Morgunblaðið - 01.06.2012, Page 18

Morgunblaðið - 01.06.2012, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Háskerpuútsendingar (HD) standa nú til boða þeim íslensku sjónvarps- áhorfendum sem taka við sjónvarps- sendingum í gegnum dreifikerfi Símans og Vodafone. Nú stendur yf- ir útboð vegna stafræns dreifikerfis Ríkisútvarpsins og með tilkomu þess má reikna með að íslenskir sjónvarpsáhorfendur geti almennt nálgast háskerpuútsendingar. Háskerpuútsending geymir miklu meiri upplýsingar en hefðbundin sjónvarpsútsending, það er myndin hefur mun meiri upplausn og hljóðið yfirleitt einnig betra. Það þarf því öflugri búnað til þess að horfa á há- skerpuútsendingu en hefðbundna sjónvarpsútsendingu. Velja þarf réttan búnað Hrannar Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Vodafone, segir að til þess að geta horft á háskerpuútsendingar þurfi allur búnaður sem sjónvarps- merkið fer um að vera gerður fyrir háskerpuútsendingar. Í fyrsta lagi þurfi sjónvarpsskjárinn að vera gerður til að taka á móti háskerpu- útsendingum. Hrannar telur að svo gott sem allir flatskjáir sem seldir hafa verið hér á landi frá því fyrir kreppu séu gerðir fyrir háskerpu- útsendingar. Síðan þarf myndlykil frá Voda- fone eða Símanum og hann þarf að vera gerður fyrir háskerpu (HD). Hrannar segir að viðskiptavinir Vodafone geti skipt upp í HD- myndlykil ef núverandi myndlykill þeirra ræður ekki við háskerpu- útsendingar. Myndlykilinn þarf að tengja við sjónvarpið með HDMI- snúru í HDMI-tengi. Háskerpa til 99% landsmanna Vodafone býður einnig upp á svo- nefnd CAM-kort, sem er önnur gerð myndlykils, til að opna fyrir læstar stöðvar frá 365 og Skjánum. Ekki er þörf fyrir kortið sé útsendingin ólæst, svo framarlega sem stafrænn móttakari er í sjónvarpinu sjálfu. Sjónvarpsmerkið getur borist með ýmsum hætti. Vodafone dreifir sjónvarpssendingum um örbylgju- senda á höfuðborgarsvæðinu og til að nema þær þarf örbylgjuloftnet. Einnig er sjónvarpi dreift í gegnum netið, bæði í ljósleiðarakerfi Gagna- veitu Reykjavíkur og ADSL- tengingum. Vodafone stefnir að því að dreifa háskerpusendingum til rúmlega 99% landsmanna í gegnum UHF-útsendingar. Þær nást í gegn- um venjuleg sjónvarpsloftnet. Sjónvarpsstöðvar ráða Hrannar segir það vera á dag- skránni að fjölga háskerpurásum í dreifikerfi Vodafone. Það ráðist þó fyrst og fremst af ákvörðun þeirra sem dreift er fyrir, t.d. Ríkisútvarps- ins, 365 miðla eða Skjásins. Hann segir að um síðustu helgi hafi Evróvisjón-söngvakeppnin ver- ið send út á þremur aðskildum rás- um hjá Vodafone. „Það var venjuleg útsending RÚV, háskerpuútsending RÚV og svo vorum við með sérstaka twitter-útsendingu. Þar sáust twitt- er-tíst eða færslur áhorfenda við hliðina á sjónvarpsmyndinni. Það voru um 1.100 áhorfendur að tísta og tístin voru um 7.500 talsins. Það var mjög skemmtileg umræða,“ sagði Hrannar. Ellefu HD-stöðvar Símans Margrét Stefánsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Símans, segir að allir myndlyklar sem Síminn dreifir nú séu með háskerpu. Enn eru þó í notkun eldri myndlyklar sem ekki ráða við háskerpu og er þá hægt að uppfæra í nýjan myndlykil. Hún segir að þeir sem eru með ljósnet og sjónvarp Símans geti ver- ið með allt að fimm myndlykla og horft á háskerpuútsendingar í þeim öllum. Þeir sem horfa á sjónvarp Símans í gegnum ADSL-tengingu geta flestir verið með tvo myndlykla og háskerpu í öðrum þeirra. Margrét segir líkt og Hrannar að framboð á háskerpuefni í sjónvarpi Símans sé undir sjónvarpsstöðv- unum komið. Nú eru ellefu há- skerpurásir í sjónvarpi Símans og má gera ráð fyrir að þeim fjölgi í framtíðinni. Háskerpubúnað alla leið heim í hús  Vodafone stefnir að því að dreifa háskerpusendingum um UHF-kerfi til yfir 99% landsmanna  