Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 37
✝ BergþóraGunnbjört
Kristinsdóttir
fæddist á Síðu í
Refasveit í Aust-
ur-Húnavatns-
sýslu 17. febrúar
1933. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli 22.
maí 2012.
Hún var dóttir hjónanna
Kristins Bjarnasonar, f.
19.5. 1892, d. 12.7. 1968 og
konu hans Guðfinnu Ástdís-
ar Árnadóttur, f. 19.11.
Sigríði Margréti Sigurðar-
dóttur, þau eiga þrjú börn,
Stellu Ingibjörgu, Sigurð
Grétar og Hrannar Má. 3)
Gréta, f. 2. desember 1958,
gift Kristjáni Knútssyni, þau
eiga fimm syni, Benedikt
Bjarna, Knút, Martein,
Kristján Tómas og Hjört
Ágúst. 4) Ásta, f. 4. maí
1960, gift Sigmari Arnari
Steingrímssyni, þau eiga
þrjú börn, Arndísi Auði,
Gunnbjörtu Þóru og Hjört
Stein. Langömmubörnin eru
sjö, Niels Salómon, Magnús
Örn, Svava Björg, Hilmar
Birgir, Harpa Dagbjört og
Almar Jökull.
Útför Bergþóru Gunn-
bjartar fer fram frá Árbæj-
arkirkju í dag, 1. júní 2012
og hefst athöfnin kl. 15.
1903, d. 5.10.
1990.
Bergþóra gift-
ist 17. febrúar
1958 Benedikt
Bjarna Kristjáns-
syni, f. 26. sept-
ember 1935, d. 7.
maí 2009. Börn:
1) Svava, f. 16.
desember 1954,
gift Guðmundi Birgi
Salómonssyni og eiga þau
þrjú börn, Bergþóru, Ágúst
Örn og Ragnhildi. 2) Ágúst,
f. 10. maí 1956, kvæntur
Hún Bergþóra Gunnbjört
tengdamamma er fallin í
valinn. Undanfarið misseri
eða svo hefur hún háð ein-
vígi við slyngan andstæðing
– hann margreyndur í slík-
um væringum en hún ný-
græðingur. Þó leikurinn
væri ójafn kom uppgjöf
aldrei til álita heldur tók
hún fast á móti og hörfaði
aldrei. Þegar náðarhöggið
óumflýjanlega kom var lík-
aminn lúinn, en hugsunin
tær.
Fyrir Bergþóru var fjöl-
skyldan í fyrirrúmi, einkum
barna- og barnabörnin sem
hún studdi dyggilega. Fram
í andlátið var hún með fulla
yfirsýn yfir hvað ættingj-
arnir voru að sýsla og naut
þess að miðla fréttum af
hverjum og einum. Þegar nú
er horft til baka er mér ljós-
ara en áður að Bergþóra var
sá grunnur sem hver stór-
fjölskylda þarfnast. Hún var
orðheldin, traust kona og
sérstaklega hógvær. Vann
hljóðlega og eins og oft vill
vera um slíkt fólk er það
hlutskipti þess að bæta úr
því sem aflaga fer hjá þeim
sem hæst láta.
Á ferðalögum okkar fjöl-
skyldunnar um landið, þeg-
ar eltast þurfti við góða
veðrið, var óþarfi að leggja
á sig að rýna í veðurspár.
Eitt símtal til Bergþóru
dugði til að hægt var að
ákveða næstu áfanga í ferð-
inni. Hvort halda skyldi
kyrru fyrir eða taka strikið
eitthvað annað. Þannig var
Bergþóra, ætíð til staðar og
tók þátt í lífi barna sinna.
Einmitt á þann hátt kynnt-
ist ég henni fyrst – á plan-
inu fyrir utan Sigtún eftir
dansleik, þar sem hún var á
rúntinum með dætrunum.
Nokkrar stríðnislegar at-
hugasemdir sendi hún
stráknum sem var að reyna
við dótturina og svo hlógu
þær allar dátt. Bergþóra var
ein af stelpunum. Hvíli hún í
friði.
Sigmar Arnar
Steingrímsson.
