
kvöld kl. 22 með hljómsveitunum
Retrobot og Caterpillarmen.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
The Wicked Strang-
ers vestur um haf
Sýningin „Sjálf-
stætt fólk“ stend-
ur nú yfir í Lista-
safni Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu, og
víðar, en sýningin
er hluti af
Listahátíð í
Reykjavík. Í dag
kl. 14 verður lista-
mannaspjall með Steinu í safninu, en
hún er sérstakur gestur raflistahátíð-
arinnar Raflost 2012 sem unnin er í
samstarfi við „Sjálfstætt fólk“.
Raflost og Steina í
Hafnarhúsinu
Píanóleikarinn Liwen Huang heldur
tónleika í Norræna húsinu annað
kvöld kl. 20. Hún hefur búið hér á
landi undanfarið ár, en stundaði áður
nám og kenndi við Listaháskólann í
Stavanger. Þetta verða
fyrstu tónleikar
hennar hér. Á efnis-
skránni eru verk
eftir Peixun
Chen, Saint
Saens, Jianz-
hong Wang
og Debussy.
Píanótónleikar í
Norræna húsinu
Á fimmtudag Suðvestlæg átt, 8-15 m/s með rigningu, en þurrt að
mestu norðaustantil. Dregur úr úrkomu síðdegis. Hiti 8 til 18 stig,
hlýjast norðaustantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustlæg átt, 2-12 m/s. Skýjað og dálítil
rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en léttir til fyrir norð-
an síðdegis. Hlýnandi og allt að 20 stiga hiti norðaustanlands.
VEÐUR
Stærðfræðikennarinn Atli
Guðnason úr FH var besti
leikmaður 4. umferðar
Pepsi-deildarinnar í fót-
bolta að mati Morgunblaðs-
ins. Atli kveðst ánægðari
með gengi FH-liðsins en
eigin frammistöðu og segir
að Kaplakrikinn sé sitt ann-
að heimili. Hafnfirðingarnir
mæta Íslandsmeisturum
KR í sannkölluðum stór-
leik í kvöld. »2-3
Stærðfræðikenn-
arinn bestur
Keppnistímabilið í golfinu hér á landi
hefst á föstudaginn þegar fyrsta
mótið í Eimskipsmótaröðinni fer í
gang á Hólmsvelli í
Leiru. Fremsti kylf-
ingur landsins,
Birgir Leifur Haf-
þórsson, hefur
skráð sig til
keppni en þar
sem hann er
með keppn-
isrétt á
Áskor-
endamóta-
röð Evrópu
er ólíklegt
að hann
geti tekið
þátt í
mörgum
mótum
hér-
lendis í
sumar.
»2
Birgir Leifur með á
fyrsta mótinu
Fjalar Úlfarsson er nýr landsliðs-
þjálfari í alpagreinum á skíðum.
Hann segir að spennandi starf sé
fyrir höndum með ungan hóp og
mikil áhersla sé lögð á að skapa
góða umgjörð fyrir landsliðs-
fólkið. Mikið sé af ungum og efni-
legum krökkum og því hafi að
þessu sinni verið ráðinn þjálfari
sem hafi aðsetur á Íslandi. »4
Spennandi starf með
ungu skíðafólki
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Kynjunum er stundum misskipt
milli ætta. Svo er það hjá Maríu
Guðnadóttur og manni hennar, Ólafi
Sigurðssyni. Elsti sonur þeirra, Sig-
urður Rúnar, eignaðist stúlku 1. apr-
íl síðastliðinn. Er hún fyrsta barna-
barn Maríu og Ólafs og jafnframt
fyrsta stúlkan sem fæðist í ættum
þeirra beggja í um fimmtíu ár.
„Ég á tvö systkini og við eigum
samtals níu stráka á aldrinum þrett-
án til 28 ára. Ég á fjóra, Elínborg
systir mín tvo og bróðir minn þrjá,“
segir María. „Stelpan er sú fyrsta í
minni ætt í 49 ár. Hún er jafnframt
fyrsta stelpan í ætt eiginmanns míns
í 51 ár en hann á tvö systkini og sam-
tals eiga þau átta stráka. Hún nær
líka að vera fyrsta barnabarnið báð-
um megin,“ segir María sem er að
vonum himinlifandi með litlu stúlk-
una. Hún slapp þó rétt í heiminn til
að eiga hinn alþjóðlega gabbdag fyr-
ir sig því daginn eftir kom næsta
barnabarn í heiminn, það fyrsta hjá
bróður Maríu, Valentínusi Guðna-
syni, og var það strákur.
„Hún kom í heiminn 1. apríl og ég
hélt fyrst að það væri verið að gabba
mig þegar ég fékk fréttirnar. Ég var
heima hjá foreldrum mínum í
Stykkishólmi þegar sonur minn
hringdi og tilkynnti að stúlka væri
fædd. Ég hélt að hann væri að
grínast í mér því einhvern
veginn bjóst ég við strák,“
segir María.
Á eftir að stjórna
Lengi hefur hallað
á kvenkynið í ættinni
að sögn Maríu.
„Langamma okkar í
móðurætt átti bara stráka,
sjö talsins. Pabbi og syst-
kini hans eru níu talsins og
þar eru líka karlarnir í meiri-
hluta.“
María starfar sem íþróttakennari
í Lindaskóla en hún er alin upp í
Stykkishólmi þar sem foreldrar
hennar, Elsa Valentínusardóttir og
Guðni Friðriksson, búa enn. Hún
segir foreldra sína hafa verið orðna
langeygða eftir kvenkyns barna-
barni. „Sérstaklega mamma, hana
langaði svo að kaupa kjól og loksins
fékk hún að kaupa kjól á fyrsta lang-
ömmubarnið. Mig langaði líka í eina
stelpu í strákahópinn en það skipti
engu máli þegar mér fæddust heil-
brigðir drengir,“ segir María.
Litla stúlkan fær nafn í júní og
segir María henni eiga eftir að vegna
vel í strákahópnum. „Hún á eftir að
stjórna öllu, þeir eru þegar farnir að
snúast í kringum hana eins og prins-
essu.“
Eina stelpan í strákahópnum
Fyrsta stelpan í
ættinni í 50 ár
fæddist 1. apríl
Morgunblaðið/Kristinn
Prinsessa í strákahópinn María M. Guðnadóttir með barnabarnið. F.v. Pétur Andri, Haukur Már, Davíð Arnar og
Sigurður Rúnar, faðir litla barnsins, og loks Ólafur Sigurðsson, maður Maríu og faðir strákanna.
Almennt fæðast fleiri strákar en
stelpur í heiminum. Ekki er
vitað hvers vegna það er en á
Vísindavefnum segir að
margar tilgátur hafi verið
settar fram. Meðal annars
hefur því verið haldið fram að
karlkyns sæðisfrumur séu
fljótari en kvenkyns frum-
urnar og séu því líklegri til
að ná fyrst takmarki sínu að
egginu.
Samkvæmt vef Hagstofunnar
fæddust 1.060 börn á Íslandi eftir
1. ársfjórðung 2012. Af þeim voru
580 strákar og 490 stelpur. Í lok 1.
ársfjórðungs 2012 bjuggu
320.060 manns á Íslandi, 160.610
karlar og 159.450 konur.
Alþjóðlegt kynjahlutfall 2012 er
1,01 karlmaður á hverja 1 konu.
Konur lifa lengur en karlmenn, þær
ná að meðaltali 69 ára aldri en
karlmenn 65 ára aldri.
1.160 fleiri karlar á Íslandi
KYNJAHLUTFÖLL