Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 27

Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 Frumbyggjar Norð- ur-Ameríku vissu að náttúran er ekki tekin í arf frá forfeðrunum, hún er fengin að láni frá afkomendum okk- ar. Öll mannanna verk valda röskun náttúru og eru forgengileg, brenna upp, grotna niður, eyðast eða úr- eldast. Það gildir um virkjanir og stór- iðjuver eins og annað. Ræktun lands, veiðar og önnur nýting eru röskun á lífríkinu. Maðurinn hefur alla tíð verið háður nýtingu náttúr- unnar. Eðlilegt er að skila því sem fengið er að láni, skila náttúrunni að lokinni nýtingu. Nýta hana þannig að hún komist gróin sára sinna í hendur afkomenda okkar. Ef það er ekki unnt þá eigum við að bæta líf- ríkinu skaðann með því að styrkja það annars staðar á móti. Þetta er nefnt sjálfbær nýting. Ófullkomin umræða Ef náttúrugæði eru fengin að láni þarf að setja gjalddaga á slík lán. Starfsleyfi virkjana og stóriðju þurfa að verða bundin áætluðum endingartíma þeirra, að undangengu umhverfismati. Ef það er gert verð- ur sjálfsagt að end- urtaka slíkt mat að leyfistímanum loknum, sé sóst eftir framleng- ingu. Fólk sem vill vernda náttúruna ætti að berjast fyrir þessu. Að t.d. virkjunin í Ell- iðaánum skuli enn vera starfandi löngu eftir að hún er hætt að hafa nokkur áhrif á raf- orkuverð í landinu er með ólíkindum. Breyta á henni í safn og fjar- lægja stífluna í Árbænum. Efri stífl- an er hins vegar óumdeild. Hún þre- faldaði stærð Elliðavatns. Enginn talar fyrir því að færa þá dýrmætu náttúru í upprunalegt horf. Elliða- vatn er dæmi um að röskun náttúr- unnar getur verið góð. Við eigum að viðurkenna það. Virkjanir og lífríki Löxum í Þjórsá verður tryggð örugg hjáleið við Urriðafossvirkjun. Þeir munu geta þraukað eins og ís- aldarurriðinn í Þingvallavatni, sem bíður þess að Steingrímsstöð verði lokað. Bæta ber lífsskilyrði laxa ann- ars staðar á móti. Með Kára- hnúkavirkjun var vatn flutt tugi kíló- metra um jarðgöng. Röskun lífríkis Lagarins er e.t.v. meiri en áætlað var en lífríkið styrktist annars stað- ar á móti. Við sjáum það í laxveiði í Jöklu og hliðarám hennar. Þeir sem missa hlunnindi við Lagarfljót ættu að fá hlut í nýmyndun hlunninda annars staðar sem rekja má til sömu framkvæmda. Hvað sem því líður urðu stórstígar framfarir með virkj- un Kárahnjúka og flutningi vatns langar leiðir um jarðgöng. Ending þeirrar virkjunar verður langt um- fram endingu álversins á Reyð- arfirði. Orkan mun koma til úthlut- unar á ný og virkjunin verður skuldlaus. Afkomendur okkar munu njóta, en jafnframt eiga val. Þeir munu geta lokað virkjuninni og fært náttúruna í fyrra far, ef þeir vilja. Orka og lax á Suðurlandi Minnisstæð er tímamótagrein Elí- asar Kristjánssonar í Mbl. hinn 15. ágúst 2002. Hann lagði til að gera göng undir Hamarinn vestan í Vatnajökli innan við Langasjó og inn í Grímsvötn. Það mundi auka og jafna rennsli Þjórsár, sem í fælist stórfelld verðmætasköpun með auk- inni nýtingu uppsetts afls. Þá yrðu hlaup úr sögunni og Skeið- arársandur stærsti samfelldi línakur Evrópu, sagði Elías. Þetta væri dæmi um afturkræfa framkvæmd sem væri til verðmætasköpunar sem m.a. fælist í auknum landsgæðum. Vonandi er hún geymd en ekki gleymd. Nú ætla ég að reyna að hugsa stórt eins og Elías. Unnt virð- ist að taka Hvítá við Brattholt í 30 km löngum jarðgöngum undir Lax- árgljúfur og Skáldabúðaheiði yfir í