Þegar við systkinin hugs-
um um ömmu Bergþóru
streyma fram hlýjar og góð-
ar minningar. Bestu minn-
ingarnar eru án efa frá öll-
um útilegunum sem við
fórum í með ömmu og afa,
út um borg og bý á hús-
bílnum góða sem tók
stakkaskiptum í gegnum ár-
in. Heima sá amma til þess
að bókin Gagn og gaman var
dregin fram snemma á lífs-
leiðinni. Við lærðum allt um
Ara og Sísí sem sá sól og
fyrir tilstuðlan ömmu vorum
við læs áður en skólagangan
hófst. Amma hélt áfram að
kenna okkur í gegnum lífið,
hvernig best væri að þræða
orm á öngul, hvernig ætti að
gera heimsins bestu kjöt-
súpu og hvernig stoppa ætti
í sokka. Amma var líka ynd-
isleg vinkona og hana var
gott heim að sækja hvort
sem okkur vantaði góð ráð
eða bara til að spjalla. Hún
var ávallt til staðar og betri
ömmu er ekki hægt að
hugsa sér. Við geymum
margar yndislegar minning-
ar um hana sem fjarsjóð í
hjörtum okkar.
Takk fyrir allt elsku
amma okkar. Hvíl í friði.
Ó hve einmana ég er á vorin
þegar sólin strýkur blöðum
trjánna
líkt og þú straukst vanga minn
forðum
og þegar ég sé allt lifna og
grænka
minnist ég þess að þú gafst
einnig lífi mínu lit
og þegar ég sé sólina speglast
í vatninu
speglast minningin um þig í
hjarta mínu
og laufgast á ný.
(Björg Elín Finnsdóttir)
Arndís Auður,
Gunnbjört Þóra og
Hjörtur Steinn
Sigmarsbörn.
Nú hefur mín kæra systir
fengið hinstu hvíld eftir bar-
áttu við krabbamein. Bar-
áttan var háð af dugnaði
enda lífsvilji og heimþrá
mikil. Kraftur hennar gegn
þessum vágesti ásamt
blindu í nokkur ár var ótrú-
legur.
Þegar Badda systir fædd-
ist var ekki gott í ári hjá
foreldrum okkar, þau höfðu
hafið búskap í Vestmanna-
eyjum 1928 en flutt norður í
Vatnsdal á æskustöðvar föð-
ur okkar 1931. Þegar Badda
fæddist fór pabbi á vertíð til
Eyja en vegna vegalengdar
og ófærðar kom hann
mömmu og elstu systur fyr-
ir heima hjá foreldrum ljós-
móðurinnar í öruggt skjól.
Það er einkennileg tilviljun
að ég fann í gömlu dóti frá
foreldrum okkar kvittun
fyrir greiðslu meðlags fyrir
veru þeirra mæðgna þar.
Faðir okkar starfaði
margar vertíðir hjá Gísla
Johnsen í Eyjum frá því
hann var ungur maður enda
oft einu peningarnir sem
menn sáu á árinu, allt annað
var reiknað í ærgildum.
Aftur fluttu þau til Eyja
og bjuggu þar til 1940, þar
fæddumst við yngri systurn-
ar tvær. Þá fluttum við að
Borgarholti í Biskupstung-
um, þar bjó fjölskyldan í 10
ár. Við systurnar fjórar ól-
umst upp við gott og
skemmtilegt heimilislíf.
Vinnan var oft mikil og eng-
inn auður í ranni en æsku-
minningar bjartar. Það var
margt gert sér til skemmt-
unar, allt heimatilbúið af
nægjusemi, kveðist á og
búnir til leikir, einnig var
sungið mikið. Faðir okkar
átti orgel og var lærður org-
anisti, hann hafði fimm
kvenraddir á heimilinu og
söng sjálfur bassa, þetta var
okkur öllum til skemmtunar
á síðkvöldum í afskekktri
sveit. Svo var það handa-
vinnan okkar meðan pabbi
las framhaldssögur.
Badda var ákaflega dug-
leg og sterk alla tíð. Hún
var mikil hestakona á yngri
árum og tamdi hesta, þar af
tvo sem hún átti sjálf, Röð-
ull var fyrri hesturinn og
Yrpa sem var góðhestur,
hennar síðasta hross. Ung
að árum fór hún að starfa
við Íþróttaskólann í Hauka-
dal að vetrum en réð sig í
kaupavinnu á sumrin,
t.d.var hún tvö sumur í
Bræðratungu og eitt sumar
að Króki.
