Morgunblaðið - 01.06.2012, Side 43

Morgunblaðið - 01.06.2012, Side 43
ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2012 Hross, náttúran og bókmenntir Dana segist hafa áhuga á hrossa- rækt, náttúru Íslands og bók- menntum: „Við hjónin höfum verið að atast í hrossum frá 1996. Þegar við festum kaup á jörðinni Hryggstekk, keyptum við auk þess rækt- unarhross. Þá var eiginlega ekki aft- ur snúið. Maðurinn minn hefur svo auk þess stundað tamningar og verið knapi á mótum en ég hef í raun haft meira en nóg að gera í dýra- lækningunum.“ „Við ferðumst líka mikið um landið, einkum á sumrin, og ætlum að fara í „Víkurnar“ nú í sumar, eyðivíkur milli Loðmundarfjarðar og Borgar- fjarðar eystri.“ „Síðan les ég reiðinnar býsn, eink- um þjóðsögur og um afrek, slysfarir og íslenska þjóðhætti fyrri tíma. Ég er alltaf jafn gáttuð á því hvernig þessi þjóð náði að lifa af þær hremm- ingar sem hún gekk í gegnum á öldum áður.“ Fjölskylda Dana giftist 10.7. 1998 Guðröði Ágústssyni, f. 12.4. 1966, hrossarækt- arbónda og hestamanni. Hann er son- ur Ágústar Guðröðarsonar, f. 24.10. 1944, bónda á Sauðanesi á Langanesi, og Erlu Bil Bjarnardóttur, f. 12.4. 1947, umhverfisstjóra í Garðabæ. Börn Dönu og Guðröðar eru Snorri Guðröðarson, f. 28.11. 1997, nemi; Bil Guðröðardóttir, f. 14.2. 2006; Salvör Guðröðardóttir, f. 11.10. 2008. Albróðir Dönu er Hlynur Atli Sig- urðsson, f. 26.6. 1973, fram- kvæmastjóri ISAVA, búsettur í Hafnarfirði. Hálfbróðir Dönu, samfeðra, er Sig- urður Gísli Sigurðsson, f. 22.4. 1987, búsettur í Tyrklandi. Hálfbræður Dönu, sammæðra, eru Óttar Árnason, f. 4.6. 1982, starfs- maður við álverið á Grundartanga, búsettur í Reykjavík; Elmar Árna- son, f. 1.4. 1984, framkvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík; Birkir Árnason, f. 2.5. 1986, sjómaður, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Dönu eru Sigurður Gíslason, f. 20.12. 1949, fyrrv. vinnu- vélastjóri, búsettur á Egilsstöðum, og Salvör Jósefsdóttir, f. 19.2. 1955, skólaliði, búsett í Garðabæ. Stjúpfaðir Dönu er Árni Ómar Jó- steinsson, f. 21.10. 1958, starfsmaður hjá Mannviti. Úr frændgarði Freydísar Dönu Sigurðardóttur Salvör Jónsdóttir húsfr. í Rvík. Niels Pedersen verkam. í Rvík. Tryggvi Stefánsson skósm. á Akureyri Sigrún J. Trjámannsdóttir húsfr. á Akureyri Helga Gísladóttir húsfr. á Hvammst. Marensius Johannesson í Þrándheimsf. í Noregi Anna Olava Myhr húsfr. í Þrándheimsf. Freydís Dana Sigurðardóttir Sigurður Gíslason fyrrv.vinnuvélastj. á Egilsst. Salvör Jósefsdóttir húsfr. Jósef Tryggvason b. á Þrastarhóli Vilborg Pedersen húsfr. á Þrastarhóli Elise Hustad húsfr. á Akureyri Gísli Eiríksson viðgerðarm. á Akureyri Eiríkur Hjartarson verslunarm. á Hvammst. Jón Hjartarson Alþingisvörður Jóhanna G. Frímanns frá Brunnastöðum Hjörtur Jónsson form. Kaupmannasamt. Ísl. Sigurður Hjartarson í Olympíu Tryggvi Ófeigsson útgm. Páll Ásgeir Tryggvason sendiherra Hörður Zóphaníasson fyrrv. skólastj. Ólafur Þ. Harðarson prófessor Tryggvi Harðarson fyrrv. sveitastj. Hryssa og folald Hæra frá Ásmund- arstöðum og Herma frá Hryggstekk. Dana Hér er dýralæknirinn kominn úr vinnugallanum og uppáklædd. 