Morgunblaðið - 01.06.2012, Side 1

Morgunblaðið - 01.06.2012, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1. J Ú N Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  126. tölublað  100. árgangur  TÍSKA OG FÖRÐUN FRÆNKUR Á ÞJÓÐLEGUM NÓTUM, LITIRNIR LÍFGA UPP Á ÚTLITIÐ, SÓLGLERAUGUN Í SUMAR, FALLEG AÐ INNAN SEM UTAN Hið árlega Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins fór fram í blíð- skaparveðri í höfuðborginni í gær. Hlauparar gátu valið um 3 km skokk eða göngu frá Skógarhlíð að Öskjuhlíð og til baka eða hið krefjandi 10 km hlaup suður fyrir Reykjavíkur- flugvöll og til baka. Að venju var margt um manninn, 185 hlauparar spreyttu sig á stóra hringnum og náðu langflestir þeirra, eða 171, að klára en 117 hlauparar tóku þátt í styttri hringnum. Tíminn var mældur hjá öllum þátttakendum og voru úrslit birt eftir aldursflokkum. Í 10 km hlaupinu komu þau Kári Steinn Karlsson og Eva Margrét Einarsdóttir fyrst í mark en Ólafur Örn Guðmundsson og Eva Dögg Sæmunds- dóttir áttu besta tímann í 3 km hlaupinu. Um 300 hlauparar kófsvitnuðu í Heilsuhlaupinu Morgunblaðið/Árni Sæberg  Flugferðum frá Íslandi fjölg- ar um tæplega átta prósent fyrstu vikuna í júní miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt tölum Isavia. Alls verða 249 ferðir farnar frá Keflavík. Sautján flug- félög fljúga til og frá landinu í sum- ar og hefur verðstríð geisað á milli lágfargjaldafélaganna Iceland Ex- press og Wow-air undanfarið. Hafa bæði félög boðið ferðir til London og Kaupmannahafnar á allt niður í tíu þúsund krónur aðra leiðina. »16 Flugfélögin heyja verðstríð í sumar Önnur vélin í flug- flota Wow-air.  Verði stjórnarfrumvarp um at- vinnutengda starfsendurhæfingu og starfsendurhæfingarsjóði lög- fest á yfirstandandi þingi verður stigið stórt skref í þágu þeirra sem eru á vinnufærum aldri en geta ekki stundað vinnu sökum heilsu- brests. Gagnrýnisraddir heyrast innan heilbrigðiskerfisins þar sem sérfræðingar og sérhæfðir starfs- menn hafa áhyggjur af því að með stóraukinni áherslu á atvinnu- tengda starfsendurhæfingu verði læknisfræðilegri endurhæfingu þeirra sem veikastir eru ekki sinnt sem skyldi. »26 Þeir veikustu kynnu að lenda útundan Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um 17.600 ársverk töpuðust milli ár- anna 2008 og 2010 og hafa um 3.600 störf orðið til frá kreppuárinu 2010. Þetta kemur fram í greiningu Ing- unnar Þorsteinsdóttur, hagfræðings hjá Alþýðusambandi Íslands, en til samanburðar hefur Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, fullyrt að 5.000 störf hafi orðið til síðan 2010. Ingunn áætlar að um 5.000 manns hafi komið inn á vinnumarkaðinn milli fyrstu ársfjórðunga 2010 og 2012. Fjölgun starfa haldi því ekki í við nýliðun á markaði. Yfirvinna eykur vinnumagnið Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að við útreikninga ASÍ og Seðlabanka Íslands sé reiknaður áætlaður fjöldi starfa sem nemi auk- inni yfirvinnu. „Það er því ekki þann- ig að 3.600 einstaklingar hafi fengið vinnu heldur að vinnumagnið hafi aukist, m.a. með aukinni yfirvinnu.“ Spurður út í 5.000 nýju störfin sem Steingrímur nefndi segir Gylfi að ASÍ „finni þeim ekki stað í mæling- um Hagstofunnar“. „Aukningin sem Ingunn bendir á er innan skekkju- marka og þetta er því mjög veik vís- bending um fjölgun starfa og getur í sjálfu sér verið úrtakssveifla.“ Vilmundur Jósefsson, formaður SA, ber einnig brigður á tölur Stein- gríms. Hann óttast áhrif fiskveiði- frumvarpanna á vinnumarkaðinn. MStörf halda ekki í við nýliðun »21 17.600 ársverk hurfu í hruninu  ASÍ telur 3.600 störf hafa orðið til síðan 2010  Formaður VG telur störfin 5.000  ASÍ og SA efast um þá útreikninga Útivinna Dyttað að þakrennu á Skólavörðuholti í Reykjavík. Morgunblaðið/Golli Daði Már Kristófersson, dósent við HÍ, telur að þrátt fyrir breytingar sé veiðigjaldið enn mjög hátt og engar efnislegar breytingar gerðar á frum- varpi um fiskveiðistjórnun. Því standi gagnrýni sem fram kom í sér- fræðiáliti hans óhögguð. Frumvarp um veiðigjöld á útveg- inn er komið á dagskrá þingfundar og er búist við að umræður hefjist í dag. Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur óskað eftir tvöföldum ræðu- tíma, eins og hann á rétt á. Því verð- ur ræðutími þingmanna að hámarki fjörutíu mínútur í stað tuttugu og styttri ræðurnar geta orðið tíu mín- útur í stað fimm. Nýti þingmenn ræðutíma sinn til fulls munu umræð- ur taka langan tíma. Þó verður gert hlé um sjómannadagshelgina. »2, 4 Morgunblaðið/Kristinn Alþingi Atvinnuveganefnd fundar. Gagnrýni óhögguð  Veiðigjaldafrum- varp á dagskrá í dag 4.400 fækkun í röðum vinnuaflans milli janúar 2010 og janúar 2012. 3.600 ný störf urðu til milli janúar 2010 og 2012 samkvæmt áætlun ASÍ. 11.452 voru atvinnulausir í janúar á þessu ári samkvæmt Vinnumálastofnun. ‹ FÆRRI AÐ VINNA › »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.