Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 40

Morgunblaðið - 01.06.2012, Síða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Garðar Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hreinsanir, úðanir og allt annað sem við kemur garðinum þínum. Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð og umfram allt hamingjusamir viðskiptavinir. 20% afsláttur eldri borgara. Garðaþjónustan: 772-0864. Ferðalög Frí rúta-Humarhlaðborð - Vorferð Frí rúta fyir hópa, 30 plús á humar- hlaðborð, Humarveitingastaðurinn Hafið Bláa Aðeins 35 mín. frá Reykjavík Sími 483 1000 - www.hafidblaa.is Gisting Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið náttúrufegurðar Dýrafjarðar. Orlofsíbúðir til leigu og hótelgisting. Sími 456 1600. gisting@hotelsandafell.com Sumarhús Sumarhúsalóðir í Vaðnesi Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes- og Grafningshreppi. Allar nánari upplýsingar í síma 896-1864. Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir - réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300 til 50.000 lítra. Lindarbrunnar. Borgarplast.is Mosfellsbæ. S. 561 2211. 9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði – fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.900,- www.kofaroghus.is – s. 857-7703. Lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir Til sölu eignarlóðir í Grímsnesi. Stærðir 5800 fm-8700 fm, gott verð. 75 km frá Rvík. Uppl. sími 8629626 - 8683592 - lyngborgir.is. Sumarhúsalóðir í Kjósinni Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsingar á www.nordurnes.info og í símum 561 6521 og 892 1938. Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tómstundir Fótboltaspil 120cm Flott fyrir heimili og í sumar- bústaðinn. Kr. 38.100. Fínt að reisa upp eftir notkun, kemst alls staðar fyrir . www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Til sölu Finnsbúð 15, Þorlákshöfn Til sölu skemmtileg eign í Þorlákshöfn. Stutt er í skóla og aðra þjónustu. Um er að ræða hús sem er byggt 2005. Raðhús sem er 150 fm að stærð, innangengt er í bílskúr sem er 30 fm. Upplýsingar í síma 899 0452. Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897 9809. Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar Látið fagmenn okkar nostra við garðinn þinn. Öll almenn garðþjónusta á einum stað. 577 4444 www.gardalfar.is Bátar Galeon 610 Mjög vel með farinn 5,9 m með Yamaha F150 (150hp) og kerru til sölu. 5,9 milljónir. Sími 894 9757. sharppc1500@hotmail.com http://www.flickr.com/pho- tos/55033696@N02/sets/721576298 59539710/ Vörubílar Bíll til sölu Man 35 - 430. Árg. des. 2004. Ekinn 143 þús. Álpallur, loftpúðar aftan, smurstöð, góð dekk, dráttarkrókur, rafdrifið segl. Leyfileg hlassþyngd tæp 20 tonn. Mjög góður bíll. Tilboð óskast. Einn eigandi, sími 893 7065. Bílar óskast Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is bílasala ...í bílum erum við sterkir! ☎ 562 1717 Skráðu bílinn þinn frítt hjá bilalif.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Tilboð á dekkjum 155 R 12 kr. 6.900. 135 R 13 kr. 5900. 165 R 13 kr. 6.900. 155 R 13 kr. 7.900. 165/70 R 13 kr. 7.900. 185/70 R 13 kr. 7900. Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Kebek - Nama heilsársdekk Pakkatilboð 4 dekk + vinna 185/55 R 14 kr. 59.600 195/65 R 15 kr 54.400 205/65 R 16 kr. 71.000 215/55 R 16 kr. 75.400 205/50 R 17 kr. 75.600 215/55 R 17 kr. 82.400 235/45 R 17 kr. 85.560 225/55 R 17 kr. 95.600 225/65 R 17 kr. 97.160 Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Blacklion sumardekk - pakkatilboð 195/65 R 15 kr. 52.900. 205/55 R 16 kr. 63.000. 4 dekk + vinna. Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði (á móti Kosti), Dalvegi 16 b Kópavogi, s. 544 4333. Rýmingarsala á vörubíladekkjum 315/80 R 22.5 75.000 + vsk. 13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk. 425/65 R 22.5 kr.78.885 + vsk. 1100 R 20 kr. 39.500 + vsk. 1200 R 20 kr. 39.500 + vsk. 205/75 R 17 kr. 23.745 + vsk. 8.5 R 17.5 kr. 34.900 + vsk. .Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi fannar@fannar.is - s. 551-6488 Bílavörur Við bróðurbörn Guðrúnar Árnadótt- ur kölluðum hana í æsku alltaf Nunnu. Hún var ströng og ákveð- in en ákaflega hjartahlý frænka. Einhverju sinni vorum við í heim- sókn á Barónsstígnum og lá mik- ið á að fara heim til Keflavíkur og ég gleymdi að kveðja Nunnu og Ásmund, ég var minntur á það næst er ég kom á Barónsstíginn hvort ég ætlaði að kveðja núna. Eftir það gleymdist aldrei að kveðja þau. Þegar við systkinin eltumst breyttist Nunnu-nafnið í Gunnu, hún lét sér það í léttu rúmi liggja á meðan við vorum ung. En þegar hún komst að því að félagar mínir og vinir kölluðu mig Kidda var hún ekki alveg sátt við það og taldi að ég ætti ekki að leyfa nein- um að uppnefna mig heldur halda mig við þau nöfn sem ég var Guðrún Árnadóttir ✝ Guðrún Árna-dóttir fæddist á Stórahrauni, Eyrarbakkahreppi, Árnessýslu 3. júní 1916. Hún lést 8. maí 2012. Guðrún var jörðuð í kyrrþey 15. maí 2012. skírður, eftir það kallaði ég hana aldr- ei annað en Guð- rúnu. Ég bjó í kjallar- anum á Baróns- stígnum meðan ég stundaði nám í Reykjavík um 5 ára skeið. Þar kynntist ég hversu miklir heimsborgarar þau hjónin voru en þó enn meiri Íslendingar. Sannkall- aðir sælkerar á lífið og tilveruna. Á Barónsstígnum voru þjóðmálin rökrædd og skipst á skoðunum um menn og málefni. Rabarbar- agrauturinn var oft súr og með miklum rjóma. Eitt af því mik- ilvæga sem Guðrún kenndi mér var að lífið væri miklu meira ef maður lifði því lifandi og tæki þátt í samfélaginu og gerði gagn. Takk fyrir lífið og vináttuna og vertu blessuð, Guðrún. Kristinn Þór Jakobsson. Guðrún Árnadóttir hjúkrunar- kona kvaddi þennan efnisheim 8. maí síðastliðinn. Mig langar að minnast hennar, má segja að ég hafi fengið hana í arf, því hún var vinkona móður minnar. Ég öf- undaði mömmu af þessari vin- konu sem ég horfði á í æsku með lotningu því hún var einstaklega skýr með mikið höfuðljós og lit- ríka sólaráru. Svo þegar móðir mín kvaddi þetta jarðlíf urðum við vinkonur. Þótt hún væri 20 árum eldri en ég var það enginn munur því hún var svo ung í anda, forvitin og kát. Sumarið 1986 er hún var um áttrætt bauð hún mér í bíltúr austur í Lón með viðkomu á Höfn í Hornafirði. Hún vildi sýna mér gott fólk og huldufólk, en þar var krökkt af alls konar huldum ver- um. Það eru ekki margir sem bera virðingu fyrir innri víddum náttúrunnar. Nú er hún komin inn í þessa ljósheima og getur endurnýjað kunningsskapinn. Takk fyrir vináttuna, góða ferð, kæra Guðrún Erla Stefánsdóttir. Látin er öldruð vinkona okkar, Guðrún Árnadóttir hjúkrunar- kona. Kynni okkar hófust þegar við