Síðan lá leiðin til Reykja-
víkur, þar sem hún fór að
starfa á Hressingarskálan-
um og við tvær leigðum okk-
ur litla íbúð, ég var í skóla
og ýmissi vinnu sem til féll
en hún í vaktavinnu.
Við urðum mjög nánar,
áttum allt saman og unnum
fyrir okkar nauðþurftum.
Þessi ár voru góð ár. Síðar
breytti hún um starf og fór
að vinna í Sanitas og þar
kynntist hún Benedikt
Kristjánssyni sem síðar
varð eiginmaður hennar, þá
fann ég fyrir afbrýðisemi,
þá var ég ekki lengur númer
eitt. Svona er maður eig-
ingjarn ungur. En ég tók
hann í sátt og við urðum
mestu mátar. Ég hef mest
minnst bernsku Böddu, við
höfum undanfarna mánuði
rifjað upp þann tíma og hún
hafði ánægju af. Samt finnst
mér ég hafa talað en hún
brosað.
Badda var alltaf að hugsa
um aðra, hún var mín sterka
stoð á yngri árum. Hún var
manni sínum og börnum
styrkur alla tíð. Börnin
hennar hafa metið það og
þakkað með umhyggju og
kærleika til hinstu stundar.
Að leiðarlokum þakka ég
fyrir að hafa átt svo fórn-
fúsa konu að systur.
Blessuð sé minning henn-
ar.
Hrafnhildur
Kristinsdóttir.
Bergþóra Gunn-
björt Kristinsdóttir
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Nýverið lézt sú ágæta kona
Hrönn Andrésdóttir eftir erfiða
sjúkdómsbaráttu. Það er ekki sjálf-
gefið að við lifum öll til eilífðarnóns
eins og við höldum of. Veruleikinn
kemur inn í dæmið og klippir á. Ég
man eiginlega aldrei eftir
„Hrönsu“ öðru vísi en brosandi þau
ár sem við vorum saman í Hlíða-
skóla. Þær sátu á fremsta bekk
stöllurnar Anna Sigurðardóttir og
Hrönn og komst maður auðvitað
ekki hjá því að sjá og aðallega
heyra í þeim.
Ég kom í bekkinn 12 ára E beint
frá Svíþjóð og mér skilst að kenn-
arar hafi verið búir að undirbúa
bekkinn undir það að nú myndi
koma nýr drengur og að menn hafi
verið beðnir um að taka mér vel og
skilja að ég kæmi úr töluvert öðru
vísi umhverfi en var hér á Íslandi á
þeim árum. Það er ávallt erfitt að
koma inn í nýtt umhverfi en þetta
tókst alveg ágætlega og bekkjar-
félagarnir bezta fólk, sem ég þekki
flest enn í dag. Eitthvað er þó farið
Hrönn
Andrésdóttir
✝ Hrönn Andrés-dóttir fæddist í
Reykjavík 11.
mars 1950. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 16. apríl
2012.
Útför Hrannar
fór fram frá Frí-
kirkjunni í Reykja-
vík 25. apríl 2012.
að sjá á árganginum
og er til dæmis hinn
ágæti Hilmar Hauks-
son horfinn frá okkur
og nú Hrönn.
Hrönn, Anna og
Jensína voru miklir
mátar man ég og
hélzt sú vinátta
þeirra alla tíð. Hrönn
vann við bókhalds-
störf, konan á bak við
tjöldin, hjá stóru fyr-
irtæki og stóð sína plikt af alúð. Ár-
in 1962-1963 voru umbrotaár fyrir
íslenzkan æskulýð. Menn fóru úr
einhæfri fatatízku, gúmmískóm,
Cebo-strigaskóm og nankinsbux-
um og peysum yfir í támjóa skó,
mjó bindi, skyrtur og bítlapeysur
af ýmsum gerðum og hlustuðu allir
á Bítlana eða Dave Clark Five.
