Morgunblaðið - 01.06.2012, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Tjaldurinn sem var á forsíðu
Morgunblaðsins 14. maí síðastliðinn,
þar sem hann lá á þremur eggjum
sínum í vorhretinu, er nú kominn
með einn unga sem bíður óþreyju-
fullur eftir að systkinin tvö brjóti af
sér skurnina. Á meðan eyðir hann
tíma sínum í að skoða umhverfið,
ávallt þó í seilingarfjarlægð frá því
foreldrinu sem liggur á hverju sinni.
Ólíkt því sem gerist hjá flestum
öðrum tegundum vaðfugla eru ný-
fæddir ungarnir mataðir af foreldr-
unum í 7-10 daga. Er talið að sér-
stæð fæða tjaldsins ráði hér mestu
um. Við sjávarsíðuna lifir hann mik-
ið á sandmaðki og öðrum bursta-
ormum, krabbadýrum og ýmsum
skeldýrum, einkum þó kræklingi og
hjartarskel. Inn til landsins eru hins-
vegar ánamaðkar og skordýr þýð-
ingarmesta fæðan.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Beðið eftir systkinunum
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Tilkynnt hefur verið að öllu starfs-
fólki líftæknifyrirtækisins Roche
NimbleGen Iceland verði sagt upp
störfum í lok árs, en móðurfyrirtæki
þess, Roche Applied Science, hefur
ákveðið að gera skipulagsbreytingar
sem fela í sér stefnubreytingu í
vöruþróun og markaðsmálum. 68
starfsmenn eru hjá fyrirtækinu og
sjá þeir fram á að missa vinnuna í
kringum áramót.
Liður í breyttum áherslum
Sigríður Valgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Roche NimbleGen,
segir þessa ákvörðun samsteypunn-
ar í Þýskalandi hluta af viðamiklum
skipulagsbreytingum. Sambæri-
legar breytingar verða á starfsemi
Roche Applied Science í fleiri lönd-
um en á Íslandi. Samdráttur hafi
orðið í sölu hjá samsteypunni og
breytingarnar nú séu liður í breytt-
um áherslum hjá fyrirtækinu.
Sigríður segir hugsanlegt að ein-
hverjir starfsmenn muni fá starf hjá
Roche-samsteypunni erlendis. Fyr-
irtækið leggi mikið upp úr því að
veita starfsfólki sínu aðstoð varðandi
næstu skref svo sem ráðgjöf við at-
vinnuumsóknir.
Roche NimbleGen hóf starfsemi á
Íslandi árið 2002. Fyrirtækið sér-
hæfir sig í smíði svokallaðra DNA-
örflagna sem notaðar eru við ýmis-
konar sameindalíffræðilegar rann-
sóknir á erfðaefninu. Vörur
fyrirtækisins eru seldar gegnum
Roche til viðskiptavina um allan
heim.
Sigríður segir að þessi ákvörðun
Roche hafi verið óvænt en starfsfólk
hafi tekið fréttunum af æðruleysi.
Þetta sé sterkur hópur sem búi yfir
mikilli þekkingu á örflögutækni og
hátækniiðnaði. Starfsmenn hafi
margra ára reynslu af því að starfa í
alþjóðlegu umhverfi á sviði þar sem
vöru- og tækniþróun er gífurlega
hörð. egol@mbl.is
Starfsfólki Roche
NimbleGen Ice-
land sagt upp
68 manns missa vinnuna um áramót
Sérhæfir sig í smíði DNA-örflagna
Morgunblaðið/Ómar
Hátækni Hjá líftæknifyrirtækinu
Roche NimbleGen starfa 68 manns.
Hestamönnum gefst kostur á að
hleypa á Landsmóti hestamanna
sem fram fer í Reykjavík í lok mán-
aðarins. Stjórn Landsmóts ehf. mun
setja 300 metra stökk inn á dagskrá
mótsins, sem sýningargrein, ef næg
þátttaka fæst.
Kappreiðar voru veigamikill
þáttur í hestamannamótum fyrr á
árum, m.a. á landsmótum til ársins
2000. Keppt var í stökki og brokki
og kerruakstur var kominn á dag-
skrá. Síðustu árin hefur aðeins ver-
ið keppt í skeiði. Haraldur Þórar-
insson, formaður Landssambands
hestamannafélaga, segir að margir
hafi gaman af því að hleypa á stökk,
ekki síst ungir knapar. Vonandi
verði þetta til að efla áhuga á hesta-
mennsku. helgi@mbl.is
Alvörukappreiðar á
dagskrá landsmóts
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Verulegar breytingar verða á smá-
bátakerfinu samkvæmt tillögu,
sem nú er unnið með í atvinnu-
veganefnd Alþingis samfara vinnu
við frumvarp um stjórn fiskveiða.
Ganga þær þvert á það fyrirkomu-
lag sem verið hefur síðustu ár.
Meðal annars mun vera rætt um
að heimilt verði að selja og leigja
aflamark, sem er til eins árs, úr
kerfi minni bátanna, krókaafla-
markskerfinu, yfir í stóra afla-
markskerfið. Til þessa hefur að-
eins verið heimilt að færa afla úr
stóra kerfinu í litla kerfið, en ekki
í báðar áttir og hefur það bæði
gilt um aflamarkið og aflahlut-
deildina, sem er varanlegt afla-
mark.