Þjórsá. Vatnshæð neðan Gullfoss yrði óbreytt og inntak ganga ekki sýnilegt þaðan. Lítill hæðarmunur milli Brattholts og Gaukshöfða veld- ur vanda, göngin yrðu víð og dýr, en hæðarmunur er meiri við Kálfá. Um leið og jökulvatnið hyrfi yrði vatna- svæði Brúarár, Tungufljóts, Stóru Laxár, Hvítár og Ölfusár allt til sjáv- ar gríðarlega verðmætt, ein samfelld paradís stangveiðimanna. Óhemju lífmagn kemur úr Hestvatni, Apa- vatni, Laugarvatni og afréttum sunnan Hofsjökuls. Brúará og Tungufljót eru stórar lindár sem jafna rennsli og hitastig. Þetta er stærsta samfellda vatnasvæði lands- ins, margfalt stærra en búsvæði lax- fiska í Þjórsá. Þetta yrði aðalávinn- ingurinn, en virkjanlegt vatnsafl, sem er hreinasta orkan, í neðri hluta Þjórsár mundi líka aukast mikið. Hrein orka mun verða æ verðmæt- ari, til lengri tíma litið. Miðlun vatns um jarðgöng er afturkallanleg breyting á náttúrunni. Augljóslega yrðu allir hlutaðeigandi landeig- endur að skipta með sér gríð- arlegum ávinningi. Verðmætasköpun Öll efnahagsstarfsemi byggist á nýtingu náttúrunnar. Aðgengi manna að sjálfbærri náttúru mun verða óhemju verðmætt í náinni framtíð. Sú varðstaða sem áhugafólk um vernd náttúrunnar stendur nú er skiljanleg í ljósi þess að áður fyrr var ekki gengið nógu varlega fram. Á hinn bóginn verður fólk að geta talað saman, nokkuð hefur vantað upp á það. Með fullri virðingu fyrir náttúruverndarfólki finnst mér þó að sjónarmið heimamanna skipti enn meira máli. Við hljótum að geta sam- einast um að ræða og rannsaka leiðir sem gætu eflt lífríki landsins og auk- ið verðmæti þess gríðarlega. Fram- kvæmdir sem fela í sér mikla verð- mætaaukningu með afturkallanlegum breytingum, kjósi afkomendur okkar af færa náttúr- una í upprunalegt horf, eru áhuga- verðar. Eftir Ragnar Ön- undarson »Unnt virðist að taka Hvítá við Brattholt í 30 km löngum jarð- göngum undir Laxár- gljúfur og Skáldabúða- heiði yfir í Þjórsá. Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og fv. bankamaður. Auka má verðmæti landsgæða á Suðurlandi gríðarlega Lífsins litir Þeir kölluðust heldur betur á gulu litirnir í tösku ferðamannsins og andliti verunnar á veggnum sem kíkti á lífið í góða veðrinu á Laugaveginum. Eggert Í starfsáætlun velferðarsviðs Reykjavíkurborgar árið 2010 var sett fram framtíðarsýn í félagsstarfi aldraðra í 15 félagsmiðstöðvum fyrir aldraðra, sem borgin hefur starf- rækt með mjög góðum árangri í langan tíma. Þar voru sett fram ým- is markmið um að auka og efla fé- lagsstarfið og um aukna þátttöku notenda í framkvæmd þess. Ein setning í framtíðarsýn velferð- arsviðs í félagsstarfinu hljóðaði þannig: „Aukin áhersla á sjálfstýrt og sjálfbært félagsstarf“. En hver var megintilgangurinn með þessari nýju framtíðarsýn velferðarsviðs þegar hún var sett fram? Það kom síðan í ljós þegar starfshópur á vegum velferðarsviðs skilaði skýrslu sinni í maí 2011. Í framhaldinu var ákveðið að unnið yrði eftir tillögum hópsins í áframhaldandi innleiðingu breytinganna eftir því sem við á, eins og segir í minnisblaði sem lagt var fyrir velferðarráð borg- arinnar 16. júní 2011. Þar segir m.a.: „Megin breytingin sem áætlað er að taki gildi 1. september n.k. (2011) varðar skipu- lögð námskeið í félagsstarfi. Gert er ráð fyrir auk- inni valdeflingu og sjálfbærni í félagsstarfi þannig að dregið verði úr skipulögðum námskeiðum borg- arinnar. Þess í stað er gert ráð fyrir að leiðbein- endur