Þegar ég lít til baka sé ég að dvöl
mín í Hlíðaskólanum var eldskírn,
en líka einstakt tækifæri til að
kynnast góðu fólki. Hrönn var svo
sannarlega ein af þeim og geymi ég
vel minninguna um þegar ég hitti
hana í síðasta sinn hressa í bragði
en greinilega þjáða. Hún kallaði til
mín og var þetta sama gjallandi,
aðeins ögrandi ljúfa röddin og ég
man eftir úr barna- og unglinga-
skólanum.
Hrönn lifir í minningunni og
þakka ég fyrir að hafa kynnst
henni og hennar vinum og sendi
sterkar samúðarkveðjur til fjöl-
skyldu hennar.
Friðrik Á Brekkan.
✝ GunnlaugurOddsen Gunn-
laugsson (Gulli)
fæddist í Reykja-
vík 17. september
1931. Hann lést á
sjúkrahúsi í Stant-
horpe í Ástralíu
22. maí 2012.
Foreldrar hans
voru Sesselja Sig-
ríður Þorkelsdóttir, f. 2. októ-
ber 1909, d. 26. september
1950 og Gunnlaugur Oddsen
Vilhjálmur Eyjólfsson, f. 14.
ágúst 1909, d. 17. febrúar
1951. Systur Gulla voru Dag-
mar, f. 25. júní 1930, d. 16.
apríl 1997, Aðalheiður, f. 3.
október 1932, d. 5. júní 2001,
Erla, f. 7. mars 1937, Sólveig,
f. 29. september 1939.
Gulli flutti um tvítugt til
Sandgerðis þar sem hann
kynntist eftirlifandi eiginkonu
sinni, Lilju Sæbjörnsdóttur, f.
16. október 1935.
Foreldrar hennar
voru Sæbjörn Þór-
arinsson, f. 25.
apríl 1886, d. 22.
september 1973
og Ásta Laufey
Guðmundsdóttir,
f. 15. febrúar
1905, d. 20. des-
ember 1973. Börn
Gulla og Lilju eru Sædís, f. 26.
september 1954, d. 18. janúar
1993, Inga, f. 26. febrúar
1957, stúlka, f. 1958, d. 1958,
Erla, f. 14. mars 1960, Gunn-
laugur Pálmi, f. 20. apríl
1962.
Gulli flutti með fjölskyldu
sína til Ástralíu 1968 og sett-
ist þar að til frambúðar.
Barnabörnin eru 15 og barna-
barnabörnin 18.
Útför Gunnlaugs verður í
Stanthorp í Ástralíu í dag, 1.
júní 2012, kl. 10.30.
Elskulegur bróðir okkar er
látinn í Ástralíu. Gulli bróðir
fluttist til Sandgerðis rúmlega
tvítugur þar sem hann kynntist
konu sinni og bjuggu þau þar í
nokkur ár. Eftir að börn þeirra
fæddust fluttu þau til Reykja-
víkur og vann Gulli ýmis störf.
Síðasta starf hans var húsvörð-
ur í Hátúninu og þar tóku for-
lögin yfir. Óskilapóstur hafði
legið þar um tíma og þar á
meðal var auglýsingabæklingur
um kynningarfund fyrir áhuga-
samt fólk um nýtt líf í Ástralíu.
Gulli fór á fundinn og 1968 tók
fjölskyldan sig upp og flutti al-
farin til Ástralíu. Afkomendur
Gulla og Lilju í Ástralíu eru nú
36.
Eftir 21 árs fjarveru komu
þau til Íslands til árs dvalar en
fjarvera frá börnum og fjöl-
skyldum var þeim erfið og
styttu þau dvölina í fjóra mán-
uði. Þau voru búin að skipu-
leggja aðra ferð til Íslands nú í
sumar og ættingjar hlökkuðu
mikið til að hitta þau en ferðin
breyttist í mun lengri ferð hjá
Gulla við fráfall hans eftir stutt
veikindi.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem)
Við kveðjum elskulegan
bróður og móðurbróður með
miklum söknuði og hann mun
alltaf eiga stóran stað í hjarta
okkar. Við sendum Lilju og
fjölskyldu innilegar samúðar-
kveðjur. Biðjum góðan Guð að
vaka yfir þeim og vernda.
Erla, Sólveig og
systrabörn.