Þá mun vera rætt um að heimilt
verði að stækka báta í smábáta-
kerfinu umfram þau 15 brúttótonn
sem nú er miðað við. Eftir slíka
stækkun geti útgerðarmenn valið
að fara yfir í stóra kerfið. Loks
má nefna að í tillögunum er gert
ráð fyrir að aflaheimildir krók-
aflamarksbáta, smábáta, sem yrðu
fluttar í stóra kerfið myndu skerð-
ast um 10%.
Gengið nærri smábátaútgerð
Eldveggur hefur til þessa komið
í veg fyrir að aflamark færi úr litla
kerfinu í stóra kerfið og var þetta
fyrirkomulag haft til að tryggja
stöðu smábátaútgerðar. Einn við-
mælandi blaðsins í röðum smá-
bátasjómanna sagðist hafa veru-
legar áhyggjur af hugmyndum um
flæði í báðar áttir og sagðist telja
að með því væri gengið nærri smá-
bátaútgerð, sem væri umhverfis-
væn og í anda þess sem stjórnvöld
hefðu talað fyrir.
Vitnaði hann einnig til reynsl-
unnar frá árinu 1991 þegar kvóti
var settur á smábátana og ekki var
ákvæði um aðskilnað á milli kerf-
anna. „Stærri útgerðir keyptu
minni bátana, sem hurfu eins og
dögg fyrir sólu og kvótinn safn-
aðist á stærri skipin,“ sagði hann.
Rótað í kerfi krókabáta
Rætt um að leyfa sölu á aflamarki úr smábátakerfinu yfir í stóra kerfið
Heimilt verði að stækka báta í smábátakerfinu umfram 15 brúttótonn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Pourquoi-Pas?-slysið hafði mikil áhrif á ís-
lensku þjóðina. Charcot varð eitt helsta samein-
ingartákn þjóðanna. Tengslin eru tilfinningaleg
og þess vegna kunna Frakkar vel að meta það
þegar minningu hans er sýnd virðing,“ segir
Jörundur Svavarsson, prófessor í sjávarlíffræði
við HÍ. Hann var sæmdur franskri orðu fyrir
þátt sinn í að koma upp sýningu í Fræðasetrinu
í Sandgerði um ævi Charcots og störf.
Nýjasta hafrannsóknaskip Frakka kom til
Reykjavíkur í gær. Það ber heiti skipa Char-
cots, Pourquoi-Pas?, og er fimmta skipið með
því nafni. Er þetta í fyrsta skipti sem það kem-
ur til Íslands en Charcot, sem var heims-
þekktur landkönnuður og vísindamaður, kom
oft á skipum sínum til Íslands og Grænlands og
átti marga vini hér á landi. Hann fórst með
skipinu og áhöfn þegar Pourquoi-Pas? strand-
aði í ofviðri við Mýrar í september 1936, nema
hvað einn maður bjargaðist á land.
Pourquoi-Pas? var við rannsóknarstörf á
norðurslóðum en það er flaggskip franska rann-
sóknarskipaflotans og er gert út af hafrann-
óknastofnun Frakklands og franska sjóhern-
um.
Í tilefni af komu skipsins til Reykjavíkur var
athöfn í brú skipsins þar sem franski sendiherr-
ann sæmdi Jörund orðunni sem veitt er fyrir af-
rek á sviði fræða og vísinda.
Var í áhöfn skipsins 1935
Við athöfnina færði Anna-Marie Vallin-
Charcot, barnabarn Charcots leiðangursstjóra,
Charcot-sýningunni í Sandgerði jakka sem há-
seti Pourquoi-Pas? hafði klæðst í ferð með
Charcot til Íslands og Grænlands. Jakkinn
verður settur upp á sýningunni Heimskautin
heilla og verður einn af dýrgripum hennar, að
sögn Jörundar. Thibault de Rugy gegndi her-
skyldu í franska sjóhernum þegar hann sá
Pourquoi-Pas? í höfn og bað um að fá að fara í
leiðangur með skipinu sem hluta af herskyldu
sinni. Fór hann með Charcot sumarið 1935 til
Grænlands og Íslands. Skipið fórst árið eftir.
De Rugy afhenti vini sínum jakkann áður en
hann dó og bað um að hann færi aftur til Ís-
lands, til að heiðra minningu Charcots og
áhafnarinnar. Rétta stundin var komin þegar
rannsóknarskip með þessu sögufræga nafni
hafði viðdvöl í Reykjavík.
Charcot-sýningin hefur verið opin í Sand-
gerði í fimm ár. „Einhvern veginn varð mér
ljóst að hvergi á Íslandi gæti maður fengið upp-
lýsingar á einföldu formi um þennan merka
mann, hver hann var og af hverju slysið hafði
svona djúp áhrif á Íslendinga,“ segir Jörundur
um tildrög þess að sýningunni var komið upp.
Jakki háseta af Pourquoi-Pas? sýndur
Flaggskip frönsku hafrannsóknastofnunarinnar í fyrsta skipti á Íslandi Ber nafn skipa Jean-
Baptistes Charcots landkönnuðar sem fórst hér við land Jörundur Svavarsson prófessor heiðraður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heiðraður Jörundur Svavarsson, lengst t.v.,
Anna-Marie Charcot, og Moimeaux skipstjóri
skoða jakkann ásamt Bouteiller sendiherra.