geti starfað sjálfstætt að því að setja upp námskeið í takt við þarfir og vilja notenda“. Málið var einungis kynnt á þessum fundi en ekki afgreitt. Málið virðist ekki hafa verið rætt frekar í velferð- arráði, borgarráði eða í borgarstjórn. Sjálfbærni, sjálfsstýring og valdefling Þessar grundvallarbreytingar eru m.a. rétt- lættar með yfirlýsingum eins og „aukin áhersla á sjálfstýrt og sjálfbært félagsstarf“ og „gert er ráð fyrir aukinni valdeflingu og sjálfbærni í fé- lagsstarfi“. Greinilega er verið að reyna að heimfæra þessar breytingar á það félagsmódel, sem Korpúlfar, sam- tök eldri borgara í Grafarvogi, hafa byggt upp af einstökum krafti sl. 14 ár. Það á að byrja með því að segja upp nánast öllum leiðbeinendum í félagsstarfi eldri borgara á 15 félagsmiðstöðvum borgarinnar, sem hafa starfað með mjög góðum ár- angri í áratugi. Slík vinnubrögð ganga ekki upp. Fjöldauppsagnir leiðbeinenda Augljóst er að þessi málatilbúnaður er fyrst og fremst gerður í þeim tilgangi að segja upp flestum þeim leiðbeinendum sem unnið hafa hjá borginni við að halda gangandi skipulögðum námskeiðum og þjónustu á félagsmiðstöðvum borg- arinnar og vísa þessu mikilvæga starfi með óljósum hætti að mestu til ein- hverra annarra. Til að ná fram aukinni sjálfbærni, sjálfstýringu og valdeflingu, eins og þetta er orðað, þarf tíma og að- lögun sem er ekki í fyrirrúmi í þessu máli. Félagsmiðstöðvarnar hafa unnið gríðarlega gott starf á undanförnum ár- um og gegnt mikilvægum þætti í vel- ferðarþjónustu borgarinnar fyrir aldr- aða og öryrkja. Enda hefur verið skýrt frá því að á árinu 2010 hafi verið tekin ákvörðun um að framlengja ekki ráðn- ingu leiðbeinenda sem voru eldri en 70 ára á árinu og ráða engan í staðinn. Hvað leiðbeinendur varðar mun Reykjavík- urborg einungis greiða þjónustu starfsmanns í hálfu stöðugildi á hverri félagsmiðstöð við að standa fyrir skipulögðu félagsstarfi fyrir eldri borgara. Illa ígrunduð ákvörðun Síðan segir að auglýst verði eftir sjálfboðaliðum sem vilja styðja félagsstarf og tekið verði upp formlegt samstarf við félagasamtök á borð við Rauða krossinn og Félag eldri borgara um að standa fyrir félagsstarfi í félagsmiðstöðvum borg- arinnar. Einnig að leitað verði eftir samstarfi við aðila á borð við kirkjuna og dvalar- og hjúkr- unarheimili í hverfum borgarinnar um félagsstarf. Ekki kannast ég við að viðræður við fyrrgreinda aðila hafi átt sér stað en hafi það verið gert væri fróðlegt að fá upplýsingar um það. Þessi stefnumörkun er illa ígrunduð og mikið óþurftarverk. Hún gerir ekkert annað en að draga máttinn úr því mikilvæga félagsstarfi fyrir eldri borgara, sem starfrækt hefur verið með mynd- arlegum hætti í langan tíma og gefið þúsundum eldri borgara í Reykjavík einstakt tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttu félagsstarfi gegn hófsömu gjaldi. Ég hvet borgaryfirvöld til að endurskoða þessa ákvörðun, sem hefur nánast ekkert verið kynnt þeim fjölda einstaklinga sem hafa nýtt sér þessa þjónustu undanfarin ár. Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson » Félagsmiðstöðvarnar hafa unnið gríðarlega gott starf á undanförnum árum og gegnt mikilvægum þætti í velferðar- þjónustu borgarinnar fyrir aldraða og öryrkja. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fyrrv. borgarstjóri. Leggst félagsstarf aldraðra á vegum borgarinnar af?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.