Morgunblaðið - 01.06.2012, Side 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is
LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN!
LÍTIL VÉL 7 KG. 1.790 KR.
STÓR VÉL 15 KG. 3.290 KR.
Efnalaug - Þvottahús
SVANHVÍT EFNALAUG
- NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM
Hverafold 1-3, 112 Reykjavík
Grettisgötu 3, 101 Reykjavík
Smáralind, 201 Kópavogur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Það eru alltaf
þjálfarar þér
til aðstoðar
… Heilsurækt fyrir konur
Sumarkortin
komin í sölu
11.900 kr.
Gilda til 10. ágúst
Ég vinn á hjúkrunarheimili sem félagsliði.
Ég byrjaði að æfa í Curves fyrir ári síðan, af því
ég vildi léttast og styrkja mig. Ég hef æft ca.
3x í viku og líkar rosalega vel. Á þessum tíma
hef ég losnað við 10 kg og er miklu hressari
núna. Curves er frábær staður með frábæru
starfsfólki. Ég þarf ekki að panta tíma, kem að
æfa þegar það passar mér best.
Paula HolmPaula Holm, 40 ára
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, gagnrýndi í gær
andstöðu rússneskra stjórnvalda
við aðgerðir af hálfu Sameinuðu
þjóðanna gegn stjórn Sýrlands og
sagði stefnu Rússa stuðla að borg-
arastríði í landinu.
„Þeir segja mér að þeir vilji ekki
borgarastríð. Ég hef svarað því til
að stefna þeirra stuðli að borgara-
stríði,“ sagði Clinton sem var í
heimsókn í Danmörku. Hún varaði
einnig við því að aðgerðaleysi SÞ
gæti leitt til stríðs með óbeinni þátt-
töku annarra ríkja vegna stuðnings
klerkastjórnarinnar í Íran við
stjórn Bashars al-Assads, forseta
Sýrlands. „Við verðum að fá Rússa í
lið með okkur vegna þess að hætt-
urnar sem við stöndum frammi fyr-
ir eru skelfilegar,“ sagði Clinton.
Talsmaður Vladímírs Pútíns, for-
seta Rússlands, áréttaði í gær að
Rússar myndu ekki breyta afstöðu
sinni þrátt fyrir mikinn þrýsting
annarra ríkja.
Segir Rússa stuðla
að borgarastríði
Clinton gagnrýnir afstöðu Rússa
AFP
Heimsókn Clinton með Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Dana.
Skólabörn í Kalkútta á Indlandi með grímur, sem eiga
að minna okkur á að reykingar eru dauðans alvara, í
tilefni af degi án tóbaks í gær. Dagur án tóbaks er hald-
inn úti um allan heim 31. maí ár hvert á vegum Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Tóbaksnotkun er á
meðal helstu heilbrigðisvandamála heimsins og á ári
hverju deyja fleiri úr reykingatengdum sjúkdómum en
úr alnæmi, malaríu og berklum samanlagt.
AFP
Reykingar eru dauðans alvara
Fjöldamorðinginn Anders Behring
Breivik drakk blöndu af örvandi efn-
um áður en hann varð 77 manns að
bana í Ósló og Útey 22. júlí í fyrra,
að sögn sérfræðings sem bar vitni í
réttarhöldunum yfir Breivik í gær.
Jørg Mørland, prófessor í eitur-
efnafræði, sagði að fjöldamorðinginn
hefði drukkið blöndu af efedríni, lyfi
sem örvar hjarta- og miðtaugakerf-
ið, kaffíni og aspiríni.
Mørland kvaðst hafa spurt fjölda-
morðingjann hvort hann hefði notað
þessi efni og hann hefði játað því,
sagst hafa drukkið um helmingi
stærri skammta af efnunum en væru
í drykkjum sem hægt væri að kaupa
í verslunum.
Skýrt var frá því í gær að norskt
fangelsi, þar sem Breivik gæti af-
plánað dóm fyrir fjöldamorðin,
hygðist ráða til sín fólk sem fjölda-
morðinginn gæti umgengist vegna
þess að yfirvöld vilja ekki að hann
hitti aðra fanga.
Verði Breivik dæmdur í fangelsi
má hann ekki umgangast samfanga
sína af ótta við að hann taki ein-
hverja þeirra í gíslingu til að reyna
að flýja, að því er Verdens Gang hef-
ur eftir Knut Bjarkeid, fangelsis-
stjóri Ila-fangelsisins. Bjarkeid
sagði að til að koma í veg fyrir að
Breivik yrði alveg einangraður í
fangelsinu yrði hægt að leyfa honum
að stunda íþróttir með fangavörðum
og ráða fólk til að umgangast hann,
m.a. tefla við hann. Samkvæmt
norskum lögum má fangi ekki vera
algerlega einangraður í langan tíma
þar sem slíkt flokkast undir ómann-
úðlega refsingu.
Drakk örvandi efnablöndu
AFP
Réttarhöld Réttað í máli Breiviks.
Ætla að ráða fólk sem á að umgangast Breivik ef hann
verður dæmdur í fangelsi fyrir fjöldamorðin í Noregi