Morgunblaðið - 01.06.2012, Page 11
Myndskreytt Listamaðurinn Bjarni Þór Bjarnason málar skemmtilegar myndir frá Akranesi í bókina.
Þór. Hann starfar sem listamaður á
Akranesi og bæði málar og vinnur í
skúlptúr auk þess að skreyta bækur.
En um þessar mundir er hann þó
helst að undirbúa sýningu á hesta-
málverkum sem verður opnuð í Gall-
erí List þann 23. júní og stílar þar
inn á Landsmót hestamanna sem
haldið verður í Reykjavík.
Hjólandi bóksali
Hallbera þakkar Akurnes-
ingum góð viðbrögð við bókinni en á
ferðum sínum hjólandi um bæinn er
hún ætíð með bækur með sér í bak-
pokanum og það bregst ekki að hún
selur eina eða tvær einhvers staðar á
leiðinni.
„Það er óhætt að segja að ég sé
hjólandi bóksali enda hef ég líka
hjólað með allar bækurnar heim til
fólks sem hefur pantað í gegnum
netið,“ segir Hallbera sem gefur
bókina út sjálf og dreifir en hún ætl-
ar nú einnig að koma bókinni í bóka-
búðir.
Í sögunni eru örnefni og þjóð-
sögur sem tengjast Akranesi svo og
sögur af sjóslysum og sögur úr dag-
legu lífi bæjarins. Þetta fléttast inn í
söguna og lenda amma og Freyr í
ýmsum ævintýrum. Aftast í bókinni
er heimildalisti þar sem Hallbera
vísar í bækur sem hún studdist við.
Hún segir að ekki megi kaffæra
börnin í of miklum upplýsingum en
foreldrarnir geta þá fræðst betur
um bækurnar.
„Ég er fædd og uppalin hér og
mamma var alltaf að segja okkur
systkinunum sögur. Við systir mín,
rithöfundurinn Steinunn Jóhann-
esdóttir, vorum aldar upp af for-
eldrum sem þótti svo vænt um Ís-
land og mamma er fædd og uppalin
á Akranesi. Maður var alltaf að fá
sögur og ljóð beint í æð og það skil-
aði sér,“ segir Hallbera.
HeimurUnu
Una Sighvatsdóttir
Fyrst þegar hann fór inn íhana var það hræðilegasárt en fljótlega fór þaðað verða gott … þar til
hún fékk raðfullnægingu.
Nokkurn veginn svona (í ein-
földuðum útdrætti undirritaðrar)
hljómaði lýsingin á fyrstu kynlífs-
reynslu aðalkvenhetjunnar í bók-
inni Norwegian Wood eftir þann
ágæta höfund Haruki Murakami,
sem ég las á mínum unglingsárum.
Nú ætla ég ekki að fullyrða eða
taka of stórt upp í mig (…) en ég
held að fyrsta kynlífsupplifun
fæstra kvenna rími við þessa senu.
Konur njóta samt almennt kyn-
lífs og flestar fá sína fullnægju
með tímanum, jafnvel í röðum, og
eiga líka sínar kynlífsfantasíur.
Engu að síður
hefur staðan
lengi verið sú að
yfirgnæfandi
meirihluti kyn-
lífsefnis, kláms og
erótíkur, er fram-
leiddur af körlum
fyrir karla og er
sömu takmörkunum
háður og lýsingar
Murakamis á afmeyj-
un skólastúlkunnar, þ.e.
samhljómurinn er lítill
við hugarheim kvenna.
Það þarf ekki að fletta
lengi í gegnum klám á netinu
til að verða átakanlega var við
þessa staðreynd, því karlkyns
klámmyndaleikarar eru aug-
ljóslega ekki valdir í hlutverkin til
að kveikja í konum. Leit eftir kyn-
ferðislega örvandi efni á netinu
getur verið eins og að leika sér í
parís á jarðsprengjusvæði, því
með einum smelli er óvært hægt
að fara af síðu sem kveikir lostann
yfir á síðu sem slekkur hann svo
rækilega að maður verður nánast
afhuga öllu því sem holdlegt er í
marga daga á eftir.
Þetta hefur samt sem betur fer
allt verið að breytast, konur eru í
auknum mæli farnar að framleiða
erótík og klám fyrir konur, þótt
það sé á jaðrinum. Og efnið er í
sjálfu sér ekki svo ólíkt, áhersl-
urnar eru bara aðrar. Sumt er lé-
legt eins og gengur, annað gott og
skemmtilegt. Nýjasta framtakið
hér heima í þessa átt er samantekt
á kynórum íslenskra kvenna á bók.
Bókin hefur enn ekki verið
skrifuð en samt eru nokkrir nú
þegar byrjaðir að gagnrýna hana
fyrir að verða of klámvædd, of
markaðsvædd, eða ekki nógu
raunsönn. Allt undir yfirskina
femínisma, sem verður ítrekað
fyrir því að verða skálkaskjól
fyrir útrás á andúð á kapítal-
isma. Kannski verður þessi
bók ömurleg og þá þurfum
við heldur ekki að hafa
áhyggjur af því að hún
rati víða. Kannski
verður þvælt eintak
af henni í hverri
náttborðsskúffu.
Eigum við ekki
bara að bíða og
sjá áður en við
fordæmum?
»Fyrst þegar hann fórinn í hana var það
hræðilega sárt en eftir smá-
stund fór hún að finna hvað
það var gott … þar til hún
fékk raðfullnægingu.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Kletthálsi 15 · 110 Reykjavík · Sími: 578 5252 / 823 0303
þegar þú ætlar að selja bílinn