Morgunblaðið - 01.06.2012, Side 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012
Ég verð með smávegis veislu með um 30 gestum, dönsurum ogöðrum góðum vinum,“ segir afmælisbarn dagsins, Þyri HuldÁrnadóttir. Hún er kvartaldar gömul í dag og ætlar að gera
vel við sig í tilefni dagsins. Hann mun byrja á gómsætum morgun-
mat með kærastanum, „ætli við fáum okkur ekki grískt jógúrt með
hunangi, jarðarberjum og bláberjum“. Þyri er dansari í Íslenska
dansflokknum, og líkar starfið vel. „Maður getur ekki ímyndað sér
neitt betra en að vinna við áhugamálið sitt. Ég vinn líka með frábær-
um hóp og það er alltaf gaman að mæta í vinnuna.“ Í sumar mun
Þyri breyta til og vinna við skapandi sumarstörf. „Ég og vinkona
mín, Rakel Jónsdóttir, munum í samstarfi við Rauða krossinn end-
urhanna gömul föt og benda fólki á nýtingarmöguleika í stað þess
að henda flíkunum.“ Þyrí er einstaklega lunkin saumakona og hönn-
uður og eyðir stórum hluta frítímans í að hanna flíkur. Hæfileik-
arnir spurðust út og skyrtur sem hún hannaði seldust eins og heitar
lummur. Aðspurð um eftirminnilegt afmæli er hún ekki lengi að
draga fram átakamikla minningu. „Í fyrra endaði afmælið með
danskeppni þar sem einn braut tönn og annar fékk skurð á hökuna.“
Áverkarnir hlutust að sögn Þyriar af tilraunum til að gera „orm-
inn“. Ekki þarf að spyrja að því hver stóð uppi sem sigurvegari,
„enda á náttúrlega að leyfa afmælisbarninu að vinna“, segir Þyri og
hlær. gudrunsoley@mbl.is
Þyri Huld Árnadóttir 25 ára
Fjölhæf Þyri Huld er atvinnudansari og hönnður í hjáverkum. Hún
er einnig mörgum kunn úr þáttunum Dans, dans, dans.
„Braut tönn í
danskeppni“
D
ana fæddist á Akureyri
og ólst þar upp og í Óð-
insvéum í Danmörku.
Hún var í Þelamerk-
urskóla, Humlehave
Skole í Óðinsvéum og Tornbjerg
Gymnasium í Óðinsvéum, stundaði
nám við Menntaskólann á Egils-
stöðum og lauk þaðan stúdentsprófi
1992, sinnti hestatamningum í Húna-
vatnssýslu í eitt ár, stundaði síðan
nám í dýralækningum við Den
Kongelige Veterinær- og Landbohøj-
skole í Kaupmannahöfn og lauk það-
an prófum í dýralækningum árið
2002.
Fluttu heim og keyptu jörð
Dana flutti til Svíþjóðar árið 2000
og starfaði þar við dýralækningar á
árunum 2002-2004. Auk þess sinntu
þau hjónin innflutningi og sölu á ís-
lenskum hestum í Danmörku og Sví-
þjóð á árunum 1996-2004.
Dana varð héraðsdýralæknir í
Austurlandsumdæmi nyðra 2004 og
gegndi því embætti til 2011 en hefur
síðan verið sjálfstætt starfandi dýra-
læknir á Iðavöllum á Fljótsdals-
héraði.
Dana og eiginmaður hennar, Guð-
röður, festu kaup á jörðinni Hrygg-
stekk í Skriðdal árið 2005 og hafa
stundað þar hrossarækt síðan. Þau
voru auk þess með um þrjú hundruð
fjár að Hryggstekk þegar mest var
en eru nú með um tuttugu fjár.
Hrossaræktin hefur þó allan tímann
verið þeirra aðalbúgrein.
Dana er í hestamannafélaginu
Breiðfaxa og meðlimur í Hrossarækt-
arsamtökum Austurlands.
Freydís Dana Sigurðardóttir dýralæknir 40 ára
Á fjórhjólinu Fjölskyldan í girðingarvinnu. Frá vinstri: Snorri, Bil, Guðröður, Salvör og Gunni frændi.
Dýralæknirinn Dana
Dana Dýralæknirinn, einbeitt á svipinn, í vinnunni.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Emma Ósk fæddist 16. júlí
kl. 9.27. Hún vó 3.820 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Ágústa Sig-
urlaug Guðjónsdóttir og Jón Kristinn
Ragnarsson.
Vestmannaeyjar Andrea fæddist 7.
nóvember kl. 18.51. Hún vó 3.910 g og
var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru
Kristjana Sif Högnadóttir og Ágúst
Sævar Einarsson.
Nýir borgarar
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Opnunartímar: Mánudaga til föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Smiðjuvegur 6 (rauð gata) // 200 Kópavogur // Sími 567 7777 // parketbudin.is
ÞAÐ DETTUR
ALLT Í DÚNALOGN
Heimsins besta parketundirlag
fæst nú á Íslandi
• Hentar bæði í fljótandi lögn og til
niðurlímingar
• Framúrskarandi kostur fyrir samlímt,
gegnheilt, eða harðparket
• 21db hljóðdempun milli hæða
• 33% dempun í rými
• Verndar og minnkar álag á allar
læsingar parkets eða harðparkets
• Mesta pressa sem um getur
eða 1/10 úr mm
• Dúkurinn er léttur, sterkur og
meðfærilegur í notkun
• Dúkurinn er einstaklega rakaþolinn
og þarf ekki rakaþolið plast undir
The FloorMufflertm er verkfræðilegt undur,
hannað til að mæta og fara fram úr kröfum
markaðarins um hljóðdempun og pressu.
KYNNINGARTILBOÐ Á FLOORMUFFLER
Tilboðsverð: 790 kr. pr. m2
Fullt verð: 1.313 kr. pr. m2
Meðan birgðir endast