Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 10

Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Í bókinni Á ferð og flugi með ömmu segir af ömmu og Frey sem ferðast saman milli fjalls og fjöru á Akra- nesi, vetur, sumar, vor og haust. Þau lenda í ýmsum ævintýr- um og amma hefur frá mörgu spenn- andi að segja eins og t.d. skessum. Höfundar bókarinnar eru þau Hall- bera Fríður Jóhannesdóttir og Bjarni Þór Bjarnason sem bæði eru fædd og uppalin á Akranesi. Hall- bera skrifar í bókinni sögur sem tengjast bænum og nágrenni hans en Bjarni Þór myndskreytir. Heimabyggðin Akranes Hallbera hefur til fjölda ára starfað sem kennari við Brekkubæj- arskóla og einnig á bókasafni skól- ans, en það var í gegnum starfið sem hugmyndin að bókinni kviknaði. „Ég hafði ekkert skrifað áður opinberlega en þetta byrjaði með því að samkennara mína í fyrsta bekk vantaði upplýsingar um heima- byggðina sína Akranes og náttúruna og árstíðirnar. Ég fann ekkert á safninu og settist því niður til að setja eitthvað saman. Það varð úr að þetta bara bunaðist upp úr mér enda á ég sjálf sjö ára gamlan ömmu- strák, Gísla Frey Þorsteinsson, sem hefur brallað margt með mér hér á Akranesi. Við gengum t.d. upp á Háahnjúk síðasta sumar. Sagan er því skáldsaga en byggð á ferðum okkar og staðreyndum um Akranes í bland. Eftir að hafa búið til náms- efnið var ég hvött til að gera eitthvað við þetta, ekki síst af manninum mínum og samstarfsfólki. Mér leist ekki alveg á blikuna fyrst því ég er ekki vön að taka mikla áhættu í líf- inu. En svo hugsaði ég til alls unga fólksins sem hefur komið fram í fréttum fyrir að fram- kvæma hugmyndir sín- ar og ákvað að láta bara vaða. En þetta hefði ekki orðið að neinni bók ef Bjarni hefði ekki verið til í að mála mynd- irnar,“ segir Hall- bera. Fyrirmyndin að ömmunni „Það var al- veg sjálfsagt að mála myndirnar í bókina hennar Hallberu enda mjög skemmtilegt að teikna í svona bækur. Sérstaklega í svona bók sem er staðbundin hér á Akranesi þar sem maður þekkir hvern krók og kima og getur teiknað upp eftir minni. Hall- bera er fyr- irmyndin að teikningum af ömmunni í bókinni enda eiga þær það sameiginlegt að vera alltaf hlaup- andi og hjólandi út um allt. Sam- starf okkar gekk vel og það getur vel verið að við eig- um eftir að vinna meira saman í fram- tíðinni,“ segir Bjarni Hjólandi amma og bóksali á Akranesi Í nýútkominni barnabók, Á ferð og flugi með ömmu, segir af ævintýrum Freys og ömmu hans á Akranesi. Bókina byggir höfundurinn, Hallbera Fríður Jóhannes- dóttir, á ferðum sínum um bæinn með ömmustrákinn sinn, en Bjarni Þór Bjarnason myndskreytir. Þau eru bæði fædd og uppalin á Akranesi en inn í sög- una er tvinnað ævintýrum, sögulegum fróðleik og náttúrufræði staðarins. Höfundar Hallbera og Bjarni Þór með ömmustráknum Gísla Frey. Breska vefsíðan look.co.uk er skemmtileg tískusíða með öllu því nýjasta og heitasta í tískunni. Á síð- unni er til að mynda hægt að horfa á myndbönd sem útskýra hvernig eigi að setja snúða og fleiri greiðslur í hárið. Tilvalið ef maður vill breyta til fyrir helgina. Einnig er hægt að skoða myndir af flott klæddum konum á öllum aldri og þannig fær götutískan að njóta sín. Það er oft einna skemmtilegast að sjá hvernig fólk klæðir sig til að fá öðruvísi og nýjar hugmyndir að samsetningum. Tískufréttir eru líka á sínum stað og allt um það hvað maður verði að eiga í fataskápnum í sumar. Lífleg síða með öllu því er viðkemur tískuheiminum. Um að gera að líta inn og sjá hvort maður fái ekki einhverjar góðar hugmyndir. Vefsíðan www.look.co.uk AFP Tíska Litríkt og mynstrótt fyrir sumarið, gaman að breyta til eftir veturinn. Flott götutíska í Englandi Í Waldorfskólanum í Lækjarbotnum hafa nemendur í 4. og 5. bekk sett saman leikrit úr Eddukvæðum. Leik- ritið er flutt á fornri íslensku og bún- ingar eru að hluta gerðir af nem- endum. Þ.á m. hafa þau sjálf ofið víkingabönd í spjaldvefnaði. Fyrri hluti leikritsins fer fram á úti- sviði þar sem Völuspá er flutt með trommuslætti, dansi og bardaga. Seinni hlutinn fer fram í eldsmiðju skólans. Þar flytja þau tvo leikþætti úr skáldamálum sem ekki eru auð- þekktir. Síðasta sýning verður nú á mánudaginn 4. júní kl. 18 og eru allir velkomnir. Endilega… …sjáið Völuspá á útisviði Vígalegur Nemendur flytja Völuspá. Þessi litríku sundföt voru sýnd á tískusýningu í Brasilíu á dögunum. Nú er tími sundfatanna svo sann- arlega runninn upp enda sól og blíða og um að gera að láta skína dálítið á kroppinn í sundlauginni eða heima í garði. Það er um að gera að hafa sundfötin sumarleg og litrík eins og þau sem hér sjást. Eins að finna rétta sniðið sem hentar þér en úrval af bikiníum, sundbolum og tankiníum er mjög gott um þessar mundir. Sumartíska Litrík sundföt í sumarsólina AFP Sundbolur Þessi var litríkur og minnti einna helst á bútasaumsteppi. Fylgihlutir Flott við sundfötin. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi á búslóðum til flutnings milli landa, landshluta eða innanbæjar Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi. Stofnað árið 1981

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.