95 ára Katrín Sæmundsdóttir 90ára Auður Ingvarsdóttir 85 ára Sigurður Ólafsson Tryggvi Björnsson 80 ára Auður Guðbrandsdóttir Sigursteinn Húbertsson 75 ára Auður Guðjónsdóttir Jón Guðmundsson Sveinn Guðmundsson 70 ára Guðlaug Óskarsdóttir Gunnhildur H. Hjörleifs- dóttir Hans B. Guðmundsson Hreinn Pálsson Jón Þorsteinn Gíslason Kristín Björnsdóttir Ríkey Ingimundardóttir Skúli Skúlason 60 ára Gerður Garðarsdóttir Guðmunda B. Þórhallsdóttir Guðmundur B. Hólm- steinsson Gunnar Pálsson Ingvi Ómar Meldal Jóhann Jónsson Jörundur Sveinn Torfason Kristinn Dagsson Kristrún Böðvarsdóttir Margrét Stefánsdóttir Matthías H. Angantýsson Svavar Jóhannsson 50 ára Axel Gíslason Ásta Sigurðardóttir Björn Antonius Erlingsson Elín Magnúsdóttir Friðjón Hraundal Halldórsson Hafdís Aðalsteinsdóttir Jóhanna Sigurðardóttir Kristján J. Guðmundsson Margrét Árdís Ósvaldsdóttir Sólveig Kjartansdóttir Steinunn Þorkelsdóttir Valdimar Birgisson Þórdís Óladóttir 40 ára Ása Margrét Einarsdóttir Elín Helena Petersdóttir Erlendur Svavarsson Freydís Dana Sigurðardóttir Georg Pétur Brekkan Guðmunda M. Guðmunds- dóttir Hafsteinn B. Sveinbjörns- son Hildur Gestsdóttir Inga Sóley Ágústsdóttir Ísabella Aniela Andrésdóttir Kjartan Friðrik Sal- ómonsson Linda Naabye Magnús Viðar Árnason Pétur Örn Bjarnason Rósa Mjöll Heimisdóttir Sigurður Rúnar Baldursson Vilberg Marinó Jónasson Xiuying Cui Ævar Örn Jónsson 30 ára Baldvin Reyr Smárason Guðrún Harpa Heimisdóttir Hanna Dögg Maronsdóttir Kristinn Guðjónsson Michal Wladyslaw Froese Til hamingju með daginn 30 ára Katla ólst upp á Sólheimum í Grímsnesi. Hún er nemi í kennslu- fræði við Háskóla Íslands. Maki Ágúst Óli Hróð- marsson, f. 1976, starfar sem áfengis- og vímu- efnaráðgjafi hjá SÁÁ. Börn Óli Gunnar, f. 2004, Einar Bragi, f. 2006, og Þóra Ingibjörg, f. 2007. Foreldrar Þorleifur Sí- vertsen, f. 1956, vinnur við umönnun fatlaðra á Sólheimum, og Helga Kristinsdóttir, f. 1955, starfar við blómarækt. Katla Sif Þorleifsdóttir 30 ára Ómar ólst upp í Keflavík og Hvalfirði. Hann er húsasmíðameist- ari og lauk B.Sc. í bygg- ingarfræði frá Vitusbering BTH-háskólanum í Hor- sens og er löggiltur mannvirkjahönnuður. Ómar starfar fyrir sveitar- félagið Hvalfjarðarsveit. Sonur Þorleifur Bjarni Höfðdal, f. 2002. Foreldrar Kristófer Þor- grímsson bifvélavirkja- meistari, f. 1949, og Ágústa Þorleifsdóttir, f. 