komum í heimsóknir hjá skyldfólki í nýbyggðum sum- arbústað austur í Grímsnesi um 1980. Nágrannar í einum af næstu bústöðum voru Guðrún og eiginmaður hennar, Ásmundur Sigurðsson. Báðar þessar fjöl- skyldur voru frumbyggjar í sum- arhúsahverfi austan Sogsins í landi Norðurkots. Guðrún og Ás- mundur byggðu sinn bústað uppi á hæð nálægt Kolgrafarhól og nefndu Kolgrafarkot. Guðrún frænka Guðjónsdóttir og Krist- ján Jóhannsson byggðu sinn bú- stað handan vegarins spölkorn frá og nefndu hann Ljósaland. Allt frá upphafi sumarhúsabú- skapar við byggingar- og rækt- unarstörf, var mikill samgangur milli þessara nágranna, þær nöfnur og eiginmenn þeirra áttu margt sameiginlegt og góður vin- skapur var með þessu fólki alla tíð. Guðrún og Ásmundur voru afar duglegt og afkastamikið ræktunarfólk og má glöggt sjá handarverk þeirra enn í dag, því öll sú stóra lóð sem umlykur bú- staðinn þeirra er þakin þéttum og hávöxnum skógi, sannkallaður unaðsreitur í skjóli trjágróðurs, runna og blómskrúðs. Húsið byggðu þau Ásmundur að mestu sjálf og hann hlóð eldstæðið góða, frá því barst hlýja og ylur sem einkenndi bústaðinn og húsráð- endur. Þegar við hjónin keyptum bú- stað frændfólksins í Ljósalandi, var Ásmundur látinn og var Guð- rún eftir það ein í sínum bústað. Undi hún hag sínum hvergi bet- ur, kom á vorin um svipað leyti og farfuglarnir og var fyrir austan allt sumrið og fram á haust, þeg- ar fuglar og upp komnir ungar flugu sína leið. Guðrún var einstök kona og einkar ljúfur nágranni, vinskapur okkar við hana hélst allan þann tíma sem hún treysti sér austur í Grímsnes. Við kölluðum hana „Guðrúnu á Hólnum“. Oft var komið við hjá henni, gjarnan bara til að kanna hvernig hún hefði það. Og hún kom yfir til okkar, stundum þegar aðstoðar eða greiðvikni var þörf. Hún var afar gestrisin og höfðingi heim að sækja. Þegar hún bauð okkur til sín var vel veitt í mat og drykk, ekki gleymist laxinn sem hún fékk beint frá Selfossbændum. Stundum þeginn kaffisopi og eitt- hvað gott með, oft dropi af góðri veig í glasi. Hún var heimsmann- eskja og aristókrat. Hafði yndi af ferðalögum, innan lands sem ut- an. Náttúruunnandi og umhverf- issinni, gekk á fjöll og jökla á yngri árum. Fjölfróð var hún og mundi tímana tvenna og þrenna, kunni frá mörgu að segja. Ákveð- in var hún í skoðunum og sagði sína meiningu um menn og mál- efni, umbúðalaust og gat kveðið fast að orði. Harðsnúin var hún í stjórnmálum, gallhörð vinstri- manneskja, hafði kynnst mörg- um stjórnmálamönnum á þeim tíma þegar Ásmundur vann að ýmsum landsmálum og sat á Al- þingi. Nú er Grímsnesdrottningin okkar búin að kveðja. Flogin suð- ur yfir heiði, og það á vordögum. Horfin til feðra sinna og mæðra. Hennar verður lengi saknað, ekki síst austur þar. Og seint munu gleymast minningarnar hlýju um einstaka heiðurs- og sómakonu, góðan og ljúfan granna. Ættingjum og fjölskyldu Guð- rúnar sendum við hugheilar sam- úðarkveðjur. Svanfríður og Njáll. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um inn- sendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðs- lógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minning- argreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær út- förin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um for- eldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.