Látinn er móðurbróðir minn,
Gunnlaugur Oddsen Gunn-
laugsson, í Stanthorpe í
Queensland. Gulli, eins og hann
var alltaf kallaður, ólst upp í
vesturbænum í Reykjavík en
hóf síðar búskap með eiginkonu
sinni, Lilju Snæbjörnsdóttur í
Sandgerði. Ég man eftir heimili
þeirra í Hátúni þar sem þau
bjuggu ásamt börnum sínum
fjórum, Sædísi, Ingu, Erlu og
Gulla Pálma en þau voru öll á
svipuðum aldri og við systkinin
og því vinsælt að heimsækja
þau og alltaf fengum við mjög
hlýjar móttökur.
Á árinu 1968 var aflabrestur
og gengisfellingar í kjölfarið.
Aukið atvinnuleysi varð til þess
að margir Íslendingar ákváðu
að freista gæfunnar í Ástralíu
og þar á meðal Gulli og Lilja.
Mér er mjög minnisstæð
kveðjustundin, sem var okkur
krökkunum erfið, því þrátt fyr-
ir ævintýraljómann af því að
þau væru að flytjast til fjar-
lægrar heimsálfu þá lá það líka
í loftinu að það gætu liðið mörg
ár þar til endurfundir yrðu.
Samskiptum var haldið við
fyrst og fremst með árlegum
jólakortum og myndum þar
sem mjög dýrt var þá að
hringja til Ástralíu. Gulli og
Lilja fluttust oft á milli staða í
leit að nýjum atvinnutækifær-
um þannig að það var farið að
grínast með það á Íslandi fyrir
hver jól hvort að þau væru ekki
örugglega komin með nýtt
heimilisfang. Það má segja að
Gulli hafi verið ævintýramaður
í sér, alltaf tilbúinn að prófa
eitthvað nýtt. Marga í fjöl-
skyldunni á Íslandi langaði að
heimsækja Gulla, Lilju og
börnin í Ástralíu en fáir létu
verða af því enda um 17 þúsund
km vegalengd að ræða. Móð-
ursystir mín, Dagmar, fór þó
þrisvar í heimsókn og Erla
móðursystir mín einu sinni og
tóku þær mikið af myndum á 8
mm filmu sem öll fjölskyldan
naut góðs af.
Árið 1989 komu þau Gulli og
Lilja í heimsókn til Íslands í
boði Aðalheiðar og Georgs,
systur og mágs Gulla, en gamla
Ísland togaði alltaf í þau. Við
komu þeirra til Íslands urðu
miklir fagnaðarfundir eftir 21
árs fjarveru frá Íslandi. Ætlun
þeirra var að dvelja eitt ár á Ís-
landi en börnin og barnabörnin
í Ástralíu toguðu í þau og héldu
þau sátt heim á leið eftir 4
mánaða dvöl – heimahagarnir
lágu nú í Ástralíu.
Á síðastliðnu ári varð Gulli
áttræður og fengu þau Lilja
flugmiða til Íslands í afmæl-
isgjöf frá börnum sínum og
barnabörnum. Fjölskyldan á
Íslandi var farin að hlakka til
endurfundanna nú í sumar en í
mars síðastliðnum fengum við
þær sorglegu fréttir að Gulli
væri orðinn alvarlega veikur.
Því miður náði hann ekki að
heimsækja sitt gamla föðurland
aftur. Eftir 44 ára búsetu Gulla
og Lilju í Ástralíu hefur stór
ættbogi skotið þar rótum. Von-
andi gefst okkur, frænkum og
frændum, tækifæri á að kynn-
ast betur í náinni framtíð.
Ég minnist móðurbróður
míns sem brosmilds og hlýlegs
frænda með stríðnisglampa í
augum. Fallinn er frá góður
drengur en góðar minningar
lifa. Ég og börnin mín, Sóley
María og Einar Páll, sendum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur yfir hálfan hnöttinn til
Lilju, Ingu, Erlu, Gulla Pálma
og allrar fjölskyldunnar.
Sigríður Einarsdóttir
og fjölskylda.
Gunnlaugur
Oddsen
Gunnlaugsson
Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Gjótuhrauni 8, 220 H fnarfirði Sími 571 400 ranit@granit.is
Mikið
úrval Allir legsteinar
á kr. 75.000,-
Miðhra n 22 b, 210 G ð bæ, í i 571 4 0 granit granit.is