1947, heimavinnandi. Ómar Örn Kristófersson Ingibjörg Jóhannsdóttir, skóla-stjóri Húsmæðraskólans áLöngumýri í Vallhólma í Skaga- firði, fæddist á Löngumýri 1. júní 1905. Hún var dóttir Jóhanns Sig- urðssonar, bónda á Löngumýri, og Sigurlaugar Ólafsdóttur húsfreyju. Ingibjörg átti því láni að fagna að hljóta haldgóða menntun af hendi for- eldra sinna en þau voru dugleg að beina börnum sínum á mennta- brautina. Faðir Ingibjargar starfaði sem kennari áður en hann gerðist bóndi í Skagafirði. Ingibjörg sótti nokkur námskeið í garð- og skógrækt áður en hún fór til Reykjavíkur í Kvennaskólann. Þar þurfti hún einungis að sitja einn vetur því hún kom ákaflega vel undirbúin. Ingibjörg lauk kennaraprófi 1936. Ingibjörg fór í námsferð til barna- og húsmæðraskóla í Noregi og Svíþjóð 1938. Þá stundaði hún nám við Hús- mæðrakennaraskóla Noregs og síðar í Danmörku og Þýskalandi. Ingibjörg er verðugur fulltrúi þeirra kvenna af aldamótakynslóð- inni sem einsettu sér ungar að vinna að menntun kynsystra sinna og ryðja braut nýjum viðhorfum í hússtjórn er lutu að auknum þrifnaði, mat- jurtaræktun og fjölbreyttari fæðu. Ingibjörg tók áskorun Jónasar frá Hriflu, þáverandi kennslumálaráð- herra, að taka að sér starf skólastýru við Húsmæðraskólann á Staðarfelli árið 1937. Ingibjörg þótti standa sig með mikilli prýði í þau sjö ár sem hún stýrði skólanum. Á lýðveldisárinu 1944 flutti hún aft- ur heim að Löngumýri og stofnaði Húsmæðraskóla og var skólastjóri hans til 1967. Þar þurfti hún að byrja alveg frá grunni því aðbúnaðurinn var enginn. Oft gekk erfiðlega að fá styrki og reyndi hún að mæta þeim kostnaði sjálf eftir fremsta megni. Mikil aðsókn var í skólann og útskrif- uðust um 700 stúlkur í hennar tíð. Ingibjörg var formaður Skógrækt- arfélags Skagfirðinga, Kvenfélags Seyluhrepps og gjaldkeri Kven- félagasambands Skagafjarðar um skeið. Hún skrifaði töluvert í blöð og tímarit, aðallega um uppeldis- og skólamál. Ingibjörg lést 9. júní 1995. Merkir Íslendingar Ingibjörg Jó- hannsdóttir 30 ára Þórhalla fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hún starfar sem verk- fræðingur hjá Össuri. Hún nam hátækniverkfræði í HR. Maki Björn Ólafur Ingv- arsson, f. 1969, starfar hjá CCP sem engineering manager. Börn Högni Snær, f. 2002, Ingvar Leó, f. 2008, og Ylfa Margrét, f. 2011. Foreldrar Helga Aust- mann Jóhannsdóttir, f. 1952, og Hörður Alberts- son, f. 1953. Þórhalla Aust- mann Harðardóttir Grandagarði 8 | Sími: 862 9010 | kokkurinn@kokkurinn.is veisluþjónusta hinna vandlátu Kokkurinn hjálpar þér að halda hina fullkomnu veislu Árshátíðir Brúðkaup Erfidrykkjur Fermingar Fundir Kynningar Þema kokkurinn.is Ferskur fiskur öll hádegi í Víkinni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.