Sjónvarp Símans er þegar komið með ellefu háskerpusjónvarpsstöðvar og reiknar með fjölgun Móttakari ViðtækiFlutningsleið Örbylgju- loftnet EÐA: ADSL-nettenging EÐA: Ljósleiðari EÐA: Ljósnet HDmyndlykill EÐA: CAM-kort (Sett í PCMCIA- rauf sjónvarpsins) FULLHD HD ready Full HDsjónvarp EÐA: HD ready sjónvarp Háskerpusjónvarp Morgunblaðið/Ernir Háskörp sjónvörp Framboð á háskörpum sjónvarpsútsendingum er stöðugt að aukast. Fólk velur sér sífellt stærri flatskjái til að njóta útsendinganna. Flatskjáir búnir fyrir háskerpusjónvarpssendingar eru orðnir alls- ráðandi á viðtækjamarkaðnum. Jón Pétur Hansson, verslunarstjóri hjá Sjónvarpsmiðstöðinni, sagði að nær allir skjáir sem þeir seldu væru „Full HD“, enn væru þó til „HD Ready“ skjáir en þeir væru á útleið. Munurinn á þessu tvennu felst í misjafnlega góðri upplausn. Sjónvarpsmyndin er byggð upp á línum á skjánum og í hverri línu er fjöldi punkta. „Full HD“-skjáir eru með 1.080 lína upplausn og 1.920 punkta í hverri línu. „HD Ready“-skjáir hafa minni upplausn, það er 720 línur á skjánum og 1.280 punkta í hverri línu. Jón Pétur sagði að háskerpuskjáir hefðu farið að berast hingað til lands fyrir fimm til sex árum. Fljótlega voru þeir allir búnir HDMI-tengi. Hann sagði að skjáirnir sem fólk keypti almennt hefðu orðið stærri með hverju árinu. Í fyrstu voru 32 þumlunga skájir algengir, svo komu 37 þumlunga skjáir. Eftir það varð 42 þumlunga skjárinn mjög vinsæll hjá neytendum og hefur verið það lengi. Nú er orðið algengt að fólk velji 50 eða 55 þumlunga skjái. Jón Pétur sagði að mjög margir horfðu á erlendar háskerpu- útsendingar í gegnum gervihnetti eða notuðu háskerpuflakkara. Fólk kaupir sér sífellt stærri háskerpuflatskjái SJÓNVÖRPIN ERU MISJAFNLEGA SKÖRP Skúli Hansen skulih@mbl.is Hæstiréttur hefur vísað frá héraðs- dómi kröfu Samherja hf. um að hús- leit og haldlagning gagna á vegum Seðlabanka Íslands á tveimur starfsstöðvum Samherja yrðu dæmdar ólögmætar. Þá vísaði Hæstiréttur einnig frá dómi kröfu Samherja um að SÍ yrði gert að hætta rannsókn sinni á meintum brotum Samherja og aðila tengdra fyrirtækinu á lögum um gjaldeyr- ismál. Kröfum Samherja um að SÍ yrði gert að afhenda öll haldlögð og afrit- uð gögn og eyða öllum afritum hald- lagðra gagna, auk þess að SÍ yrði, að því frágengnu, gert að skila til- teknum gögnum sem hald var lagt á við húsleitina, var hafnað af Hæsta- rétti. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði fyrr í mánuðinum hafnað öllum ofangreindum kröfum Samherja. Niðurstaðan kom á óvart „Niðurstaðan kemur náttúrlega á óvart. Það virðist vera alveg sama hvernig málatilbúnaðurinn er, ef að- gerðirnar eru afstaðnar virðist ekki vera hægt að bera þær undir dóm- stóla sem slíkar,“ segir Helgi Jó- hannesson, hæstaréttar- lögmaður hjá LEX og lögmað- ur Samherja í málinu. Helgi bætir við að þetta þýði í raun og veru að það sé ómögulegt að bera neitt undir dómstóla í þessu sambandi vegna þess að eðli málsins samkvæmt taki húsleitir jafnan mun skemmri tíma en það tekur að koma málinu fyrir dómstóla. Helgi gagnrýnir sérstaklega af- stöðu dómsins varðandi það atriði að Samherja var ekki gefinn kostur á að tjá sig fyrir héraðsdómi þegar málið var tekið þar fyrir. „Í dóm- inum er einnig talað um að það hafi að vísu verið brot á réttindum Sam- herjamanna að vera ekki boðaðir til þinghaldsins, þegar þetta var tekið fyrir, en það er samt ekki talið það merkilegt að það breyti neinu, þann- ig að maður spyr sig hvort það megi gefa slíka afslætti af mannrétt- indum.“ Ekki náðist í Gizur Bergsteinsson, lögmann Seðlabankans, við vinnslu fréttarinnar. Kröfum Samherja vísað frá dómi Helgi Jóhannesson  Segir niðurstöðuna koma á óvart

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.